Morgunblaðið - 01.09.1992, Síða 8
8 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 1. SEFfEMBER 1992
B1KARKEPPIM1 KSI / 2. FLOKKUR
3. FLOKKUR KARLA
Amar og Þórður
bmgðust ekki
Skoruðu sitt hvort markið í 2:0 sigri á
Eyjamönnum
ARNAR Gunnlaugsson og
Þórður Guðjónsson hafa að-
eins leikið fimm leiki með 2.
flokki ÍA og þá eingöngu ísíð-
ari hálfleik. Sú sparsemi meist-
araflokksþjálfarans, Guðjóns
Þórðarsonar hefur þó ekki
komið á sök og í síðustu viku
hafnaði bikarinn íherbúðum
ÍA, - eftir mörk frá þeim Arnari
og Þórði í 2:0 sigri á ÍBV.
Vestmanneyingar lágu í vöm í
fyrri hálfleiknum enda Akur-
nesingar til alls líklegir með sterkan
vind í bakið. Það herbragð heppnað-
ist og Eyjámenn sluppu inn í bún-
ingsherbergi án þess að fá mark á
sig. Akumesingar sneru leiknum
sér í vil snemma í síðari hálfleikn-
um, Vítaspyma var dæmd á brot
rétt innan teigs þegar lítil hætta
var á ferðum. Þórður skoraði úr
spjmiunni og um stundarfjórðungi
fýrir leikslok bætti Amar við öðru
marki með skoti úr vítateignum.
Skömmu fyrir leikslok var Magnúsi
Sigurðssyni ÍBV vísað af velli fyrir
brot en Magnús hafði fyrr í leiknum
fengið að sjá gula spjaldið.
„Við áttum að gera út um leikinn
í fyrri hálfleik en fómm þá illa með
færin. í síðari hálfleik voram við
öraggari og áttum sigurinn skil-
inn,“ sagði Kári Steinn Reynisson,
fyrirliði IA. Tryggvi Guðmundsson
fyrirliði IBV var vonsvikinn eins og
gefur að skilja. „Ég var mjög
ánægður með að halda jöfnu í fyrri
hálfleik gegn svona sterkum vindi
og við voram sigurvissir þegar við
gengum út til síðari hálfleiks. En
ósanngjam vítaspymudómur setti
okkur út af laginu."
IA: Ámi G. Arason - Gunnlaugur Jónsson,
Rúnar Bjamason, Alfreð Karlsson, Hreiðar
Bjamason, - Sturlaugur Haraldsson, Kristinn
Ellertsson, Pálmi Haraldsson, Kári Reynisson,
Stefán Þórðarson (Þóröur Guðjónsson), - Stefán
Þór Þórðarson (Amar Gunnlaugsson).
ÍBV: Gunnar Sigurðsson - Magnús Sigurðs-
son, Sighvatur Jónsson, Kristján Georgsson -
Yngvi Borgþórsson, Bjamólfur Lámsson, Rút-
ur Snorrason, Hjalti Jóhannesson (Sigurvin
Ólafsson), Hermann Hreiðarsson - Tryggvi
Guðmundsson, 5teingrímur Jóhannesson.
Bikarinn fór til KA
fimnvta áriðíröð
KA hreppti bikarinn fimmta árið
í röð. Eins og undanfarin ár
lék liðið við Þór í úrslitaleikjum, KA
vann fyrri leikinn 3:1 en Þór þann
síðari 5:4 í síðustu viku í opnum og
skemmtilegum leik. KA vann því
samanlagt á hagstæðari markamun
7:6.
Síðari leikur liðanna fór fram á
heimavelli Þórs þar sem KA-völlur-
inn var ekki í leikhæfu ástandi. Jafnt
var í leikhléi 3:3 en leikmenn KA
höfðu heppnina með sér í þeim síð-
ari. Leikmenn Þórs gerði sjálfsm ark
og Jóhann markvörður KA varði
vítaspyrnu frá Heiðmari. KA menn
halda því bikarnum eitt ár til viðbót-
ar.
Þór-KA..............................1:8
Eiður Pálmason - Sigurgeir 2, Þórhallur.
KA-Þór..............................4:5
Þórhallur, Óskar, Guðni Rúnar, sjálfsmark -
Kristján 3, Elvar, Atli Þór.
Kári Steinn Reynisson, fyrirliði
Morgunblaðið/Frosti
U-18 ára landslið:
ÞrírfráKR
og Akranesi
Guðni Kjartansson, þjálfari ís-
lenska iandsliðsins skipað leik-
mönnum sautján ára og yngri hefur
valið sextán manna hóp til æfinga
fyrir leik gegn Belgum ytra í Evr-
ópukeppninni 8. september. Hópur-
inn er þannig skipaður:
Markverðir:
Atli Knútsson.........................KR
Ámi Gauti Arason.....................í A
Aðrir leikmenn:
Orri Þórðarson........................FH
Þorvaldur Ásgeirsson..............Fram
Eysteinn Kristinsson...............Hetti
Gunnlaugur Jónsson...................í A
Pálmi Haraldsson.....................í A
Jóhann Steinarsson...................ÍBK
Daði Pálsson.........................ÍBV
ívar Bjarklind........................KA
Sigþór Júlíusson......................KA
Einar Baldvin Árnason.................KR
Ottó Karl Ottósson....................KR
Lúðvík Jónasson................Stjömunni
Sigurbjöm Hreiðarsson................Val
Helgi Sigurðsson.................Víkingi
Bjóst við botnbaráttu
Við settum stefnuna á að fá
þrettán til ijórtán stig á
íslandsmótinu, því við héldum
að það mundi duga okkur til að
halda okkur uppi,“ sagði ómar
Jóhannsson, þjálfari 2. flokks
ÍBV en liðið vann sig upp úr
B-deild síðasta haust og hefur
komið á óvart og verið í barátt-
unni um sigur í bæði deild og
bikar.
