Morgunblaðið - 01.09.1992, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.09.1992, Blaðsíða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1992 KNATTSPYRNA / ÞÝSKALAND EyjóHur var í sviðsljósinu EYJÓLFUR Sverrisson kom inná hjá Stuttgart þegar um 10 mínútur voru liðnar af leiknum gegn Karlsruhe og lét mikið að sér kveða. í stöðunni 0:0 skor- aði hann með skalla, en markið var dæmt af vegna brots sam- herja, sem hafði engin áhrif á leikinn, og undir lokin var brot- ið á honum, víti og mark. Eyjólfur fékk sendingn inn fyrir vörn Karlsruhe, tók knöttinn niður og var felldur af markverðin- um á síðustu mínútu FráJóni leiksins. Thomas Halldórí Strunz skoraði úr Garöarssyni vítaspyrnunni og tryggði Stuttgart í Þýskalandi sigur. Leikur liðanna var frekar slakur, óheppnin elti Stuttgart í byrjun leiksins þegar tveir leikmenn liðsins meiddust. Gunter Scháfer og Mich- ael Fronzek þurftu báðir að yfir- gefa völlinn og í þeirra stað komu þeir Eyjólfur og Uwe Schneider. Varamennirnir fengu báðir góða dóma hjá Kicker og voru taldir með bestu mönnum liðsins hjá þýska tímaritinu. Walter skoraði fyrra mark SVISS Sigurður Grétarsson Sigurður ínýrri stöðu Sigurður Grétarsson og félagar hans í Grasshopper unnu stór- sigur á Bulle 5:0 í svissnesku deild- inni um helgina. Þetta var fyrsti leikur liðsins undir stjórn Leo Ben- hakkers. „Þjálfarinn gerði miklar stöðubreytingar og kom það vel út í þessum leik. Ég lék í nýrri stöðu sem vinstri bakvörður," sagði Sig- urður. Brasilíumaðurinn Elber, sem er lánsmaður frá AC Mílanó, gerði þrennu fyrir Grasshopper í leiknum og er nú fnarkahæsti leikmaður deildarinnar með sex mörk. Liðið er nú í 8. sæti með 7 stig þegar 8 umferðum er lokið af 22. Servette er efst með 13 stig. Atta efstu liðin komast í úrslita- keppnina um svissneska meistara- titilinn, sem hefst eftir áramót. Urslit / B11 Stuttgart en fyrr í leiknum misnot- aði hann vítaspyrnu. „Ljóst er að við þurfum að bæta okkur á mörg- um sviðum,“ sagði Christoph Daum, þjálfari Stuttgart. Bayem Munchen heldur áfram að sigra og þýsk blöð velta því nú fyrir sér hvar í liðinu sé laus staða fyrir Lothar Mattháus, sem er að ná sér af hnémeiðslum og verður líklega leikfær eftir þrjár vikur. Hann dvaldi síðasta mánuð í Ölpun- um við æfingar án þess að hafa samband við Inter Milan en það var liður í ráðabruggi hans og Franz Beckenbauer til að liðka fyrir samn- ingum við ítalska félagið. Bayem vann Dynamo Dresden 3:1, þriðji sigurinn í röð, og heldur efsta sætinu. Köln, sem er í neðsta sæti, tekur á móti Bayern annað- kvöld og er þegar með hjartað í buxunum. Erich Ribbeck, þjálfari Bayern, segir híns vegar að þetta verði erfiðasti leikur liðs síns á tíma- bilinu. Berti Vogts, landsliðsþjálf- ari, tók í sama streng. „Köln sigr- ar. Liðið verður með 60.000 stuðn- ingsmenn á bakinu og sigrar, hvað sem á dynur.