Morgunblaðið - 22.05.1992, Blaðsíða 38
I
38
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1992
l< IK f
fréttum
UPPATÆKI
Hefðbundin gifting
kom ekki til greina
Ekki er öll vitleysan eins, né er fólk al-
mennt sammála um það hvað er vitleysa
og hvað ekki. Á þetta við í brúðkaupum rétt
eins og öðrum uppákomum. Á myndinni sem
þessum línum fylgir eru þau Beth Shreves
og Mark Pastore frá Denver að gifta sig
þótt annað mætti ef til vill ætla. Víða, beggja
vegna Atlantsála, á það vaxandi vinsældum
að fagna að steypa sér úr mikilli hæð með
teygju eina mikla áfasta. Teygjan kippir fólki
hastarlega í loft upp á ný, í þann mund sem
það myndi ella skella á jörðina. Þykir þetta
spennandi mjög og ofurhugar flykkjast að
teygjunum sem útsjónarsamir peningamenn
hafa komið upp fyrir lítinn pening. Oft er
stokkið úr 20 til 30 metra hæð og reyna
þetta margir sem eru í leit að sjálfum sér.
Hvað þau Beth og Mark varðar, þá segjast
þau hafa verið saman í 10 ár og því ekki
komið til greina að láta hefðbundna giftingu Beth og Mark ganga í það heilaga.
duga. „Það hefði verið svo óspennandi,“ sagði
Beth og bætti við að þegar sú hugmynd kom
upp að hoppa af palli með teygju um sig, andi heldur en sjálft hjónabandið sem þau
hefði það ekki orkað á þau meira ógnvekj- voru að stofna til.
Glitberar Eyrarbakka 1992
Morgunblaðið/Óskar Magnússon
SKOLASTARF
Glitberar á
Eyrarbakka.
Bamaskólanum á Eyrar-
bakka var slitið í 139.
sinn föstudaginn 15. maí sl. Á
þessu starfsári stunduðu 94
nemendur við skólann í 1. til
10. bekk. Það var til nýmælis
í vetur að allan marsmánuð
starfaði danskur kennari við
skólann, sendur hingað okkur
að kostnaðarlausu frá vinabæ
Eyrarbakka í Danmörku, Ka-
lundborg. Árangri heimsókn-
arinnar er best lýst með orðum
kennarans, Maríönnu Fowler
Níelsen; að nemendur upp-
götvuðu að „dansk er et sprog
der tales“.
Samhliða slitum barnaskól-
ans fóru fram slit Eyrarbakka-
deildar Tónlistarskóla Árnes-
inga ásamt nemendatónleik-
um. Það er orðin hefð að slíta
báðum skólum samtímis.
Við skólaslitin fór fram af-
hending verðlauna til þeirra
bekkja skólans sem bestum
árangri náðu í að bera
endurskinsborða í skammdeg-
inu. Fengu nemendur 1., 2.
og 3. bekkjar pening, með ále-
truðu nafni sínu, ártali og
sæmdarheitinu glitberi. Slysa-
vamadeildin Björg gefur nem-
endum endurskinsborða og við
mætingu í skólann fer fram
skráning glitberanna. Fram-
angreindir bekkir náðu nær
100% árangri að þessu sinni.
Slysavarnadeildin færði að
þessu sinni öllum nemendum
í þrem yngstu árgöngunum
öryggishjálma við skólaslitin.
Hyggjast þeir framvegis gefa
yngstu nemendunum hjálma.
Barnaskólinn á Eyrarbakka
var settur í fyrsta sinn 25.
október 1852 og því verða lið-
in 140 ár frá fyrstu setning-
unni á komandi hausti.
- Oskar.
Söngfélag Skaftfellinga á tónleikum í Hofgarði í Öræfum.
Morgunbiaðið/Sigurður Gunnarsson
SÓNGUR
mm
Skaftfellingar á heimaslóðum
Hnappavöllum.
Félagar í Söngfélagi Skaftfellinga í Reykjavík lögðu land
undir fót fyrstu helgina í maí og heimsóttu heimaslóðir.
Söng kórinn vel ágæta efnisskrá undir stjóm Violetu Smid
við undirleik Pavel Smid.
Söngskemmtanir voru á Kirkjubæjarklaustri, Hofgarði í
Öræfum og í Mýrdal, en auk þess heimsótti kórinn dvalarheim-
ili aldraðra á Kirkjubæjarklaustri og í Vík og skemmti heimil-
isfólki þar með söng. - S.G.
skemmta
Opiðfrákl 19ti!03
-lofargóðu!
Hljómsveitin Sýn
leikur fyrir dansi í kvöld
Opiðfrákl. 19.00-03.00.
Snyrtilegur klæðnaður. Aðgangseyrir 500 kr.
í tilefni afmælis Siglufjarðar eru allir
Siglfirðingar sérstaklega velkomnir.
Munið sunnudagskvöldið
BARIW VIÐ (.KIÍiVSÁSVEGIiW • SÍMI 33311
KVOLD--
vimA
STJÖRNUHUÖIHSVEIT
GEIRMUNDAR
VALTÝSSONAR
HIN EINA OG SANNA SKAGFIRSKA SVEIFLA
HOTftgLAND
Miðasala og borðapantanir á Hótel íslandi
frá kl. 13-19, sími 687111.
Eyrarbakka