Morgunblaðið - 22.05.1992, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1992
11991 útgdfon of mest lesnu bóh
londsins er homin út
Þú getur fengið símaskrána innbundna
fyrir aðeins 175 kr. aukagjald. Tryggðu
þér eintak á meðan upplag endist.
.Símaskráin er afhent á póst- og símstöðvum
um land allt gegn afhendingarseðlum, sem
póstlagðir hafa verið til símnotenda.
I Númerabreytingar sem ákveðnar hafa verið
s í tengslum við útgáfu símaskrárinnar og
•s tilkynntar hafa verið símnotendum fara fram
| laugardaginn 23. maí. Að þeim breytingum
s loknum hefur símaskráin að fullu tekið gildi,
þ.e. frá og með 23. maí nk.
Fyrir þá sem óska verður tekið við gömlu
símaskránni á póst- og símstöðvum á
höfuðborgarsvæðinu og á Suður nesjum.
Þá er einnig komin út ný Götu- og
númeraskrá yfir höfuðborgarsvæðið
og kostar hún kr. 1500.-
PÓSTUR OG SÍMI
Viö spörum þér sporin
Fallegur söngur
________Tónlist___________
Jón Ásgeirsson
Kór Fjölbrautaskóla Suður-
lands, undir stjórn Jóns Inga
Sigurmundssonar, hélt tónleika í
Langholtskirkju sl. miðvikudag.
Á efnisskránni voru íslensk og
erlend lög, m.a. Smávinir fagrir,
eftir Jón Nordal, Heyr himna-
smiður eftir Þorkel Sigurbjörns-
son, Úr útsæ rísa íslandsfjöll,
eftir Pál ísólfsson, Land míns
föður, eftir Þórarinn Guðmunds-
son, Manvísa eftir Pál P. Pálsson
og Átthagaljóð Inga T. Lárusson-
ar. Af íslenskum þjóðlögum voru
það ísland farsæla frón, Gloría
tibi og Vinaspegill. Af erlendu
lögunum var mest bragð af
finnska þjóðlaginu Hilu, hilu og
þýsku þjóðlagi sem frægast hefur
verið í búningi Jóhannesar
Brahms, en var hér sungið í nokk-
uð yfirhlaðinni en ágætri útsend-
ingu eftir Ríkharð Órn Pálsson.
Hveijum er söngur minn sunginn?
var frábærlega vel sungið og í
síðasta lagi tónleikanna, Sicut
locutus est úr Magnificat, eftir
J.S. Bach, sýndi kórinn að hann
getur tekist á við erfið verkefni.
Jón Ingi hefur oft áður leitt
saman ungmenni og fengið þau
til að syngja fallega og að þessu
sinni brást honum ekki „bogalist-
in“ því söngur kórsins er með því
fallegasta sem undirritaður hefur
heyrt, bæði hvað snertir radd-
gæði, jafnvægi á milli kven- og
karlradda og mótun laganna. Það
eina sem taka mætti til, var að
„endatónninn" var stundum ein-
um of stuttur, eða nákvæmur
samkvæmt nótunum, svo að sum
lögin vantaði hina mikilvægu
niðurlags andtakt. Þetta var samt
ekki til lýta og ef til vill nokkuð
sem tilheyrir stíltilfinningu söng-
stjórans og sérkennir stjórn hans.
Allar raddir kórsins eru mjög
góðar, sópraninn bjartur, altinn
þýður og það sem gefur þessum
kór sérstakan lit, umfram marga
aðra blandaða kóra, er fjöldi og
sönggæði karlaraddanna. Það er
engum vafa undirorpið að Jón
Ingi Sigurmundsson er einn af
okkar bestu söngstjórum.
Hirðmenn Þórs nefnist lítill
sönghópur innan kórsins og
sungu þau Yesterday og íslenska
þjóðlagið Ég af öllum háska hlæ,
í raddsetningu Hallgríms Helga-
sonar og var söngur þeirra í sama
gæðaflokki og söngur kórsins.
Nokkrir kórfélaga sungu einsöng
og sérstaka athygli vakti söngur
Kristjönu Stefánsdóttur. Krist-
jana söng af sérstökum þokka,
Sally gardens í raddsetningu
Brittens og Hvert örstutt spor,
barnagæluna frægu eftir Jón
Nordal. Ekki verður annað sagt
en að þar er á ferðinni efni í
góðan söngvara. Auk Kristjönu
sungu Sölvi Rafn Rafnsson, Odd-
geir Sigurðsson og einn af
kennurunum skólans. Ásmundur
Sverrir Pálsson, sem hefur verið
virkur kórfélagi frá upphafi. Kol-
brún B. Grétarsdóttir lék á píanó
og þverflautu en aðrir sem einnig
léku á hljóðfæri voru; Sigmundur
Páll Jónsson, Ólafur Unnarsson,
Sigmundur Sigurðarson og Vign-
ir Þór Stefánsson.
WOODEX VIÐARVÖRN
SKAGFJORÐ
n i m- J JJ s i\ j í> # ii v i j i jj
Kristján Ó. Skagfjörð hf. Umboðs- og heildverslun
*
WOODEX viðarvörnin frá Hygæa erfrábærlega endingargóð
og áferðarfalleg auk þess sem hún fellur vel að íslenskum
aðstæðum. Woodex fæst bæði sem grunn- og yfirborðsefni úr
acryl- eða olíuefnum.
WOODEX MULTITRÉGRUNNUR er vatnsblendin grunnviðar-
vörn á allt tréverk. Hann gengur vel inn í viðinn og eykur
stöðugleika hans og endingu.
WOODEX HYDRA er hálfþekjandi, vatnsblendin, lyktarlítil viðar-
vörn með Ijósþolnum litarefnum sem nota má úti sem inni.
WOODEX ACRYL er yfirborðsefni á allt tréverk. Það myndar
þunna en seiga og mjög veðrunarþolna húð. WOODEX ACRYL
þekur mjög vel og er iétt að vinna með.
WOODEX INTRA smýgur djúpt í viðinn og veitir góða vörn
gegn fúa, sveppum og raka. Góð grunnvörn.
WOODEX ULTRA er lituð en gagnsæ viðaravörn úr olíuefnum
sem nota má innanhúss sem utan.
Fæst í flestum málninga- og byggingavöruverslunum um allt land.
FYRIR AUGAO-
FYRIR