“ Einn stuðningsmaður Dynamo Dresden lét lífið um helgina og tveir slösuðust þegar langferðabíll lenti í árekstri á leið til Dresden. ENGLAND Eyjólfur Sverrlsson átti góðan leik með Stuttgart. Knattspymusýn- ing á Elland Road LEEDS og Liverpool sýndu snillartakta á Elland Road í Leedsá laugardag, Heima- menn jöfnuðu 2:2 skömmu fyr- ir leikslok og gerðu þriðja markið stuttu síðar, en það var dæmt af. Coventry var aðeins þrjá daga á toppnum, en urðu að láta í minni pokann fyrir nýliðum Blackburn, sem unnu 2:0 á útivelli. David James var öryggið upp- málað í marki Liverpool og var ekki að sjá að þar væri nýliði mmmmmmmmm á ferð. Hann var frá- Frá bær í öllum aðgerð- Bob um sínum, en gerði Hennessy gjg ggkgj, um byrj- endamistök og fyrir i Engiandi vikið náðu meistararnir að jafna. „það hljómar hjákátlega, en markið er það besta, sem hefur verið gert hjá mér,“ sagði markvörðurinn, en bætti við að mistökin hefðu kostað sigurinn. Hins vegar var Paul Stewart öllu æstari. „Flest lið sætta sig fyllilega FRAKKLAND við að fara héðan með eitt stig í farteskinu, en við erum btjálaðir yfir því að hafa ekki náð að sigra.“ Sex leikmenn, þar af fjórir hjá Arsenal, voru bókaðir, þegar Arse- nal sigraði í þriðja leiknum í röð, vann Sheffield Wed. 2:1. Enginn lék betur en Ian Wright, sem átti bæði mörkin. „Hann er sigurvegari af guðs náð,“ sagði George Graham. „Hann var í sérflokki að þessu sinni.“ Skilaboð Trevor Francis til leik- manna sinna og samheija voru skýr. „Ákveðni og tækni verða að vera til staðar ef lið ætlar að sigra í deildinni. Arsenal sýndi þessa hæfileika og það er skýringin á titl- um félagsins.“ QPR átti leikinn gegn Chelsea en tapaði 1:0. „Það segir ekkert að eiga leikinn, ef sigur næst ekki,“ sagði Francis og var argur útí menn sína. Markið var sérlega klaufalegt, Tékkinn Jan Stejskal, missti bolt- ann á milli handanna. „Hann veit upp á sig skömmina, en það er engin afsökun," sagði Francis. Coventry fékk að kynnast ver- unni á toppnum, en bólan sprakk eins fljótt og hún varð til. Dalglish gerði samt lítið úr 2:0 sigri Black- burn. „Það eina sem skiptir máli er staðan í lokin.“ Everton varð að sætta sig við markalaust jafntefli gegn Wimble- don. „Við vissum hvernig Wimble- don leikur, en nýttum okkur ekki vitneskjuna," sagði Howard Kend- all. Joe Kinnear var ánægður. „Við viljum koma mótherjunum úr jafn- vægi og ég er sérstaklega ánægður vegna þess að sjö leikmannanna voru í unglingaliðinu í fyrra.“ Manchester City og Oldham gerðu 3:3 jafntefli og komu öll mörkin á 38 mínútum í fyrri hálf- leik. „Þetta var eins og fellibylurinn Andrés, bleyta, úrhelli og mörkun- um rigndi niður,“ sagði Joe Royle hjá Oldham. Nottingham Forest tapaði þriðja leiknum í röð, nú 2:0 fyrir Man- chester United. „Þessi vika hefur verið ömurleg," sagði Brian Clough. „og það er vægt til orða tekið. Ég er of gamall til að líða illa og því er breytinga þörf og það fljótt.“ FOLK ■ KENNY Dalglish er á fornum slóðum — í efsta sæti ensku knatt- spyrnunnar, þar sem hann var svo oft með Liverpool, en nú með w^mmmmmmm Blackburn Rovers. Frá Fyrir 18 mánuðum Bob hætti hann hjá Hennessy Liverpool vegna iEnglandi þess ag hann ekki álagið á toppnum. ■ EIGANDI félagsins hefur leyft Dalglish að kaupa þá leikmenn, sem hann vill. í tilefni byijunarinnar birti blaðið Sunday Sport teiknimyndir á sunnudag af gangi mála. . ■ FYRSTA myndin sýnir Dalgl- ish á skrifstofu sinni, þar sem hann segist vilja eitthvað að borða. ■ ÖNNUR myndin er af eigand- anum, sem spyr: „Kenny, viltu pizzu?