Morgunblaðið - 01.09.1992, Page 7
6 B
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1992
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR
1. SEPTEMBER 1992
B 7
KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ -1. DEILD KARLA - SAMSKIPADEILDIN
Við ætlum
okkur meist-
aratitilinn
- segirArnarGunnlaugsson, marka-
hæsti leikmaður Samskipadeildarinnar
SKAGAMEIMN eru með aðra höndina á íslandmeistaratitlinum í
knattspyrnu þegar aðeins tvær umferðir eru eftir. Þeir unnu ís-
landsmeistara Víkings sannfærandi 1:3 í Stjörnugróf á laugar-
dag. ÍA gæti reyndar tryggt sér titilinn um næstu helgi með því
að vinna FH á heimavelli þ.e.a.s. ef Þór tapar á sama tíma fyrir
KR. „Við ætlum okkur að vinna íslandsmeistaratitilinn. Það skipt-
ir okkur engu máli hvernig aðrir leiki fara. Ef við vinnum þessa
tvo leiki sem eftir eru þá þurfum ekki að treysta á aðra,“ sagði
Skagamaðurinn Arnar Gunnlaugsson eftir sigurinn á Víkingi.
Valur B.
Jónatansson
skrifar
Skagamenn lék hreint frábær-
lega í fyrri hálfleik og gerðu
þá út um leikinn - skoruðu þríveg-
is og fengu færi til
að bæta við enn
fleiri mörkum. Arn-
ar gerði fyrsta
markið á 17. mín-
útu og tvíburabróðir hans, Bjarki,
bætti öðru marki við tveimur mín-
útum síðar. Þórður Guðjónsson
gerði síðan þriðja markið undir lok
hálfleiksins. Víkingar voru alltaf
skrefinu á eftir og náðu sjaldan
að komast í námunda við vítateig
Skagamanna og máttu þakka sínu
sæla að munurinn var ekki meiri
í hálfleik.
Víkingar voru meira með í leikn-
um í síðari hálfleik og fengu þá
nokkur færi. Það var því ekki gegn
gangi leiksins að þeir náðu að
minnka muninn þegar 8 mín. voru
til leiksloka með marki Helga Sig-
urðssonar. Eftir það var eins og
ÍA-vélin hrykki aftur í gang. Þórð-
ur Guðjónsson komst einn innfyrir
vörn Víkings en Guðmundur mark-
vörður kom hlaupandi út úr víta-
teignum og bjargaði á síðustu
stundu.
Skagamenn léku fyrri hálfleik-
inn eins og meisturum sæmir. Þeir
voru alltaf fljótari í boltann og
sóknir þeirra voru mjög snöggar
og hættulegar. í síðari hálfleik
bökkuðu þeir kannski full mikið
en staðan var það vænleg að aldr-
ei var hætta á að liðið tapaði þess-
um leik. Skagaliðið er heilsteypt
og hvergi veikan hlekk að finna.
Vert er að geta frammistöðu The-
ódórs Hervarssonar og tvíbura-
bræðranna Bjarka og Amars, en
þeir léku allir mjög vel. Það er
spurning hvort ekki sé kominn tími
til að gefa tvíburunum tækifæri
með A-landsliðinu.
Víkingar hafa ekki náð að sýna
þann karakter sem einkenndi leik
liðsins á síðasta ári. Það er ótrú-
legt að þetta sama lið hafi hampað
Islandsmeistaratitlinum í fyrra.
Liðið var mjög ósamstillt í fyrri
hálfleik og var hending ef sending
rataði á samheija. Síðari hálfleikur
var mun skárri, sérstaklega eftir
að varamennirnir Kristinn Hafliða-
son og Hólmsteinn Jónasson komu
inná. Meistararnir eru nú í bul-
landi fallhættu og verða að gera
betur en í þessum leik ætli þeir
að bjarga sér frá falli.
„Fyrri hálfleikur var mjög góður
hjá okkur. Við bökkuðum of mikið
í síðari hálfleik og gerðum það
ósjálfrátt," sagði Arnar Gunn-
laugsson sem hefur nú gert 13
Arnar Gunnlaugsson er farinn að
Þorsteinsson bíða átekta fyrir aftan.
mörk í 1. deild. „Ég stefni sjálf-
sögðu að því að verða markahæst-
ur í deildinni og hjálpa þannig lið-
inu í leiðinni að meistaratitlinum.
