Morgunblaðið - 11.09.1992, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1992
29
Minning
Árni Böðvarsson cand. mag.
fræga stað, Odda á Rangárvöllum.
Sá staður var Árna kær frá æsku-
dögum, en þar fermdist hann.
Að skilnaði tregum við samheijar
í Oddafélaginu okkar helsta mann.
Góðra stunda á fundum minnumst
við og hollráða hans og skemmti-
legra samferðastunda milli höfuð-
staðar og Rangárþings. Við minn-
umst hressilegrar leiðsagnar hans
í hópferðum um sýsluna, en hann
var allra manna fróðastur um sögu
lands og lýðs þar um slóðir. Minnis-
stæðar verða mér ferðir okkar milli
grunnskóla sýslunnar er við fórum
tveir saman að boða erindi Oddafé-
lagsins. Var okkur vel tekið. Sagði
Árni sögu Odda. Á heimleið þessa
bjartviðrisdaga tókum við gjarnan
á okkur krók um hrepp sem leið-
sögumaður minn hafði ekki heim-
sótt um skeið og ég aldrei. Var það
lærdómsríkt fyrir mig, afkomanda
Rangæinga sem höfðu fyrr á öld-
inni flúið herskáan sandinn.
Mikill missir er að forystumanni
í nýstofnuðu hugsjónafélagi og er
okkur vandi á höndum. En mestur
-er missir ástvina Árna heitins. Við
Jóhanna kona mín vottum Ágústu
Árnadóttur, börnum og öðrum
skyldmennum, samúð á sárri- skiln-
aðarstundu. Blessuð sé minning
Árna Böðvarssonar.
Þór Jakobsson.
Haustið 1967 réðst sá sem þetta
ritar kennari að Menntaskólanum
við Hamrahlíð. Samtímis kom þar
til starfa 43 ára íslenskukennari,
Árni Böðvarsson cand. mag. Við
vorum siðan nær óslitið samstarfs-
menn þangað til Árni kvaddi skól-
ann vorið 1984 og varð málfars-
ráðunautur Ríkisútvarpsins.
Á fyrstu árum okkar Árna í
Hamrahlíð var skólinn enn í bygg-
ingu. Þegar húsnæði fékkst undir
bókasafn tók Árni við forstöðu þess.
í höndum hans óx safnið og varð
langstærsta og vandaðasta bóka-
safn í framhaldsskóla hérlendis. Þar
kom að Árni lét af störfum við
bókasafnið en það býr enn að braut-
ryðjendastarfi hans.
Um skeið var í MH fjölritað mik-
ið af námsefni eftir kennara skól-
ans. Árni hélt að verulegu ieyti
utan um þá starfsemi og gekk frá
verksamningum við höfunda auk
þess sem hann færði sjálfur tals-
vert af þessu efni í letur. En minnis-
stæðastur er hann sjálfsagt nem-
endum sem vandvirkur og um-
hyggjusamur kennari og samstarfs-
mönnum sem góður og drenglyndur
félagi.
Þótt Árni yrði ekki gamall maður
varð ævistarf hans mikið og gott.
Eg læt öðrum eftir að rekja vísinda-
störf hans. Eitt rit mun þó öðrum
fremur halda minningu Árna á lofti
en það er íslensk orðabók, sem kom
út hjá Menningarsjóði 1963 og tutt-
ugu árum síðar í endurskoðaðri
útgáfu. Önnur orðabók Árna er
ekki eins þekkt en hefur reynst
mér og fleirum mjög þörf. Það er
Orðalykill, safn latneskra fræði-
heita plantna og dýra með íslenskri
þýðingu, skrá um ýmis fjölþjóðleg
hugtök og loks íslensk heiti á er-
lendum örnefnum. Landafræðiheit-
in hygg ég að Árni hafi að mestu
eða öllu tekið saman sem málfars-
ráðunautur útvarps, til stuðnings
fréttamönnum.
Eftir að íslenska orðabókin kom
út vann Árni um skeið við fyrirhug-
aða alfræðibók Menningarsjóðs.
Útgáfuáætluninni var síðar breytt
og þeir hlutar verksins sem lengst
voru á veg komnir gefnir út í ritröð-
inni Alfræði Menningarsjóðs. Ég
vann nokkuð við alfræðibókina og
kynntist þá Árna Böðvarssyni. Þeim
kynnum tengjast ljúfar minningar
eins og raunar öllu okkar samstarfi
síðan.
