Morgunblaðið - 19.06.1992, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 19.06.1992, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1992 C 3 Reykingafólk þarf mun oftar á læknisaðstoð að halda en þeir sem ekki reykja REYKINGAFÓLK þarf í 50% fleiri tilvikum á heil- brigðisaðstoð að halda held- ur en fólk sem ekki reykir, segir Louise M. Nett þjúkr- unarfræðingur sem stödd var hér á ráðstefnu lungna- lækna fyrir skömmu. Louise hefur undanfarin ár kennt hjúkrunarfólki á sjúkrahús- um víðs vegar um Bandarík- in að skipuleggja námskeið fyrir sjúklinga sem reykja til að kenna þeim að hætta á meðan þeir eru undir læknishendi á sjúkrahúsi. Louise segir í samtali við Morg- unblaðið að reykingafólki megi í grófum dráttum skipta í tvo hópa, annars vegar þá sem hafí þann slæma vana að reykja en séu ekki háðir reykingunum. Þetta fólk segir Louise að geti hætt að reykja sé því kennt tiltekið hegðunar- mynstur. Hins vegar séu þeir sem séu haldnir nikót.ínfíkn en sá hóp- ur fólks segir hún að geti ekki hætt nema með því að nota nikót- íntyggjó eða nikótínplástra. Námskeiðin sem Louise kennir eru löguð að læknismeðferð hvers sjúklings. „Ég hvet til þess að all- ir sjúklingar sem reykja, óháð því hvaða sjúkdómi þeir þjást af þegar þeir eru lagðir inn, séu settir í meðferð til að hætta reykingunum en sú meðferð verður þá eins og hver önnur læknismeðferð við hlið þeirrar sem sjúklingurinn er í vegna síns sjúkdóms. Með þessu móti er hægt að ná til mjög mik- ils fjölda fólks,“ segir Louise. Að sögn Louise eru námskeiðin fjölþætt. „Byijað er á því að láta sjúklingana svara ýinsum spurn- ingum um reykingavenjur sínar, til dæmis hversu oft þeir hafi reynt að hætta að reykja og hvernig, þeim hafi liðið á meðan. Það segir okkur til um hversu háðir þeir eru nikótíninu," segir Louise. Hún segir að hafi þeir reynt að hætta og fundist það auðvelt þurfi Lousie Nett einungis að þjálfa þá í að forðast reykingarnar. Þjáist þeir hins veg- ar mikið á þessum tímabilum, hafi líkamleg vanlíðunareinkenni eins og eirðarleysi eða einbeitingarerf- iðleika, þá séu þeir haldnir nikótín- fíkn. Þetta fólk segir hún að þurfi nikótíntyggjó eða nikótínplástra til að geta hætt að reykja. „Á námskeiðunum er kennd ákveðin hegðun til að forðast reyk- ingarnar. Þegar reykingamaður sem er að reyna að hætta sest við borð með öskubakka finnur hann oft ósjálfrátt löngun til að reykja. Til að forðast löngunina á hann að ijarlægja öskubakkann eða færa sig og draga andann djúpt. Með því að fá fólk til að fara eft- ir ýmsum slíkum hegðunarreglum sem virðast einfaldar getur það á auðveldari hátt látið af þessari venju,“ segir Louise. „Einnig reyn- um við að komast að því við hvaða aðstæður sjúklingurinn er líkleg- astur til að fá sér sígarettu og finna út önnur viðbrögð sem hann geti beitt í þessum aðstæð- um.“ Þær fullyrðingar heyrast mjög oft að fólk sem notar tóbak sé hættara við kvillum hvort sem er kvef eða annar krankleiki. Mótstöðuafl þess sé miklu minna gegn sjúkdómum en hjá þeim sem reykja ekki. Louise segir að reykingafólk þurfi mun oftar að leita til lækna og noti meira magn af lyfj- um en fólk sem ekki reykir. „Hætti það að reykja spa- rast því mikið fé fyrir heilbrigði- skerfið svo ekki sé minnst á þá líkam- legu vellíðan og minni hættu á sjúkdómum sem því fylgir fyrir fólkið sjálft," segir Louise. ■ Inga Dóra Sigfúsdóttir Morgunblaðið/Ámi Sæberg Ekki mikið mál að láta barnið hætta með snuð SUM BÖRN vilja snuð, önnur ekki. Foreldrar kvíða því stundum mánuðum saman að taka snuð af barni sem getur helst ekkert án „duddunnar" farið. En samkvæmt Muriel Wolf sem er yfir- maður barnaspítala í Washington í Bandaríkjunum þarf það ekki að vera svo mikið mál að venja barn af snuði. „Það er mikilvægt að gagn- rýna ekki barnið fyrir að vera með snuð eða rífa það úr munni þess í tíma og ótíma. Foreldrar ættu frekar að hrósa baminu þegar það er ekki með snuðið og tala um hvað það sé duglegt að gera hitt og þetta án snuðs- ins.