Morgunblaðið - 01.09.1992, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1992
B 9 .
ÍÞROTTIR UNGLINGA / ÍSLANDSMOTIÐ I KNATTSPYRNU
Morgunblaðið/Frosti
ÞORBJÖRN Sveinsson lyftir
knettinum yfir Birki markvörð
ÍBV og tryggir Fram íslands-
meistaratitilinn í þriðja flokki.
Á neðri myndinni fagna Eyja-
menn Sigurvini Ólafssyni eftir
að hann hafði náð forystunni
fyrir ÍBV.
Mörkin komu
á færibandi
Fram sigraði ÍBV 5:4 eftirframlengdan leik í 3. flokki
Fram sigraði ÍBV 5:4 í úrslitaleik
3. flokks í ótrúlega spennandi
viðureign liðanna á Valbjarnarvelli.
Flest benti til að ÍBV færi með
sigur af hólmi eftir fallegt mark
Sigurvins ólafssonar af fjörtíu
metra færi í síðari hálfleiknum. Sig-
urvin skoraði með viðstöðulausu
skoti efst í markhornið en Helgi
Áss markvörður hafði hætt sér full
langt frá marklínunni. Fram sótti
stíft eftir það og bakvörðurinn,
Runólfur Benediktsson jafnaði leik-
inn með skalla þremur mínútum
fyrir lok hefðbundins leiktíma. Því
þurfti framlengingu til. Eftir að ÍBV
hafði náð forystuni snemma í fram-
lengingunni náði Fram að svara
fyrir sig með tveimur mörkum og
tryggja sér sigurinn.
Leikurinn var hörkuspennandi og
mörkin mörg en leikurinn leið nokk-
uð fyrir hvað hann var harður. í
upphafi síðari hálfleiksins var mikið
um óþarfa brot hjá leikmönnum
beggja liða og leikmenn gátu kom-
ist upp með nær hvað sem var.
Guðmundur Jónsson dómari var
spar á spjöldin, gaf aðeins eitt gult
spjald eftir áttatíu mínútna leik en
sex í framlengunni.
„Ég var aldrei hræddur um að
við myndum tapa leiknum. Við sótt-
um stíft í síðari hálfleiknum og ég
hafði það alltaf á tilfmningunni að
við mundum jafna leikinn,“ sagði
Jóhann Wathne, fyrirliði Fram
„Við vorum ekki langt frá því,
þetta er óheppni og ekkert annað,“
sagði Sigurvin miðjumaður ÍBV
eftir leikinn. Auk hans skoruðu
þeir Ingólfur Jóhannesson, Emil
Andersen og Ólafur Guðmundsson
mörk Eyjamanna.
Þeir Þorbjörn og Hörður Gíslason
skoruðu sín tvö mörkin hvor og
Runólfur eitt.
IBV: Birkir Kristinsson - Emil Hadzik, Amar
Pétursson, Eggert Aðalsteinsson - Einar Áma-
son, Ágúst Gíslason (Óðinn Sæbjömss.), Sigur-
vin Ólafss., Árni Gunnarsson, Ingólfur Jóhann-
esson - Emil Andersen, Ólafur Guðmundss.
Fram: Helgi Áss Grétarsson - Jóhann Wat-
hne, (Rúnar Ragnarsson), Runólfur G. Bene-
diktsson - Páll Pálsson, Kristján Kristjánsson,
Haukur Björnsson, Kristján Kristjánsson,
Grímur, Lárus ívarsson - Þorbjörn Sveinsson,
Hörður Gíslason.
Mm
FOLX
■ ÞORBJÖRN Sveinsson, úr 3.
flokki Fram hélt upp á fimmtán ára
afmælisdaginn á sunnudag með því
að skora tvívegis gegn ÍBV.