Fyrir hönd starfsmanna Mennta-
skólans við Hamrahlíð flyt ég fjöl-
skyldu Árna Böðvarssonar hugheil-
ar samúðarkveðjur. Blessuð sé
minning hans.
Örnólfur Thorlacius.
Jafnaldri minn að kalla er hnig-
inn. Ævistarf manna er með ýmsum
hætti og á ólíkum vettvangi. Óhætt
mun að segja, að æviskeið Árna
Böðvarssonar hafi verið farsælt og
skilið eftir sig mikinn afrakstur, ef
svo má að orði kveða. Rit hans,
bæði mikil og merk, munu halda
nafni hans á lofti um langa fram-
tíð. Árni var sá eljumaður að fá-
gætt mun. Hann gaf sér tíma til
margs, meðal annars að starfa að
framgangi alþjóðahjálparmálsins
esperanto. Ég minnist Árna fyrst,
er við sóttum fundi hjá esperant-
istafélaginu „Auroro" rétt eftir
stríðið. Þar fór glaður og bjartsýnn
ungur maður, sem trúði því, að eitt
hjálparmál gæti orðið til að auka
skilning milli manna og þjóða og
stuðlað að friði. Sú var einnig hug-
sjón höfundar þessa tungumáls,
pólska læknisins L.L. Zamenhof.
Ekki gat hjá því farið að jafn
greindur og fróðleiksfús unglingur
og Árni var héldi á menntabraut. Á
fundi í „Auroro" skömmu áður en
hann tók það mein, sem varð honum
að aldurtila, sagði hann frá námi
því er hann stundaði hjá prestinum
í Fellsmúla, séra Ragnari Ófeigs-
syni, og nægði honum til að ganga
undir stúdentspróf máladeildar við
Menntaskólann í Reykjavík vorið
1945. Árni sagði glögglega frá
námi þessu, á esperanto að sjálf-
sögðu. Og flutningur var eins og
venjulega, afburða góður. Maðurinn
var skýr í hugsun og bar frásögnin
svip fágunar og lærdóms. Ef slíkur
maður sem hann hefði þurft að
bæla hjá sér menntaþrána, hefði
það að sjálfsögðu orðið honum
þungbært. En sem betur fer komst
hann til æðstu mennta og skilur
eftir sig stórvirki á sviði íslenskra
fræða. Hann var gæfumaður, vegna
þess að hann fékk að neyta krafta
sinna við viðfangsefni, er hæfðu
honum og hann hafði áhuga á. Síð-
asta ritið sem kom frá hendi Árna
Böðvarssonar er „íslenskt málfar"
og Almenna bókafélagið gaf út i
upphafi yfirstandandi árs. Þetta er
mjög aðgengileg handbók um mál-
notkun, og á heima við hlið bók-
anna „Islenskir málshættir" og „ís-
lenskt orðtakasafn". Vænt þykir
mér um, að Árna skyldi endast ald-
ur til að skila þessu vandaða rit-
verki.
Með Árna Böðvarssyni er fallinn
vandaður fræðimaður, áheyrilegur
útvarpsmaður, ötull hugsjónamað-
ur, og síðast en ekki síst góður fé-
lagi og vinur.
Auðunn Bragi Sveinsson,
(samideano dum jardekoj,
hugsjónafélagi um áratugi).
Káre Tveters í Hafnarborg
SÝNING á verkum Káre Tveters
var opnuð í Hafnarborg sl. mánu-
dag. Á sýningunni eru um sextíu
verk, olíumálverk og vatnslita-
myndir.
Myndefnið er að mestu leyti frá
Svalbarða en einnig úr norsku skóg-
unum. Meginviðfangsefni lista-
mannsins er þó ekki landslagið sem
slíkt heldur er listamaðurinn fýrst
og fremst að fást við Ijósið eða birt-
una á norðlægum slóðum.
Sýningin stendur til 5. október
og er opin kl. 12-18 alla daga nema
þriðjudaga.
Við opnun málverkasýningarinn-
ar á mánudag urðu nokkrir boðs-
gesta frá að hverfa eða bíða utan
húss þar til opnað var aftur.
Ákvörðun um að loka húsinu fyrr
en tilgreint var í boðskorti var ekki
í höndum forsvarsmanna Hafnar-
borgar og hefur Pétrún Pétursdótt-
ir, forstöðumaður Hafnarborgar,
farið þess á leit við Morgunblaðið
að það komi á framfæri velvirðing-
arbeiðni við viðkomandi aðila og
þökkum fyrir þann skilning sem
þeir sýndu við þessar sérstöku að-
stæður.
