Morgunblaðið - 07.08.1992, Side 3
MORGUNELAÐIÐ 999 BARCELONA ’92 FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1992
B 3
HANDKNATTLEIKUR
r _
Islendingar leika gegn Frökkum um bronsverðlaun
Köstuðum
þessufrá
okkur..
- sagði Geir Sveinsson fyrirliði íslands eftir að
liðið tapaði 19:23fyrirSamveldinu
„ÉG get ekki neitað því að þetta eru mikil vonbrigði. Ég var farinn
að gera mér heilmiklar vonir eftir að við komumst í undanúrslit-
in,“ sagði Geir Sveinsson, fyrirliði íslenska landsliðsins íhandknatt-
leik, eftir að liðið tapaði fyrir Samveldi sjálfstæðra rikja (fyrrum
Sovétríkjum) 19:23 í undanúrslitum handknattleikskeppni Ólympíu-
leikanna ígærkvöldi. Það er því Ijóst að íslendingar mæta Frökkum
íleik um þriðja sæti og bronsverðlaun á morgun. Frakkartöpuðu
fyrir heimsmeisturum Svía í hinum leik undanúrslitanna í gær.
Skapti
Hallgrimsson
skrifar frá
Barcelona
ÍslQndingar voru mjög ákveðnir í
bytjun og skoruðu í tveimur fyrstu
sóknum sínum, en hreyfanleg 5/1
vörn Samveldisins
reyndist þeim erfið
og nokkrar næstu
sóknir í röð fóru for-
görðum. Hraðinn var
meiri en strákarnir virtust ráða við
og sóknarmistökin voru mörg. Sam-
veldið náði fljótlega fjögurra marka
forystu, en ísland jafnaði með góðum
leikkafla. Munurinn var tvö mörk í
hálfleik og íslenska liðið kom svo af
gífurlega krafti til leiks eftir hlé.
Jafnaði fljótlega 12:12 og komst yfir
16:15, og þá var kátt í höllinni —
enda virtust allir áhorfendur á bandi
íslendinga. En ekki náðist að fylgja
þessu eftir, aginn í sóknarleiknum
og einbeitingin var ekki nóg og því
fór sem fór. Það má aldrei slaka á
gegn jafn sterku liði og Samveldinu.
„Eftir að hafa verið búinn að skoða
Rússana í tvo daga fannst mér við
eiga að eiga virkilega góða möguleika
gegn þeim,“ sagði Geir Sveinsson á
eftir, „og þegar maður hugsar fljótt
til baka held ég að við höfum kastað
þessu frá okkur. Mér fannst við of
„passívir" í fyrri hálfleik, við vorum
ekki að leika þann handbolta sem við
ættum að gera, fannst við vera svolít-
ið hræddir. Svo töluðum við um þetta
í hálfleik og það var allt annað að
sjá til liðsins í seinni hálfleik. Við
byrjuðum af miklum krafti, en um
leið og við vorum komnir yfir 16:15
fórum við aftur að bakka. Og ég
held við höfum fallið á því að við
urðum aftur hræddir og lékum ekki
áfram þann „aggressíva" handbolta
sem við gerðum fyrri hluta seinni
hálfleiksins. Ég held menn eigi eftir
að átta sig á því að þarna rann rosa-
lega stórt tækifæri okkur úr greiputn,
en það þýðir alls ekki að við séum
hættir og við ætlum okkur að taka
bronsið. Það er engin spurning,"
sagði Geir.
Fyrirliðinn sagði að ef til vill hefði
vantað meira hungur í leikmenn.
FRJALSAR
„Við vorum búnir að ræða það að
menn gerðu sér grein fyrir því hvað
væri virkilega í húfi, en það er bara
ekki víst að menn hreinlega átti sig
á því. Að innst inni hafi menn kannski
sætt sig við það að vera komnir í
fjögurra liða úrslit, ég veit það ekki.
En menn gáfu allt í þetta í byijun
seinni hálfleiks, en svo var eins og
vantaði eitthvað örlítið upp á að
menn hefðu trú á þessu og við tækj-
um þetta.“
Það var ýmislegt gott f leik ís-
lenska liðsins. Baráttan var mjög góð
og vörnin sterk á köflum. En vitað
mál var að þrír leikmenn Samveldis-
ins voru yfirburðamenn í liðinu,
miðjumaðurinn Douichebaev, skyttan
Jakímóvítsj og vinstri hornamaðurinn
Gopín og þeirra var alls ekki nægi-
lega vel gætt. Sérstaklega útileik-
mannanna, sem gerðu samtals 16
mörk. Þeir eru vissulega illviðráðan-
legir, en ekki stórir og hefðu þeir
verið teknir fastari tökum, verið farið
á móti þeim fyrr, hefði verið hægt
að fækka mörkunum sem þeir gerðu.