„Við höfum sett stefnuna á
þrennuna," sagði Sigurður Hall-
dórsson, þjálfari 2. flokks ÍA
sem þegar hefur tryggt sér tvo
titla á árinu. „Þó að Doddi (Þórð-
ur) og Amar hafi skorað mörkin
gegn IBV þá held ég að liðsheUd-
in sé okkar sterkasta vopn. Ég
er með rpjög samstilltan hóp í
höndunum," sagði Sigurður en
ÍA varð í vetur íslandsmeistari
í innanhússknattspymu og getur
bætt við sig öðram titli í vikunni
en íslandsmótinu í þessum ald-
ursflokki lýkur á fimmtudag.
Ætluðum að sanna
að við værum betri
- sagði Nökkvi Gunnarsson fyrirliði KR eftir sigur á
Fram í bikarúrslitum 3. flokks suðvesturlands
„VIÐ ætluðum að sanna að við værum
betri eftir tapið gegn þeim í íslandsmót-
inu og ég held að það hafi tekist hjá
okkur,“ sagði Nökkvi Gunnarsson, fyrir-
liði þriðja flokks hjá KR sem í síðustu
viku varð Bikarmeistari suðvesturlands
með 2:0 sigri á Fram í úrslitaleiknum.
Liðin áttust einnig við í íslandsmótinu í
leik sem skar úr um það hvort liðið keppti
til úrslita gegn ÍBV. Þá hafði Fram betur 3:2
en KR-ingar fengu sárabót með þessum sigri.
Framarar léku undan sterkum vindi og
vora þá mun meira með knöttinn en KR-ingar
vörðust vel og beittu skyndisóknum og áttu
meðal annars skot í stöng. Nökkvi náði foryst-
unni fyrir KR stundarfjórðungi fyrir leikslok
og segja má að þá hafi lifnað yfir leiknum.
KR-ingar björguðu eitt sinn á Iínu en Vilhjálm-
ur Vilhjálmsson innsiglaði sigur Vesturbæjarl-
iðsins með þramuskoti af þrjátíu metra færi
sem hafnaði efst í markhominu.
Nökkvi Gunnarsson, fyrirliði KR tekur við bikarnum. Morgunbiaðíð/Kristinn
Morgunblaðið/Þórieifur Haraldsson
íslandsmeistarar KR í þriðja flokki kvenna. Fremri röð frá vinstri: Ingibjörg Kristinsdóttir, Valdís Fjölnisdóttir
fyrirliði, Jóhanna Indriðadóttir, Karlotta Markan, Jenný Ruth Hrafnsdóttir, Bylgja Guðmundsdóttir. Aftari röð frá vinstri:
Asta Jónsdóttir liðsstjóri, Ólöf Indriðadóttir, Björg Fenger, Lára Kristín Ragnarsdóttir, Hrund Jörundsdóttir, Harpa
Hauksdóttir, Edda Garðarsdóttir, Guðrún Jóna Kristjánsdóttir.
Edda skoraði
m_ ■■ ■■ ■ ÆT
tvomorkur
aukaspymum
EDDA Garðarsdóttir, auka-
spyrnusérfræðingur KR í 3.
flokki kvenna skoraði bæði
mörk liðsins í úrslitaieiknum
gegn Tý sem lyktaði með 2:1
sigri KR. KR hefur leikið til úr-
slita í þessum flokki sl. þrjú
ár fagnaði loks sigri en liðið
tapaði í úrslitum í fyrra fyrir ÍA.
Edda tryggði þar með liði sínu
íslandsbikarinn en keppnin fór
fram á Siglufirði.
slitaleikurinn var spennandi
og vel leikinn af báðum liðum.
Týr náði forystunni á 7. mínútu
með marki Rögnu Ragnarsdóttur
með fallegum skaila eftir horn-
spyrnu. Liðin skiptust á að sækja
og á sextándu mínútu fékk KR
dæmda aukaspyrnu sem Edda
skoraði úr af tæplega þijátíu metra
færi. KR-ingar áttu meira í síðari
hálfleiknum og Edda tryggði KR
sigurinn með öðru marki sínu úr
aukaspyrnu.
ÍA tryggði sér þriðja sætið í
mótinu með sigri á Breiðablik 2:1.
Þá fengu tvær Skagastúlkur verð-
laun fyrir að verða markahæstar.
Guðrún Sigursteinsdóttir skoraði
sjö mörk og Aslaug Akadóttir sex.
Valdís Fjölnisdóttir skoraði fimm
mörk.