Morgunblaðið - 01.09.1992, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞKIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1992
B 5
KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ-SAMSKIPADEILDIN
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
KR-ingurlnn Rúnar Kristinsson var allt í öllu. Hér nær Auðun Helgason að pota boltanum frá landsliðsmanninum,
en Þorsteinn Jónsson biður átekta fyrir aftan og Ólafur Kristjánsson fylgist með.
Heppnin med
Hafnfirðingum
KR-ingar misstu niðurtveggia marka forskot
HEPPNIN var með FH-ingum
þegar þeir tryggðu sér jafn-
tefli á móti KR á síðustu
stundu í leik liðanna í Hafnar-
firði á laugardaginn. KR-ingar
eru þar með nánast úr leik í
baráttunni um íslandsmeist-
aratitilinn, en FH-ingar
tryggðu sér áframhaldandi
veru í 1. deild.
Leikurinn var frekar daufur í
fyrri hálfleik, FH-ingar þó
ákveðnari ef eitthvað var. Lítið var
um færi, þau fáu
sem litu dagsins
Bríksson 'Í05 Serdu þó yart
skrifar meira en að mmna
áhorfendur á að
þeir voru á knattspymuleik.
Dæmið snerist við í síðari hálf-
leik. KR-ingar mættu ákveðnari
til leiks og þegar rúmlega tíu mín-
útur voru liðnar af leiknum kom
fyrsta mark þeirra. Nokkru áður
hafði mark ekki verið dæmt eftir
að Gunnar Oddsson kom knettin-
um í net FH, vegna rangstöðu að
mati línuvarðar.
Tæpum tíu mínútum síðar kom
annað mark KR, og virtist liðið
nú hafa leikinn í hendi sér. Hörður
Magnússon náði þó að laga stöð-
una á 71. mínútu, og virtust FH-
ingar heldur taka við sér eftir það.
Síðustu 20. mínúturnar sóttu
FH-ingar heldur meira, en náðu
þó ekki að skapa sér hættuleg
færi, fyrr en á síðustu mínútu
þegar jöfnunarmarkið kom.
KR-ingar voru lengi í gang, og
voru jafnframt of fljótir að slaka
á eftir að vera komnir tveimur
mörkum yfir. Þeir virkuðu áhuga-
lausir lengi vel, og var ekki að sjá
í fyrri hálfleik, að þarna væri á
ferðinni lið sem væri í toppbarátt-
unni. FH-ingar voru mun ákveðn-
ari, en sóknir þeirra gufuðu eigin-
lega upp þegar boltinn nálgaðist
vítateiginn.
Rúnar Kristinsson var áberandi
langbestur á vellinum, skoraði
fyrra markið og skapaði færið sem
gaf það seinna. Hann var stöðugt
hættulegur, en félagar hans á
miðjunni voru lengi vel ekki með
á nótunum og hjálpuðu honum því
lítið. Gunnar Oddsson átti einnig
ágætan leik. Hjá FH-ingum var
Daníel Einarsson bestur.
Oa 4 Jón Erling Ragnarsson fékk óvænta sendingu innfyrir vörn
■ I ÍBV og lék upp að endamörkum. Þaðan renndi hann knettin-
um út á Pétur Arnþórsson sem þrumaði honum í netið innan vítateigs
á 9. mínútu.
Om ^^Ásgeir Ásgeirsson sendi knöttinn fyrir á Anton Björn Mar-
■ áCíikússon sem gaf áfram á Jón Erling Ragnarsson. Hann
skallaði knettinum í bláhomið á 52. mínútu.
IB^^Ingi Sigurðsson sendi knöttinn fyrir markið, Steingrímur
■ fciBJóhannesson átti stutta sendingu á Tómas Inga Tómas-
son, sem skoraði af stuttu færi á 60. mínútu.
2BOElías Friðriksson tók aukaspymu og gaf inní vítateig Fram.
■ áCnÞar var Tómas Ingi Tómasson, sem skallaði áfram fyrir
fætur Inga Sigurðssonar og hann var ekkert að tvínóna við hlutina
heldur þrumaði knettinum í netið á 66. mínútu.
3a ^ÍBojan Bevc gaf ianga sendingu fyrir mark Fram. Þar stukku
■ áCaþeir Steingrímur Jóhannesson og Pétur Ormslev upp sam-
an og Pétur skallaði í eigið mark á 69. mínútu.
4B ^^Martin Eyjólfsson sneri á vamarmenn Fram og sendi á
■ diTómas Inga, sem skoraði af öryggi í stöngina og inn á
84. mínútu.
Við þurftum sannar-
lega á stiginu að halda
- sagði Njáll Eiðsson, þjálfari FH-inga, sem eru úrfallhættu
Það var frábært að ná þessu
stigi, við þurftum svo sannar-
lega á því að halda. Það var auðvit-
að heppni að ná þessu á síðustu
stundu, en hún hefur ekki fylgt
okkur í sumar. Það er mjög gott
að ná að vinna upp tveggja marka
forskot, því KR-liðið er mjög vel
spilandi," sagði Njáll Eiðsson þjálf-
ari FH.
