Morgunblaðið - 11.09.1992, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1992
41
Herstöðvaandstæðingar nú
SIEMENS
Frá Tryggva V. Líndal:
Um hásumarið er það í tísku hjá
herstöðvaandstæðingum að efna til
mótmælagöngu gegn stríðsbrölti
heimsvaldasinna. Reyndar virðast
þessar göngur vera að breytast í
lautarferðir áhugamanna gegn öll-
um illum öflum. Vil ég ræða það
nánar. En ég fyllist alltaf hrifningu
þegar ég sé til gangna þeirra, en
blanda mér aldrei í hópinn af því
ég blygðast mín fyrir þennan barna-
skap. Það er nefnilega við slík tæki-
færi sem ég verð var við að vinstri-
sinnar eru annars konar fólk heldur
en ég, gamli Heimdellingurinn. Því
fer ég heldur ekki að sötra kaffi
hjá þessum elskum fyrir gönguna,
af því það fer enn í mínar fínustu
taugar þegar vinstristefna og kven-
réttindi mætast í einni og sömu
persónunni. Þó er ég ekki lengur
feiminn að eðlisfari (hef það t.d.
fyrir tómstundagaman á þessum
árstíma að spila fyrir ferðamenn
íslensk þjóðlög á trompet og þver-
flautu).
En málefnaleg staða herstöðva-
andstæðinga er orðin nokkuð flókin.
Ekki er nóg með að kalda stríðinu
sé nú lokið, og Eystrasaltsþjóðimar
Félag íslenskra
nuddfræðinga
- svargrem
Frá Rafni Geirdal:
Vegna greinar frá Félagi ís-
lenskra nuddara vil ég taka eftirfar-
andi fram: Ég hef verið meðlimur
í því félagi frá endurstofnun þess
1985. Hef ég miðað að uppbygg-
ingu þess á ýmsan máta. Hefur
samvinna við það félag oft verið
góð. En vegna ýmissa óæskilegra
orða sem látin hafa verið falla í
minn garð, bæði á fundum og í fjöl-
miðlum að undanförnu, hef ég
ákveðið að stofna eigið félag.
Félag íslenskra nuddfræðinga
var stofnað 20. ágúst sl. Formuð
hefur verið stjórn, samin hafa verið
lög, siðareglur, staðall yfir mennt-
unarskilyrði og tengsl við hið opin-
bera menntakerfi. Sendar hafa ver-
ið fréttatilkynningar til allra helstu
fjölmiðla og tilkynningar til allra
helstu opinberra embætta.
Félagið viðurkennir Nuddskóla
Rafns Geirdals. Sendar hafa verið
umsóknir til þeirra sem hafa út-
skrifast frá þeim skóla. Alls hafa
31 útskrifast til fulls sem nuddfræð-
ingar. Þeir eiga allir möguleika á
að gerast fullgildir meðlimir. 29
hafa verið í námi til útskriftar en
eiga eftir að ljúka nokkrum prófum,
starfsþjálfun og ákveðnum forms-
atriðum. Þessir nemendur eiga
möguleika á að gerast áheyrnaraðil-
ar, þar til þeir hafa lokið sínum
formsatriðum. Umsóknir hafa einn-
ig verið sendar til þeirra sem kært
hafa viðkomandi skólastjóra.
Félag íslenskra nuddfræðinga lít-
ur með velvild til Félags íslenskra
nuddara og óskar því góðs gengis.
Í lýðftjálsu landi getur hver sem
er stofnað félag og fleiri en eitt
félag getur verið um svipað mál-
efni. Með því er tækifæri til að sér-
kenni hvors félags um sig geti bet-
ur notið sín.
Nudd og nuddnám hefur verið í
hraðri þróun á undanförnum árum.
Er það von mín að það haldi áfram.
Með því getur þjóðin notið þeirrar
heilsu betur sem nuddið veitir. Ég
þakka.
RAFN GEIRDAL, formaður
Félags íslenskra nuddfræðinga,
Smiðshöfða 10, Reykjavík.
Skákeinvígið í
Svartfjallalandi
Frá Vilhjálmi Alfreðssyni:
ÖLL UMRÆÐAN um skákeinvígið
í Svartfjallalandi milli Bobby Fisch-
ers og Borísar Spasskís hefur ekki
farið fram hjá neinum þessa dag-
ana. Margir hafa dregið í efa að
þetta sé leyfilegt en er ekki best
að líta á þetta jákvæðum augum?
Hver veit, kannski kemst á friður
á Balkanskaga? Skák er mjög frið-
sæl íþrótt og getur haft góð áhrif.
Það gæti verið táknrænt þegar
Fischer hrækti á viðvörunarbréf
bandaríska utanríkisráðuneytisins.
Hvað eftir annað hafa bandarískir
I stjórnmálamenn gargað fram og til
baka alls konar yfirlýsingar um
Balkanskaga. Samt sem áður geta
þeir varla bjargað ástandinu heima
hjá sér í Suður-Flórída, þar sem
þúsundir manna sofa undir berum
himni án matar. Meira að segja eru
bandarískar herdeildir ráðlausar.