Ég átti alveg eins von á því í upp-
hafi móts að við yrðum í toppbar-
áttunni en ekki að við leiddum
mótið í allt sumar. Þó við séum
ungir að árum erum við búnir að
spila meira og minna saman í þijú
ár þannig að við erum með mikla
leikreynslu. Við erum einnig í mjög
góðri æfingu og þetta hjálpast allt
að í velgengni okkar,“ sagði Arnar.
Morgunblaðið/Kristinn
banka á landsliðsdyrnar. Hér hefur hann betur í baráttu við Helga Bjarnason, en Skagamaðurinn Þórður Guðjónsson og Þorsteinn
Meistarabarátta nýiiðanna
Liðin tvö sem komu upp úr 2. deild síðastliðið haust
standa best að vígi i keppninni um ísiandsmeistaratitilinn
ÍA vinnur FH 4:1 í Hafnarfirði og kemst á toppinn
Þórsarar byrja með tveimur 1:0 sigr- um, gegn Fram heima og UBK úti Fyrstatap ÍA, 1:5 heima gegn Val Annað tap ÍA, 0:1 gegn KA nyrðra
Staðan eftir
16 umferðir
10
Skagamenn
gera jafntefli í
fyrstu tveimur
leikjunum
Lárus Sigurðsson markvörður Þórs
hefur haldið markinu hreinu í 9 leikj-
um af 16, en fengið á sig 9 mörk í
7 leikjum, langfæst allra í deildinni
Víkingur 16
UBK 15
KA 13
ÍBV 10
FOLX
■ GUÐJÓN Þórðarson, þjálfari
Skagamanna, kallaði til Guðmund-
ar Steinssonar, sem stóð einn og
yfirgefinn við miðlínu er fyrri hálf-
leik var að ljúka: „Þetta hefur verið
rólegur leikur hjá þér - ekkert að
gera,“ sagði Guðjón.
■ HELGI Sigurðsson, sóknar-
maður Víkings, kom út að hliðarlínu
um miðjan síðari hálfleik til að skipta
um skó. Kári Gunnlaugsson, línu-
vörður, kom að og sagði: „eru þetta
markaskórnir?," Helgi svaraði því
játandi og skömmu síðar kom það á
daginn!
M SIGURÐUR Jónsson, miðvall-
arleikmaður ÍA, er meiddur á nára
og lék ekki með liðinu um helgina.
■ ÁHORFENDUR á leik Víkings
og ÍA voru flestir á bandi Skaga-
manna. Það heyrðist ekkert í stuðn-
ingsmönnum Víkings á meðan
stuðningsmenn Skagamanna
hvöttu sína menn ákaft til dáða eins
og þeir væru á heimavelli.
■ GUNNAR Már Másson, sókn-
armaður KA, leikur ekki meira með
liðinu á þessu keppnistímabili. Hann
er á förum til Bandarikjanna þar
sem hann stundar nám í vetur.
■ EINN af liðsstjórum Fram veitt-
ist að dómaratríóinu í Eyjum. Dóm-
arinn sagði á leikskýrslu að fram-
koma hans hefði verið ámælisverð
og vísaði í viðbótarskýrslu um málið.
■ KRISTBJÖRG Ingadóttir sem
gerði tvö mörk fyrir Val gegn UBK
í 1. deild kvenna á laugardaginn
hefur ekki langt að sækja mark-
heppnina því faðir hennar er Ingi
Björn Albertsson, þjálfari Vals.
■ MARGRÉT Sigurðardóttir,
UBK, fékk spark í höfuðið frá sam-
heija í leiknum gegn Val og varð
að yfirgefa völlinn. Hún fékk takka
í augabrún og kinnbein og þurfti að
sauma fyrir. „Ljónheppin að fá þá
ekki í augað, þá þyrfti ég lep,“ sagði
Margrét hress.
Hjátrúin bar
árangur hjá Þór
Þórsarar höfðu aldrei sigrað Valsmenn
á útivelli í 1. deild og var lögð
áhersla á að nú væri komið að því að
snúa blaðinu við. Sigurður Lárusson,
þjálfari, hafði reyndar ekki áhyggjur af
strákunum inná vellinum, en sagðist hafa
viljað bijóta upp hið hefðbundna mynstur
í undirbúningum með því að taka sálrænu
hliðina öðrum tökum en áður.
Venjulega fljúga Þórsarar í útileiki með
Flugfélagi Norðurlands skömmu fyrir
leik, en að þessu sinni var farið frá Akur-
eyri með fyrstu morgunvél Flugleiða. „Ég
vildi sjá til þess að strákarnir vöknuðu
snemma og væru örugglega andlega til-
búnir, þegar flautað yrði til !eiks,“ sagði
Sigurður.
