Morgunblaðið - 20.06.1992, Síða 7

Morgunblaðið - 20.06.1992, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1992 B 7 FJÖLLISTAKONAN HJÖRDIS JOHANSEN. v RÆTT VIÐ HALLVEIGU THORLACIUS OG HELGU ARNALDS UM LEIKFERÐ SÖGU- SVUNTUNNAR UM FÆREYJAR Listahátíðinni í Bergen nú í vor og fylgdi þar með í fótspor Sögusvunt- unnar, sem um páskana fór í leik- ferð með „Söguna af músinni Rús- ínu“ til Færeyja og sýndi alls 11 sýningar á 5 dögum — auk þess sem þær Hallveig Thorlacius og Helga Amalds, sem standa að brúð- uleikhúsinu Sögusvuntan, héldu leikbrúðunámskeið í Þórshöfn. „Textinn var þýddur fyrir okkur og við lærðum sýninguna á fær- eysku,“ segja þær Hallveig og Helga. „Fyrst fannst okkur þetta rosalega fyndið — eins og íslending- um finnst færeyska alltaf vera — en það var bara fýrst. Nú finnst okkur hún hljóma fallega eftir að hafa dvalið í Færeyjum, þótt ekki sé nema í viku, sjáum við Færey- inga i allt öðru ljósi og finnst synd að íslendingar skuli ekki líta meira til þeirra. Við getum ýmislegt af þeim lært. Það sem kom okkur fyrst á óvart, var að Færeyingar eru ekki búnir FÆREYSK BORNhÉiLSA MÚSINNI RÚSINU. Á NÁMSKEIÐI í LEIKBRUÐUGERÐ. að gefast upp á að sporna við mynd- bandamenningunni. Hið opinbera hefur ekki einu sinni gefist upp á því. Það kom ekki síður á óvart hve stór liður í starfsemi Norðurlanda- hússins barnamenning er. Jan Klöv- stad, forstöðumaður hússins, sem reyndar er norskur, á mikinn heiður skilinn. Áhugi hans, dugnaður og framsýni dyljast engum sem kemur inn í þetta hús.“ AÐ DREIFA LIFANDILIST í viðtali sem tekið var við Jan Klövstad meðan á heimsókn hans stóð, var hann spurður hvaða hugs- un lægi á bak við það að fá ís- lenskt leikhús til að leika fyrir fær- eysk börn. „Norðurlandahúsið í Færeyjum vinnur markvisst að því að dreifa lifandi list um Færeyjar,“ svaraði hann. „Samkeppnin við myndband- amenninguna er vissulega hörð. Eitt af markmiðum okkar er að fjór- um sinnum á ári sé boðið uppá leik- sýningar fyrir börn, tvisvar á vori og tvisvar á hausti, og farið með þær eins víða um eyjarnar og kost- ur er. Okkur langaði til að fá gott ís- lenskt brúðuleikhús og leituðum til- „Sögusvuntunnar" til að leika fýrir færeysk börn, auk þess sem við vildum fá námskeið til að setja færeyskt listafólk sjálft í gang. Það má segja að við höfum fengið bæði „poka og sekk“ eins og við segjum í Noregi, því við fengum íslenskt leikhús á færeyskri tungu. Þessi heimsókn „Sögusvuntunnar" full- nægði öllum kröfum sem við gátum gert. Og ég heyri að áhorfendum fannst sýningin bara meira spenn- andi vegna íslenska hreimsins á færeyskunni." Hlutverk Norðurlandahússins í Færeyjum segir Jan vera þríþætt: í fyrsta lagi, að koma norrænni list á framfæri í Færeyjum, í öðru lagi að koma færeyskri list á framfæri á hinum Norðurlöndunum og í þriðja lagi að taka þátt í því ótrú- lega auðuga menningarlífi sem þrífst í Færeyjum. „Og þótt mörg- um Þórshafnarbúum, (til dæmis William Heinesen), finnist stundum Þórshöfn vera nafli alheimsins, vilj- um við ekki gleyma úteyjunum. Við bjóðum til dæmis börnum sem búa í afskekktum byggðum ókeypis far á sýningar „Sögusvuntunnar" með þyrlu. Við buðum meðal annars