Morgunblaðið - 11.09.1992, Síða 12
•SfóÍRÖÖSÉIiXÖÉ) röstf'WÖÁWWMty. §íí#tÉMBÉÉ'' 19^2
Morgunblaðið/Ingvar
Ekið á veg-
faranda
Ekið var á gangandi vegfaranda
á gangbraut á mótum Kringlu-
mýrarbrautar og Listabrautar
um miðjan dag í gær. Vegfar-
andinn var fluttur á slysadeiid,
en ekki var Ijóst hve alvarleg
meiðsli hans voru. Tildrög slyss-
ins eru einnig á huldu.
Hugmyndir um breytingu virðisaukaskatts ræddar í ríkisstjórn
Vörugjald verði lagt á vín
og tóbak, bíla og benzín
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra segir að umræddar
breytingar virðisaukaskatts, í þá átt að hið almenna skatthlut-
fall lækki í 22%, en á móti beri vörur og þjónusta, sem nú eru
undanþegnar skattinum, 14% skatt, muni koma út á sléttu fyrir
ríkissjóð. Hins vegar séu til umræðu í ríkisstjórninni og stjórnar-
flokkunum hugmyndir um að leggja 2,5% vörugjald á bíla og
benzín, áfengi og tóbak. Þar með yrði verð þessara vara óbreytt,
þrátt fyrir lækkun virðisaukaskatts. Vörugjaldið myndi skila
ríkissjóði 500-600 milljónum króna, að sögn Friðriks.
„í öllum hugmyndum varðandi
fjárlögin, sem liggja fyrir ríkis-
stjóminni, er ljóst að bæði gjöld
<?g tekjur verða lægri en í fjárlög-
um yfirstandandi árs,“ sagði Frið-
rik í samtali við Morgunblaðið í
gær. „Þar sem ákveðnir tekju-
stofnar, til dæmis jöfnunargjaldið,
sem gefið hefur um 500 milljónir
á þessu ári, falla niður, hafa verið
uppi áform um að bæta ríkissjóði
það tekjutap til að koma í veg
Hafnarfjarðarkirkja
Nýtt safnaðarheimili og tónlistarhús
ATHÖFN fer fram í Hafnarfjarðarkirkju á morgun, laugadaginn
12. september, kl. 16.00, í tilefni af fyrstu skóflustungu að byggingu
nýg tónlistarskóla og safnaðarheimilis Hafnarfjarðarkirkju
I fréttatilkynningu frá sóknar-
nefnd segir: „Undanfarin ár hefur
Hafnarfjarðarbær og safnaðar-
stjórn Hafnarfjarðarkirkju unnið
sameiginiega að undirbúningi að
byggingu safnaðarheimilis og tón-
listarskóla.
1989 var samþykkt að hafa sam-
keppni um skipulag reits sem af-
markaðist af Lækjargötu, Suður-
götu, húsi skattstofunnar, íþrótta-
húsinu og væntanlegri götu neðan
Strandgötu. Samkeppni átti einnig
að ná til hönnunar safnaðarheimilis
og tónlistarskóla á reitnum.
1990 var samkeppnin haldin. 30
tillögur bárust en 1. verðlaun hlaut
tillaga arkitektanna Sigríðar Magn-
úsdóttur og Hans Olavs Andersens.
Safnaðarstjórn og bæjaryfirvöld
samþykktu að taka höndum saman
og byggja samkvæmt þessari til-
lögu.
