Morgunblaðið - 22.05.1992, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1992
47
foúm
FOLK
■ NICK Gillinghnm frá Bret-
landi var nálægt því að bæta heims-
metið í 100 m bringusundi í gær
er hann synti á 1:01,33 mín. í riðla-
keppni úrtökumóts Breta fyrir
Ólympíuleikana. Heimsmet Ung-
verjans Norbert Rozsa er fjórum
hundruðustu úr sekúndu betra.
■ DON Nelson, þjálfari Golden
State Warriors, hefur verið valinn
þjálfari ársins í NBA-deildinni
bandarísku. Hann varð þar með
fyrsti þjálfarinn til að hljóta nafn-
bótina þrívegis.
Wk NELSON varð einnig fyrir val-
inu 1983 og 1985. Pat Riley, fyrr-
um þjálfari LA Lakers sem nú stýr-
ir liði New York Knicks varð ann-
ar í kjörinu. Það eru 96 íþróttaf-
réttamenn sem kjósa — Nelson
fékk 26 atkvæði en Riley 21.
■ PHIL Jackson, þjálfari meist-
ara Chicago Bulls, varð þriðji í
kjörinu með 17 stig og Larry
Brown, sem kom Los Angeles
Ciippers í fyrsta skipti í úrslita-
keppnina, fjórði með sjö.
H GUNNAR Jóhannsson var
endurkjörinn formaður Borðtennis-
sambands íslands á ársþingi þess
um síðustu helgi. Tómas Guðjóns-
son kom inn í aðalstjóm í stað
Björns Ingólfssonar, sem gaf ekki
kost á sér. Aðrir í aðalstjóm eru
Árni Siemsen, Halldór Haraldz
og Hrafnhildur Sigurðardóttir.
9 GIANLUCA Vialli, miðhetji
ítalska landsliðsins, lék sennilega'
í síðasta sinn með Sampdoría á
Wembley í fyrrakvöld. Hann er
sagður á förum til Juventus fyrir
metfé.
H JUVENTUS á að hafa boðið
andvirði 18 milljóna dollara í hann
— ríflega milljarð ÍSK — en Ro-
berto Baggio, sem er dýrasti
knattspyrnumaður heims var seldur
frá Fiorentina til Juventus á sín-
um tíma fyrir andvirði 13 milljóna
dollara.
H DAVID Feherty, kylfingurinn
snjalli frá Norður-írlandi var flutt-
ur á sjúkrahús á miðvikudaginn
eftir að snákur beit hann. Feherty
var að leika æfingahring fyrir mót
í Englandi þegar hann var bitinn.
H FEHERTY og Sam Torrance
voru að hefja leik á 12. holu þegar
snákurinn beit Feherty í fingur.
Þeir luku leik en þá var fingurinn
orðin svo bólginn að farið var með
kappann á sjúkrahús. Talið er að
það hafi verið höggormur sem beit
kylfinginn.
H KEVIN Keegan, knattspyrnu-
kappinn kunni, hefur látið undan
þrýstingi forráðamanna enska 2.
deildarliðsins Newcastle og ákveð-
ið að þjálfa liðið áfram. Hann tók
við liðinu seint í vetur, bjargaði því
frá falli og hefur nú gert þriggja
ára samning við félagið.
Jóhann Ingibergsson úr FH sigraði í Kaldalshlaupinu, hann er hér annar frá yinstri, en fremstur fer Daníel S. Guðmundsson úr KR.
MorgunblaÖið/KGA
Jóhann vann Kaldalshlaupið
ENGINN náði ólympíulágmarki
á Vormóti ÍR í frjálsíþróttum
sem fram fór á Varmárvelli í
gærkvöldi, enda kannski ekki
von þar sem þeir sem helst
voru taldir koma til greina
mættu ekki til leiks. Jóhann
Ingibergsson úr FH sigraði í
Kaldalshlaupinu, 3.000 m
hlaupinu sem þreytt er til minn-
ingar um Jón Kaldal, annað
árið í röð.
