Morgunblaðið - 01.09.1992, Side 12
STANGARSTOKK
GOLF / SVEITAKEPPNI GSI
31. heims-
met Bubka
SERGEJ Bubka setti heimsmet
í 31. skipti á ferli sínum sem
stangarstökkvari, á móti í
Padua á Ítalíu á sunnudaginn.
Bætti þá metið utanhúss, með
því að stökkva yfir 6,12 metra.
Þetta var fimmtánda heimsmetið
sem Úkraínumaðurinn setur
utanhúss en sextán sinnum hefur
hann bætt það innanhúss. Metið
innandyra er reyndar einum sm
hærra, 6,13 m.
í metstökkinu á sunnudag var
Bubka langt yfir ránni í metstökk-
inu, og segist sannfærður um að
geta bætt metið enn frekar. „Fólk
heldur að það sé auðvelt að skreppa
út á völl og setja met en ég er
manneskja, ekki vél,“ sagði hann.
Bubka felldi bytjunarhæð sína á
Olympíuleikunum í Barcelona um
daginn, en hann var talinn einna
öruggastur allra keppenda á leikun-
um með gullverðlaunin.
Sveinn
Agnarsson
skrifar frá
Svíþjóð
II) :
•v
FOLK
H SÆNSKA landsliðið í knatt-
spymu varð fyrir mikilli blóðtöku
um helgina er Jan Eriksson mið-
vörður hjá Kaiserslautem meiddist
í leik gegn Borussia
Dortmund í þýsku
úrva.lsdeldinni. Jan
sleit liðbönd í vinstra
hné og verður frá
keppni næstu sex vikurnar.
■ ERIKSSON missir því af tveim-
ur leikjum Svía í undankeppni HM,
við Finna á morgun og Búlgara
10. oktbóber. Er þar skarð fyrir
skildi því hann var einn besti maður
Svía í EM í júní og hefur fengið
mikið hrós fyrir leik sinn með Kais-
erslautern.
■ SVÍINN missir því vitaskuld
einnig af Evrópuleikjunum tveimur
gegn Fram í UEFA-keppninni.
■ TIL að bæta gráu ofan á svart
hjá Svíum er framheijinn Tomas
Brolin einnig meiddur og mun lík-
lega missa af leikjunum tveimur.
■ ÞAÐ gengur allt á afturfótun-
um hjá sænsku meisturunum í
knattspyrnu IFK Gautaborg í úr-
slitakeppni úrvalsdeildarinnar
[Allsvenskan]. Á sunnudag tapaði
liðið 1:3 á heimavelli fyrir nýliðum
Trelleborg.
■ IFK Gautaborgheíur nú ein-
ungis unnið tvo leiki af tíu frá því
að keppni hófst aftur eftir Evrópu-
keppni landsliða — tapað hinum
átta.
■ MALMÖ sigraði efsta lið deild-
arinnar, Norrköping, á heimavelli
í gærkvöldi 3:1. Patrik Andersson
gerð tvö marka Malmö en hann
hefur verið orðaður við Manchester
United.
■ AÐ ÞREMUR umferðum lokn-
um í úrslitakeppninni er Norrköp-
ing með 21 stig. Trelleborg hefur
20 stig, Öster 19, AIK og Malmö
18, og Gautaborg 15. Liðin taka
helming stiganna með sér úr deild-
arkeppninni, sem Norrköping
vann.
■ HACKEN, liðið sem Gunnar
Gíslason lék með í fyrra, vann stór-
sigur, 5:1, gegn IFK Sundsvall á
útivelli í keppninni um fjögur laus
sæti í úrvalsdeildinni að ári. Hac-
ken er í þriðja sæti með 10 stig,
tveimur á eftir Halmstad og
Djurgárden. Gais er í fjórða sæti
með 8 stig, en liðið tapaði 0:1 á
heimavelli fyrir Örebro, sem Hlyn-
ur Stefánsson leikur með.
IPROmR
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Sigursveitlr GR. Þau endurheimtu titilinn í sveitakeppninni. í karlasveitinni eru frá vinstri Sigurður Hafsteinsson, Ragnar Ólafsson, Garðar Eyland liðs-
stjóri, Siguijón Arnarsson og Jón H. Karlsson. í kvennasveitinni eru frá vinstri Herborg Amarsdóttir, Aðalheiður Jörgensen, liðsstjóri, Ragnhildur Sigurðardóttir
og Svala Óskarsdóttir.