Hann sagðist einnig hafa beitt gömlu
bragði, en vildi ekki segja frá hvað um
hefði verið að ræða. Það leyndi sér samt
ekki — 73 sm löng ræma af sjúkrateipi
var límd lóðrétt innan á allar treyjur leik-
mannanna 16, sem í hópnum voru!
Enn hélt Lárus
markinu hreinu
ÞÓRSARAR hafa sýnt geysilegan stöðugleika í deiidinni í sumar,
aðeins tapað tveimur leikjum um miðbik mótsins með minnsta
mögulega mun og síðan varla stigið feilspor. Á laugardag fögn-
uðu þeir fimmta sigrinum í röð, þegar þeir unnu nýkrýnda bikar-
meistara Vals 3:0 að Hlíðarenda. Norðanmenn eru áfram í barátt-
unni um titilinn, hafa aðeins fengið níu mörk á sig í 16 leikjum
og Lárus Sigurðsson hélt Þórsmarkinu hreinu í níunda sinn á
tímabilinu. Hins vegar misstu Valsmenn endanlega af lestinni.
Heimamenn voru ákveðnari til
að byija með, sóttu stíft og
voru klaufar að skora ekki á 14.
mínútu. Steinar var
í opnu færi eftir
góða sendingu Jóns
Grétars, en í stað
þess að skjóta gaf
Steinþór
Guðbjarsson
skrifar
hann á Baldur, sem var í þröngri
aðstöðu og Lárus bjargaði með út-
hlaupi.
Þó Valsmenn væru meira með
boltann náðu þéir ekki að skapa sér
önnur umtalsverð marktækifæri í
hálfleiknum. Þórsarar vörðust vel
sem fyrr, voru mun ákveðnari í
Meistari ef, en
þá, annars...
ÞEGAR tvær umferðir eru eft-
ir af íslandsmótinu er Ijóst
að baráttan um titilinn stend-
ur fyrst og fremst á milli ÍA
og Þórs, en KR á enn tölfræði-
lega möguleika á fyrsta sæti.
Hins vegar eru fjögur lið, ÍBV,
KA, UBK og íslandsmeistarar
Víkings, i fallhættu.
Skagamenn standa óneitanlega
best að vígi. Með sigri gegn
FH á heimavelli og jafntefli gegn
Þór úti er titilinn í höfn. Tapi Þór
stigi gegn KR nægir ÍA sigur gegn
FH og þá breytir leikur Þórs og
ÍA engu um efsta sætið. Tapi ÍA
og Þór í næstu umferð nægir ÍA
jafntefli gegn Þór, ef KR tapar
stigi gegn Val. Geri ÍA og Þór
jafntefli 1 næstu umferð dugar ÍA
jafntefli í síðasta leik. Tapi ÍA
gegn FH og sigri Þór KR verður
LA að sigra Þór til að draumurinn
rætist.
Þór verður íslandsmeistari með
því að sigra KR og ÍA. Tapi ÍA
gegn FH nægir Þór að sigra KR
og gera jafntefli við Skagamenn
eða öfugt. Sigri Þór KR með
tveggja marka mun og geri ÍA og
FH jafntefli, nægir Þór jafntefli
gegn ÍA. Tapi Þór og ÍA i næstu
umferð og sigri Þór ÍA verður Þór
meistari ef KR tapar stigi gegn
Val, en sigri KR ræður markatala
Þórs og KR í lokin úrslitum.
KR-ingar verða að sigra Þór og
Val ti! _að eiga möguleika, en þá
verður ÍA annaðhvort að tapa báð-
um leikjunum eða tapa fyrir FH
og gera jafntefli gegn Þór. Gerist
hið síðar nefnda ræður markatala
KR og ÍA úrslitum, en í fyrr nefnda
dæminu markatala KR og Þórs.
Sá möguleiki er einnig fyrir
hendi að IA, Þór og KR verði öll
jöfn að stigum, en þá ræður
markatala röðinni. Til að þetta
gerist verður KR að sigra í báðum
leikjunum, lA og FH að gera jafn-
tefli og Þór að sigra ÍA.
Fallbaráttan enn flóknari
Fjögur lið eru enn í fallhættu.
Tapi IBV stigi er liðið fallið. Fái
Víkingur stig eru íslandsmeistar-
arnir úr hættu. Breiðablik sleppur
með einum sigri og eitt jafntefli
gæti líka nægt. KA getur sloppið
með tvö jafntefli eða einn sigur.
