Morgunblaðið - 22.05.1992, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
FOSTUDAGUR 22. MAI 1992
KNATTSPYRNA
Johan Cruyff þjálfari Barcelona er hetja þar í borg þessa dagana.
GOLF
Cmyff hetja í Barcelona
HOLLENSKI þjálfarinn hjá
Barcelona, Johan Cruyff, og
landi hans með stáltaugarnar,
varnarmaðurinn Ronald Koe-
man, geta nú andað léttar og
borið höfuðið hátt. Lið þeirra
er Evrópumeistari og nú fá
þeir félagar frið fyrir stuðn-
ingsmönnum liðsins sem hafa
heimtað Evróputitil. Ekki er
ólíklegt að Cruyff verði tekinn
í dýrðlingatölu meðal stuðn-
ingsmanna liðsins.
Barcelona hefur tvívegis leikið
til úrslita í Evrópukeppninni
en tapaði báðum viðureignunum.
Það hefur ekki skipt stuðnings-
mennina máli hversu marga titla
liðið hefur unnið heimafyrir — Evr-
óputitillinn varð að koma til Barcel-
ona til að hægt væri að líta á félag-
ið sem jafningja Real Madrid.
Mikilvægi sigursins sést ef til
vill einna best á þjálfaranum, Johan
Cruyff, en þessi dagfarsprúði mað-
ur sleppti sér gjörsamlega þegar
flautað var til leiksloka. Hann rauk
út á völlinn með trefil félagsins um
hálsinn, beint að landa sínum Ron-
ald Koeman og faðmaði hann inni-
lega. Venjulega læðist Cruyff til
búningsherbergja strax eftir leik,
Ballesteros þreyttur
SEVERINO Ballesteros, einn
f rægasti kylfingur síðari ára,
er að hugsa um að hafa keppn-
istímabilið hjá sér í styttra lagi
að þessu sinni og sleppa
nokkrum stórmótum síðari
hluta sumars.
Eins og staðan er núna langar
mig ekki mikið til að leika
golf. Ég er andlega þreyttur og er
að hugsa um að taka þátt í nokkr-
um mótum til viðbótar og taka mér
síðan frí það sem eftir er ársins,"
sagði Ballesteros í gær en hann er
í Englandi þar sem hann tekur þátt
í PGA mótinu sem hefst um helgina.
Ballesteros sigraði á þessu móti
í fyrra og hefur því til að veija.
Hann hefur oftast leikið vel á
Wentworth-vellinum. „Það er rétt,
ég Ieik oftast vel á þessum velli og
vona svo sannarlega að ég finni
mig á nýjan leik og ef það gerist
þá er alveg eins líklegt að ég skipti
um skoðun og haldi áfram að keppa.
En eins og staðan er núna þá er
ég að hugsa um að taka mér frí
frá golfi í lok september.
Ég fór að leika vel í júní.í fyrra
og þá fór ég að njóta þess að leika
golf. Ég lék of mikið — allt of mik-
ið — og keppti í 32 mótum. Það
er um fimm mótum meira en meðal-
talið hjá mér síðustu tíu árin. Móta-
röðin í Evrópu verður stöðugt lengri
og erfiðari og það tekur á,“ sagði
hinn 35 ára Spánverji.
íþróttakennarar - þjólfarar
Ungmennafélagið Fram á Skagaströnd óskar
að ráða íþróttaþjálfara til starfa
frá 1. júní- 15. ágúst 1992.
Iþróttagreinar: Frjálsíþróttir, knattspyrna og sund.
Upplýsingar gefa Ingólfur í símum 95-22669,
95-22788 og Kristinn í símum 95-22837,95-22747.
Seve Ballesteros segist vera orð-
inn þreyttur á golfi og er að hugsa
um að taka sér frí frá keppni.
VALSMENN
TAKIÐ EFTIR!
A morgun, laugardag, verður
HREINSUNARDAGUR
Á HLÍÐARENDA
Allir Valsmenn eru hvattir til að mæta
frá kl. 10-14 og taka þátt í fegrun svæðis síns.
Margar hendurvinna létt verk. - Pylsur á línuna.
Aðalstjórn - Svæðisnefnd
en ekki að þessu sinni.
Hann virtist hafa gleymt því að
fyrir aðeins 15 mánuðum fékk hann
hjartaáfall og þurfti að fara í hjarta-
þræðingu. A miðvikudaginn skráði
hann nafn sitt á spjöld íþróttasög-
unnar í Katalóníu og veitti loksins
íbúum Barcelona ástæðu til að
fagna á götum borgarinnar.
Cruyff var búinn að jafna sig
þegar hann mætti á blaðamanna-
fund eftir leikinn, en var engu að
síður mjög brosmildur. Hann stýrði
Ajax þrívegis til sigurs í Evrópu-
ENGLAND
keppni, en; „þetta er eitt ánægju-
legasta kvöld lífs míns, sérstaklega
vegna þess að ég vinn fyrir borg
sem þarfnaðist titils. Fólkið hefur
beðið nógu lengi eftir þessu,“ sagði
Cruyff.
„Sigurinn róar okkur. Við höfum
alltaf verið minntir á að Real
Madrid hafi orðið Evrópumeistari
en við ekki. Nú höfum við einnig
unnið allt sem hægt er að vinna
og getum farið að snúa okkur að
framtíðinni," sagði Cruyff.
