Morgunblaðið - 07.08.1992, Qupperneq 10
10 B
MORGUNBLAÐIÐ BARCELOMA '92 FÖSfUDAGÚR 7. ÁGÚST 1992
FRJALSIÞROTTIR
Einarog
Sigurður
verðaað
kasta 80 m
- til að komast í úrslitakeppnina
EINAR Vilhjálmsson og Sigurð-
ur Einarsson hefja keppni á
Ólympíuleikunum í dag og er
Sigurður ífyrri kasthópi en Ein-
ar íþeim seinni. Báðir verða
að kasta yfir 80 metra til þess
að komast í úrslitin. í hvorum
kasthópi eru 16 keppendur.
Til þess að komast sjálfkrafa í
úrslitakeppni spjótkastins sem
fram fer á Ólympíuleikvanginum á
morgun, laugardag, verður að
kasta 80 metra. Miðað við árangur
keppenda í ár, en 24 þeirra hafa
kastað yfír 80 metra á árinu,
mætti allt eins gera ráð fyrir að
fleiri en 12 kasti yfír lágmarkið.
Einar hefur náð 13. besta
16konur
yfir 1,92
Nær helmingur keppenda í
hástökki kvenna komst í
úrslit en 16 stúlkur stukku yfir
lágmarkshæðina til að tryggja
sér sæti þar.
Lágmarkshæðin var 1,92
metrar en sex stúlkur til viðbót-
ar voru skammt frá því að kom-
ast í úrsiitin líka því þær stukku
1,90 metra.
Bestu hástökkskonur heims
keppa til úrslita, s.s. Heike
Henkel Þýskalandi og Stefka
Kostadinova Búlgaríu, sem eru
þær einu sem stokkið hafa yfir
tvo metra í ár. Þær hafa jafn-
framt verið yfírburðakonur í
greininni undanfarin 10 ár en
Kostadinova hafði t.d. um sl.
áramót stokkið tvo metra eða
hærra á 69 mótum, hæst þegar
hún setti heimsmetið í Róm
1987 en þá stökk hún 2,09
metra. Hún á jafnframt 11 af
12 bestu stökkunum frá upp-
hafí. Kostadinova hefur stokkið
2,05 í ár og Henkel 2,04.
Aðrar sem eru í hópi 10 bestu
heiminum í ár og keppa til úr-
slita á morgun, laugardag, eru
Galina Astafei Rúmeníu, Joanet
Quintero og Silvia Costa Kúbu
og Tanya Huges Bandarflqun-
um.
árangri keppenda sem mættir eru
til leiks en Sigurður 16. þegar mið-
að er við árangur ársins. Miðað við
besta árangur keppenda hafa 10
kastað lengra en Einar og 12
lengra en Sigurður.
Meðal keppenda eru allir fremstu
kastarar heims undanfarin ár.
Tékkinn Jan Zelezny hefur kastað
lengst eða 94,74 metra, að vísu
með umdeildu spjóti sem hann fær
ekki að nota í Barcelona. Bretinn
Steve Backley hefur einnig kastað
yfir 90 metra í ár eða 91,46.
Finnsku heimsmeistararnir frá í
fyrra og 1987, Kimmo Kinnunen
og Seppo Ráty, keppa og landi
þeirra Juha Laukkanen sem kastað
hefur 88,22 í ár. Tom Petranoff
sem keppir fyrir Suður-Afríku
verður hins vegar fjarri góðu gamni
en hann á fjórða besta árangur
ársins.
Spjótkastaramir verða snemma
á ferðinni því Sigurður hefur
keppni kl. 7:35 fyrir hádegi að
okkar tíma en gert er ráð fyrir að
kasthópur Einars hefji keppni
klukkan 8:45.