Möguleikarnir eru margir og
staðan á botninum er mun flókn-
ari en hjá efstu liðum, þegar tvær
umferðir eru eftir.
I 4| Há sending kom inná
I vítateigslínu Vtkinga.
Aðalsteinn missti boltann aftur
fyrir sig og Arnar Gunnlaugsson
tók boltann niður í vítateignum og
lék á Helga Bjarnason og vippaði
knettinum laglega í hornið fjær á
16. mín.
Og a%Þðrður Guðjónsson gaf
■ émmháa sendingu fyrir
markið frá hægri á Bjarka Gunn-
laugsson sem var við marteigs-
homið fjær. hann tók við boltanum
viðstöðulaust og klippti hann i
netið á 17. min. Fallegt mark.
0«Ol
lEftir þunga sókn
•Skagamanna sendi
Haraldur Ingólfsson fyrir markið
frá vinstri og boltinn fór beint. fyr-
ir fætur Þórðar Guðjónssonar
sem sendi hann viðstöðulaust í blá-
honrið frá markteig á 42. mín.
1a4|%Helgi Sigurðsson
■ %#tók innkast á móts
við vítateigshornið vinstra meg-
in og sendi á Hólmstein Jónas-
son, sem gaf aftur á Helga sem
pijónaði sig í gegnum vöm ÍA
og skoraði með föstu skoti á 82.
mín.
Morgunblaðið/Kristinn
Lárus Sigurðsson er réttur maður á réttum stað. Hér ver hann glæsilega frá Baldri Bragasyni, en varnarmúr Þórs fylgist með
— Júlíus Tryggvason lengst til vinstri, Þórir Áskelsson og Sveinn Pálsson til hægri. Fyrir aftan eru Jón Grétar Jónsson í Val og
Þórsarinn Birgir Þór Karlsson.
baráttu um boltann, léku ágætlega
saman og nýttu fyrsta almennilega
færið. Það kom eftir hálftíma leik,
mistök hjá Val, stunga og ekki að
sökum að spyija — mark.
Þórsarar fóru sigurvissir inn í
hléi og komu enn öruggari til leiks
í seinni hálfleik. Þeir ætluðu sér
greinilega að gulltryggja sigurinn
sem fyrst og skoruðu eins og þeir
hafa verið þekktir fyrir í sumar —
eftir að hafa brotið sókn mótheij-
anna á bak aftur og vel útfærða
skyndisókn.
Eftirleikurinn var auðveldur og
Þórsarar fengu tækifæri til að bæta
við áður en Valsmenn tóku smá
kipp með tilkomu skiptimanna. Þá
þyngdust sóknir Valsmanna, en
þeir voru of ákafir og gleymdu sér
undir lokin með þeirri afleiðingu
að Þórsarar náðu enn einu sinni
snöggri skyndisókn, stunga og
þriðja markið varð að veruleika
áður en flautan gall.
Valsmenn voru ekki eins og þeir
eiga að sér og var greinilegt að
bikarleikurinn sat enn í sumum
þeirra. Til að mynda voru þrír leik-
mannanna veikir daginn fyrir leik
og einn meiddur. Vörnin var óör-
ugg, miðjumennirnir staðir og
Anthony Karl í strangri gæslu, og
því nýttist ágætur Ieikur kantmann-
anna ekki.
En enginn leikur betur en mót-
heijinn leyfir hveiju sinni og það
voru Þórsarar, sem stjórnuðu ferð-
inni. Lárus sýndi enn einu sinni
gífurlegt öryggi í markinu og Júlíus
stjórnaði vörninni sem reyndasti
hershöfðingi. Hlynur hafði góðar
gætur á Anthony Karli, miðjumenn-
irnir börðust sem ljón og framheij-
arnir tveir voru ávallt í viðbragðs-
stöðu — tilbúnir að reka endanhnút-
inn á sóknirnar, sem og þeir gerðu.
Oa Steinar Adoifsson
■ 1 gaf þversendingu
rétt utan eigin vítateigs á 31.
mínútu. Bjami Sveinbjörnsson
komst inní sendinguna og stakk
snöggt á Halldór Áskelsson,
sem fór snyrtilega framhjá Ein-
ari Páli Tómassyni og renndi
boltanum í netið hægra megin
við Bjama Sigurðsson.
