Morgunblaðið - 01.09.1992, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.09.1992, Blaðsíða 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1992 KNATTSPYRNA / 1. DEILD KARLA - SAMSKIPADEILDIN Þung skref Morgunblaðið/Rúnar Þór Staða KA er allt annað en góð eftir 2:1 tap gegn UBK á laugardaginn. Norðan- menn eru í fallhættu, en þeir eiga eftir Val heima og ÍBV úti. Á myndinni ganga skipstjóri og stýrimaður þungum skrefum frá borði eftir leikinn á Akur- eyri. Gunnar Gíslason, þjálfari, leiðir, en Bjarni Jónsson, fyrirliði, fylgir á eftir. KNATTSPYRNA / 1. DEILD KVENNA Breiðablik hafði sætaskipti við KA BREIÐABLIK, sem hefur verið ífallsæti frá því í 2. umferð deildarinnar, lyfti sér upp í 8. sætið með sigri á KA, 1:2, í miklum baráttuleik á Akur- eyrarvelli á laugardag. KA færðist þar með niður í fall- sæti og nokkuð Ijóst er að ekki sér fyrir endann á harðri botn- baráttu fyrr en í síðustu umferð mótsins. Við vissum það fyrir leikinn að það var annað hvort að duga eða drepast,“ sagði Hilmar Sig- hvatsson fyrirliði UBK. „Það var geysileg barátta í liðinu í dag og góð samvinna liðsheild- arinnar skóp sigur okkar,“ sagði Hilmar og bætti við að að allt ann- að en sigur hefði þýtt að liðið hefði verið í slæmum málum. í upphafi leiks sóttu liðin á víxl og fyrsta færið féll í skaut KA. Frá Reyni Eirikssyni á Akureyri Ormarr Örlygsson átti gott skot af stuttu færi en Cardakljia, mark- vörður UBK varði vel. Litlu síðar vildu Blikar fá vítaspyrnu er Grétar Steindórsson féll við í vítateignum en Gísli Guðmundsson dómari var ekki á sama máli. Grétar náði for- ystunni fyrir Blika á 22. mínútu og þá lifnaði yfir leikmönnum Kópa- vogsliðsins, þeir héldu undirtökun- um allt fram að leikhléi og fengu tvö ágæt færi sem þeim tókst ekki að nýta. KA-menn mættu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og léku undan allsnörpum vindi en það voru Breiðabliksmenn sem juku forystu sína á 52. mínútu og var Grétar þar aftur að verki. Eftir markið tóku heimamenn leikinn, smátt og smátt í sínar hendur og náðu að minnka muninn á 71. mínútu með marki Ormars. Litlu áður var Orm- arr nálægt því að skora er Cardaklj- ia sló knöttinn í þverslánna. Á síð- ustu mínútum leiksins sóttu KA- Valsstúlkur nýttu öll lærin Stefán Stefánsson skrifar VALS-STULKUR skutust á topp 1. deildar kvenna með ótrúleg- um 1:3 sigri á UBK í Kópavogin- um á laugardaginn. Þær fengu þrjú færi og nýttu öll en Blikar, sem aftur á móti lágu í sókn, var fyrirmunað að skora nema einu sinni. „Þær voru ótrúlega heppnar, við vorum ekkert slakar en verðum að nýta færin betur“, sagði Vanda Sigur- geirsdóttir, Breiðabliki. Blikastúlkur voru lengi í gang, þrátt fyrir tvö sæmileg færi í byrjun, en náðu síðan yfirhöndinni án þess þó að finna glufu í Valsvöminni. Valsarar beittu hinsvegar snörpum skyndisóknum, með Bryndísi Valsdóttur eldfljóta, eigin- lega aðeins of snarpri, því Blikarnir veiddu hana alloft í rangstöðu- gildru. Á 17. mínútu kom sending að marki UBK, markvörðurinn hætti sér of langt út svo Kristbjörg Ingadóttir smeygði sér á milli, hirti boltann og renndi honum í autt markið. Fimmtán mínútum síðar skoraði Kristbjörg annað mark sitt úr skyndisókn, algerlega gegn gangi leiksins. Olga Færseth minnkaði muninn í 1:2 á síðustu mínútu fyrri hálfleiks með j'óðum skalla eftir fyrirgjöf frá Asthildi Helgadóttuc. Blikar settu Ástu B. Gunnlaugs- dóttur í framlínuna eftir hlé en það dugði skammt, því Erla Sigurbjarts- dóttir fylgdi henni áfram sem skugginn enda sást Ásta lítið í leiknum. Eftir sem áður sóttu Blik- ar og óðu í færum; stungusending fram á Olgu var aðeins of löng, Ásthildur og Olga léku laglegt þrí- hyrningsspil gegnum vörn Vals en í teignum var of þröngt og fimm hornspymur UBK á sjöttu mínútu enduðu ýmist í þverslá eða rétt framhjá markinu. Á 70. mínútu, aftur algjörlega gegn gangi leiks- ins, innsiglaði Bryndís Valsdóttir sigur Vals, þegar hún hljóp hrað- ast.náði boltanum og renndi fram- hjá markverði Blika. Eftir markið hljóp örvænting í lið Breiðabliks og því tókst ekki að skapa sér veruleg færi. Kristrún L. Daðadóttir og Ást- hildur Helgadóttir stóðu sig best * iájÉÍlBfe '»v ■■; -X. '■• :• ■■ Morgunblaðið/Jón Svavarsson Olga Færseth nær boltanum af Guðrúnu Sæmundsdóttur (nr.4). Olga gerði eina mark Breiðablik í leiknum oger markahæst í deildinni með 11 