Morgunblaðið - 22.05.1992, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1992
43
„I Kverju hverfi er hús sem fullorðnir tola um og börn forðast." í þessari mynd fáum
við að kynnast hryllingnum sem leynist innandyra...
Aðalhlutverk: Brandon Adams, Everett McGill, Wendy Robie.
Leikstjóri: Wes Craven (Nightmare on Elm Streetj.
★ ★ ★ ★ L.A. Times
Sýnd í A-sal kl. 5,7, 9 og 11. - Bönnuð innan 16ára.
Skyggna kona
slátrarans
Kvikmyndir
Sæbjörn
Valdimarsson
Háskólabíó:
Komi slátrarans - “The
Butcher’s Wife“
Leikstjóri Terry Hughes.
Aðalleikendur Demi Mo-
ore, Jeff Daniels, George
Dzundza, Mary Steen-
burgen, Frances McDor-
mand. Bandarísk. Para-
mount 1991.
Einu sinni var ung og
fögur snót (Moore), ein-
hversstaðar á sjávarströnd
Suður-Karólínu. Var amma
búin að spá því fyrir stúlk-
ukindinni að mannsefnið
ætti eftir berast upp að
ströndinni og sjálf sá blóm-
arósin fyrir óorðna hluti,
trúði öinmu og beið spennt
á útkikkinu uppi í vita. Og
svo var það einn fagran
veðurdag í álandsstrekk-
ingi að getspeki þeirrar
gömlu rættist og úthafs-
aldan skolaði kærastanum
(Dzundza) - á órómantískri
gúmmítuðru að vísu - í
fang Suðurríkjadísarinnar.
Hétu þau hvort öðru eilífri
tryggð og héldu að svo
búnu norður á bóginn, þar
sem þetta ágæta vogrek
höndlaði með kjötmeti í
sinni sláturvörubúð.
Nú skyldi maður ætla
að þau hafi eignast börn
og buru og ævintýrið endað
á hefðbundinn hátt í sæluv-
ímu til æviloka. En ekki
aldeilis, þetta kom ekki allt
heima og saman. Slátrar-
inn réri nefnilega í spikinu
en konan hans sannkallað-
ur eðalblómi í flóru hins
fínlegasta yndisþokka. Og
skyggn í ofanálag - sem
fór fyrir brjóstið á slátrar-
anum sem vildi að hún héldi
sig frekar við spaðketið en
spádómana. Flutti dular-
gáfan þau bæði í fang sál-
fræðingsins handan göt-
unnar (Daniels) - sem bæði
var sætur og mjór ...
Þijár hæfileikaríkar og
fagrar leikkonur sem eru í
miklu uppáhaldi á þessum
bæ, Moore, Steenburgen
og McDormand, gera sitt
besta til að hafa ofanaf
fyrir áhorfandanum, en
aðstæðurnar eru ekkert
alltof hagstæðar. Myndin
nær sér sjaldan á strik,
atburðarásin oftast fyrir-
sjáanleg og seinnihlutinn
dæmalaust ófyndið uppá-
komugrín, sem aldrei ætlar
að takast að slá botninn í.
Reynt er að byggja upp
gamansemi í kringum sál-
fræðinginn en hún strand-
ar ekki síst á afleitum leik
Daniels sem helst hefur
sýnt tilþrif í hlutverkum í
The Purple Rose of Cairo
og Something Wild. En það
er mislukkaður
ófreskifarsinn sem fellur
flatastur. Hollywood hefur
áður gert betur um svipað
efni. Dzundza er vinalegur
kjötsali, enda maðurinn
góðmennskan uppmáluð.
Kvenpersónur myndarinn-
ar spjara sig þó efniviður-
inn sé ekki uppá marga
fiska og handritshöfundur-
inn þurfi jafnvel að gera
lesbíur úr tveim þeirra af
hreinræktuðu húmorsleysi.
Það liggur ekki ljóst
fyrir hverjum þessi undar-
lega gamansemi er ætluð.
Kona slátrarans sleppur
fyrir horn sem sauðmein-
laus gamanmynd þegar
best lætur og við skulum
vona að kvennablóminn fái
eitthvað bitastæðara að
fást við í framtíðinni.
Samkór TR.
Vortónleikar Samkórs TR
NÚ á Ári söngsins heldur
Samkór Trésmiðafélags
Reykjavíkur upp á tuttug-
usta starfsár sitt með vor-
tónleikum í Áskirkju
laugardaginn 23. maí kl.
16.
Stjórnandi kórsins er
Kjartan Ólafsson og for-
maður Magnús Ólafsson.
Gestakór á tónleikunum
verður Símakórinn, stjórn-
andi Kjartan Siguijónsson
og formaður Soffía Sveins-
dóttir.