ITV missir sjón-
varpsréttinn
ENSKA knattspyrnusambandið
hef ur gert samning við bresku
Sky-sjónvarpsstöðin (BSkyB)
um einkarétt á beinum útsend-
ingum frá hinni nýju 22ja liða
úrvalsdeild næsta vetur. Enn á
eftir að semja um hvenig mál-
um verður háttað varðandi
sendingar til annara landa.
Breska einkastöðin ITV hefur
haft einkaréttinn á beinum
sendingum frá leikjum í Englandi
frá því árið 1988 en á mánudaginn
var gengið frá samningum við
BSkyB til fímm ára og greiðir stöð-
in um 3,2 milljarða ÍSK fyrir einka-
réttinn.
Samkvæmt samningum mun
BBC aðeins taka upp tvo leiki á
viku og sýna þá, en ekki í beinni
útsendingu. Forráðamenn ITV
segja að þeir hafí verið dregnir á
asnaeyrunum á meðan á samning-
um stóð. „Einhverra hluta vegna
Dregiðí
Bikarnum
í gær var dregið í aðra umferð
Mjólkurbikarkeppninnar og
fara leikirnir fram þriðjudag-
inn 26. maí.
SV-riðill:
Selfoss - Njarðvík
ÍBK - Ármann
HK - Stjaman
Grindavík - Fylkir
BÍ - Víðir
Grótta - Þróttur R.
N-riðill:
SM/UMFL - Völsungur
Tindastóll - Magni
KS - Leiftur
Kormákur - Neisti H.
Ikvöld
Knattspyrna
Islandsmótið 4. deild
Valbjarnarvöllur:
Leiknir-Ármann..........20
Reyðarfjarðarv.:
Valur - Huginn Fellabæ..20
Golf
LEK mót verður haldið á golf-
velli GK á Hvaleyri í dag,
föstudag 22. maí kl. 14.
J
FÉLAGSLÍF
Arsþing Badminton-
sambands íslands
Ársþing Badmintonsambands ís-
lands verður haldið á morgun, laug-
ardaginn 23. maí, í íþróttamiðstöð-
inni í Laugardal. Þingið verður í
fundarsal ISÍ á efstu hæð.
Aðalfundur fatlaðra
Aðalfundur íþróttafélags fátlaðra
í Reykjavík verður haldinn laugar-
daginn 30. maí kl. 14 í íþróttahúsi
fatlaðra við Hátún. Auk venjulegra
aðalfundarstarfa verða afhentir
bikarar á fundinum.
vissu forráðamenn BSkyB um tilboð
okkar og gátu því hækkað sitt á
meðan verið var að opna tilboðin,"
sagði Greg Dyke stjóri á íþrótta-
deild ITV og fór framá að sjón-
varpsstöðvunum væri gefíð annað
tækifæri til að bjóð í réttinn.
Enskir hafa nokkrar áhyggjur
af þessu því þeir sem vilja ná BSkyB
verða að kaupa sérstakan móttöku-
disk til að ná stöðinni. Ekki er enn
frágengið hvaða áhrif samningur-
inn hefur varðandi sýningu á leikj-
um til annara landa, en verið er að
semja um slíkt.
Ingólfur Hannesson, íþróttastjóri
Ríkisúvarpsins, sagði við Morgun-
blaðið að þessi samningur hefði
ekki áhrif hér heima. RÚV hefði
.gert samning við fyrirtæki í Eng-
landi sem sæi um sölu á ensku
knattspymunni til annara landa en
Englands og sá samningur rynni
úr í lok næsta keppnistímabils.
ítfúmR
FOLK
■ ÞÝSKA handknattleiksliðið
Bad Schwartau vildi fá íslenskan
þjálfara fyrir næsta keppnistímabil.
Félagið hafði samband við Gunnar
Einarsson og Jóhann Inga Gunn-
arsson, en þeir gáfu afsvar, þar
sem þeir voru búnir að ráða sig sem -
þjálfara hér á landi - hjá Stjörn-
unni og Haukum.
■ MIKLAR líkur eru á því að
Stefán Kristjánsson handknatt-
leiksmaður leiki í Þýskalandi
næsta vetur. Stefán mun þá vænt-
anlega leika með liði í 2. deildinni,
en á nýloknu keppnistímabili lék
hann með KA á Akureyri.
■ ÁSGEIR Elíasson, landsliðs-
þjálfari í knattspyrnu, fór ekki til
Svíþjóðar á miðvikudag til að sjá
Ungveija leika þar vináttulands-
leik, eins og fram kom í blaðinu.
Fréttin var fullsnemma á ferðinni,
því hann fer eftir helgina, þar sem
leikurinn verður miðvikudaginn 27.
maí í Stokkhólmi.
■ SUÐURNESJALIÐIN þijú
verða ekki saman í riðli á íslands-
mótinu í körfuknattleik næsta vetur
eins og við sögðum frá í gær. Lið
Tindastóls og Grindavíkur voru í
röngum riðlum hjá okkur.
■ RIÐLARNIR verða því þannig
að í öðrum verða ÍBK, UMFN,
Tindastóll, Ilaukar og UBK. í
hinum verða Valur, KR, Grinda-
vík, Skallagrímur og Snæfell.
■ STEFAN Edbevg tapaði óvænt
fyrir Frakkanum Guy Forget þeg-
ar Svíar voru slegnir út úr heims-
bikarkeppni landsliða (World Team
Cup). Edberg tapaði 7:5 og 6:4.