mörkeinsogÁstaB. Gunnlaugsdóttir, UBK, ogBryndís Valsdóttir, Val. hjá Blikum en Arney Magnúsdóttir, Kristbjörg og Erla hjá Val. Fimmti sigur Stjörnunnar í röð Stjarnan vann sinn fimmta sigur i röð þegar Þróttur Neskaupstað sótti þær heim á sunnudaginn. Úr- slit urðu 3:2 og kom sigurmarkið á síðustu mínútu ieiktímans. Þetta var annar leikur Þróttara um helg- ina en á laugardaginn vann liðið KR í vesturbænum, 1:0, og gerði Sladjana Milojkovic markið en Norðfirðingar þakka sigurinn frá- bærri markvörslu Þórveigar Hákon- ardóttur. •'' Stjarnan byrjaði leikinn með lát- um og náði strax á 6. mínútu for- ystu með skallamarki Rósu Dögg Jónsdóttur eftir góða fyrirgjöf Guðnýjar Guðnadóttur, en Inga Birna Hákonardóttir jafnaði úr skyndisókn sjö mínútum síðar. Heimamenn sóttu enn af krafti og fór nær allur leikurinn fram á vall- arhelmingi Þróttara. Ekkert nema stórglæsileg markvarsla Þórveigar kom í veg fyrir fleiri mörk, en hún varði fyrst þrumufleyg frá Laufeyju Sigurðardóttur af um 25 m færi, alveg upp við samskeytin, og síðan tvívegis aftur á ótrúlegan hátt. Á 12. mínútu eftir hlé „klippti" Laufey boltann laglega í netið og kom Stjörnunni í 2:1. Stjarnan sótti enn sem fyrr en án verulegra færa og virtist sætta sig við stöðuna en alveg á óvart jöfnuðu Þróttarar og var þar að verki Stojanka Nikolic. Við það komst Stjarnan á tærnar á ný og sótti, átti skot í slá og rétt framhjá en á síðustu mínútu skaust Laufey gegnum vörn Þróttar og tryggði 3:2 sigur. Ragna Lóa Stefánsdóttir, Ás- gerður H. Ingibergsdóttir, Guðný Guðnadóttir og Laufey léku vel fyr- ir annars ágætt lið Stjörnunnar. „Ég er mjög svekkt, við áttum að ná jafntefli. Við erum þreyttar enda erfitt að spila alltaf tvo leiki í röð þegar við komum suður eins og liðin, sem heimsækja okkur og Hött austur, vita“, sagði Þórveig markvörður sem átti frábæran leik ásamt Sladjana og Stojanka. menn ákaft en Breiðabliksmenn, færðu sig aftar á völlinn og börð- ust grimmilega og tókst ætlunar- verk sitt, að halda fengnum hlut. Jafntefli hefði líklega verið sann- gjörnustu úrslitin. Leikurinn bar keim af veðrinu sem var ekki hlið- hollt knattspyrnumönnum, norðan- vindur með rigningu og kulda og vallaraðstæður langt frá því að vera góður. Leikurinn bauð því upp á meiri baráttu af hálfu beggja liða, en góða knattspyrnu. 0B 4[ Hilmar Sighvatsson ■ | átti ianga sendingu á 22. mínútu inn í vítateig KA þar sem Grétar Steindórsson fékk knöttinn einn og óvaidaður rétt utan markteigs. Grétari gafst tími til að leggja knöttinn fyrir sig áður en hann sendi knöttinn framhjá Hauki Bragasyni í markinu. 0B ^|Valur Valsson lék inn B£i vítateig KA á 52. mínútu. Hann sendi fyrir markið á Grétar Steindórsson sem var einn og óvaldaður á markteig og skoraði af öryggi. 1B4%Eftir baráttu í víta- B fcpteignum á 71. mínútu barst knötturinn út til Ormars Örlygssonar sem skoraði með góðu skoti rétt utan vítateigs. Úlafur Már Sigurösson skrifar 2.DEILD Stjaman vann upp muninn Stjarnan og Leiftur gerðu jafn- tefli í nokkuð skemmtilegum leik í 16. umferð 2. deildar á laugar- daginn. Leikurinn skipti ekki öllu máli fyrir bæði lið og mátti merkja það á frekar afslöppuðum leik þeirra. Lokatölur urðu 2:2, en staðan í hálfleik var 1:2 Leiftri í vil. Það voru Leiftursmenn sem börð- ust meira og voru betri aðilinn í fyrri hálfleik, og uppskáru laun erf- iðisins, Jiví á 18. mín. skoraði Þor- lákur Árnason úr vítaspyrnu 0:1. Tíu mínútum síðar skoraði svo Sig- urbjörn Jakobsson af öryggi eftir fyrirgjöf frá Einari Einarssyni, 0:2. Virtist þá sem Leiftur ætlaði að gera út um leikinn, en Stjarnan var ekki á sama máli og undir lok fyrri hálfleiks náði liðið að minnka mun- inn með marki Sigurðar Harðarson- ar eftir mjög þunga sókn, sem Kristinn Lárusson átti allan heiður af. Síðari hálfleikur var svo frekar daufur til að byija með, en með innákomu Árna Sveinssonar komst Stjarnan meira inn í leikinn. Heima- menn náðu þó ekki að jafna leikinn fyrr en á 87. mínútu, og var þar á ferðinni enginn annar en varamað- urinn sjálfur, gamli jaxlinn Árni Sveinsson. Hann skoraði með lúmsku skoti úr þröngu færi eftir mikinn sprett upp vinstri kantinn, og tryggði þar með Stjörnunni stig í baráttuleik. Einar Einarsson átti ágætan leik með Leiftri, og Þorgrímur Þráins- son var öryggið uppmálað í vörn Stjörnunnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.