eina drengnum sem býr í Gásdal, af- skekktri byggð á Vágey — en um hana hefur verið gerð merk heimild- armynd, „1.700 metra frá framtíð- inni“. HORNSTEINN LAGÐUR Þótt íslenskt brúðuleikhús eigi sér ekki langa sögu hér á landi, hefur það öðlast þó nokkra viður- kenningu erlendis og ég spurði þær Hallveigu og Helgu hvernig fær- eyskt brúðuleikhús sé statt. „Það er ekkert brúðuleikhús í Færeyjum. Þó hefur Hjördis Jo- hansen, mikil fjöllistakona þar í landi, aðallega myndlistarkona, sett upp brúðusýningar. Við héldum þriggja daga námskeið með tuttugu konum, meðal annars Katrínu Nolsoy, sem lærði í Leiklistarskóla íslands og hefur brennandi áhuga, og settum upp sýningu með þeim. Það voru fjórir stuttir þættir úr norrænni goðafræði. Þarna var sáð fræi og svo er að sjá hvað sprettur upp af því.“ En nú sýnduð þið „Söguna af músinni Rúsínu," mjög víða; á San- dey, Vogey og Straumey. Hvernig tóku bömin ykkur? „Þau tóku okkur vel eins og ís- lensk börn. Við byijuðum að sýna um leið og við komum til Þórshafn- ar. Þessi vikuferð var öll mjög vel skipulögð og sýningamar voru vel auglýstar. Aðsóknin var miklu meiri en við var búist og strax varð að bætta við 3 aukasýningum. Fær- eyska sjónvarpið tók upp hluta af sýningunni og sendi út í barnatím- anum, strax fyrstu dagana. Það var atriði þar sem Helga kemur fram og talar við börnin. Af þessu varð hún vitanlega þekkt um allar Fær- eyjar. Það vissu öll börn hver hún var og það var mikið hvíslað og bent, þegar hún gekk um göturn- ar,“ segir Hallveig. Þær eru sammála um að færeysk börn séu mjög skemmtilegir áhorf- endur. „Við vorum búnar að æfa okkur „mjög“ mikið í marga mán- uði að flytja textann á færeysku og vorum ánægðar með að færeysk- an okkar þótti alveg frambærileg. íslenski hreimurinn okkar var ekk- ert til trafala, kannski vegna þess að byggðir eru svo dreifðar í Fær- eyjum að þar eru margar mállýsk- ur.“ SÉRSTAKUR HEIMUR „En það var svo margt annað sem var skemmtilegt. Þetta land er svo sérkennilega samsett. Það er stutt síðan hver eyja var heimur út af fyrir sig og það er ekki langt síðan þær komust í þjóðbraut. Því heldu Færeyingar langar veislur ef þeir á annað borð komu saman. Brúðkaup stóðu lengi og voru vand- lega undirbúin. Mannlífið á eyjun- um er því einhvers konar sambland af bóhemlífi og sveitalífi. Við höfð- um því miður ekki tíma í þetta skipt- ið en eihvern tíma látum við áreið- anlega verða af því að stíga fær- eyskan dans um bjarta sumamótt. Við sýndum í einu pínulitlu þorpi á Sandey — og á þessum afskekktu stöðum koma foreldrarnir líka. Það kom okkur ekki lítið á óvart að i þessu litla þorpi bjuggu sjö íslensk- ar konur, sem allar höfðu gifst þangað. Færeyingar segja líka allt- af að einhleypar konur þurfi að vara sig þegar þær koma þangað, vegna þess að færeyskir karlmenn séu svo myndarlegir að þær eigi ekki afturkvæmt," segja þær Hall- veig og Helga hlæjandi. Og er eitthvað til í því? „Já,“ svara þær, án þess að hugsa sig um, „og Færeyingar eru yfírleitt mjög „sjarmerandi“ fólk — sem er virkilega gaman að heim- sækja.“ hennar almennt í íslensku listalífi. Umræða um leikhúsgagnrýni hér- lendis hefur verið afskaplega tak- mörkuð og einkennst af miklum til- fínningahita, oftast reiði í garð ákveðinnar gagnrýni. Mér finnst því löngu kominn tími til að leikhúsfólk sem og gagnrýnendur reyni að ræða saman á hófstilltum nótum um gagn- rýni. Frjó umræða getur aldrei verið til vansa og eitt er víst gagnrýnin batnar ekki þótt menn andskotist út í hana sí og æ, það hefur engin uppbyggjandi áhrif. Það felst oft meiri og betri leiðbeining f því að benda á það sem vel er gert, þannig verða til æskilegar fyrirmyndir sem hægt er að taka mið af. Ég myndi gjaman vilja sjá leikhúsfólk stinga niður penna í rólegheitum og tjá sig um leikhúsgagnrýni, hvaða tilgangi þeim fyndist hún ætti að þjóna, hvernig henni yrði best sinnt, hvaða þætti henni bæri að rækta o.s.frv. HLUTVERK BLAÐAGAGNRÝNI Víkjum aftur ögn að erindi Raiju. Það er augljóst að rýmið sem gagn- rýni er ætlað gefur ekki færi á löng- um og ítarlegum hugleiðingum um verkin. Menn hafa því oft á tíðum hneigst til þeirrar skoðunar að blaða- gagnrýni hafi tæpast neinu alvar- legu hlutverki að gegna og að gagn- rýnandinn væri frekar í hlutvcrki upplýsingafulltrúans en rann- sakandans. Ástráður Eysteinsson, bókmenntafræðingur, sagði í grein sem hann skrifaði í Tímarit Máls og menningar fyrir tíu ámm um bók- menntagagnrýni dagblaðanna, að blaðagagnrýni ætti heima á milli fréttamennsku og fræðistarfa. Hann taldi jafnframt að íslensk blaðagagn- rýni væri á tíðum hættulega höll undir það fyrrnefnda. Hann afneitar ekki upplýsinga- og kynningarhlut- verki ritdómanna en segir það óæski- lega oft hlutverk þeirra. Þeir verði því líkari fréttum en ella og bókaum- fjöllunin verði að flutningi óskeikula staðreynda. Þannig telur hann að hið rétta eðli ritdómsins sé dulið þar sem hann sé mun persónulegri skrif en fréttaflutningur. Ólafur heitinn Jónsson, gagnrýnandi, tók upp þessa umræðu Ástráðar í grein sem hann skrifaði í DV í nóvember 1982 og þar sagði hann meðal annars: Gagn- rýni er blaðamennska, gagnrýnand- inn blaðamaður, það er sjálfgefíð mál ... Hans verk er meðal annars að miðla upplýsingum, segja frá og lýsa bók sem hann hefur lesið og leggja í framhaldi þeirrar frásagnar sitt eigið mat á hana í samhengi annarra bókmennta, segja í stystu máli kost og löst á bókinni." PERSÓNULEG GAGNRÝNI Þessi umræða á auðvitað allt eins við um leiklistargagnrýni og bók- menntagagnrýni. í raun eru þeir Ólafur og Astráður að lýsa því sama; gagnrýnandanum ber að gera ljósa grein fyrir afstöðu sinni þannig að ljóst megi vera hver sé forsenda nið- urstöðu dómsins eða með orðum Ástráðar: „því þegar ritdómarar gera ekki grein fyrir persónulegri afstöðu sinni er erfítt fyrir lesenda að vita á hvaða forsendu niðurstaða hans byggist. Ekki síst þegar niður- stöðurnar koma eins og „þruma úr heiðskíru lofti“ og virðast hreinlega miðaðar við trúgirni lesenda." Ég get fúslega tekið undir þá skoðun Ástráðar að gagnrýni verði að vera persónuleg en um leið verð- um við að vara okkur á því að fara ekki út í algert afstæði. Ef við teljum að gagnrýni sé einhvers virði (og ég vona að það geri einhveijir ennþá) þá hljótum við að gera ráð fyrir því að til sé réttari gagnrýni en önnur. Þar á ég við gagnrýni sem byggir niðurstöðu sína á sem flestum þátt- um þess verks sem verið er að greina. Það er tæpast hægt að kom- ast hjá því að fella dóma um verk vilji maður taka afstöðu til þess en þeir verða þá helst að koma í kjölfar skilmerkilegrar greiningar og vera studdir með dæmum. RÝMIGAGNRÝNINNAR Þá komum við aftur að rýminu sem gagnrýninni er ætlað. Það er ekki óendanlegt þannig að fara verð- ur sparlega með löng og ítarleg dæmi máli sínu til stuðnings sérstak- lega ef það á að nást að minnast á allt sem virðist þurfa að koma fram í leiklistargagnrýni. Raunar held ég að formið sé dulítill óvinur gagnrýn- innar. í henni verður að koma fram lýsing á öllum þáttum sýningarinn- ar; það þarf að fjalla um verkið sjálft, framvindu sýningarinnar, leikinn (frammistöðu leikara), lýsingu, tón- list, leikmynd, búninga, leikstjóm. Ef eitthvað er skilið útundan hey- rast raddir um að þama sé nú gagn- rýnandanum rétt lýst og hann skilji ekki mikilvægi þessa eða hins þáttarins í sýningunni. Að sjálfsögðu spila allir þessir þættir saman í leik- sýningu en þegar þessari upplýs- ingaskyldu er sinnt þá er oft lítið rými eftir til vangaveltna og greining- ar. Kúnstin er auðvitað sú að reyna að flétta í eitt lýsingu, greiningu, túlkun og mat sem getur reynst allt annað en auðvelt á emni næturstund eftir frumsýningu. Ég er ekki að segja þetta til þess að lesendur kom- ist við og vorkenni aumingjans gagn- rýnendunum heldur til þess að benda á að mér finnst að endumýja þurfi þetta form og að mínu áliti er einnig megnasti óþarfí að birta gagnrýnina strax eftir framsýningu. Þarna kem- ur hins vegar markaðslögmálið til sögunnar, því eins og Raija sagði þá er sýning sem ekki fær umfjöllun tæpast til í huga fólks. Þess vegna er, þrátt fyrir neikvætt álit leikhús- fólks á gagnrýni, alltaf gifurleg pressa frá leikhúsunum að fá umfjöll- un í fjölmiðlun, bæði fýrir sýningu (kynning) og eftir (gagnrýni). BIRTING GAGNRÝNI Það sama gildir auðvitað um bók- menntagagnrýnina sem verður helst öll að líta dagsins ljós áður en bless- uð jólin eru hringd inn en samhliða er fussað og sveiað yfír gagnrýnend- unum sem ritdæma hveija bókina á fætur annarri og talað um fljótvirkn- isleg vinnubrögð og þar fram eftir götunum. Þessi aðferð, að birta gagnrýnina helst í gær, er held ég einn helsti dragbítur vel ígrundaðar og skapandi gagnrýni. Þar með erum við líka að tengja gagnrýni meira við fréttir en nauðsynlegt er. Með þessu móti er ég alls ekki að fría gagnrýnendur allri ábyrgð, það er hægt að skrifa góða gagnrýni þrátt fyrir þessi ytri skilyrði, það hafa margir góðir bókmennta- og leiklist- argagnrýnendur sýnt og sannað (jú, þeir era til!) en þessi skilyrði stuðla tæpast að vandaðri og skapandi gagnrýni sem ég tel að öll okkar sem fáumst við að skrifa gagnrýni vilji gera. Ég held að tæpast sé til sá leikhús- gagnrýnandi sem ekki er að þessu vegna ástar sinnar á leikhúsi og eins og þeir þekkja sem einu sinni hafa verið ástfangnir þá vill maður allt gera til þess að ástin manns taki á móti og finni þann kærleika sem maður ber til hennar. Að svo skrifuðu óska ég leikhús- fólki ánægjulegs sumarleyfís.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.