Jóhann hljóp 3.000 metrana í
Kaldalshlaupinu á 8 mínútum,
44,58 sekúndum og sigraði annað
árið í röð. Hann og Daníel S. Guð-
mundsson úr KR skiptust á um að
leiða hlaupið en þegar nær dró
markinu var Ijóst að Jóhann yrði
fyrstur. í öðru sæti varð Gunnlaug-
ur Skúlason, UMSS, á tímanum
8:50,92. Tíu hlauparar luku keppni
en talsvert fleir hófu hlaupið.
Þess má geta að Martha Ernst-
dóttir tók þátt í Kaldalshlaupinu,
en aðeins sem gestur og tími henn-
ar þar með ekki gildur, þar sem
hlaupið er einungis ætlað körlum.
Einna bestur árangur náðist í
langstökki karla. Jón Arnar Magn-
ússon úr HSK stökk lengst allra,
7,40 metra og var vindur ekki of
mikilll þegar hann stökk. Jón Odds-
son úr FH varð annar með 7,10
metra stökk, en vindur var aðeins
yfir mörkum er hann stökk.
Keppnin í spjótkastinu var ekki
spennandi. Einar Vilhjálmsson, IR,
sigraði örugglega, kastaði 71,22
metra og var eins og um æfinga-
kast væri að ræða hjá honum. Hann
kastaði nánast úr kyrrstöðu. Unnar
Garðarsson, einnig úr ÍR, varð ann-
ar og kastaði 67,88 metra.
Sigurður Matthíasson, sem ætl-
aði að taka þátt í mótinu, var ekki
kominn heim frá Bandaríkjunum
og sömu sögu er að segja af nafna
hans Einarssyni.
Búist hafði verið við að Pétur
Guðmundsson myndi reyna við
ólympíulágmarkið í kúlunni, en
liann mætti ekki til leiks. Hann og
bróðir hans, Andrés, báru við
eymslum og hættu við að vera með.
Egill Eiðsson, KR, sigraði í 100
metra hlaupi karla, hljóp á 11,45
sekúndum og Geirlaug Geirlaugs-
dóttir, Ármanni, sigraði í sömu
vegalengd kvenna á 12,53 sekúnd-
um.
Hulda Pálsdóttir úr ÍR kom fyrst«»A
í mark í 1.500 metra hlaupi kvenna
á 4 mínútum 53,52 sekúndum.
Ásdís M. Rúnarsdóttir, ÍR, var
fljótust í keppninni um Kristinsbik-
arinn, en það er bikar sem Kristinn
Sigurjónsson, fyrrverandi formaður
frjálsíþróttadeildar Ármanns gaf
fyrir nokkrum árum. Keppt er i 400
metra hlaupi og sigraði. Ásdís á
65^23 sekúndum.
í hástökki kvenna sigraði Þuríður
Ingvarsdóttir frá Selfossi, stökk
1,60 metra.
IMorskur kúluvarparí öðru sinni
í bann vegna lyQanotkunar
NORSKI kúluvarparinn Jan
Sagedal verður líklega settur
íkeppnisbann íannað skipti
á fimm árum fyrir lyfjanotkun.
Hann var settur í bann 1987
og fyrr á þessu ári féll hann
aftur á lyfjaprófi.
Sagedal, sem er 31 árs, var
úrskurðaður í tveggja ára
keppnisbann 1987 eftir að upp
komst að hann hafði notað lyf til
að fela notkun anabólískra stera.
Hann féll síðan á lyijaprófi fyrr
á þessu ári — þá kom í ljós að
hann hafði notað steralyfið met-
andienone á æfingatímabilinu.
„Bæði sýnin reyndust jákvæð.
Anabólskir sterar fundust," sagði
Ida Dypvik, talsmaður norska
íþróttasambandsins í gær. Sage-
dal, sem gæti fengið eins til
tveggja ára bann að þessu sinni,
sagði hins vegar við norska blaðið
Verdens Gang í gær að hann
væri ekki flæktur í lyfjamál, en
útskýrði mál sitt ekki frekar.
