Morgunblaðið - 28.05.1992, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 28.05.1992, Blaðsíða 5
Evrópumál I 1 Storno Keith Richardson MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 28. MAI 1992 DLIÍHMIV?#. \ ITWfÍHV Límbönd ÁRVÍK ÁRMÚLI 1 • REYKJAVÍK • S(MI 687222 • TELEFAX 687295 á lögmálum frjáls markaðar en tekið væri tillit til mannlegra vand- amála. í ræðu sinni fjallaði Richardson m.a. um hugsanlega fjölgun aðild- arríkja Evrópubandalagsins svo og nánari tengsl milli ríkja þess. Hann kvað nefndina því algjörlega andsnúna að hafa Evrópska efna- hagssvæðið sem valkost gagnvart því að ijölga ríkjum bandalagsins. Vonast væri eftir því að viðræður um aðild Svíþjóðar, Austurríkis, Finnlands og hugsanlega Sviss gengju fljótt fyrir sig og þau gætu sem fyrst orðið meðlimir band- alagsins. Ennfremur væri vonast eftir því að þróun mála í Tékkósló- vakíu, Ungveijalandi og Póllandi yrði þannig að þau gætu sem fyrst gerst aðilar að bandalaginu. Þá sagði hann þá skoðun ríkj- andi að stofna ætti myntbandalag í framhaldi af innri markaði Evr- ópubandalagsins því innri markað- ur fengi ekki staðist án einnar sameiginlegrar myntar. Síðast en ekki síst þyrfti að efla stjórnkerfí Evrópubandalagsins. FYRIR SKRIFSTOFUR - AUGLÝSINGASTOFUR - PRENTSMIÐJUR - ARKITEKTA - VERKFRÆÐINGA OG AÐRA SEM ÞURFAAÐ HAFA GOTT LÍMBAND Á BORÐINU HJÁ SÉR. Tflhtu engn flhsttu d ferðnlögum 09 hafðu forsímonn með Innri markaður EB fær ekki staðist án sameiginlegrar myntar — segir Keith Richardson framkvæmdastjóri European Round Table of Industrialists sem er áhrifamikil nefnd forstjóra stórfyrirtækja í Evrópu Veröfrd kr. 79.580 stgr. nu vsk Verö t mat 1992 Söludeiidir i Ármúla 27, Kirkjustræti, Kringlunni og á póst- og símstöðvum um land allt. Keith Richardson er fram- kvæmdastjóri European Round Table (ERT) of Industrialists sem er eins konar nefnd skipuð 40 manns úr hópi helstu stjórn- enda í evrópsku atvinnulífi. Nefndin hefur átt viðræður við ríkisstjórnir í Evrópu og ræðir reglulega við framkvæmda- stjórn Evrópubandalagsins um málefni bandalagsins og aukið samstarf innan þess. Hún hefur á síðustu árum þrýst mjög á um að efnahagssamrunanum í Evr- ópu verði hraðað og hvers kyns hindranir í viðskiptum milli landa felldar niður. Raunar hef- ur nefndin lýst þeirri skoðun sinni að með stofnun innri mark- aðar Evrópubandalagsins sé að- eins hálfur sigur unninn. í fram- haldi af því þurfi að koma á fót myntbandalagi og rikin samein- ist um eina mynt í Evrópu. Richardson kynnti starfsemi nefndarinnar á fundi Landsnefndar alþjóðaverslunarráðsins sl. þriðju- dag. European Round Table of Industrialists var sett á stofn árið 1983 af nokkrum forstjórum stór- fyrirtækja í Evrópu, bæði frá ríkj- um innan EFTA og Evrópuband- alagsins. í nefndinni sitja nú 45 forstjórar en mjög ströng skilyrði eru fyrir inngöngu og má nefna að meðalvelta fyrirtækjanna á ári er um 10 milljarðar bandaríkja- dala. í máli Richardsons kom fram að markmið nefndarinnar er að koma sjónarmiðum atvinnulífsins á framfæri og þrýsta á um breyt- ingar til að treysta samkeppnis- stöðu evrópskra fyrirtækja gagn- vart japönskum og bandarískum hann hefði ekki orðið að veruleika nema vegna stuðnings frá fyrir- tækjunum. Benti hann á að atvinn- ulífíð hefði mestan hag af því að fjarlægðar yrðu viðskiptahindranir milli landa og því hefði nefndin þrýst mjög á um samþykki GATT- samkomulagsins. ERT-nefndin sendi frá sér sl. haust skýrslu sem ber yfírskriftina „Reshaping of Europe“. Fram kom m.a. í máli Richardsons að í skýrsl- unni væri lögð áhersla á að at- vinnulíf í Evrópu ætti mikla fram- tíð fyrir sér, en hins vegar gerð grein fyrir þeim vandamálum sem Evrópulöndin stæðu frammi fyrir. Sjónarmið nefndarinnar byggðust Storno farsíminn tryggir þér gott samband viö umheiminn þegar þú ert á ferðalagi, hvort sem þú ert í óbyggðum, sumarbústaðnum eða bara í umferðinni. PÓSTUR OG SÍMI Viö spörum þér sporin jafnframt því sem nefndin hittir framkvæmdastjóm að máli Evr- ópubandalagsins reglulega. „Við hittum t.d. forsætisráðherra Port- úgals fyrir tveimur vikum og mun- um hitta John Major í haust. Enn- fremur höfum við átt viðræður við stjómvöld á Spáni og í Frakklandi og á síðasta ári hittum við forsætis- ráðherra Svíþjóðar skömmu áður en ákvörðun var tekin um að sækja um aðild að Evrópubandalaginu," sagði Richardson. Sem dæmi árangur af starfi nefndarinnar vitnaði Richardson til orða Delors um þátt atvinnulífs- ins í ákvörðum um stofnun innri markaðar Evrópubandalagsins, en fyrirtækjum. M.a. hefur farið fram sérstök umræða um menntamál og þarfír atvinnulífsins í því sam- hengi. Einnig hefur nefndin látið samgöngumál til sín taka og bent á að samgöngukerfíð milli Evrópu- landanna sé óhagkvæmt og ófull- nægjandi. Hún hefur þrýst á um umbætur á því sviði síðastliðin 10 ár en á þeim tíma hafa breytingar átt sér stað t.d. í flugmálum og göng eru í byggingu undir Ermar- sundið og milli Noregs og Svíþjóð- ar. Til að þoka málum áfram er efnt til viðræðna við ríkisstjórnir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.