A þessu vori var fyrsti áfangi
boðinn út og var lægsta tilboð frá
Hagvirki/Kletti hf. og verður því
falið verkið.“
fyrir of mikinn halla og þær afleið-
ingar, sem hann hefur.“
Friðrik sagði að ein af þeim
hugmyndum, sem ríkisstjórnin
ræddi, væri að gera breytingu á
virðisaukaskattinum, í hátt við
stefnuyfirlýsingu stjórnarinnar um
að breikka skattstofna og lækka
skatthlutföll. „Þessi kerfisbreyting
gæti falið í sér lækkun virðisauka-
skattshlutfallsins úr 24,5% í 22%
og myndi færa þær greinar, sem
nú eru undanþegnar skattinum,
upp í 14% skatt,“ sagði hann. „Slík
breyting myndi koma út á sléttu
og ríkissjóður fengi engar tekjur
af henni. Ástæðan fyrir slíkri kerf-
isbreytingu er fyrst og fremst sú
að alls staðar í löndunum í kringum
okkur er verið að breyta virðis-
aukaskattinum með þessum sama
hætti. í þeim nefndum, sem skilað
hafa áliti um bætta innheimtu
skatta, til dæmis skattsvikanefnd,
hefur ávallt verið bent á tvö mikil-
væg atriði, sem geti dregið úr
skattsvikum. Það eru lægri hlut-
föll og færri undanþágur.“
Friðrik sagði að í þeim hug-
myndum, sem ræddar hefðu verið
í ríkisstjórninni, væri gert ráð fyr-
ir að á flestar þær vörur og þjón-
ustu, sem nú væru undanþegnar
virðisaukaskatti, yrði lagður 14%
skattur. Þar á meðal eru dagblöð,
bækur og áskriftargjöld útvarps
og sjónvarps, íþrótta- og menning-
arstarfsemi, fólksflutningar, hótel-
gisting og húshitun. Bankaþjón-
usta, tryggingar og happdrætti,
sem í flestum löndum væru undan-
þegin virðisaukaskatti, yrðu það
hins vegar áfram.
Fjármálaráðherra sagði að ýmis
nauðsynjavara, til dæmis matvör-
ur, bæri nú 24,5% virðisaukaskatt
og það hlyti að vera verulegt hags-
munamál láglaunafólks að þær
vörur lækkuðu í verði. „Þær vörur
og þjónusta, sem fengju á sig 14%
skatt eftir slíka breytingu ef fram-
kvæmd yrði, þyrftu ekki allar að
hækka um 14%,“ sagði Friðrik.
Hann sagði að í dagblaða- og bóka-
útgáfu og fleiri greinum gætu
fyrirtæki við núverandi skattkerfi
fengið virðisaukaskatt af aðföng-
um endurgreiddan í rekstri sínum.
I þeim greinum myndi verð hækka
um 14%. I öðrum greinum, til
dæmis fólksflutningum og ferða-
þjónustu, væri nú ekki leyfilegt að
draga innskatt frá útskatti. Með
þeirri kerfisbreytingu, sem um
væri rætt, yrði slíkt leyfilegt. Ráð-
herra nefndi sem dæmi að þótt 14%
skattur yrði lagður á fyrirtæki í
fólksflutningum, myndi fyrirtækið
geta dregið 22% virðisaukaskatt
af aðföngum sínum, bílum og vara-
hlutum, frá þeim skatti, sem það
ætti að standa skil á til ríkisins.
Þjónusta þess ætti því ekki að
þurfa að hækka um 14%, heldur
um muninn á inn- og útskatti.
„Þessi kerfisbreyting skilar eng-
um fjármunum. Hins vegar eru
hugmyndir uppi um að láta áfengi
og tóbak, bíla og benzín halda
óbreyttu verði með því að leggja
á þessar vörur 2,5% vörugjald,“
sagði Friðrik. „Þannig mætti ná
inn tekjum, sem hafa tapazt vegna
þess að tekjustofnum hefur fækk-
að.“
Fjármálaráðherra sagði að ekki
mætti gleyma því að hefði ein-
hvern tímann verið tækifæri til að
lækka almennt hlutfall virðisauka-
skatts, væri það nú þegar verð-
bólga væri 1-2%. „í 20-30% verð-
bólgu hefði verið erfitt að fylgjast
með hvort verð lækkaði eða álagn-
ing hækkaði á móti. Þegar verð-
bólgan er 1-2%, sér almenningur
hins vegar strax hvort vörur
hækka eða lækka um 2,5%,“ sagði
Friðrik Sophusson.
SEPTEMBERTILBOÐ
SENSAR BOÐTÆKI
• Fyrirferöarlítið og nýtískulegt
• 5 skilaboð í minni
• Hleðslutæki og tvær rafhlöður
• Áminning ef skilaboð eru ólesin í minni
• Skjár með Ijósi
• Fer vel í vasa
• Vegur aðeins 43 gr.