“ ■ A ÞRIÐJU myndinni lítur Kenny upp og horfir á milljónamæringinn, þar sem hann stendur færandi hendi — ekki með pizzu heldur Gazza. „Ég hélt að þú tækir þetta framyfir!" ■ ALAN Shearer skoraði og lagði grunninn að sigri Blackburn. Síðan var hann bókaður og var skipt útaf. ■ LEEDS hefur leikið 26 deildar- leiki á heimavelli í röð án þess að tapa. Síðasti tapleikurinn var í apríl 1991, þegar Liverpool vann 5:4. ■ ASTON Villa vann Sheffield United 2:0 og var þetta fyrsti útisig- ur Villa gegn United í 31 ár. ■ PETER Shilton, fyrrum lands- liðsmarkvörður Englands, fékk að sjá rauða spjaldið um helgina í fyrsta sinn á 26 ára ferli. Hann felldi leik- mann Hull og var vikið af velli a' 26. mínútu. „Hjá Plymouth förum við eftir því, sem dómarinn segir. Dómarar gera mistök, en ég segi ekki að um slíkt hafi verið að ræða að þessu sinni,“ sagði Shilton, sem lék 125 landsleiki. ■ PHIL Neal, fyrrum leikmaður Liverpool og enska landsliðsins, var ráðinn sem tæknilegur ráðgjafi hjá enska Iandsliðinu um helgina. Hann tók við af Alan Ball, sem hafði ekki tíma vegna anna hjá Exeter. ■ IAN Durrant var í gær valinn í skoska landsliðið fjórum árum eft- ir að hann varð að draga sig í hlé vegna meiðsla. Durrant átti stórleik með Rangers í 3:1 sigri gegn Aberdeen. ■AC MILAN vann Parma 2:1 í ítölsku meistarakeppninni, en Fabio Capello, þjálfari, var ekki ánægður. „Ég er reyndar ánægður með sigur- inn, en margt er að. Sumir leikmanrt- anna eru ekki í nægilegri þjálfun.“ ■ MARCO Van Basten tók undir orð þjálfara síns, en sagði að AC Milan væri ekki komið eins langt í undirbúningnum og Parma. ■ JEAN-PIERRE Papin náði sér ekki á strik og var skipt út af á 65. mínútu. Ruud Gullit lék aðeins fyrri hálfleikinn. ■ BOAVISTA, mótheiji Vals í Evrópukeppni bikarhafa, er á toppn- um í Portúgal eftir 4:1 sigur gegn Ferreira á útivelli. ■ BOBBY Robson varð enn að horfa uppá menn sína hjá Sprting tapa. „Við höfum byijað illa og þurf- um á góðum úrslitum að halda til að minnka spennuna,“ sagði Rob- son. Þetta er bara rétt að byrja! PSG hélt áfram á sigurbraut í frönsku deildinni og vann Ca- en 2:0. Enn einu sýndi PSG frá- bæra knattspyrnu og tveggja stiga forysta á toppnum er ekki tilviljun. „Liðið lítur ágætlega út,“ sagði Bernard Brochand, forseti félags- ins. „Við bætum okkur stöðugt, en þetta er bara rétt að byija.“ Arthur Jorge, þjálfari, sem hefur oft verið gagnrýndur fyrir að byggja á varnarleik, var ánægður en jarðbundinn. „Við höfum gert 10 mörk í fjórum leikjum og það er alls ekki svo slæmt. Þetta var fjórði sigur okkar og við erum með tveggja stiga forystu, en þess ber að geta að enn höfum við ekki leik- ið gegn sterku liðunum. Við tökum einn leik fyrir í einu og sjáum út- komuna í lok tímabilsins." Marseille slapp með skrekkinn og jafnaði 2:2 gegn Lyon á síðustu stundu. Meistararnir eru því enn taplausir, en mega muna sinn fífil fegri. Liðið var einum færri síðasta hálftímann.eftir að varnarmaðurinn Jean Jacques Cydelie fékk að sjá rauða spjaldið. Heimamenn náðu forystunni, þegar mínúta var til leiksloka og töldu að sigurinn var í höfn, en Basile Boli var á öðru máli og jafn- aði. Marseille saknar greinilega Je- an Pierre Papin, en Bernhard Tapie, forseti félagsiris, gaf til kynna að von væri á sterkum leikmanni innan tíðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.