Morgunblaðið - 28.05.1992, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1992
C 9
Sjónarhorn
Fjölþætt sjálfsnám
um atvinnumál
eftir Jón Erlendsson
Upplýsingaþjónusta Háskólans
hefur um 4 ára skeið unnið að
umfangsmiklu átaksverkefni á sviði
atvinnumála og atvinnusköpunar.
Meginþátturinn í því er uppbygging
Upplýsingamiðstöðvar um atvinnu-
mál. Aflað hefur verið víðtækra
sambanda um allan heim í þessu
skyni og byggð upp umfangsmikil
gagnasöfnun yfir ríflega 10.000
erlenda aðila sem unnt er að nýta
til að afla fjölbreytilegrar og sér-
hæfðrar fagþekkingar auk upplýs-
inga um hráefni, vélar o.fl. Slík
tengsl eru ómetanleg þegar unnið
er að því að þróa ný atvinnutæki-
færi eða efla almenna eða sértæka
starfsþekkingu.
Á þeim grunni sem byggður hef-
ur verið upp hefur verið þróað sér-
stakt sjálfsnámskerfi um atvinnu-
mál, þ.e. skipulegt sjálfsnám um
atvinnumál og tækifærasköpun
(SSAT). Tilgangurinn með þessu
kerfi er að veita þeim sem burði
hafa til sjálfstæðs náms ódýra og
hagkvæma aðstoð við að afla gagna
og sambanda af afar fjölbreytilegu
tagi.
Reynslan sýnir að þeir sem eru
driffjaðrir í atvinnulífi, þ.e. frum-
VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF
DAGBÓK
RAÐSTEFNUR:
■ VERKFRÆÐINGAFÉ-
LAG íslands gengst fyrir al-
þjóðlegri ráðstefnu um viðbún-
að og varnir gegn náttúruham-
förum í tilefni af 80 ára af-
mæli sínu dagana 28. og 29.
maí nk. Ráðstefnuna sækir
fólk frá 10 þjóðlöndum utan
íslands og verða alls flutt 29
erindi. Á hana er boðið sérstak-
lega þremur vísindamönnum
sem halda yfirlitserindi hver á
sínu sviði þ.e. jarðvísindum,
verkfræði og hagfræði. Einn
þessara gestafyrirlesara er ís-
lendingar búsettur erlendis, dr.
Haraldur Sigurðsson, prófess-
or í jarðfræði við Háskólann í
Rhode Island í Bandaríkjunum.
Ráðstefnan er haldin í Háskóla
íslands í stofu 101 í Odda og
stofu 101 í Lögbergi.
■ RANNSÓKNARRÁÐ
ríkisins efnir til námstefnu
þann 22. júní nk. um þátttöku
í áætlunum Evrópuband-
alagsins (EB) um rannsóknir
og þróunarstarfsemi, hvernig
afla á upplýsinga og sækja um
stuðning úr sjóðum EB. Nám-
stefnan sem haldin er í sam-
vinnu við menntamálaráðun-
eytið og Vísindaráð hefur það
markmið að leiða væntanlega
umsækjendur í gegnum feril
umsókna og veita þeim innsýn
í hvernig hægt er að afla upp-
lýsinga um einstakar áætlanir,
hvaða kröfur eru gerðar um
frágang umsókna og hvernig
megi leita eftir samstarfsaðil-
um. Fyrirlesarar eru m.a. Pia
Jörnö, verkfræðingur og
stjórnandi Dansk Teknelog-
isk Oplysningstjeneste EF-
Videncenter og Anne Fon-
nesbech, landbúnaðarfræðing-
ur og fulltrúi í rannsóknadeild
danska menntamálaráðuneyt-
isins. Námstefnan verður hald-
in í Borgartúni 6 og hefst kl.
9.00 þann 22. júní. Tilkynna
þarf þátttöku til Rannsóknar-
ráðs ríkisins fyrir 15. júní Þátt-
tökugjald er 9.700 kr.
kvöðlar (e. Entrepreneurs), eru yfir-
leitt það framtakssamir og sjálf-
stæðir að þeir þurfa ekki mikla
aðra hjálp en vissa lágmarksaðstoð
við öflun þekkingar og upplýsinga.
Kunnáttuleysi og aðstöðuleysi
slíks fólks um upplýsingaöflun get-
ur á hinn bóginn reynst þeim veru-
leg^ur fjötur um fót, fjötur sem ger-
ir þekkingaröflun og könnun nýrra
tækifæra óheyrilega dýra og sein-
virka. Af þessu leiðir að afköstin
við könnun nýrra kosta verða alltof
lítil. Kostirnir sem kannaðir eru eru
því alltof fáir. Annað sem getur
gerst er að menn hefjist handa án
þess að afla sér nægilegrar þekk-
ingar og reynslu. Afleiðingarnar
blasa alls staðar við, þ.e. fjölda-
gjaldþrot og stórfelldir erfíðleikar.