„Það var kominn tími til að vera
heppnir. Við vorum heppnir í fyrsta
leik en síðan ekki fyrr en nú. Það
var auðvitað beygur í mönnum þeg-
ar við vorum orðnir 0:2 undir, en
markið hleypti nýju blóði í mann-
skapinn," sagði Ólafur H. Kristjáns-
son fyrirliði FH.
Ertthvað slen yfir okkur
„Það er rosalega sárt að tapa
þessum stigum, en það þýðir ekkert
annað en að mæta harðir í næsta
leik, sem er á móti Þór. Skagamenn
taka þetta líklega og því verður
baráttan um annað sætið á milli
okkar Þórs. Það var eitthvað slen
yfir okkur í þessum leik, og það
þýðir ekkert annað en að rífa sig
upp úr því,“ sagði Gunnar Oddsson
Spuming um líf eða dauða
- sagðiÓmarJóhannsson, þjálfari Vestmannaeyinga,
eftir fyrsta heimasigur þeirra á keppnistímabilinu
„ÞESSI leikur var spurning um
líf eða dauða. Menn bitu vel
frá sér og sýndu að þeir eru
ekki sáttir við að falla. Staðan
er samt erfið, við verðum að
vinna okkar leiki og treysta
síðan á önnur lið,“ sagði Ómar
Jóhannsson, þjálfari IBV, eftir
fyrsta sigur liðsins á heima-
velli í sumar, er liðið sigraði
Fram 4:2.
Eyjamenn voru meira með
knöttinn í fyrri hálfleik en
gekk illa að skapa sér marktæki-
færi og það voru Framarar, sem
■■■■■■I tóku forystuna
Sigfús G. snemma leiks og
Guömundsson gerðu eina markið
sknfarfrá fyrir Wé_
Það var mikill hug-
ur í Eyjamönnum í síðari hálfleik.
Þeir léku vel saman og á fyrstu
mínútum hálfleiksins fengu
heimamenn þijú dauðafæri í sömu
sókninni en náðu ekki að skora.
Þess í stað brunuðu Framarar upp
og juku forskotið í 0:2. Útlitið var
því dökkt hjá ÍBV en liðið gafst
ekki upp. Eftir að hafa farið illa
með góð marktækifæri fóru hlut-
irnir að gerast og þijú mörk komu
á níu mínútna kafla. Framarar
skoruðu reyndar einu sinni en
markið var dæmt af vegna rang-
stöðu. Þegar skammt var eftir af
leiknum gulltryggði Tómas Ingi
sigur Vestmanneyinga og litlu
munaði að fimmta markið liti
dagsins ljós þegar Friðrik Sæ-
björnsson átti skalla í stöng á loka-
mínútunni.
Eyjamenn sýndu mikinn „kar-
akter“ í þessum leik með því að
vinna upp tveggja marka forskot
og gott betur. Líklega er þetta
besti leikur liðsins í sumar. Nokkr-
ar breytingar voru gerðar á liðinu,
Leifur Geir var færður aftur á
miðjuna og Steingrímur Jóhannes-
son, ungur piltur úr 2. flokki sett-
ur í framlínuna með Tómasi Inga
og þær breytingar gáfust vel.
Spurningin er bara hvort þær hafi
ekki verið gerðar of seint. Staðan
er mjög slæm, en möguleikar ÍBV
á að halda sætinu í deildinni fel-
ast í því að sigra UBK og KA og
treysta síðan á hagstæð úrslit í
hinum leikjum liðanna.
Framarar, sem tapað hafa sjö
af síðustu átta leikjum sínum, áttu
ekki góðan dag. Baráttan var til
staðar framan af en síðan gáfu
þeir eftir og misstu ágætt forskot
niður í tap.
Tómas Ingi Tómasson
leikmaður KR.
„Fyrstu 30. mínúturnar voru eig-
inlega bara upphitun, hálfgerður
göngufótbolti. Á tímabili gekk þetta
síðan ágætlega en hrundi í lokin.
En við ætlum okkur að klára dæm-
ið á heimavelli, við höfum ekki tap-
að þar í sumar og ætium að halda
því þannig," sagði Þormóður Egils-
son leikmaður KR.
0:1
Á 58. mfnútur lék
upp vallarhelming FH-inga, gaf
á Ragnar Margeirsson þar sem
hann stóð við vítateiginn, fékk
boltann aftur frá honum og
stakk sér í gegnum vörn FH,
og skilaði boltanum snyrtilega
framhjá Stefáni Amarsyni og í
netið.
Oa ^%Rúnar Kristinsson
■ aLfékk knöttinn eftir
innkast á 67. mínútu, lék á vam-
armann hægra megin við víta-
teiginn, fór inn í teiginn, gaf
yfir til vinstri á Ragnar Mar-
geirsson, sem gaf strax fyrir
markið þar sem Steinar Ingi-
tnundarson stóð og stýrði
knettinum í netið.
IB^Ólafur H. Kristjáns-
■ 4S*son gaf á Hörð
Magnússon á 71. mínútu sem
staddur var hægra megin við
miðjan vítateig. Hörður skaut
snúningsskoti að marki og hafn-
aði knötturinn neðarlega í
vinstra markhominu.
2B Þegar innan við ein
■ dSaamínúta var til leiks-
loka skaut Þórhallur Víkingsson
að marki KR frá vftateig. Knött-
urinn skaust til Grétars Einars-
sonar sem skilaði honum með
kollinum í netið.