Verð áður kr. 17.780
VERÐ NÚ KR. 14.998
Mengunarmælingar í sjó við Island
Sjór óvíða hreinni
en hér við land
— segir aðstoðarmaður umhverfisráðherra
MAGNÚS Jóhannesson, aðstoðarmaður umhverfisráðherra, segir að
niðurstöður áfangaskýrslu vegna mengunarmælinga í sjó við Island
gefi til kynna að sjór sé óvíða í veröldinni ennþá eins hreinn og hér
við land. Mengunarmælingunum, sem ná til þungmálma, lífrænna
þrávirkra efna, geislavirkra efna, næringarsalta og seltu sjávar, er
ekki lokið en fengnar niðurstöður eru jákvæðar og staðfesta trú
manna á að litla mengun sé að finna í sjónum í kringum landið að
sögn verkefnisstjórnar. Búist er við lokaniðurstöðum mælinganna á
næsta ári.
Uppruni mengunarefna
í sjó við íslai
Frárennsli af landi
POSTUR OG SIMI
Söludeildir í Reykjavík, Ármúla 27, Kringlunni og Kirkjustræti.
Póst- og símstöðvar um land allt
Á kynningarfundi vegna áfanga-
skýrslunnar sagði Magnús að al-
mennt séð væri mengun hér mjög
lítil. „Við teljum ekki að á þessu
stigi sé hægt að tengja á neinn
hátt það magn þungmálma, sem
er að finna t.d. í lífverum, við mann-
legar athafnir hvorki hér né ahnars
staðar. Hins vegar virðist náttúru-
legt umhverfi vera með nokkuð
öðrum hætti hér við land en annars
staðar, t.d. í Evrópu, og kemur það
kannski fyrst og fremst fram í
kræklingi þar sem kadmín, kopar
og sink er nokkuð hærra heldur en
náttúruleg mörk eru talin vera, t.d.
við vesturströnd Evrópu.“
„Hvað varðar geislavirku efninin
þá er magn þeirra, sem betur fer,
mjög lítið hér við land þannig að
skiptir mörgum stærðaVgráðum.
Jafnvel er í sumum tilvikum allt
að því 1000 faldur munur hér og á
hafssvæðum sem eru ekki alltof
langt frá okkur," sagði Magnús en
í máli hans kom fram að aldrei
áður hefðu farið fram samsvarandi
mengunarmælingar hér á landi.
Hann sagði að áhersla hefði verið
lögð á að hægt væri að bera niður-
stöðurnar saman við erlendar kann-
anir og hefðu þær þegar verið
sendar erlendis. Einu samanburð-
amiðurstöðurnar sem eru fengnar
benda til að magn lífrænna þrá-
virkra efna sé minna við ísland en
það sem lægst mælist í Norðursjó.
Ekki komu í ljós landræn áhrif
vegna næringarsalta í Faxaflóa.
Sigurður Magnússon, forstöðu-
maður Geislavarna ríkisins, sagði
að minna væri af geislavirkum efn-
um í íslenskum fiski en víðast ann-
ars staðar. Hvað neyslufisk varðar
eru gildin lægri en 1/1000 af við-
miðunarmörkum sem gilda í alþjóð-
Ur andrúmslofti
Rekstur skipa
Varpað
(hafið
legum viðskiptum.
Þó rannsóknin hafi leitt í ljós lít-
inn styrk geislavirkra efna hér við
land reynist marktækur munur milli
geislavirkni í sjó fyrir Norður- og
Austurlandi annars vegar og Suð-
ur- og Vesturlandi hins vegar.
Helstu orsakir geislamengunar eru
tilraunir með kjarnavopn og úr-
gangur úr kjarnorkuiðnaði. Áhrifa
frá kjarnorkuúrgangi gætir frekar
í sjó fyrir Norður- og Austurlandi
og því er geislavirkni hærri þar.
Á fundinum kom fram að sam-
starf hefði verið haft við hagsmuna-
aðila í sjávarútvegi varðandi meng-
unarmælingarnar og niðurstöður
áfangaskýrslunnar hefðu þegar
verið kynntar fyrir þeim. Fram kom
að niðurstöðurnar hefðu eflaust góð
áhrif á markaðsetningu fiskafurða
og fiskútflutning.