PJOTKAST
ÞROUN HEIMSMETSINS I SPJOTKASTi
Metrar
105
100
95
90
85
80
75
70
86,74 (1961) 94,08 (1973) 85,74 (1986)
87,12 (1964) 94,58 (1976) 87,66 (1987)
91,72(1964) 96,72 (1980) 89,10 (1990)
91,98 (1968) 99,72 (1983) 89,58 (1990)
92,70 (1969)104,80 (1984) 91,46 (1992)
93'S0(1972>
57,92 (1960) 66,10 (1973) 70,80 (1980) 75,26 (1985)
59,55 (1960)- 67,22 (1974) 71,88 (1981) 75,40 (1985)
59,78 (1963) 69,12 (1976) 72,40 (1982) 77,44 (1986)
62,40 (1964) 69,32 (1977) 74,20 (1982) 78,90 (1987)
62 J0 (1972) 69,52 (1979) 74,76 (1983)
Nýtl karlaspjót lekið REUTER
Inolkun 1986
6*
Jan Zelezny (Tékkósl.)
94,74(1992)
Karlartj
J
65,06 (1972) 69,96 (1980)
Konur
©sssss
Petra Felke (Pýskal.)
j 80,00(1988)
60
55 |—
1960
1965
1970
1975
1980
1985
1990 Ar
Fyrri kasthópur 1992 Pers.met
Julian Sotelo Madrazo, Spáni 78,28 78,28
Jan Zelezny, Tékkóslóvakíu 94,74 94,74
Víctor Zajtsev, Úzbekístan 87,20 87,20
Stephen Feraday, Kanada 76,66 77,78
Michael C. Hill, Bretlandi 85,32 85,32
Patrik Boden, Svíþjóð 85,58 89,10
SIGURÐUR EINARSSON 83,36 84,94
Lianbiao Zhang, Kína 83,84 83,84
Brian Crouser, Bandaríkjunum 80,42 83,00
Ivan Mustapic, Króatíu 81,46 81,46
Nigel Charles Bevan, Bretlandi 81,70 81,70
Tom Puktsys, Bandaríkjunum 83,20 83,30
Yusuf Ahmed Ali Nesaif, Bahrain 59,90
Juha Lauri Laukkanen, Finnlandi 88,22 88,22
Gavin Brian Lovegrove, Nýja Sjálandi 86,14 86,14
Terry McHugh, írlandi 84,54 84,54
Seinni kasthópur Ár. 1992 Besti ár.
Steve Backley, Bretlandi 91,46 91,46
Seppo Henrik Ráty, Finnlandi 87,12 87,12
Ghanim Mabrouk, Kúveit 65,70 72,38
Dímítry Palíunín, Samveldinu 85,74 85,74
Michael W. Barnett, Bandaríkjunum 84,20 84,20
Dag Wennlund, Svíþjóð 85,52
EINAR VILHJÁLMSSON 84,36 85,48
Masami Yoshida, Japan 81,60
Peter Borglund, Svíþjóð 87,00 87,00
Andrej Shevtsjúk, Samveldinu 81,76 81,76
Marcis Strobinders, Lettlandi 80,24 80,32
Kimmo Paavali Kinnunen, Finnlandi 90,82 90,82
Volker Hadwich, Þýskalandi 82,92 84,84
Ki-Hoon Kim, Suður-Kóreu 79,08 79,08
Vadím Bavíkím, ísrael 81,56 81,56
Nery Gustavo Kennedy Rolon, Paraguy 69,12 69,12
Til að kasta spjóti, sem er nærri þriggja metra langt og tæpt kíló að þyngd, lengra en 80 metra krefst mikillar
tækni. Spjótkastarinn verðurað ná sem mestum hraða í tilhlaupinu, staðnemast mjög skyndilega og
og á sama augnaoliki að nota handleggi og efri hluta líkamans til að þeyta spjótinu yfir höfuð sér.
Hreyfingin er óeðlileg fyrir líkamann og mikið álag er á handleggjum, fótleggjum og baki og spjót-
kastarar meiðast því oft. Sá sigrar sem lengst kastar í sex tilraunum. (Prjár tilraunir í undankeppni.)
KARLASPJÓT: 2,7 metra langt og vegur a.m.k. 800 g
SPJÓTIÐ: málmblanda
GRIP: vatið bómullarþræði
KVENNASPJÓT: 2,3 metra langt og vegur a.m.k. 600 g
Atrennan
brautin er 34,9
metra löng og
4 m breið
ÓLYMPÍUMET
Karlar
Jan Zelezny (Tékkósl.) 85,9 m (1988)
Konur
Petra Felke (Þýskal.) 74,68 m (1988)
Barcelona ’92
Kastið
Útkastshörnið
þarf að vera um
30-35 gráður og
spjótinu er kastað
með snúningi.