■ ÞORBJÖRN er einnig liðtækur
í snóker en hann hafnaði í sjötta
sæti á heimsmeistaramóti unglinga
í íþróttinni fyrr í sumar. Hann er
ekki eini maður liðsins sem þekktur
er fyrir annað en að leika knatt-
spyrnu. Markvörðurinn Helgi Áss
Grétarsson, er snjall skákmaður.
■ GUNNLA UGUR Jónsson og
Sturlaugur Haraldsson urðu bik-
armeistarar með 2. flokki IA. Feður
þeirra, Jón Gunnlaugsson og Har-
aldur Sturlaugsson hömpuðu sama
bikar með ÍA fyrir 24 árum.
■ NÍU leikmenn Skagaliðsins hafa
leikið landsleiki með drengja- og
piltalandsliðum íslands.
■ AÐEINS tveimur dögum munar
á að fyrirliði ÍBV, Tryggvi Guð-
mundsson sé löglegur með U-18 ára
liðinu. Tryggvi hélt upp á átján ára
afmælisdaginn 30. júlí en þeir eru
löglegir sem fæddir eru 1. ágúst
1974 eða síðar.
M ÞRIR leikmenn úr íjórða flokki
Fram gengu yfir til liðsins frá Aft-
ureldingu en flokkurinn var lagður
niður hjá Mosfellsveitarliðinu á síð-
asta ári. Tveir þeirra, Bjarki Sveins-
son og Hörður Már Gestsson skor-
uðu í úrslitaleiknum gegn Völsungi.
H ATTA leikmenn IA sem voru
með í leiknum gegn ÍBV voru einnig
með í fyrra, þegar liðið tapaði fyrir
Fram 1:3 í úrslitum bikarkeppninn-
ar.
■ SIGURÐUR Gylfason leikmað-
ur ÍBV lék ekki með liði sínu gegn
FH. Sigurður lenti í bifhjólaslysi
nokkrum dögum fyrir leikinn og
fylgdist með félögum sínum af vara-
mannabekknum þar sem hann
studdist við hækjur. Daði Pálsson,
var heldur ekki með. Hann fór í
æfingaferð með meistaraflokki ÍBV
í handknattleik.
■ SIGURVIN Ólafsson, ÍBV hef-
ur tvívegis verið í tapliði í úrslitaleik
á aðeins þremur sólarhringum. Hann
lék með 2. fiokki félagsins gegn ÍA
í bikarnum á fimmtudag og með 3.
flokki félagsins gegn Fram á sunnu-
dag.
Fylkisdrengir bestir
í fimnvta flokknum
FYLKIR tryggði sér íslands-
meistaratitilinn í fimmta flokki
karla með tveimur sigrum í
fjörugum leikjum við Fram á
Þróttaravelli á sunnudag.
Fylkir vann leik b-liðanna 2:1 í
leik þar sem knötturinn fór
oftar í markstangirnar heldur en í
netið. Guðjón Ingi Hafliðason skor-
aði eina mark fyrri hálfleiksins en
Trausti Jósteinsson jafnaði fyrir
Fram með þrumuskoti snemma i
þeim síðari. Guðmundur Hauksson
skoraði sigurmark Fylkis og liðið
hafði því tvö stig fyrir leik a-lið-
anna sem fram fór strax á eftir. í
þeim leik vom Fylkisstrákarnir
heldur sterkara liðið og þeir uppsk-
áru 1:0 sigur með marki Theodórs
Jóhannssonar í síðari hálfleik.
„Það var góð tilfinning að sjá
boltann í netinu og líklega er þetta
mikiivægasta markið sem ég hef
skorað,“ sagði Theodór eftir leikinn
en hann hefur reynst liði sínu
dijúgur í úrslitakeppninni.
Viðar Guðjónsson, fyrirliði A-
liðs Fram sagði að lið sitt hefði
leikið undir getu. „Við áttum góða
möguleika en vorum slappir i síðari
hálfleiknum."
