Morgunblaðið - 11.09.1992, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
FOSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1992
Hugmyndir ríkis-
valdsins um virð-
isaukaskatt:
ÍSÍ mót-
mælir
harðlega
Morgunblaðinu barst í gær eftir-
farandi ályktun frá framkvæmda-
stjóra íþróttasambands íslands:
„Framkvæmdastjóm íþróttasam-
bands íslands mótmælir harðlega
þeim hugmyndum að Ieggja virðis-
aukaskatt á aðgangseyri að íþrótta-
mannvirkjum, svæðum, kappleikjum
og/eða mótum, líkamsræktarstöðv-
um og aðra íþróttastarfsemi.
Að langmestum hluta til er íþrótta-
starfsemi í landinu í sjálfboðaliða-
vinnu og íþróttamenn og iðkendur
áhugafólk. Þær litlu tekjur sem
íþróttahreyfingin aflar m.a. með að-
gangseyri að íþróttakeppni er ekki
til að skila hagnaði, heldur til að
standa að hluta til undir lágmarks-
þjónustu fyrir iðkendurna sjálfa.
Einkum þó æskufólk, enda er það
viðurkennt að íþróttir efla heilbrigði,
reglusemi, vellíðan og félagsþroska
þeirra sem þær stunda.
í því er mikil og kaldhæðnisleg
þverstæða og þversögn, ef ríkisvaldið
hyggst gera þessa fijálsu forvamar-
og uppbyggjandi starfsemi að féþúfu
fyrir ríkissjóð í stað þess að efla hana.
Skattur á aðgangseyri mun draga
úr aðsókn áhorfenda og ástundun
íþrótta og kalla á bókhaldsvinnu og
skýrslugerð sem mun hafa aukinn
og áður óþekktan kostnað í för með
sér. Skattlagning af þessu tagi mun
fyrst og fremst bitna á einstökum
íþróttafélögum og deildum hvarvetna
um Iandið og fæla menn frá því að
gegna forystu- og félagsstörfum, en
íþróttahreyfingin er byggð upp á
endurgjaldslausu starfi slíks fólks.
Virðisaukaskattur á íþróttastarf-
semi er óheillaspor og framkvæmda-
stjóm ÍSÍ skorar á Alþingi íslendinga
að hrinda þessari aðför á hendur ís-
lenskri íþróttahreyfingu.
yirðingarfyllst,
íþróttasamband íslands
Ellert B. Schram, forseti.“
HANDKNATTLEIKUR / FELAGASKIPTI
Lykilorðið er samningur
SAMKVÆMT uppfýsingum frá skrifstofu Handknattleikssam-
bands íslands voru 31 félagaskipti óafgreidd í gær vegna
þess að öllum formsatriðum var ekki fullnægt. I fiestum tilfell-
um neita félög, sem óskað er eftir að ganga úr, að skrifa
undir umsókn um leikheimild með öðru félagi, þar sem þau
vilja fá eitthvað fyrir sinn snúð, alft frá nokkrum tugum þús-
unda upp í meira en eina og hálfa milljón samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins. Engu virðist skipta hvort um réttmæta
eða óréttmæta kröfu er að ræða, en að Öllu óbreyttu leika
viðkomandi leikmenn ekki á komandi keppnistímabili — eru
f 10 mánaða leikbanni samkvæmt reglum HSÍ, sömdum og
samþykktum af aðildarfélögum sambandsins. Þau hafa grafið
sér sfna eigin gröf með fáránlegum samþykktum, sem brjóta
í bága við almenn mannréttindi, og komi þau sér ekki saman
um að útkljá þessi mál fyrir miðvikudag, þegar íslandsmótið
á að byrja, hafa þau unnið fþróttinni ómetanlegt tjón. Ef tals-
menn viðkomandi deilda setjast ekki þegarað samningaborð-
inu og hreinsa til eftir sig skrtinn, styttist óðum f að kasta
megi rekunum.
AF
INNLENDUM
VETVANGI
Eftir
Steinþór
Guðbjartsson
Félagaskipti voru ekki vanda-
mál fyrr en peningar komust
í spilið fyrir alvöru. Áður léku
menn fyrir ánægj-
una og heiðurinn,
en þegar farið var
^ að gera „vel“ við
leikmenn, urðu
peð að kóngum og
drottningum, er
félagaskipti þar á
góma. Eftir höfð-
inu dansa limimir,
leikmenn sáu sér
leik á borði og fóru að gera aukn-
ar kröfur. Boltinn vatt uppá sig
og nú er svo komið að mörg fé-
lög riða á barmi gjaldþrots.