Þegar kastarinn
sleppir spjótinu er
hraði þess um
100 km/klst.
Þar sem vindur getur
verið mismunandi á
meðan keppni fer fram
er það ekki alltaf sterkasti
kastarinn sem sigrar.
REUTER
HEIMSMET
Karlar
Jan Zelezny(Tékkósl.) 94,74 m (1992)
Konur
Petra Felke (Þýskal.) 80,00 m (1988)
BORÐTENNIS
Reuter
Jan Owe Waldner frá Svíþjóð sigr-
aði Frakkann Jean-Philippe Gatien
næsta auðveldlega í úrslitaleiknum í
einliðaleik í borðtennis í gær.
Hann var
meiri-
háttar
- sagði Gatien um and-
stæðing sinn í úrslitaleiknum
„HANN stjórnaði leiknum eins
og sá sem valdið hefur. Hann
var í einu orði meiriháttar,"
sagði Frakkinn Jean-Philippe
Gatien um andstæðing sinn
Jan Ove Waldner frá Svíþjóð, í
úrslitaleiknum í einliðaleik
karla í borðtennis. Eins og
nærri má geta sigraði Svfinn
giska auðveldlega í úrslita-
leiknum; með þremur hrinum
gegn engri.
Það var aðeins í síðustu hrinunni
sem Frakkinn velgdi Svíanum
undir uggum. Waldner sigraði
fyrstu hrinuna 21-10, þá aðra 21-18
en þá þriðju 25-23.
Gatien náði aldrei að finna nægi-
lega gott svar við öflugasta vopni
Waldners, uppgjöfunum. „Þær voru
hrikalegar," sagði Gatien um upp-
gjafirnar eftir leikinn, en á leið sinni
í úrslitin náði hann að sigra Yoo
Nam-kyu frá S-Kóreu, gullverð-
launahafa í einliðaleik á síðustu
leikum.
En Gatien átti ekki aðeins í höggi
við Waldner. Um 5.000 þúsund
Svíar létu sjá sig á úrslitaleiknum
og studdu dyggilega við bakið á
sínum manni. Sænski konungurinn,
Karl Gústaf, lét meira að segja sjá
sig á leiknum.
Waldner sagði að sigurinn nú
væri honum meira virði en sigurinn
á heimsmeistaramótinu í Dortmund
1989. „í Dortmund lék ég mjög
vel, en nokkrir leikir voru ekki 100
prósent hjá mér. Síðustu fjórir leik-
ir mínir hér hafa verið þeir bestu á
ferlinum," sagði Waldner.
Það kom mjög á óvart að tveir
Evrópubúar skyldu leika til úrslita
í einliðaleik, þar sem Kínveijar
höfðu til þessa unnið öll verðlaun í
borðtennis á leikunum.
fl/ '
Svona mæla þeir í frjálsíþróttum
Spegill
■ Áður en grein hefst.er sérstakur mælir, sem
staðsettur er dálítið til hliðar við þann stað sem
keppnin fer fram, notaður til að mæla lengdina að
kaststaðnum í spjótkasti, eða hliðstæðan stað í
öðrum greinum. Innrauður geisli er sendur í
sórstakan spegil og þannig fæst nákvæmt horn og
fjarlægð. Fjarlægðin er síðan geymd í tölvu
mælisins. Tökum dæmi úr spjótkasti.
Sérstakur mælir er notaður við að mæla í kastgreinum
og stökkum á Ólympíuleikunum.
□ Eftir hvert kast er innrauða geislanum
beint að spegli sem settur er þar sem spjótið
kom niður.
Mælitækið
EjMælitækið notar
upplýsingarnar sem það geymir
um horn og fjarlægð að
kaststaðnum og mælir einnig
hornið á þann stað sem spjótið
lenti. Tölvan reiknar nákvæmlega
hvað kastið var langt á nokkn
sekúndum. Kaststaður
Keppandi