Morgunblaðið - 11.09.1992, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1992
43
ÓLYMPIUMÓT FATLAÐRA
Morgunblaðið/Tomas Konigsson
Kristín Rós Hákonardóttir hampar silfurverðlaunum sínum í gær, eftir
að hún varð önnur í flokki S8 í 200 m fjórsundi. Þetta eru önnur verðlaun
hennar á mótinu, áður hafði hún unnið til bronsverðlauna.
GETRAUNASPA MORGUNBLAÐSINS
vlka 1 X 2 Leikirnir þrettán á getraunaseðli helgarinnar eru sem fyrr úr sænsku og ensku deildinni. Tippað er á 144 raða opin
AIK - IFK Göteborg 1
Norrköping - Öster 1
Trelleborgs FF - Malmö FF X 2
Djurgárden - Halmstad 1 seðil, þar sem sjö leikir
Hácken - Örebro IFK Sundsvall - Brage Arsenal - Blackburn Chelsea - Notwich C'ity Everton - Manch. United 1 1 1 X X 2 2 2 eru fastir, fjórir tvítryggðir og tveir þrítryggðir. Seðill sem þessi kostar 1.440 krónur. Tíu leikjanna fara fram í dag, en þrír
Manch. City - Middlesbro Notth. Forest - Sheff. Wed. 1 1 X 2 á morgun - leikir númer þrjú, fjögur og
Sheff. United - Liverpool X 2 sex.
Southampton - Q.P.R. X 2
SiHurogbronsísafn.
íslendinganna í gær
Morgunblaðið/Tomas Konigsson
Lilja María Snorradóttir í 200 m fjórsundinu í gær, í flokki S9. Hún setti
íslandsmet, synti á 3:00,18 mín. og varð í fimmta sæti. Áður hafði unnið til
fernra verðlauna á mótinu.
VELGENGNI íslensku keppend-
anna á Ólympíumóti fatlaðra í
Barcelona hélt áfram í gær. Þá
unnu þeir ein silfur- og tvenn
bronsverðlaun. Því hefur ís-
lenski hópurinn hlotið 2 gull, 2
silfur og 11 brons til þessa á.
mótinu.
að var Kristín Rós Hákonardótt-
ir, sem er spastísk vinstra
megin og keppir í flokki S8, sem
fékk silfurverðlaun í gær. Hún
keppti í 200 m fjórsundi. Hún byrj-
aði á því að setja íslandsmet í riðla-
keppninni með því að synda á
3:27,77 mín. og var það Ólympíu-
mótsmet, sem var svo reyndar sleg-
ið í öðrum riðli síðar um morguninn.
Hún bætt sig svo enn — um hvorki
meira né minna en rúmlega fjórar
sekúndur — í úrslitasundinu í gær-
kvöldi, synti þá á 3:23,67 sem er
auðvitað einnig íslandsmet. „Ég er
mjög ánægð með að hafa sett tvö
íslandsmet. Ég var búin að æfa
mjög vel,“ sagði hún við Morgun-
blaðið. Sigurvegarinn var frá Þýska-
landi, synti á 3,11 mín. Kristín sagð-
ist aldrei hafa keppt gegn þeirri
stúlku, enda var Kristín hækkuð um
flokk fyrir keppnina, sem hún sagði
reyndar hefði ekki komið sér á óvart.
Hún var því að etja kappi við erfið-
ari andstæðinga en hún er vön. Silf-
urpeningurinn sem Kristín Rós fékk
í gær eru önnur verðlaun hennar á
mótinu, áður hafði hún fengið bron-
spening.
Ólafur Eiríksson hélt áfram að
sanka að sér góðmálmum í gær.
Hann hafði nælt sér í tvo gullpen-
inga og einn úr bronsi sem kunnugt
er, og í gær varð hann þriðji í 200
m fjórsundi og fékk því annan brons-
pening. í undanriðlinum synti hann
á 2:37,47 mín. sem einnig var
Ólympíumótsmet, en það var svo
slegið í öðrum riðli síðar. í úrslita-
sundinu í gærkvöldi bætti Ólafur sig
svo mikið, rétt eins og Kristín Rós
— synti á 2:34,82 mín. Þess má
geta að þrír fyrstu menn í úrslita-
sundinu syntu allir undir Ólympíu-
mótsmeti, sem sett hafði verið um
morguninn.
