Morgunblaðið - 28.05.1992, Page 1
LÍFEYRISSJÓDIR: Hvaö virinst meö sameiningu? /4
RÍKISFYRIRTÆKI: Viötal viö formann einkavæöinganefndar /8
VIÐSKIFTIAMNNULÍF
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1992 BLAÐ
Fyrirtæki
Tap Skipaútgerðarinnar 94
m.kr. umfram ríkisframlagið
Minni flutningar síðustu mánuði sl. árs en áætlað hafði verið
TAP Skipaútgerðar ríkisins á sl. ári varð alls um 93,6 milljónir króna
eftir að tekið hefur verið tiilit til framlags ríkisins. Þetta þýðir að ríkis-
sjóður þarf að greiða með rekstri fyrirtækisins 58,6 milijónir til viðbót-
ar við þær 234,3 milljónir sem reiknað hafði verið með við gerð fjár-
laga á sl. ári. Mismunurinn skýrist af vanáætluðum afskriftum sem
hafa ekki áhrif á greiðslustreymi fyrirtækisins. Lakari afkomu Skipaút-
gerðarinnar má fyrst og fremst rekja til samdráttar í flutningum síð-
ustu mánuði ársins, að sögn Guðmundar Einarssonar, fyrrverandi for-
stjóra fyrirtækisins.
Ríkisstjómin gaf út þá stefnuyfir-
lýsingu í byijun september sl. um
að það kæmi til greina að leggja
niður Skipaútgerð ríkisins. Þá var
ákveðið að hætta flutningum milli
íslands og Færeyja.
Um mánuði síðar missti fyrirtækið
sinn stærsta flutningasamning sem
var um fóðurflutninga til Færeyja.
Því urðu flutningar minni síðustu
mánuðina en gert hafði verið ráð
fyrir.
„Þessi afkoma sýnir að það hefði
betur verið gert fyrr að leggja fyrir-
tækið niður,“ sagði Benedikt Jóhann-
esson, fyrrverandi stjórnarformaður
fyrirtækisins.
Skipaútgerðin flutti alls 111.556
tonn á sl. ári sem er um 7,1% minna
magn en árið áður. Flutningar til og
frá Færeyjum voru 12.442 tonn sem
er tæplega 22% aukning frá árinu
áður. Innanlandsflutningar voru alls
99.114 tonn en voru 114.409 árið
áður. Eigin tekjur alls námu 339,6
milijónum samanborið við 358,4
milljónir árið áður. Þar við bætist
framlag ríkisins að fjárhæð 234,4
milljónir. Afskriftir námu alls 112,4
milljónir. Heildareignir í árslok voru
666 milljónir og eigið fé 386,5 millj-
ónir. Þijú skip voru í rekstri í fyrra
hjá Skipaútgerðinni. Esja var í viku-
Iegum siglingum til Vestmannaeyja
og Austfjarða. Hekla og Askja sigldu
vestur fyrir land til Vestijarða, Norð-
urlands, Austfjarða og Færeyja og
síðan sömu leið til baka. í árslok
voru 92 starfsmenn hjá fyrirtækinu.
Starfsemi Skipaútgerðarinnar er
formlega lokið og hafa samgöngu-
og íjármálaráðuneytið nú umsjón
með tveimur skipum sem hafa verið
leigð Samskipum hf. Annað þeirra,
Búrfell, sem áður bar nafnið Hekla
er leigt með 10 manna áhöfn, auk
þriggja afleysingamanna og eins eft-
irlitsmanns í landi. Leigusamningur-
inn rennur út í byijun ágúst en áskil-
inn er réttur Samskipa til að fram-
Iengja hann í þijá mánuði eða til 1.
nóvember. Að Ieigutímanum liðnum
er gert ráð fyrir að skipið verði selt
hæstbjóðanda. Hitt skipið, Kistufell,
sem áður bar nafnið Esja er í svokall-
aðri þurrleigu til allt að þriggja ára.
Ekki liggja fyrir tölur um kostnað
ríkisins vegna Skipaútgerðarinnar
fyrstu fimm mánuði þessa árs. Ljóst
er að töluverður kostnaður hefur
fallið til við að leggja fyrirtækið nið-
ur en þar af nema biðlaunagreiðslur
nokkrum tugum milljóna króna.