Theodór Óskarsson skallar knöttinn en Framaramir Bjarni Þór Péturs-
son og Daði Guðmundsson fylgjast með.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Völsungar léku í fyrsta sinn til úrslita um íslandsmeistaratitil í knattspyrnu en máttu sín lítils gegn Fram.
Völsungar fengu skell
VÖLSUNGAR fengu skell í
fyrsta úrslitaleik sínum á ís-
landsmóti yngri flokka þegar
liðið steinlá gegn Fram 0:5 á
Akureyrarvelli i fjórða flokki.
Það er óhætt að segja að Fram-
arar hafi verið nær einráðir á
vellinum, mestan hluta leiksins gekk
Völsungum illa að
, 0 bíta frá sér. Hörður
Bríks%nni Már Gestsson kom
á Akureyri Fram a bragðið með
marki á fimmtándu
mínútu og aðeins mínútu síðar bætti
Bjarki Sverrisson marki við og nafni
hans Hinriksson skoraði þriðja mark-
ið undir lok hálfleiksins. Nafnarnir
skoruðu síðan sitt hvort markið í síð-
ari hálfleiknum og stórsigur Fram
því staðreynd.
Dagur Dagbjartsson, fyrirliði
Völsunga var að vonum hnípinn að
leikslokum. „Við lékum mjög illa í
dag og þetta er okkar lélegasti leikur
í sumar, því fór sem fór. Ef á heild-
ina er litið erum við ánægður með
útkomuna í sumar, við höfum náð
lengra en flestir bjuggust við.“
„Þetta er frábært, eins og sumarið
hefur verið í heild,“ sagði Kolbeinn
Guðmundsson, fyrirliði 4. flokks
Fram.
Fram: Gunnar Magnússon - Sigurður Krist-
jánsson (Andri Gíslason), Einar Jónsson, Hös-
kuldur Borgþórsson, Eggert Stefánsson -
Bjarki Sverrisson, Kolbéinn Guðmundsson,
Freyr Karlsson (Finnur Bjamason), Davið Stef-
ánsson - Hörður M. Gestsson, Bjarki Hinriks-
son.
Völsungur: Ásmundur Gíslason (Eiður Pét-
ursson) - Jóhann Sigurðsson, Unnar Garðars-
son, Jóhann Sigui*ðsson, Kristján Gestsson -
Dagur Dagbjartsson, Brynjúlfur Sigurðsson,
Amgrímur Ámarsson, Kristján Magnússon
(Sveinn Frímannsson) - Björgvin Sigurðsson,
Baldur Aðalsteinsson (Aðalsteinn Sigurkarls-
son).
FOLK
■ RÓBERT Gunnarsson, mark-
vörður hjá A-liði Fylkis í fimmta
flokki átti pantaðan flugmiða til
Spánar sl. fimmtudag ásamt for-
eldrum sínum, þremur dögum fyrir
úrslitaleikinn gegn Fram. Honum
tókst að telja foreldrana á að fresta
ferðinni um viku svo hann gæti leik-
ið.
■ BÚIÐ er að bjóða 4. flokki Völs-
ungs að fara í æfingaferð til enska
liðsins Leeds og leika við unglingal-
ið félagsins síðar í þessum mánuði.
Ekki er víst, að af ferðinni verði en
fari svo þá mun Völsungum jafn-
framt gefast kostur á að fylgjast
með æfingum og leikjum Englands-
meistaranna.
■ LÁRUS Grétarsson, þjálfar
bæði fjórða og fimmta flokk Fram
en bæði voru í úrslitum á sunnudag.
Lárus stjórnaði fimmta flokknum
um morguninn gegn Fylki en fór
síðan til Akureyrar eftir hádegið
þar sem fjórði flökkurinn mætti
Völsungi.
■ Hörður Már Gestsson, lék í
fyrsta sinn í framlínunni í úrslita-
keppninni með 4. flokki Fram og
varð markahæsti maður liðsins.
Hann skoraði eitt mark í úrslita-
leiknum.