Morgunblaðið/SPB
Kirkjukór Fáskrúðsfjarðar söng við messuna í Flateyjarkirkju.
Messað í Flat-
ey á Skjálfanda
Husavik.
AÐ TILHLUTAN Gísla Jónatanssonar fór kirkjukór Fáskrúðsfjarð-
ar, ásamt sóknarpresti sínum, séra Þorleifi Kristmundssyni á Kolfrey-
justað, organistanum Maté Péter, og meðhjálparanum Sigrúnu Guð-
laugsdóttur, í langa reisu í ágúst til Flateyjar á Skjálfanda og flutti
þar messu fyrir fullsetinni kirkju.
Kirkja var í Flatey að fornu eða
síðan á söguöld. Þangað kom Guð-
mundur góði og vígði vatnsból og
hefur síðan aldrei vatn þrotið, svo
sem oft vill verða í eyjum. Kirkj-
unni var lengst af þjónað frá
Þönglabakka eða síðan 1897 að hún
var flutt úr eynni að Brettingsstöð-
um á Flateyjardal og sóknin lögð
undir Hálsprestakall 1907, og síðar
undir Húsavíkurprestakall. Þegar
byggð lagðist niður á dalnum flutti
fólkið kirkjuna með sér og endur-
reisti hana í Flatey á ártinum 1955
til 1959.
Föst búseta í Flatey lagðist af
1968 en eigendur og ættingjar hafa
haldið nokkrum húsum í eyjunni
vel við og dvalið þar um lengri og
skemmri tíma ár hvert. í tilefni
messunnar flutti Hríseyjarferjan
Sævar fólk frá Húsavík til eyjarinn-
ar og veittu „heimamenn" gestum
góðan beina en alls voru þar um
150 manns. Á undanförnum árum
hefur oft verið messað í Flateyjar-
kirkju um þessa helgi þó ekki sé
það alveg fastur siður og ættsterk-
ir Flateyingar hafa látið ferma börn
sín í Flateyjarkirkju.
- Fréttaritari
Karlar selja kaffi
FÉLAGAR í Kristniboðsfélagi karla í Reykjavík efna til hinnar
árlegu kaffisölu sinnar sunnudaginn 13. september í Kristniboðs-
salnum, Háaleitisbraut 58, þriðju hæð. Kaffisalan hefst kl. 14.30
og lýkur kl. 18. Allur ágóði rennur til starfs Kristniboðssambands-
ins.
Um þessar mundir eru átta ís-
lendingar ásamt börnum sínum að
verki í Eþíópíu og Kenýu á vegum
Kristniboðssambandsins. Tvenn
ung hjón fóru í fyrsta sinn til
starfa nú á þessu ári.
Kristniboðsstarfið verður æ
umfangsmeira. Áhersla er lögð á
boðun kristinnar trúar svo og
ýmiss konar aðstoð, einkum við
hjúkrun og skólahald. Kristnum
mönnum fjölgar, sjálfstæðir söfn-
uðir hafa risið á starfssvæðunum,
heilsufar fólksins batnar og sífellt
fleiri æskumenn njóta menntunar.
Hér heima er unnið að boðun og
kynningu.
Kostnaður vegna kristniboðsins
er að mestu leyti borinn uppi af
vinum og velunnurum. í ár þarf
að safna um 18 milljónum króna
og vantar enn allmikið á að því
marki verði náð. Karlarnir í
kristniboðsfélaginu vonast því eft-
ir góðri aðsókn sunnudaginn 13.
september.
(Úr fréttatilkynningu)
Viðgerðir - viðhald
Ath.: Allar lekaþéttingar,
sprungu- og múrviðgerðir. Yfirför-
um þök fyrir veturinn. Sótthreins-
um sorprennur og ruslakompur.
Upplýsingar í síma 653794 milli
kl. 19.00 og 22.00.
FÉLAGSÚF
Námskeið
um hjónabandið
með norska fjölskylduráögjafan-
um Eivind Fröen verður í safnað-
arsal Bústaðakirkju 17. og 18.
þ.m. kl. 20-23 bæði kvöldln. Fyrir-
lestrarnir verða túlkaðir. Þátttaka
kr. 1.500. Veitingar innifaldar.
Misstu ekki af frábæru nám-
skeiði.