Verðbréfmarkaður
Rífandi sala ískulda-
bréfum Lýsingar
RÍFANDI sala var í skuldabréfum Lýsingar að fjárhæð 150 milijónir
króna sem fyrirtækið bauð út um miðjan þennan mánuð. Seldust bréf-
in upp á einni viku og raunar var stærstur hiuti þeirra seldur á fyrsta
degi útboðsins. Hefur verið tekin ákvörðun um að efna til nýs 200
milljóna króna útboðs í byijun júní, að sögn Jóns Snorra Snorrasonar
hjá Lýsingu.
Ný skuldabréf Lýsingar hafa ekki
verið í boði á verðbréfamarkaðnum
sl. 12 mánuði og sagði Jón Snorri
að þessi mikili áhugi fjárfesta á bréf-
unum hefði komið á óvart. Stórir fjár-
festa*- hefðu keypt megnið af skulda-
bréi' n. Skuldabréfin eru til 3 ára
og vai- ávöxtun ákveðin 9% í upp-
hafi útboðsins. Vegna mikillar sölu
á fyrsta degi var hún lækkuð í 8,8%.
Verðmaeti vöruút- og innflutnpgs
jan. til mars 1991 og ’92 1991
(fob virði í milljónum króna)
jan.- mars
1991
jan.- mars
Útfiutningur alls (fob) 21.517,3 20.443,6 -5,0
Sjávarafurðir 17.144,1 16.393,1 -4,4
Ál 2.189,6 2.116,2 -3,4
Kísiljárn 401,5 233,0 -42,0
Skip og flugvélar 0,8 * 99,3 - |
Annað 1.781,3 1.602,0 -10,1
Innflutningur alls (fob) 19.318,3 20.094,1 4,0
Sérstakar fjárfestingarvörur 592,9 2.075,6 -250,1
Skip 422,0 502,0 19,0
Flugvélar 79,4 1.561,0 -
Landsvirkjun 91,5 12,6 -86,2
71/ stóriðju 1.569,9 1.365,6 -13,0
íslenska álfélagið 1.363,1 1.200,1 -12,0
íslenska járnblendifélagið 206,8 165,5 -20,0
Almennur innflutningur 17.155,5 16.652,9 -2,9
Olía 1.182,6 1.220,1 3,2
Almennur innflutningur án olíu 15.972,9 15.432,8 -3,4
Vöruskiptajöfnuður 2.199,0 349,5
Án viðskipta íslenska álfélagsins 1.372,5 -566,6
Án viðskipta íslenska álfélagsins,
íslenska jámblendifélagsins
og sérstakrar fjárfestingarvöru 1.769,9 1.342,2
Möað er við meðalgengi á viskiptavog; á (jann mælikvarða er verð erlends gjaldeyris talið vera óbreytt í janúar-
mars 1992 frá þvi sem það var á sama tíma áþð áður.
Sjá nánar bls. C3
FYRIR ÞÁ SEM GETA ÁKVEÐIÐ FERÐIR SÍNAR MEÐ MEIRA EN FJÖGURRA DAGA FYRIRVARA
Saga Class sérgjaíd gildir til eftirtalinna áfangastaða:
Kaupmannahöfn, Ósló, tíautaborg, Stokhbólmur,
Helsinki (1.6, • 7.9.), Glasgow, London, Amsterdam, Lúxemborg.
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskur ferðafélagi
SAGA Nýja Saga Class sérgjaldið,* sem er 20% lægra en fullt Saga Business Class
BUSINESS fargjald, gildir frá öllum áfangastöðum innanlands. Saga Class sérgjald er
CLASS bundið því skilyrði að bókað sé og greitt samtímis a.m.k. fjórum dögum fyrir
brottför. Saga Class sérgjald gildir einungis báðar leiðir í beint flug og er miðað við að flogið
sé fram og til baka á sömu flugleið. Heimferð þarf að bóka með a.m.k. fjögurra daga fyrirvara.
00IB
*háó samþykki yflrvaUa. Gitdistími til 31.10.1992