“ Wolf leggur áherslu á að for- eldrar taki eftir því við hvaða aðstæður barnið biðji um snuðið. „Venjulega er það fyrir svefninn, þegar barnið er grátandi, þreytt eða huggunar þurfi. Þegar barn- ið er þreytt eða pirrað er ráðið að dreifa huganum frá snuðinu og finna upp á einhveiju öðru sem því þykir skemmtilegt. Það er líka spurning hvort hægt er að fínna eitthvað annað sem getur komið í staðinn fyrir snuð- ið eins og bangsi eða leikfanga- dýr. Það kemur sér oft vel, kannski sérstaklega fyrir svefn- inn. Þegar barnið er farið að nota snuðið lítið er kominn tími til að tala við barnið og sann- færa það um að henda snuðinu í ruslafötuna. ■ 1 BYLl ‘1 N G r i BARÁTTUNNI GEGN HRUKKUM Birki dæmis við hunangsflugur? Svar: Mér finnst ástæða til að staldra við og íhuga hvort nokkur ástæða sé til að drepa hunangs- flugu. Þær eru meinlausar nema á þær sé ráðist og gegna mikilvægu hlutverki við fijóvgun blóma. Sólber má úða með lyfjum sem eyða skordýrum. Það er einkum gert til að fækka blaðlúsum og lifr- um. Eflaust falla einhveijar hun- angsflugur við slíkar aðgerðir. Ég mæli með að öll eiturefni séu notuð í hófí og með gætni.“ Hanna spyr að lokum hver sé munur á birkitré sem er með mikið af fijókornum sem vísa beint upp og hinum sem eru mikið laufguð? Svar: Birki hefur einkynja blóm, karl- og kvenblómin eru á sama plöntueinstaklingi. Kvenreklarnir eru uppréttir eða lítið eitt útsveigðir og sívalir. Þeir eru oft áberandi á vorin og sé fjöldi þeirra mikill virðist mér sem lauf- blöðin fari sér hægar í vexti, að minnsta kosti framan af. Gífurlegur munur getur verið á einstaklingum í lögun, hæð, blaðstærð og einnig má sjá dagamun á laufgunartíma. Tveir einstaklingar geta verið mjög • ójíkir þegar grannt er skoðað. Blákvístur Þórunn í Reykjavík spyr: Getur verið að blákvisti sem komn- ir voru vel af stað í vor mygli núna allt í einu, fúni og deyi? Svar: Ekki minnist ég þessa að hafa heyrt þess getið að mygla legð- ist á kvisti undir berum himni. Ég hef hinsvegar séð plöntur illa farnar eftir að hafa verið pakkaðar inn í plast tii sendingar milli landshluta. Illa var þá staðið að pökkuninni, plönturnar mygluðu og dóu fljótlega eftir gróðursetningu. ■ Lipósóm voru merk nýjung, en framtíðin erfalin í Nanópart Þú þarf ekki lengur að vera hrædd við hrukkur, því nýr kafli í umhirðu húðarinnar er hafinn með Profutura. Kremi, sem notar stórkostlegt flutninga-kerfi, Nanópart, sem er 30 sinnum öflugra en Lípósóm og ber A og E vítamín inn í húðina. Arangur: Húð þín verður unglegri, frískari og einfaldlega fallegri. Af hverju getur Profutura flutt svo mikið af vítaminum? Hugsaðu þér Nanóparts sem blöðru, fulla af oliu. Allt innihaldið er fullt af vitaminum. Lipósóm er hins vegar blaðra full af vatni og aðeins blaðran sjólf getur flutt vítamínin. Nanópart Lípósóm Afhverju myndast hrukkur? Þegar við eldumst, missir húðin hæfileikann til að geyma vatn. Afleiðingin verður: Þurrari og grófari húð. Fyrstu yfirborðs- hrukkurnar myndast. Mengun og aðrir utanaðkomandi þættir flýta þessari þróun. MARBERT O G Þ Ú LÍTUR VEL ÚT Greini/egur munur Reynið Profutura og finnið muninn. Vítamínin fara þangað sem húðin raunverulega þarfnast þeirra. Það þýðir: Meiri vörn og aukinn raka fyrir þurra og strekkta húð. Dýpt hverrar hrukku minnkar á mjög skömmum tíma. Fæst aðeins hjá: Spes, Miðbæ Háaleitisbraut, Brá, Laugavegi, Clara, Austurstræti, Clara, Kringlunni, Bylgjan, Kópavogi, \ Snyrtihöllin, Garðabæ, Apótek Ólafsvíkur, Krisma, Isafirði, Apótek Siglufjarðar, Amaró, Akureyri, Hilma, Húsavik, Hafnarapótek, Ninja.Vestmannaeyjum. Vöruhús K.Á., Selfossi, Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkrók, Apótek Dalvíkur, Dalvik, Kaupfélag Borgarness, Borgarnesi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.