GR vann í báðum flokkum
Hannes Eyvindsson úr B-sveit GR setti vallarmet á síðasta hring á Jaðarsvelli
KYLFINGUM úr Golfklúbbi
Reykjavíkur tókst loks, eftir fjög-
urra ára hlé, að sigra í sveita-
keppni Golfsambands íslands.
Keilir hafði sigraði í karlaflokki
síðustu fjögur árin en nú voru
GR-ingar ákveðnir í að sigra og
það tókst. Sveit GR sigraði einn-
ig í kvennaflokki.
GR-menn gerðu svo sannarlega
góða ferð til Akureyrar að
þessu sinni því þeir urðú í tveimur
efstu sætunum í svei-
Reynir takeppni karla og
Eiriksson sigruðu einnig í svei-
skrifar frá takeppni kvenna.
• Akureyri Ekki nóg með það
því Hannes Eyvindsson, sem lék með
B-sveit GR, setti glæsilegt vallarmet
á síðasta hring, lék á 67 höggum,
sem er fjórum höggum undir pari
Jaðarsvallar.
Félagi Hannesar, Ragnar Ólafsson
sem lék með A-sveitinni, hafði jafnað
fyrra vallarmet á fyrri hringnum á
sunnudaginn, lék þá á 68 höggum
og Birgir L. Hafþórsson frá Akra-
nesi jafnaði einnig það met skömmu
áður en Hannes kom inn.
Yfirburðir GR voru nokkrir því
sveitin lék holurnar 72 á 884 höggum
' eða 15 höggum færra en B-sveit GR
og 27 höggum færra en Keilissveitin
lék á. Sveitir GS og B-sveit Keilis
urðu í neðstu sætum og munaði að-
eins einu höggi. Þær falla í 2. deild
en önnur sveit frá GS varð í öðru
sæti í 2. deild þannig að Suðumesja-
menn verða áfram með eina sveit í
1. deild. Kylfingar í Nesklúbbi sigr-
uðu í 2. deildinni og færast upp í
þá fyrstu.
„Okkur tókst ætlunarverkið og ég
er yfir mig ánægður með það. Við
komum hingað til að sigra og nú
erum við staðráðnir í að láta bikarinn
ekki af hendi á næstunni," sagði
Garðar Eyland liðsstjóri GR að leik
loknum.
Aðalheiður Jörgensen, liðsstjóri
kvennasveitarinnar, tók í sama
streng. „Ég er æðislega ánægð með
sigurinn þó svo skorið hefði mátt
vera betra. En það er sigurinn sem
skiptir mestu máli,“ sagði Aðalheið-
ur.
Stúlkurnar léku 36 holur, 18 hvom
dag, en karlamir 36 holur hvom
dag. GR-stúlkumar léku á 340 högg-
um eða 14 höggum betur en sveit
Keilis sem varð í öðru sæti. Herborg
Amarsdóttir úr GR átti besta hring-
inn hjá stúlkunum, lék á 83 höggum
seinni daginn en fyrri daginn lék hún
á 95 höggum. Miklar framfarir á
milli daga!
Það verður hlutskipti sveitar GS
að leika í 2. deild að ári en konumar
í GA urðu í þriðja sæti. Upp úr 2.
deild kemur lið Keilis, sem sigraði á
340 höggum, eins og sveit GR. Önn-
ur deildin var leikin í Grindavík en
sú fyrsta á Akureyri þannig að töl-
umar em að sjálfsögðu ekki sam-
bærilegar.
Til stóð að leika þriðju deildina á
ísafirði um helgina en fresta varð
því þar sem völjurinn var ekki í leik-
hæfu ástandi. í dag verður ákveðið
hvar og hvenær þriðja deildin fer
fram. ________________________
■ Úrslit / B11
í 1. delld. Sveit
Golfklúbbs Ness
sigraði í 2. deild og
leikur í þeirri fystu
að ári. Sveitina
skipuðu Aðalsteinn
Ingvarsson, Hjalti
Nielsen, Rúnar G.
Gunnarsson og Vil-
hjálmur Ingibergs-
son.
GETRAUNIR: X22 2X1 122 XX21