Þá var of mikið um mistök í sókn-
inni. Þar sáust þó mjög laglegir hlut-
ir. Valdimar byrjaði frábærlega og
var mjög ógnandi, gerði fimm af
fyrstu sex mörkunum og Geir lék
mjög vel á línunni. Skyttunum voru
nokkuð mislagðar hendur en voru þó
ógnandi. Guðmundur Hrafnkelsson
byijaði í markinu en náði sér ekki á
strik, en þegar Bergsveinn kom í
markið eftir tæplega tíu mín. leik
eftir hlé fór hann strax vel í gang.
Það er því spurning hvort ekki hefði
mátt setja hann inn á fyrr, þar sem
Guðmundur fann sig engan veginn.
Það er auðvitað súrt að sætta sig
við tap, að ekki sé nú talað um þeg-
ar raunhæfur möguleiki var á sigri,
en það þarf enginn að skammast sín
fyrir að tapa gegn liði Samveldisins.
Það hefur enn ekki tapað leik í keppn-
inni. Og nú er bara að stefna á brons-
verðlaun, sem yrði ekki dónaleg út-
koma. ísland getur sigrað Frakkland,
það er engin spurning.
Morgunblaðið/Rax
Jakob Sigurðsson og Gunnar Gunnarsson fagna Geiri Sveinssyni eftir að
sá síðastnefndi hafði skorað eitt af fimm mörkum sínum í leiknum gegn Sam-
veldinu. Það dugði skammt og íslendingar þurftu að játa sig sigraða eftir
mikla baráttu.
Island - Samveldið
19:23
Iþróttahöllin i Granollers, undanúrslit handknattleikskeppni Ólympíuleikanna, fimmtudag-
inn 6. ágúst 1992.
Gangur leiksins: 1:0, 1:1, 2:1, 2:6, 6:6, 6:9, 7:9, 7:10, 9:10, 9:11, 9:12, 12:12, 12:14,
14:14, 14:15, 16:15, 16:18, 17:18, 17:20, 18:20, 18:22, 19:22, 19:23.
ísland: Valdimar Grímsson 6/2, Geir Sveinsson 5, Júlíus Jónasson 4, Héðinn Gilsson
2, Jakob Sigurðsson 1, Sigurður Bjamason 1. Aðrir í hópnum: Gunnar Gunnarsson,
Einar Gunnar Sigurðsson, Konráð Olavson og Birgir Sigurðsson.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 6 (þar af 1 þar sem knötturinn fór aftur til
mótheija), Guðmundur Hrafnkelsson 3.
Utan vallar: 14 mínútur.
Samveldið: Douichebaev (nr. 10) 9/2, Jakimovítsj (nr. 13) 7, Valerij Gopin (nr. 8) 3,
Oleg Kisiliev (nr. 15) 1, Barbachinski (nr. 4) 1, Júrí Gavrilov (nr. 3) 1, Bebechko (nr. 7) 1.
Varin skot: Andrej Lavrov 10 (þar af 3 þar sem knötturinn fór aftur til mótheija).
Utan vallar: 10 minútur.
Dómarar: Hans Emil Thomas og Jurgen Klaus Thomas frá Þýskalandi. Dæmdu vel.
Gullið er verðmætara en met
- sagði Bandaríkjamaðurinn Mike Marsh eftirsigur í 200 metra hlaupi
^ftri undanrásirnar í 200 metra
hlaupi áttu margir von á að
Bandaríkjamaðurinn Mike Marsh,
sem hljóp á 19,73, setti heimsmet í
úrslitunum. En elsta heimsmet fijáls-
íþrótta, 19,72 frá 1979, hélt. Marsh
hljóp á 20.01 og þó hann væri langt
frá metinu nægði tíminn til sigurs.
Marsh hefur aldrei sigrað í meist-
arakeppni Bandaríkjanna og vænt-
ingarnar hafa ekki verið miklar. Áður
lagði hann áherslu á 100 metra
hlaupið, en æfði líka 200 „og hægt
og sígandi öðlaðist ég sjálfstraust í
greininni." í fyrra var hann talinn
sjötti besti í báðum greinum í Banda-
rikjunum, en í gær skaust hann fram
á sjónarsviðið sem ólympíumeistari í
grein, þar sem.gert var ráð fyrir allt
öðrum sigurvegara. Hann tók samt
sigrinum með jafnaðargeði og þótti
mörgum nóg um. „Ég er frekar hlé-
drægur, en sjálfsagt var allt á suðu-
punkti innan í mér!“
Frankie Fredericks frá Namibíu
varð í öðru sæti eins og í 100 metra
hlaupinu, en Bandaríkjamaðurinn
Michael Bater fékk bronsið.