Kerfi af því tagi sem Upplýsinga-
þjónusta Háskólans hefur þróað
getur gert þeim sem vilja skapa sér
ný tækifæri og bætta stöðu á vinnu-
markaði þekkingaröflun sína stór-
um auðveldari, tryggari og ítarlegri
en nú er raun á. Þetta geta menn
gert ýmist sem starfsmenn annarra
eða sjálfstæðir atvinnurekendur.
Kerfið nýtist til að afla erlendra
sambanda. Hefðbundið nám býður
ekki upp á þennan möguleika. Sú
grunnþekking sem komið er til skila
innan þess nægir sjaldnast til að
skapa sérstakt tækifæri. Meira þarf
til. Viss lágmarkskunnátta á tungu-
málum, einkum ensku, er æskileg
fyrir þá sem vilja nýta sér mögu-
leika þá sem hér er lýst.
Upplýsingaþjónusta Háskólans
(áður Upplýsingaþjónusta Rann-
sóknarráðs) hefur ríflega 14 ára
reynslu í að efla hverskyns rann-
sóknastofnanir. Ár hvert eru unnin
hjá þjónustunni um 50-200 verk-
efni af fjölbreytilegu tagi. Upplýs-
ingaþjónustan var á sínum tíma
fýrsti innlendi aðilinn er hóf hagnýt-
ingu erlendra gagnabanka með
beinum fjarskiptasamböndum
(1979).
Nánari upplýsingar um sjálfs-
námskerfíð og þjónustuna má fá
hjá Jóni Erlendssyni, yfirverkfræð-
ingi, Upplýsingaþjónustu Háskól-
ans, s. 629921, 694665).
Höfundur er forstöðumaður Upp-
lýsingaþjónustu Háskólans.
Ferðamál
Alís fær við-
urkenningu
BRESKI sendiherrann, Patrick
Wogan, afhenti Skúla Böðvars-
syni þjá ferðaskrifstofunni Alís í
Hafnarfirði viðurkenningarskjal
fyrir hönd UK Tourism Market-
ing Award Scheme.
Viðurkenningin er veitt fyrir vel
heppnaða skipulagningu á stuttum
ferðum til Newcastle, borgar í norð-
urhluta Englands, síðastliðið haust.
Framtak Alís þótti athyglisvert, það
tók aðeins fimm vikur að skipu-
leggja ferðir á nýjan áfangastað.
(Úr fréttatilkynningu frá breska sendiráðinu.)
o
Við gerum ykkur tilboð
Gerum ræktunarsamninga til lengri eða skemmri tima
fyrir stærri og smærri svæði.
Úrval af bjám, runnum og skógarplöntum,
Qölærum plöntum og sumarblómum.
Hagstæð og góð lausn fyrir fyrirtæki, félagasamtök,
búsfélög og bæjarfélög.
SÆKIÐ SUMARIÐ TIL OKKAR
GRÓÐRARSTÖÐIN
'MöiK
STJÖRNUGRÓF18, SÍMI814288, BRÉFASÍMI812228
stjóm- og gæskitæki
HITI
Hitastiliar teg. RT (bakelithús)
vinnusvið: -60 til +300°c
Hitastillar teg. KPS (seltuþolinn)
vinnusvið: -10 til +200°c
Hitanemar teg. EMT
vinnusvið: -10 tii +650°C
útgangsmerki 4-20 mA
nákvæmni ± 1%
ÞRÝSTINGUR
Þrýstiliðar. teg. RT (bakelithús)
vinnusviö: -1 til 30 bar (kg)
Þrýstiliðar. teg. KPS (seltuþolinn)
vinnusvið: 0 til 60 bar (kg)
Þrýstiliðar. teg. PS(U)
vinnusvið. 1 til 15 bar (kg) 3x380 V ac 9 A
Þrýstinemar. EMP
vinnusvið: -1 til 250 bar (kg)
útgangsmerki: 0/4-20 mA
nákvæmni. ± 1%
VÖKVA- OG LOFTSTÝRINGAR
Segullokar teg. EV(S) I
stærðir. 1/8” - 4”
fyrir: vatn, loft, olíu og gufu
Loftstýrðir ventlar. teg. HP
stærðir: 1/2" - 2”
fyrir: vatn, loft og olíu.
ROFAR OG ROFABÚNAÐUR
Teg. C og Cl
álagsstærð: 2 til 45 A.
Varnir teg. T og Tl.
álagsstærð: 0,13 til 80 A
y/A rofar teg. STO.
fyrir motorstærðir: 45 kW.
HÉÐINN
SEUAVEGI2, REYKJAVÍK
IÐNLANASJÓÐUR
fyrir íslenskt atvinnulíf
ÁRMÚLA 13A 155 REYKJAVÍK SÍMI 680400 TELEX 3084 ILFUND TELEFAX 680950
/ K- A