Og þó halda sumir að bandarískar
herdeildir geti stillt til friðar í Bosn-
íu-Herzegóvínu! Tsjetnika-hersveit-
irnar mundu fara létt með þá.
En að lokum. Það er ósk allra
manna að einvígið fari friðsamlega
fram og skákmennirnir sýni snilld
sína.
VILHJÁLMUR ALFREÐSSON,
Efstasundi 76, Reykjavík.
VELVAKANDI
BARNAFLIK
INNKAUPAPOKI merktur
Versluninni Elfur fannst í Versl-
uninni Einu sinni var, Lauga-
vegi 12 a, sími 28282. í pokan-
um var ónotuð bamaflík. Eig-
andi vitji pokans í Einu sinni
var.
HI-TECH SKÓR
HVÍTUR Hi-Tech skór af
hægra fæti, hvítur með svörtu
og fjólubláu skrauti, númer 35,
týndist á Fjölnismóti í Grafar-
vogi eða í Seljahverfi. Finnandi
hringi í síma 79470.
KETTLINGUR
Kettlingur fannst á mánu-
dagskvöld í kirkjugarðinum við
Suðurgötu. Hann er um það bil
7 vikna, svartur, með hvítar
loppur, hvítt trýni og hvítur á
bringu. Eigandi hans er vinsam-
legast beðinn að hringja í síma
28271.
séu orðnar óskabörn sjálfstæðis-
manna og allra meðvitaðra íslend-
inga, heldur keppast nú Nató-ríkin
við að vera góð við Rússana, til að
þeir gleymi nú ekki að eyða síðustu
kjarnorkuvopnum hinna fyrrum
Sovétríkja.
Þar við bætist að „hernámsliðið"
á Keflavíkurflugvelli er nú á útleið
frekar en hitt, og spurning hvort
herstöðvaandstæðingar vilji að
dragi fljótar úr framkvæmdum
þeirra en orðið er. En öll þjóðemis-
hyggja og útlendingahatur þarfnast
nú endurskoðunar er við siglum
hraðbyri inn í EES og EB.
Sú þversögn hefur skapast að
það era kommúnistar sem eru
verstu stríðshundarnir í okkar ná-
grenni, nefnilega Serbar í Júgóslav-
íu. Þeir era einnig sekir um mestan
ofstopa hemaðarhyggju, sem ber
keim af bæði landvinningastríði og
þjóðernishyggju Hitlers, og fólks-
flutningum Stalíns. En sem betur
fer munu herstöðvaandstæðingar
vera andvígir stefnu Serbíustjómar.
En ættu þeir þá ekki að beijast
fyrir að flóttamenn undan stríðinu
þar fengju búsetu á íslandi, án til-
lits til fjölda, aldurs eða starfs-
greina? Jafnvel þótt atvinnuleysi
fari vaxandi?
Líkast til era herstöðvaandstæð-
ingar gegn hinum nýju varnar-
bandalögum Evrópu. Og líkast til
eru þeir ekki ánægðir með kattar-
þvott varnarliðsins í umhverfísmál-
um. Friðargöngur um jólin era þó
þeim að skapi, og eru kannski þeirra
framtíðarfarvegur.
En herstöðvaandstæðingar verða
að halda baráttuanda sínum lif-
andi, ef þeir vilja vera áfram afl í
okkar svefndrukkna þjóðfélagi.
TRYGGVI V. LÍNDAL,
Skeggjagötu 3, Reykjavík.
Pennavinir
Átján ára tékkneskur piltur með
íþróttaáhuga:
Jiri Slavik,
Palacheko Trida 65,
Chrudim III,
537 01 Czechoslovakia.
Átján ára japönsk stúlka með
mikinn áhuga á íslandi:
Yoko Ohmura,
6-3-12-207 Kamiyoshida-cho,
Zentsuuji-shi,
Kagawa-ken,
765 Japan.
LEIÐRÉTTING
Skipið breskt -
ekki rússneskt
Rangt var farið með að skip sem
hefur lagt ljósleiðarastreng hér á
landi væri frá Rússlandi í Morgun-
blaðinu á miðvikudag. Hið rétta er
að skipið er frá Bretlandi. Eru hlut-
aðeigandi beðnir velvirðingar á
þessum mistökum.
Frystikistur og frystiskápar
Siemens frystitækin eru eins og aörar
vörur frá þessu öndvegisfyrirtæki:
traust, endingargóö og falleg.
Lítið inn til okkar og skoðið úrvalið.
SMITH &NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
ÚLPUVEISLA
Dömu- og herraúlpur í miklu úrvali
mmuTiuFPm
GLÆSIBÆ . S/MI 812922
Opið laugardag 10-14
HÖFÐABAKKA 9, 112 REYKJAVÍK, SÍMI 634000.