Sagedal hefur kastað kúlunni
lengst 20,67 metra, árið 1986.
Þess má geta að frægasti kúlu-
varpari Norðmanna, Georg And-
ersen, silfurverðlaunahafí á
heimsmeistaramótinu í Japan í
fyrra, féll á lyljaprófi í janúar og
er nú að taka út eins árs bann,
sem gilti frá september 1991.
Hann neitar hins vegar enn að
hafa notað steralyf.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
ARSÞING HANDKNATTLEIKSSAMBANDSINS j| KNATTSPYRNA
Jón Hjaltalín úti-
lokar ekki framboð
Jón Hjaltalín Magnússon, formaður
HSI, segir ekkert hafa breyst síð-
an fyrir um tveimur mánuðum er
hann tjáði uppstillinganefnd á vegum
sambandsins að hann sæktist ekki
eftir endurkjöri, og ef formannsefni
fyndist væri hann tilbúinn að hætta.
Hann sagðist þó í gær ekki útiloka
neitt og það kæmi sér á óvart að
uppstillinganefnd, sem hefði haft þijá
mánuði til starfa, hefði enn ekki til-
kynnt framkvæmdastjórn sambands-
ins nöfn þeirra sem hún legði franij
nema í formannskjöri. Ársþing HSI
hefst í dag og er að þessu sinni hald-
ið í húsakynnum ÍSl í Laugardal.
Jón Ásgeirsson, framkvæmdastjóri
óg útvarpsmaður, gaf sem kunnugt
er kost á sér til formennsku eftir að
uppstillinganefnd leitaði til hans.
„Það kom mér á óvart þegar Jón lýsti
því yfir að hann væri fulltrúi lýðræð-
isafla innan HSÍ, eins og hér hefði
ríkt eitthvert einræði,“ sagði Jón
Hjaltalín við Morgunblaðið í gær. „En
við þekkjumst vel og ég veit að hann
er mikill grínisti. Eg tók þetta því
ekki mjög alvarlega."
Jón Hjaltalín sagðist í gær ekki
útiloka að hann byði sig aftur fram
til formanns, en bætti við að þó hann
yrði ekki áfram formaður HSÍ væri
hann tilbúinn að vinna fyrir hand-
knattleikshreyfinguna í landinu. „Ef
menn óska eftir er ég reiðubúinn að
vinna að því að heimsmeistarakeppn-
in 1995 verði haldin hér með sóma.
Það hefur verið talað um að undirbún-
ingsstarf vegna mótsins verði aðskilið
frá starfsemi HSÍ.“
Jón Hjaltalín
Eystrasaltsríkm
og Færeyar í EM
LIÐfrá Eystrasaltsríkjunum
þremur sem áður tilheyrðu
Sovétríkjunum; Eistlandi,
Lettlandi og Litháen, verða
með í Evrópumótum félags-
liða íknattspyrnu næsta
keppnistímabil.
etta var ákveðið á fundi
Knattspyrnusambands Evr-
ópu [UEFA] í London í vikunni.
Jafnframt var ákveðið að lið frá
fjórum öðrum nýstofnuðum lýð-
veldum gætu verið með að upp-
fylltum ákveðnum skilyrðum.
Félög frá Eystrasaltsríkjunum
verða með í Evrópukeppni meist-
araliða, bikarhafa og UEFA-
keppninni. Þátttaka liða frá Slóve-
níu og Króatíu, sem áður tilheyrðu
Júgóslavíu og Úkraínu og Georg-
íu, tveimur fyrrum Sovétlýðveld-
um, er háð því að lýðveldin hljóti
viðurkenningu alþjóða knatt-
spyrnusainbandsins, FIFA, á
fundi í júlí.
Þá var ákveðið að Færeyingar
verði með í Evrópukeppni félags-
liða í fyrsta skipti næsta vetur
og staðfest að ísrael sendi lið í
Evrópukeppni meistaraliða og
keppni bikarahafa, auk þess sern
lið frá Liechtenstein verði með í
keppni bikarhafa.