Morgunblaðið - 22.05.1992, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 22. MAI 1992
Frumvarp um skattlagningu eignatekna:
Gæti valdið óróa á pen-
mgamarkaði strax í haust
- segir formaður stjórnar Samtaka fjárfesta
SAMTÖK fjárfesta gagnrýna
mjög frumvarp um skattlagningu
eigna og eignatekna, sem fjár-
málaráðherra hefur lagt fram til
kynningar. Stjórnarformaður
samtakanna spáir að frumvarpið
muni valda óróa á peningamark-
aði með haustinu.
„Framkomið frumvarp með fylgi-
gögnum ber með sér að hér er á
ferðinni mjög efnismikið og marg-
slungið mál,“ sagði Sigurjón As-
björnsson formaður stjórnar Sam-
taka fjárfesta. „Af einstökum atrið-
um má benda á, að eignarskatturinn
er enn fyrir hendi. Þrátt fyrir tillög-
ur um frítekjumark óttast samtökin
því að stjórnvöld muni halda áfram
innheimtu eignarskatts og þegar frá
líður hækka skatthlutfallið aftur í
núverandi horf.
Þá er fyrirhuguð niðurfelling
skattfrádráttar vegna hlutabréfa-
kaupa óráðleg, þar sem slíkt mun
draga enn frekar úr möguleikum
íslenskra fyrirtækja til að styrkja
eiginfjárstöðu sína, ekki síst þar sem
ísienskt atvinnulíf hefur verið í lægð
og þarf nú mjög á þátttöku almenn-
ings í formi hlutafjárkaupa að halda.
Fyrir alla sparifjáreigendur eru það
geysileg vonbrigði að þessi ríkis-
stjórn, sem spariijáreigendur höfðu
almennt talið vera hliðholla sparnaði
og ráðdeild, skuli nú birta frumvarp
sem þetta með þeim flýti sem raun
ber vitni, sérstaklega þegar tillit er
tekið til aðstæðna í þjóðfélaginu,“
sagði Siguijón.
I greinargerð með frumvarpinu
eru rök færð fyrir því að sá skattur
á fjármagnstekjur, sem þar er gert
ráð fyrir, komi mjög lítið við al-
menna spariijáreigendur, m.a. vegna
þess hve frítekjumark sé rúmt, og
ætti því ekki að þurfa að hafa vaxta-
hækkun eða samdrátt í sparnaði í
för með sér. Um þetta sagði Sigur-
jón að samtökin teldu frítekjumarkið
vera allt of lágt og að nefndin, sem
samdi frumvarpið, gæfi sér allt of
fqálsar forsendur um viðbrögð á
peningamarkaðnum. „Við teljum að
Softis hf;
Viðræður
hafnar um
sölu á Louis
SOFTIS hf. hefur hafið viðræður
við bandarísk hugbúnaðarfyrir-
tæki um sölu á Louis-hugbúnaði,
sem Softis hefur sótt um einka-
leyfi á í Bandaríkjunum. Ekki er
gert ráð fyrir að niðurstaða fáist
fyrr en eftir nokkra mánuði. Full-
trúar Softis hafa verið í Banda-
ríkjunum síðustu vikur og sýnt
Louis og fengið jákvæðar viðtökur
að sögn stjórnarformanns fyrir-
tækisins.
JÓhann Pétur Malmquist stjórn-
arformaður Softis vildi ekki upplýsa
hvaða fyrirtæki Softis væri að ræða
við. Hins vegar sagðist hann vera
mjög ánægður með þann árangur
sem náðst hefði í Bandaríkjunum
undanfarið. Sérstaklega hefðu við-
tökur verið góðar á sýningu á vegum
Apple-fyrirtækisins um miðjan þenn-
an mánuð, sem Softis tók þátt í. Um
hefði verið að ræða sýningu á for-
ritunartólum í tengslum við ráð-
stefnu fyrir aðila sem þróa tölvubún-
að.
Louis-hugbúnaðurinn einfaldar
mjög forritun og gerir einnig kleift
að flytja vinnsluforrit milli mismun-
andi notendaumhverfa. Nokkur forrit
með sömu markmið hafa undanfarið
verið sett á markað. Þegar þetta var
borið undir Jóhann sagði hann að
ekkert þessara forrita byði upp á
sömu lausnir og Louis og ekki næðist
jafn víðtækur árangur með þeim.
það verði örugglega töluverð við-
brögð og þetta frumvarp muni þegar
valda óróa hér á peningamarkaði
með haustinu," sagði Siguijón.
í greinargerðinni eru einnig færð
þau rök fyrir skatti á eignatekjur
að annars búi þegnar þjóðfélagsins
ekki við jafnræði í skattlagningu.
„Okkur finnst réttlætissjónarmiðið
eðlilegt. Við teljum í lagi að huga
að skattlagningu þegar hér hefur
myndast langvarandi sparnaður og
jafnvægi í efnahagslífinu, eins og er
í helstu viðskiptalöndum okkar. Þar
er eiginfjárstaða atvinnufyrirtækj-
anna sterk en eiginfjárstaða ís-
lenskra fyrirtækja er mjög veik og
efnahagsumhverfið sveiflukennt. Því
er um mikla einföldun að ræða, að
bera okkur saman við önnur OECD-
lönd eins og gert ér í röksemda-
færslu nefndarinnar sem samdi
frumvarpið," sagði Siguijón Ás-
björnsson.
Þyrla sótti
slasaðan
sjómann
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar
sótti slasaðan sjómann langt á
haf út í gærmorgun. Sjómaður-
inn hafði skorist illa á fæti.
Landhelgisgæslunni barst beiðni
um hjálp frá togaranum Víði EA
910 um klukkan 3 í fyrrinótt. Þá
var skipið svo langt úti, að þyrlan
náði ekki til þess. Hún lagði hins
vegar af stað til móts við Víði kl.
4.05. Fljúga varð 130 sjómílur, enda
skipið enn djúpt út af Breiðafirði.
Greiðlega gekk að ná sjómanninum
um borð í þyrluna, sem lenti við
Borgarspítalann í Reykjavík kl.
6.50.
VIÐ BJOÐUM
YKKUR VELKOM
í NÝJAN OG
GRÓSKUMIKINN
BÚNAÐARBANKA
Föstudaginn 22. maí
og mánudaginn
25. maí tökum við á
móti Kópavogsbúum
með kaffi og kökum,
gosdrykkjum og
góðgæti.
Tilefnið er sannarlega ánægjulegt:
Vorið 1991 efndi Búnaðarbankinn
til samkeppni um nýtt útlit og
skipulag í afgreiðslusölum bankans.
GRÓSKA, tillaga Sigurðar Einars-
sonar og Jóns Ólafs Ólafssonar, bar
sigur úr býtum og nú verður þessi
glæsilega hönnun „frumsýnd" hjá
okkur í nýjum afgreiðslusal að
Hamraborg 9.
Hugmyndin að GRÓSKU er sótt í íslenska flóru
hreinleika og náttúrufegurð landsins.
Komið í heimsókn og njótið
með okkur GRÓSKU Búnaðarbankans.
Paddington kemur í
heimsókn kl. 11.00 og 14.00.
BUNAÐARBANKINN
- Traustur banki
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA