Morgunblaðið - 07.08.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.08.1992, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA Pior0Mttl»Iaíiií> 1992 FOSTUDAGUR 7. AGUST BLAÐ B adidas annab ekki • •• KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ Brotið gegn Ijarskiptalögum Þegar samtöl dómara og leikmanna í leik voru hljóðrituð og send út án heimildar Morgunblaðið/Astvaldur Bragl Bergmann dómari í leik Vals og ÍA í tíundu umferð Samskipadeildarinnar, dæmir hér vítaspymu í leiknum og hljóðritar um leið fyrir Stöð tvö mótmæli leikmanna Vals, en hann var með upptökubúnað innan klæða til þess ama og höfðu leikmenn enga hugmynd um það. Uppátækið sem Stöð tvö stóð fyrir, er talið brot á fjarskiptalögum og lögum er varða friðhelgi einkalífsins. OLYMPIULEIKAR / HANDKNATTLEIKUR KONUR Noregur leikur um gull Norsku stúlkurnar leika til úr- slita við Suður-Kóreu í hand- knattleikskeppni kvenna í Barcel- ona, en þær voru ákveðnar að ná alla leið þegar þær héldu til Barcel- ona - sögðust ætla að feta í fót- spor Dana, sem unnu Evrópukeppni landsliða í knattspymu. Noregur, sem kom inn á síðustu stundu eins og karlalið íslands, sigraði Sam- veldið 24:23 og Suður-Kórea vann Þýskaland 26:25 í undanúrslitum í gær. Noregur hefur aðeins tapað einum leik, gegn Suður-Kóreu, í riðlakeppninni. En nú fá þær norsku tækifærið til að bæta fyrir það í úrslitaleiknum. ÞAÐ uppátæki Stöðvar tvö að fela upptökubúnað inn á dómara í leik ÍA og Vals f 10. umferð Samskipadeildarinnar, og hljóðrita þannig samtöl dómara við leikmenn og aðstandendur liðanna, er að margra mati brot á fjarskiptalögum og lögum sem vernda frið- helgi einkalífsins. Ólafur Steinar Valdimarsson, ráðuneytisstjóri í samgönguráðuneytinu, segir það skoðun sína að með þessu til- tæki hafi 18. grein fjarskiptalaganna verið brotin. Forsaga málsins er sú að í leik Vals og ÍA í tíundu umferð Samskipadeildarinnar, var hljóðrit- unarbúnaður falinn inn á Braga Bergmann, dómara leiksins, án vit- undar leikmanna eða annarra, og samtöl hans við leikmenn og aðra meðan á leiknum stóð hljóðrituð, og síðar send út í íþróttaþætti Stöðvar tvö sl. þriðjudagskvöld, án heimildar viðkomandi leikmanna eða aðstand- enda. , Ólafur Steinar sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að vegna sum- arleyfa hefði sérstök rannsókn á þessu tiltekna máli ekki verið sett í gang í samgönguráðuneytinu, en það stæði til. Hann sagði að við fyrstu sýn virtist honum sem 18. grein fjar- skiptalaga, nr. 73 frá 1984, hefði verið brotin með þessu. í umræddri grein segir: „Sá sem með einhverjum hætti án heimildar tekur við sím-. skeytum, myndum eða öðrum fjar- skiptamerkjum, eða hlustar á ijar- skiptasamtöl má ekki skrá neitt slíkt, tilkynna það öðrum eða notfæra sér það á nokkum hátt.“ Leikmönnum eða aðstandendum liðanna í leiknum sem fram fór á Akranesi, var ekki tilkynnt um að til stæði að taka upp samtöl þeirra við dómarann, þaðart af síður voru þeir beðnir leyfis áður en það var gert, og andstaða þeirra við því að upptakan yrði sýnd var ekki tekin til greina. Umrædd sam- töl voru því tekin upp og send út án heimildar. Brot gegn umræddri grein varðar sektum skv. 228. gr. al- mennra hegningarlaga, sem fjallar um brot gegn friðhelgi einkalífs. Guðmundur Kjartansson, formað- ur knattspymudeildar Vals, sagði þeir hefðu alls ekki verið sáttir við þetta uppátæki þegar þeir fréttu af því. Þeir hefðu haft samband við forsvarsmenn Stöðvar tvö og kynnt þeim það álit Valsmanna að þeir væru mótfallnir því að þessu yrði sjónvarpað, en þeir hafi greinilega ekki virt þá viðlits. Þar að auki hafi honum sýnst sem andstaða þeirra og fleiri aðila við því að þetta yrði sýnt, espað þá upp í að sýna þetta. „Þetta er auðvitað í hæsta máta óeðlilegt og þetta verður vonandi aldrei gert aftur,“ sagði Guðmundur. Hann sagðist ekki ætla að bera í bætifláka fyrir leikmennina í um- ræddum leik, en það yrði auðvitað að hafa í huga að dómarinn vissi einn manna af því inni á vellinum að hann væri með hlerunarbúnað, og hefði því hagað sér í samræmi við það. „Hann hagaði sér þar af leiðandi allt öðmvísi en hann er van- ur, meðan að leikmennirnir höfðu ekki hugmynd um hvað var í gangi. Það er auðvitað óþolandi fyrir leik- menn að eiga það yfir höfði sér að samtöl þeirra við dómara í leikjum sumarsins verði sýnd í tíma og ótíma á einhverri sjónvarpsstöð," sagði Guðmundur. Guðmundur Ólafsson, yfirmaður fjarskiptaeftirlits Pósts og síma, sagði að þetta mál væri í athugun hjá þeim, en aðeins sú hlið málsins hvort Stöð tvö hefði notað löglegan fjarskiptabúnað við upptökuna. Guðmundur Torfason til St. Johnstone Quðmundur Torfason knattspymumaður var í gær seldur frá St. Mirren til St. Johnstone fyrir 90.000 sterlingspund [rúmlega níu millj. ísl. kr.]. Guðmundur skrifaði undir tveggja ára samning við St. Johnstone sem hafnaði 18. sæti í skosku úrvalsdeildinni á síðasta keppn- istímabili. Fækkað var I deildinni fyrir þetta keppnistímabil úr tólf liðum niður í ttu og búast má við að baráttan komi til með að verða erfið hjá liðinu í vetur. Guðmundur leikur sinn fýrsta leik með nýja félaginu gegn Partick Thiatle á laugardag. KIMATTSPYRNA: „TÍMIKOMINNTIL AÐSTÖÐVA VALSMENN“ / B8

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.