Milljónaskuldir
Stjórnarmenn sumra félaga
hafa látið stjómast ýmist af eigin
draumómm um frægð og frama
félags síns eða/og kröfuhörðum
leikmönnum. Vegna fyrirhyggju-
leysis og rangrar fjármálastjórn-
unar hafa milljónaskuldir safnast
upp á nokkrum bæjum, en svo
er reynt að klóra í bakkann og
allt frá „tittlingaskít“ uppí svim-
andi háar upphæðir em settar á
leikmenn, sem vilja fara.
Fyrir tæplega þremur ámm fór
leikmaður í sex mánaða bann
vegna þess að fyrra félag vildi
ekki skrifa undir félagaskipti.
Málið var kært og þó dómstóll
ÍSÍ hafi vísað því frá gagnrýndi
hann harðlega þáverandi reglu-
gerðarákvæði um félagaskipti.
„Ákvæði þetta heggur nærri
gmndvallarreglum laga ÍSÍ, sbr.
5. gr. 2. c og d, um frjálsa félags-
aðild, þátttöku í félagsstarfi og
jafnrétti félagsmanna, og getur
bersýnilega leitt til ósanngjarnar
niðurstöðu fyrir einstaka félags-
menn“ segir m.a. í dómnum.
Tilmæli sniðgengin
Stjórnarmenn félaga og aðrir
fulltrúar á ársþingi HSÍ létu
ámælin sem vind um eym þjóta
og í stað þess að afnema þessa
vitleysu, sem hlýtur að stangast
á við almenn mannréttindi og
félagarétt, var refsingin þyngd
og samþykkt s.l. vor að nái við-
komandi félög ekki samkomulagi
um félagaskipti skal viðkomandi
leikmaður fara í 10 mánaða
bann. Afleiðingamar hafa ekki
látið á sér standa.
Ekki eru mörg ár síðan
ónefndur þjálfari var vinsamleg-
ast beðinn að leggja ekki bíldr-
uslu sinni, sem að sögn félags-
manna hékk aðeins.saman á ryð-
inu, á bílastæði félagsins og
áhugamaður nokkur er oft litinn
hornauga, þegar hann, vegna
starfs síns, kemur á gamla, ljóta
Skoda konu sinnar inná félags-
svæðin. í þessum tilvikum em
menn að skipta sér af hlutum,
sem koma þeim ekki við. Sama
gildir um samskipti félaga við
fijálsa leikmenn. Þeir eiga sig
og sitt sjálfir, hvað sem öllum
duttlungum sijómarmanna líður.
Fær ekki að „deyja“
„Hann vill fara heim til að
„deyja“, en fær það ekki og ætl-
ar að hætta frekar en að láta
„gistifélagið“ komast upp með
að fá einhveija þúsundkalla fyrir
sig,“ sagði 1. deildar leikmaður
um tæplega þrítugan félaga sinn
í 2. deild, sem hefur það eitt til
„saka“ unnið að hafa leikið í
nokkur ár með liði félags, en vili
ljúka ferlinum hjá félaginu, sem
hann lék með alla yngri flokkana
og gott betur. Fáránlegar reglur
koma í veg fyrir að þessi leikmað-
ur, sem á ekki landsleik að baki,
spili uppáhaldsíþrótt sína í vetur,
en hann ætlar þá að snúa sér
að körfubolta í staðinn og lái
honum það hver sem vill.
Annar leikmaður gerði nokk-
urra ára samning við félag sitt,
en ákvað síðan að skipta í annað
félag. Samningsbundna félagið
skrifar eðlilega ekki uppá félaga-
skiptin, því eins og málið lítur
út er um samningsbrot að ræða.
Það segir sig sjálft að standa ber
við samninga og náist ekki sam-
komulag um annað verður sá
brotlegi að taka út sína refsingu.
Þriðji maðurinn gerði samning
við félag, en að honum loknum
vildi félagið ekki gera annan á
sömu nótum og samdi við annan
mann þess í stað. Fyrrnefndi leik-
maðurinn, frír og frjáls, hugsaði
um að fara til síns heima, en
gerði síðan samning við annað
féiag og þá setti fyrra félagið
honum stólinn fyrir dyrnar með
þeirri afleiðingu að dómstóll þarf
að taka á málinu.
Leikmaður hugði á félaga-
skipti og sendi inn beiðni þar um,
óundirritaða af fyrra félagi. Hon-
um snerist hugur, en þar sem
ekki fékkst að draga umsóknina
til baka er dæmið orðið að kæru-
máli.
Tvær konur úr einu félagi,
önnur tveggja barna móðir á fer-
tugsaldri, fóru í annað, en vildu
síðan hjálpa til við að efla hið
þriðja. Miðfélagið skrifar ekki
undir félagaskiptin.
