Morgunblaðið - 22.05.1992, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1992
7
Fornleifanefnd:
fjögur leyfi til að
grafa upp í sumar
FORNLEIFANEFND hefur veitt
leyfi til að grafa upp eftir forn-
minjum á Bessastöðum á Álfta-
nesi, á Stöng í Þjórsárdal, á Hof-
stöðum í Mývatnssveit og í Viðey
i sumar. Guðmundur Olafsson,
fornminjavörður, segist reikna
með að umsókn um fornleifaupp-
gröft í landi Hofsstaða í Garðabæ
verði tekin fyrir á næsta fundi
fornleifanefndar í júní.
Guðmundur sagði að stefnt væri
að því að grafa upp á tveimur stöðum
á vegum Þjóðmiftjasafns í sumar.
Annars vegar væri um að ræða
áframhaldandi uppgröft á Bessa-
sstöðum og stæðu yfir viðræður milli
þjóðminjaráðs og Bessastaðanefndar
um kostnaðarhlið verksins. Hins veg-
ar væri um að ræða uppgröft í landi
Hofsstaða í Garðabæ en ekki hefði
verið veitt leyfi til hans enn sem
komið væri. Verið væri að vinna að
kostnaðaráætlun og umsókn yrði
sennilega tekin fyrir á næsta fundi
fornleifanefndar í júní.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson,
fornleifafræðingur, hefur fengið leyfi
til að grafa upp á Stöng í Þjórsárdal
og Árbæjarsafn til að halda áfram
rannsóknum í Viðey. Ennfremur mun
Adolf Friðriksson, fornleifafræðing-
ur, standa fyrir uppgrefti á Hofstöð-
um í Mývatnssveit.
>
Morgunblaðið/Sverrir
Vordagar
í Granda-
skóla
Vordagar hófust í
Grandaskóla í
Reykjavík í gær-
morgun. Á vordög-
um skólans vinna
nemendur að marg-
víslegum verkefn-
um. Þessi hópur var
að fást við gróður-
setningu, þegar
ljósmyndara
Morgunblaðsins
bar að.
Listahátíð í Bergen:
VINSÆLI FJOLSKYLDUBILLINN
Heimsókn
forseta lokið
MITSUBISHI
HEIMSÓKN forseta íslands, frú
Vigdísar Finnbogadóttur, á hina
árlegu Menningar- og listahátíð í
Bergen í Noregi, lauk í fyrradag
með hádegisverði í Hákonshallen
í boði Haralds Noregskonungs.
Heimsókn forseta á Listahátíðina
hefur vakið mikla athygli í Noregi,
að sögn Sveins Björnssonar forseta-
ritara, enda Listahátíðin í Bergen
helsti menningarviðburður ársins þar
í landi, og dregur hún að sér lista-
menn og þátttakendur frá fjölmörg-
um löndum.
Islendingar láta mikið að sér kveða
á þessari stærstu menningarhátíð
Norður-Evrópu, en á þriðjudag opn-
aði Ólafur G. Einarsson menntamála-
ráðherra íslenska menningarviku
semjialdin er í sambandi við hátíð-
ina. Islenskar bókmenntir, listir, leik-
sýniiigar, kvikmyndir og íslensk
hönnun er meðal þess sem boðið er
upp á. íslandsvikunni lýkur á sunnu-
dag.
-----».♦- »---
Dreginn
vélarvana
til hafnar
MAÐUR á trillu lenti í vandræðum
út af Garðskaga í gærmorgun,
þegar vélin drap á sér vegna
óhreininda í olíusíu. Björgunar-
sveitirnar í Garði og Sandgerði
fóru út á bátum og komu trill-
unni, Unni EA, til hafnar.
Björgunarsveitin Sigurvon í Sand-
gerði var kölluð út um 5 í gærmorg-
un, en þá var trillan komin upp að
landi við Garðskaga. Skömmu síðar
hélt björgunarsveitin Ægir í Garði á
staðinn og setti út slöngubát. Trillan
var þá komin upp á sker skammt frá
landi. Ægir kom taug á milli trillunn-
ar og Sæbjargar, skips Sigurvonar,
sem dró trilluna til hafnar. Að sögn
Odds Jónssonar, varaformanns
björgunarsveitarinnar Ægis, gekk
greiðlega að koma tauginni á milli
og trillan virtist lítið sem ekkert
skemmd eftir barninginn á skerinu.
----'..»■-♦•'»------
> Handskiptur eða sjálfskiptur v> Framdrif eða sítengt aldrif >
Beinbrot í
vinnuslysi
KONA fékk opið beinbrot á hand-
legg í vinnuslysi á Smiðshöfða í
gær.
Slysið varð um kl. 14, við Smiðs-
höfða 5. Konan var að vinna við jarð-
bor, þegar hún festi handlegginn í
honum, með þeim afleiðingum að hún
fékk opið beinbrot.
> 12 ventla hreyflar með rafstýrðri fjölinnsprautun • >
HVARFAKÚTUR
MINNI MENGUN
MITSUBISHI
MOTORS
HEKLA
LAUGAVEG1174
SÍMI695500