Tom Tellez, sem tók við þjálfun
Marsh fýrir tveimur árum, sagði hon-
um fyrir undanrásirnar að hlaupið
virtist auðveldara með meiri hraða
og það gekk þá eftir. í úrslitunum
sagðist Marsh ekki hafa viljað taka
of mikla áhættu. „Ég var of afsla{>p-
aður og áttaði mig á því eftir fimm
skref. Eg vissi að ég yrði að auka
hraðann, en mér tókst ekki að ná
rétta taktinum.“
Marsh var ánægður, þó heimsmet-
ið héldi, og sagði að þó hann hefði
misst af tækifærinu, héldi það ekki
fyrir honum vöku. „Ég hélt að ég
gæti náð betri tíma, en hraðinn
undanrásunum hafði sitt að segja og
þreytan tók sinn toll. Ég einbeitti
mér of mikið að því að hugsa um að
slappa af og hreinlega gekk út úr
startblokkunum. Ég er svolítið sár,
en áhyggjurnar geta beðið seinni
tíma. Heimsmetið er eitthvað til að
stefna að, en heimsmet koma og fara.
Gullið er mun verðmætara, það er í
vasa mínum og verður ekki tekið frá
mér.“
Þarf eng-
innað
skammast
sín
- sagði Þorbergur
Aðalsteinsson
Það þarf enginn að skammast
sín fyrir þennan leik. Það
voru allir að beijast, við vorum
komnir yfir 16:15 í seinni hálf-
leik en vorum þá kannski ekki
nógu klókir til að klára leikinn.
Það fer ótrúlega orka í svona
leik og svo er þetta sennilega
spurning um reynslu að fara
langt í svona keppni — halda
haus þegar það þarf,“ sagði
Þorbergur Aðalsteinsson,
landsliðsþjálfari, eftir tapið gegn
Samveldinu í gærkvöldi.
Þorbergur sagði yfirvegun
hafa vantað þegar ísland var
komið yfir í seinni hálfleiknum.
„Svo lendum við í því að missa
menn útaf, og það má ekkert
fara úrskeiðis gegn svona sterku
liði. Þá er leikurinn tapaður.
Þeir þurfa ekki nema fimm til
tíu mínútur til að klára þetta.“
- Guðmundur komst ekki í
gang í markinu. Hefðirðu átt
að skipta honum út af fyrr?
„Við ætluðum að skipta hon-
um útaf en svo varði hann einn
eða tvo bolta og við hikuðum.
Það er alltaf spurning hvenær
eigi að skipta um markvörð,
Gummi hefur staðið sig feykna
vel hérna, og við vorum alltaf
að vonast til þess að hann myndi
komast í gang.“
Gunnar Gunnarsson var lát-
inn taka Jakimóvítsj úr umferð
þegar fimmtán mín. voru eftir
af leiknum og Jakob fór út á
móti Douichebaev þegar tæpar
sjö mín. voru til leiksloka. Þor-
bergur var spurður hvort ráð
hefði verið að fara út á móti
þeim fyrr, eða að minnsta kosti
láta taka fastar á þeim í vöm-
inni:
„Það gengur ekki á mót svona
liði; gegn mönnum með svona
svakalega snerpu, að taka tvo
úr umferð. Það færi með okkur
á örstuttum tíma. Það þarf að
halda haus, bíða eftir þessu og
finna rétta augnablikið." Þor-
bergur taldi það hafa verið á
réttum tíma sem hann lét taka
Jakimóvítsj úr umferð „en þá
sáum við strax hvað þeir voru
fljótir að finna glufur og týna
strákana útaf, þar á meðal einu
sinni tvo í einu. Það verður að
segjast eins og er að þeir eru
betri en við í dag, en við verðum
að sjá til í framtíðinni.“
Ekki nógu grimmbr í vöm
„Það voru allir að beijast á
fullu eins og þeir gátu, en það
gekk ekki betur. Ég held að ef
alit hefði gengið upp hefðum við
getað unnið þetta, en það gekk
ekki upp,“ sagði Héðinn Gilsson
á eftir.
„Ég held við þurfum ekki að
grafa hausinn í sandinn þó við
höfum tapað þessu — held við
getum borið höfuðið hátt.“ Héð-
inn sagði íslendingana hafa vit-
að að þrfr menn hefðu skorað
megnið af mörkum Samveldisins
í keppninni, „og við lögðum
dæmið þannig upp að taka þá
með venjulegri vöm. En við vor-
um bara ekki nógu grimmir í
að keyra út í þá — þeir fengu
að dansa allt of mikið fyrir utan
vörnina, og á því held ég við
höfum tapað leiknum," sagði
Héðinn. „Mér líst vel á leikinn
við Frakka. Þetta á lítið skylt
við handbolta sem þeir eru að
gera, er frekar likara hnefaleik-
um. Þeir eru mjög grófir en við
verðum bara grófir á móti. Get-
um það alveg ef við viljum,“
sagði Héðinn.