Upplýsingar í símum 27460,
37801 og 14327.
Fjölskyldufræðslan.
FERÐAFELAG
© ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SÍMI 682533
Dagsferðir
Ferðafélagsins:
Laugardagur 12. sept.
Kl. 08 Hekla
Gengið frá Skjólkvíum og tekur
gangan um 8 klst.
Verð kr. 2.000.
Sunnudagur 13. sept.:
1) Kl. 10.30 Hrómundar-
tindur-Kattartjarnir
Hrómundartindur (554 m) er
austan Hengils, gengið frá Hell-
isheiði, komið niður hjá Ölfus-
vatnsgljúfrum og þeim fylgt að
Ölfusvatnsheiði, en um hana
liggur Grafningsvegur og þar
endar gangan. Verð kr. 1.100,-.
2) Kl. 13 Dyravegur -
gömul þjóðteiö
Ekið um Nesjavallaveg, gengið
frá Dyrum austur yfir Sporhellu
og Háhrygg, þaðan n'óur Rauðu-
flög að Nesjavöllu .i. Forvitnileg
gönguleið um ó’ úlega fjölbreytt
landslag. VeU kr. 1.100,-.
Brottför frí Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin, og Mörkinni
6. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir
börn að 15 ára aldri. Gönguferð-
ir Ferðafélagsins eru ætlaðar
öllum, sem ánægju hafa af úti-
veru og hollri hreyfingu.
Velkomin í hópinnl
Ferðafélag Islands.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SÍMI 682533
Helgarferðir Ferðafé-
lagsins 11.-13. sept.
1) Landmannalaugar -
Hrafntinnusker - Álftavatn
Gist fyrri nóttina í Landmanna-
laugum og þá seinni við Álfta-
vatn.
Ekið frá Landmannaleið upp
Pokahrygg að Hrafntinnuskeri
og siðan áfram vestan Lauga-
fells um Fjallabaksleið syðri að
Álftavatni.
Óvenjuleg ökuleið um hrikalegt
landslag.
2) Þórsmörk - uppselt!
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofu Fi, Mörkinni 6.
Ferðafélag islands.
*Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
i dag kl. 18.00: Fyrsti yngriliðs-
mannafundurinn.
Kl. 20.30: Unglingaklúbburinn.
Hjartanlega velkomin.
/
Biblíuskólinn
Eyjólfsstöðum
Alþjóðlegt Biblíu- og boðunar-
námskeið á Islandi 9. janúar til
30. maí 1993. Vanti þig góða
kennslu um grundvallaratriði
kristinnar trúar, þá er þetta gott
tækifæri fyrir þig. Fjárfestu á
þennan hétt í þínu andlega lífi.
Nám8keiðið er opið fyrir útlend-
inga jafnt sem islendinga. ÖH
kennsla mun verða túlkuð yfir á
íslensku. Kennarar verða bæöi
innlendir og erlendir.
Námskeiðið er eftir alþjóðlegri
fyrirmynd systursamtaka
UFMH, Youth With A Mission
(YWAM). Heitir á ensku Discip-
leship Training School (DTS) og
er undanfari ýmissa annarra
námskeiða í skóla YWAM víða
um heim. Tillit er tekið til ís-
lenskra aðstæðna.
Hluti af námskeiðinu er 8 vikna
verkleg þjálfun/boðun i sam-
starfi við söfnuði víðs vegar um
land.
Nánari upplýsingar:
Biblíuskólinn Eyjólfsstöðum,
701 Egilsstaöir,
sími 97-12171,
fax, 97-12271.
HIMI1J0XB&
Byrjendanámskeið hefst 14. sept.
Kenndar verða teygjur, öndun,
slökun og hugleiðsla.
Kynning á Kripalujóga verður
haldin laugardaginn 12. septem-
ber kl. 14.
Allir velkomnir.
Jógastöðin Heimsljós,
Skeifunni 19, 2. hæð,
simi 679181 (kl. 17-19).
UTIVIST
Hallveigarstig 1 • simi 614330
Dagsferðir um helgina
Föstud. 11. sept. kl. 20.00
Tunglskinsganga.
Brottför frá BSÍ bensinsölu.
Verð kr. 1000/900.
Sunnud. 13. sept. kl. 9.30
Fjörugangan 2. áfangi, Álftanes.
Sunnud. 13. sept. kl. 13.00
Fjörugangen 2. áfangi, Blika-
staðanes - Kjarlarnestangi.
Útivist.