0« ^^Sveinbjörn Hákonar-
■ HBsson vann boltann rétt
við miðlínu á 49. mínútu. Hann
óð upp miðjan vallarhelming
Vals og sendi síðan á Láras
Orra Sigurðsson, sem gaf þegar
til vinstri á Bjama Svein-
björnsson. Hann var í opnu
færi og skoraði auðveldlega af
stuttu færi.
O.Ol
• %0\
'Halldór Áskelsson
'vann boitann rétt við
miðlínu hægra megin á 89. mín-
útu. Hann var ekkert að tvínóna
við hlutina heldur gaf stungu-
sendingu inn í teig Vals. Þar var
Bjami mættur og lyfti boltan-
um af öryggi yfir nafna sinn í
marki Vals.
Allt er þá þrennt er!
Halldór Áskelsson var sannfærður um sigur Þórs fyrir leik, þó
ekki væri nema vegna fjölskylduástæðna. Á fimmtudag ól eigin-
kona hans honum dóttur, faðir hans átti afmæli á föstudag og
þrefaldur sigur lá því í loftinu á laugardag. Þrír gæfudagar í röð og
þrenna að auki á leikdag; Halldór gaf tóninn með marki, sigur og
kærkomin afmælisgjöf til Akureyrarbæjar á 130 ára afmælisdeginum.
Að ekki sé minnst á mörkin þijú!
Morgunblaðið/Kristinn
Ingi Björn Albertsson fer í hálf-
leik og Valur 1:0 undir.
ÍÞRÓmR
FOLK
■ INGI Björn Albertsson messaði
yfir Valsliðinu í hálfleik, en hélt síð-
an suður á Keflavíkurflugvöll á leið
sinni til Portúgal, þar sem hann sá
Boavista, mótheija Vals í Evrópu-
keppni bikarhafa. „Það er hundfúlt
að þurfa að fara í þessari stöðu, en
ég fæ góðar fréttir í bílnum,“ sagði
Ingi Björn við Morgunblaðið áður
en hann Iagði Tann.
■ INGI Björn var rétt kominn út
af Valssvæðinu, þegar hann heyrði
að Bjarni Sveinbjörnsson hafði
bætt við og gert annað mark Þórs.
M ÓLAFUR Magnússon, aðstoð-
arþjálfari Vals, tók við stjórninni,
en hann missir af síðustu tveimur
leikjunum og verður næst á bekknum
í Evrópukeppninni. Ólafur er fram-
kvæmdastjóri íþróttasambands fatl-
aðra og fór á sunnudag sem farar-
stjóri með íslensku keppendunum,
sem taka þátt í Paralympics-leikun-
um í Barcelona.
■ ÞÓR hafði ekki fyrr sigrað Val
á útivelli í 1. deild, en sigurinn kom
á 130 ára afmælisdegi Akureyrar-
kaupstaðar.
■ SVEINN Torfi Pálsson lék
sennilega síðasta leik sinn fyrir Þór
á tímabilinu, en hann stundar nám
í Bandarikjunum. Sveinn Torfi var
því kældur niður eins og samheijarn-
ir orðuðu það, var settur _ í kalda
sturtu eftir leik. Árni Þór Árnason
fékk sömu meðferð eftir sigurinn
gegn Víkingi í 14. umferð, en að
honum loknum fór hann til Kanada,
þar sem hann er í námi.
■ EF Þórsarar verða í baráttunni
um Islandsmeistaratitilinn fyrir síð-
ustu umferð, er líklégt að þeir kalli
á tvo fyrrnefnda námsmenn í leikinn
fegn IA í lokaslagnum.
I ARNLJÓTUR Davíðsson kom
inná hjá Val undir lokin, en hann lék
með Þór í yngryflokkunum.
■ HALLDÓR Áskelsson og Lárus
Sigurðsson léku einnig gegn fyrrum
félögum sínum.
H LÁRUS var í Val þar til fyrir
yfirstandandi tímabil og ætlar að
vera áfram hjá Þór næsta tímabil.
■ HALLDOR hefur lengst af verið
í Þór, en var í herbúðum Vals um
tíma.
■ SVEINBJÖRN Hákonárson,
sem var m.a. í liði IA, þegar Skaga-
menn urðu bikarmeistarar í fyrsta
sinn, 1978, fór útaf skömmu fyrir
leikslok. „Gerum grín af þeim og
vinnum 3:0,“ sagði kappinn, sem
verður áfram með Þór næsta tíma-
bil. Halldór og Bjarni tóku hann á
orðinu, Halldór gaf á Bjarna, sem
bætti þriðja markinu við skömmu
síðar.
I