„Ég er rosalega ánægður. Þetta
er búið að vera meiriháttar gaman,
en erfítt. Ég vissi að ég ætti góða
möguleika í greinunum tveimur þar
sem ég fékk gull, en það er óvænt
að hafa líka fengið tvisvar silfúr.
Ég átti alls ekki von á þessu, en ég
hef verið að bæta mig núna og er
í toppformi. Það er greinilegt að ég
„toppa“ alveg á réttum tíma,“ sagði
Ólafur.
Þriðji íslenski verðlaunahafinn í
gær var Haukur Gunnarsson sem
varð þriðji í 200m m hlaupi og fékk
bronverðlaun. Haukur hljóp á 27,03
sekúndum. Þá varð Lilja María
Snorradóttir í fimmta sæti í flokki
S9 í 200 m fjórsundi, synti á 3:00,18
mín., sem er nýtt íslandsmet. Og
Halldór Guðbergsson, sem keppir í
flokki B3, keppti í úrslitum í 400 m
fjórsundi og varð í sjötta sæti. Synti
á 5:51,94 mín. Það er einnig Islands-
met.
Islensku borðtennismennirnir
iuku keppni í gær í fötlunarflokkum
sínum, en síðar keppa þeir í opnum
flokki. Jón Heiðar Jónsson, C5, tap-
aði leikjum sínum og Elvar Thorar-
ensen, C6, öllum nema einum, gegn
Spánveija.
Utúm
FOLX
■ ALLAR líkur eru taldar á að í
dag verði gengið frá sölu argentínska
knattspyrnusnillingsins Diego
Maradona frá Napolí á Ítalíu til
spænska félagsins Sevilla. Hann vill
ekki snúa aftur til ítalska félagsins
eftir að hafa tekið út bann vegna
eiturlyfjaneyslu.
■ FREGNIR herma að Sevilla
greiði Maradona um þijár milljónir
dollara í laun fyrsta árið [tæplega
160 milljónir ÍSK] en kaupverðið séu
um 15 milljónir dollara — um 795
milljónir ÍSK!
■ DEAN Saunders, framheiji hjá
enska félaginu Liverpool, var í gær
seldur til Aston Villa fyrir 2,3 millj-
ónir punda [um 240 milljónir ÍSK].
Liverpool keypti hann frá Derby
fyrir aðeins rúmu ári á 2,9 milljónir
punda.
foém
FOLK
1 H JIM Courier sigraði landa sinn
Andre Agassi í átta manna úrslitum
, á opna bandaríska meistaramótinu í
' tennis í gær, 6:3, 6:7 (6:8), 6:1, 6:4.
■ IVAN Lendl er einnig kominn í
undanúrslit í einliðaleik karla. Hann
I vann Boris Becker í miklum mara-
þonleik í fyrradag. Leikurinn stóð í
fimm klukkstundir og eina mínútu
(6:7, 6:2, 6:7, 6:3 og 6:4).
■ „ÉG átti í smá erfiðleikum í byij-
un en í fjórða setti náði ég mér vel
á strik," sagði Lendl, sem er 32 ára
en hann hefur ekki unnið mót í 12
mánuði.
H „TVEIR jafnir spilarar börðust
um sigurinn í fimm klukkutíma og
annar varð að tapa og í dag kom það
í minn hlut. Stundum er heppnin
ekki með manni, en það verður að
taka því og ég ber höfuðið hátt þrátt
fyrir tapið,“ sagði Becker, sem verð-
ur að enda keppnistímabilið án þess
að komast í fjórðungsúrslit á einu
' einasta stórmóti.
■ STEFFI Graf og Gabriela Sa-
batini eru báðar úr leik í einliðaleik.
I Sabatini tapaði fyrir Mary Joe
Fernandez frá Bandaríkjunum og
Graf tapaði fyrir Arantxu Sanchez
I Vicario frá Spáni, 7:6 og 6:3.
