Morgunblaðið - 18.09.1992, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1992
5
Þú tekur þá úr frystinum
klýfur þá -
ristar í brauðristinni, eða
hitar á pönnu eða í ofni.
Smyrð þá með smjöri,
eða setur uppáhalds
i áleggið þitt ofaná.
1 Verði þér að góðu
Borgarráð
Tveir leikskólar fyr-
ir 91 milljón króna
BORGARRÁÐ hefur samþykkt, að tillögu stjórnar Innkaupa-
stofnunar Reykjavíkurborgar, að taka rúmlega 91 milljón króna
tilboði næstlægstbjóðanda, Sveinbjörns Sigurðssonar hf., í byggingu
leikskóla við Starhaga og við Funafold. Tilboð Sveinbjörns byggist
á tilboði hans í byggingu leikskóla við Fífurima frá því 18. febr-
úar siðastliðinn.
í erindi byggingardeildar
borgarverkfræðings til Innkaupa-
stófnunar kemur fram að leikskól-
ana tvo eigi að byggja samkvæmt
stöðluðum teikningum arkitekt-
anna Finns Björgvinssonar og
Hilmars Þórs Björnssonar. Bygg-
ing leikskóla við Fífurima hafi ver-
ið boðin út í febrúar 1992 og var
þá tekið tilboði lægstbjóðanda,
Ártaki hf., í tvo leikskóla. Ártak
hf. hefur lokið við um 50% af bygg-
ingu skólans við Fífurima en þar
sem dregist hefur að ákveða stað-
setningu á nýjum skóla telur full-
trúi fyrirtækisins að forsendur
hafi breyst varðandi tilboðið og
vill falla frá byggingu seinni skól-
ans. Því er lagt til að tekið verði
tilboði næstlægstbjóðanda, Svein-
björns Sigurðssonar hf., um bygg-
ingu tveggja leikskóla, að upphæð
91.130.198 krónur.
Stjórn Innkaupastofnunar sam-
þykkti að taka tilboði Sveinbjörns
með fjórum atkvæðum gegn einu.
Sigurjón Pétursson, Alþýðubanda-
lagi, greiddi atkvæði á móti og
bókaði að hann teldi að bjóða ætti
verkið út að nýju. Um 100 milljón
króna verk væri að ræða sem vinna
ætti yfir vetrarmánuðina en tilboð-
ið sem verið væri að taka hafi
verið gert fyrir meira en hálfu ári.
Borgarráð samþykkt tillögu Inn-
kaupastofnunar en Ólína Þorvarð-
ardóttir, Nýjum vettvangi, vísaði
til bókunar Sigurjóns Péturssonar.
Skólahljóm-
sveitin kynnir
hljóðfæri
Skólahljómsveit Kópavogs, sem
er 25 ára á þessu ári, hóf vetr-
arstarfið að þessu sinni með
hljóðfærakynningu í öllum 9
ára og 10 ára bekkjum grunn-
skóla Kópavogs. Að sögn Þór-
unnar Björnsdóttur tónlistar-
kennara í Kársnesskóla er þetta
í fyrsta sinn sem kynningin fer
fram með þessum hætti og þótti
hún takast mjög vel.
Morgunblaðið/Kristinn
Gjaldi á flug-
vélabensín
verði breytt
Ríkisstjórninni er ráðlagt að
breyta lögum um sérstakt gjald
á flugvélaeldsneyti af nefnd,
sem ríkisstjórnin skipaði til að
fjalla um kröfur átta banda-
rískra flugfélaga um að fá þetta
gjald endurgreitt.
í lögum sem Alþingi setti árið
1987 er kveðið var á um að þeir
sem selji eldsneyti á íslenskum
flugvöllum skuli innheimta sér-
stakt gjald, 1,30 krónur á hvern
lítra af bensíni og 65 aura á hvern
lítra af þotueldsneyti. Undanþágu
frá þessu njóti þó aðilar sem stundi
áætlunarflug milli íslands og Nórð-
ur-Ameríku. Nú hafa átta bandá-
rísk flugfélög gert kröfu á hendur
Flugmálastjórnar um að fá þetta
gjaid endurgreitt á grundvelli
samnings frá 1967 milli íslands
og Bandaríkjanna um að felld séu
niður gjöld og skattar af bensíni
þegar í hlut eiga flugvélar sem
skráðar eru í öðru hvoru ríkjanna
og eru í millilandaflugi. Gjaldið var
hins vegar innheimt af bandarísku
flugfélögunum samkvæmt lögun-
um frá 1987 á þeim forsendum
að þau stunduðu ekki áætlunarflug
til Islands.
Nefnd fulltrúa samgönguráðu-
neytis, fjármálaráðuneytis og ut-
anríkisráðuneytis hefur nú skilað
áliti til ríkisstjórnarinnar, og sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins er þar lagt til að stjórnin beiti
sér fyrir breytingu á lögunum frá
1987 þannig að tekið verði fram
að undanþáguákvæðið gildi einnig
samkvæmt milliríkjasamningum.
Ekki mun vera tekin afstaða til
þess hvort endurgreiða eigi flugfé-
lögunum gjaldið en heildarupphæð
þeirrar endurgreiðslu er talin vera
20-30 milljónir króna. Ríkisstjómin
hefur ekki enn fjallað um niður-
stöðu nefndarinnar.