Útihött
Dæmin tala sínu máli. Reglur
um félagaskipti hjá HSÍ eru út
í hött. Menn, sem ekki hafa ver-
ið sviptir forræði, eiga sig sjálfir
og er fijálst að ganga í opin fé-
lög og segja sig úr þeim hafi
þeir ekki.gert samning um ann-
að. Hagsmunasamtök leikmanna
hafa viðrað þá hugmynd að skipa
verði gerðardóm til að leysa úr
þrætumálum, en löglærðir menn
benda á einfaldari lausn — samn-
inga. Að minnsta kosti þijú fé-
lög, Selfoss, Stjarnan og Haukar,
hafa gert samninga við leikmenn
sína, svo og Valur að einhveiju
leyti, og þar eru engin vanda-
mál, því um réttindi og skyldur
beggja aðila á samningstímanum
er samið. Hjá öðrum ráða geð-
þóttaákvarðanir formanna hvort
Pétur eða Páll fá að skipta í
annað félag og við slíkt verður
ekki lengur unað. Vilji leikmaður
ekki gera samning er það hans
mál og þá getur hvorki hann né
félagið gert neinar kröfur. Sama
hlýtur að eiga við, þegar samn-
ingur er útrunninn. Réttindi
manna verður að virða, en lausn-
arorðið er samningur.
OPNA
/ i
SPARISJOÐSMOTIÐ
I tilefni af 90 ára afmæli Sparisjóðs Hafnarfjarðar
verður haldið opið golfmót á Keilisvellinum á
Hvaleyri, laugardaginn 12. september.
Þetta er fyrsta opna golfmótið eftir
vígslu nýja golfskálans.
Keppnisfyrirkomulag:
18 holu höggleikur með og án forgjafar.
Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir
1. 2. og 3. sæti.
Aukaverðlaun verða veitt fyrir að vera næst holu
á 6, 9 og 16 og einnig á 18 í tveimur höggum.
Heppinn keppandi fær óvæntan glaðning í
mótslok verði hann á staðnum.
Ræst verður út frá kl. 8.00.
Skráning er í síma 53360.
$
SPARISJÓÐURINN
SPARISJÓÐUR HAFNARFJARÐAR
BORÐTENNISDEILD KR
Æfingar eru hafnar í KR-húsinu.
Þjálfari í vetur verður Svíinn Peter Nilsson.
Upplýsingar og innritun í síma 671054.
Stjórnin.
Innanhússarkitekt
ráðleggur
viðskiptavinum
jk Metró
Æm ^ Guðrún Benediktsdóttir
innanhússarkitekt, FHÍ,
T ■ ^ ráðleggur um val á KAM-
INNRÉTTINGAR *"nrétt*n9um •' versluninni
Metro fimmtudag og
föstudag kl. 14-18 og laugardag kl. 11-14.
í hinni glæsilegu KAM-línu eru eldhúsinnréttingar,
baðherbergisinnréttingar og fataskápar.
Verið velkomin í Metró og þiggið ókeypis ráðgjöf.
itnMETRÓ
___________í MJÓDD____________
ÁLFABAKKA 16 • REYKJAVÍK • SÍMI 670050
HELGARGOLFIÐ
TvömótGR
Sveitakeppni 3. deildar í golfi
getur ekki farið fram á ísafirði
vegna veðurs og hefur verið flutt á
golfvöll Kjalar í Mosfellsbæ. Keppn-
in fer þar fram á laugardag og
sunnudag.
Gullmót Egils verður hjá GR á
Grafarholtsvelli á iaugardag. Leik-
inn verður 18 holu höggleikur með
forgjöf og ræst út frá kl. 09, en
skráning er í síma 682215.
Fyrsta styrktarmótið vegna þátt-
töku GR í Evrópukeppninni verður
á Grafarholtsvelli á sunnudag frá
kl. 10. Leikinn verður höggleikur
með forgjöf og jafnframt veitt verð-
laun fyrir besta skor. Öllum er fijáls
þátttaka.
KNATTSPYRNA
Sigurbjörn bestur
I grein um leik íslenska U-18 ára iands-
liðsins gegn því belgiska i knattspyrnu í
fyrradag var haft eftir Helga Þorvaldssyni
að tveir menn hefðu verið bestir í íslenska
liðinu, en nafn besta mannsins féll niður.
Sigurbjörn Hreiðarsson úr Val breytti gangi
mála og var sá besti.
Stjarnan upp í A-deild
Lokastaðan í B-deild 2. flokks karla i
knattspymu var röng í blaðinu í gær. Rétt
var að KA varð langefst og fer upp í A-
deild en það er Stjaman úr Garðabæ sem
fylgir Akureyringunum, ekki Valur. Stjarn-
an og FH urðu jöfn i öðru sæti með 26
stig en Valur hlaut 24. Stjarnan var með
markatöluna 40:20 (20 mörk í plús) en FH
41:22 (19 í plús) þannig að Stjaman telst
ofar og flyst upp. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.