Monica Seles, sem sigraði á mótinu
í fyrra, sigraði Patriciu Hy frá
Kanada örugglega, 6:1 og 6:2 og
stóð leikurimi yfir í aðeins 55 mín.
KORFUKNATTLEIKUR / EM
Gott hjá IBK
þrátt fyrir tap
ÍSLANDSMEISTARAR Keflvík-
inga töpuðu fyrir þýsku meist-
urunum í Bayer Leverkusen með
þrjátíu stiga mun, 130:100, ífyrri
leik liðanna ífyrstu umferð Evr-
ópukeppni meistaratiða í körfu-
knattleik ytra í gærkvöldi. Báðir
leikirnir fara fram í Þýskalandi,
sá síðari annað kvöld og telst
það heimaleikur Þjóðverjanna.
Jón Kr. Gíslason, þjálfari og leik-
maður ÍBK, var ekki óánægður
þrátt fyrir tapið. „Þeir eru gríðarlega
stórir — leika á allt annarri hæð en
við. Sá stærsti er 2,24 metrar. Þetta
er talið eitt af átta sterkustu liðum
Evrópu í dag, en ég efast um að við
getum talist til eins þeirra hundrað
bestu. Það er því ekki raúnhæft að
við getum unnið þessa karla, þó við
reynum að gera okkar besta,“ sagði
Jón Kr. við Morgunblaðið. Þess má
geta að tveir Bandaríkjamenn leika
með liði Leverkusen — annar er mið-
heiji en hinn bakvörður, sem leikið
hefur í bandarísku NBA-deildinni.
Það er vitaskuld frábær árangur
hjá Keflvíkingum að gera 100 stig
"gegir svo-sterku'liði, enda'vakti það
athygli að íslendingarnir skoruðu úr
alls 16 þriggja stiga skotum! Það
gera 48 stig. Þeir reyndu 36 slík
skot, þannig að nýtingin er um 45%
sem er geysilega gott hlutfall.
Jón sagði íslandsmeistarana hafa
skotið svona mikið utan af velli vegna
þess hve stórir andstæðingarnir voru.
„Við reyndum að fara inn í, en svo
þróaðist þetta þannig hjá okkur að
við fórum að skjóta mikið fyrir utan,
enda voru menn heitir. Og áhorfend-
ur klöppuðu okkur lof í lófa.
Keflvíkingarnir byijuðu mjög vel
og þegar þrettán mín. voru liðnar
var staðan 34:30 fyrir Þjóðveijana.
Síðan kom slæmur kafli ÍBK og
heimamenn verðu 20 stig í röð. Stað-
an í leikhléi var 63:46. Þegar fáeinar
mín. voru eftir af leiknum var munur-
inn svo 20 stig en heimamenn tóku
góðan endasprett og juku forskotið
upp í 30 stig.
Stig ÍBK gerðu eftirtaldir; í sviga er fjöldi
3ja stiga skota sem þeir skoruðu ún Jonathan
Bow 31 (3), Guðjón Skúlason 24 (6), Kristinn
Friðriksson 18 (4), Hjörtur Hjarðarson 10 (2)
Jón Kr. Gíslason 9 (1), Albert Óskarsson 4,
Einar Einarsson 2, Nökkvi Már Jónsson 2.
Þess má geta að Nökkvi hefur verið veikur,
og lók aðeihs í 15 minútur.'
Hagyrðingar
- háðfuglar
Sjónvarpið óskar eftir leikþáttum og gamanvísum
í áramótaskaup 1992, þar sem skopast er að
málefnum sem vakið hafa athygli þjóðarinnar á
yfirstandandi ári.
Hámarkslengd er 4 vélritaðar síður.
Höfundar þurfa að senda með hugmyndum sínum
fullt nafn, kennitölu og heimilisfang ásamt síma-
númeri. Farið verður með nöfn og aðrar upplýs-
ingar sem trúnaðarmál.
Greitt verður fast gjald pr. mínútu fyrir það efni,
sem birtist í áramótaskaupinu.
Nánari upplýsingar veittar í innlendri dagskrár-
deild Sjónvarpsins, Laugavegi 176, 105 Reykja-
vík, sem einnig veitir hugmyndum viðtöku.
SJÓNVARPIÐ