Morgunblaðið - 18.09.1992, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1992
Grillið á Sögn 30 ára
VEITINGASTAÐURINN Grillið á
Hótel Sögru á 30 ára afmæli á þessu
Keflavíkurflugvöllur
Neyðarsend-
ir fór í gang
ÞYRLUR frá Landhelgisgæslu og
varnarliðinu voru kvaddar út
vegna neyðarmerkja sem bárust
frá Keflavíkurflugvelli í gær.
Landhelgisgæslunni barst tilkynn-
ing um neyðarmerkin frá eftirlits-
stöð í Bodö í Noregi um kl. 15.
Neyðarmerkin voru á bylgju sem
vamarliðið notar og beindist leitin
því að Keflavíkurflugvelli. Vamarlið-
inu var gert viðvart og fór þyrla
þess á ioft til að miða út neyðarmerk-
ið. Eftir árangurslausa leit var þyrl-
unni snúið aftur. Landhelgisgæslan
sendi þá sína þyrlu á loft og fann
hún fljótlega að neyðarmerkin bárust
frá viðgerðarverkstæði á Keflavíkur-
flugvelli. Neyðarsendir í björgunar-
vesti flugmanns hafði farið í gang.
ári. Af því tilefni hefur verið bú-
inn til sérstakur afmælismatseðill,
þar sem eru rifjaðir upp vinsæl-
ustu réttir veitingahússins í gegn-
um tíðina.
í frétt frá Hótel Sögu segir m.a.:
„Nýbreytni þessi hefur fengið mjög
góðar móttökur. Fjölmargir hafa
haft samband við Grillið og spurst
fyrir um hvaða réttir séu á matseðlin-
um og segir framreiðslufólk hótelsins
að ekki sé ólíklegt að margir gest-
anna komi til að rifja upp liðnar
ánægjustundir, sem þeir áttu í Grill-
inu fyrir mörgum ámm, e.t.v. til að
halda upp á trúlofunar- eða gifting-
arafmælið, eða einhvem annan sér-
stakan atburð og velja sama réttinn
og þeir fengu þá.“
Ártöl em við réttina á matseðlin-
um, sem gefa til kynna hvenær þeir
vora sem vinsælastir, ásamt dæmum
um atburði, sem gerðust á því ári.
Gestum Griilsins er boðið upp á
fordrykk „Saga Special" auk þess
sem allir sem eiga 30 ára afmæli á
árinu fá sérstakan glaðning.
Sýning Sigríðar
Asgeirsdóttur
Síðasta sýn-
ingarhelgi
Sýningu Sigríðar Ásgeirsdóttur
í Listmunahúsinu í Hafnarhúsinu
við Tryggvagötu í Reykjavík, sem
staðið hefur yfír frá 5. september,
lýkur sunnudaginn 20. september
kl. 18. Á sýningunni em 16 verk
unnin í gler.
Sigríður stundaði nám við Edin-
burgh College of Art 1979-1984
og í Þýskalandi 1984. Þetta er sjö-
unda einkasýning hennar og em
verk eftir hana m.a. í Sgarisjóði
Reykjavíkur og nágrennis, íslands-
banka við Lækjargötu í Reykjavík,
Heilsugæslustöðinni á Seltjamar-
nesi, Bamaskólanum á Húsavík og
víðar.
Listmunahúsið er opið virka daga
kl. 13-18 og kl. 14—18 um helgar.
Unnið að uppsetningu sýningarinnar á Kjarvalsstöðum í gær.
Kjarvalsstaðir
Morgunblaðið/RAX
Sex listamenn með sýningu
f DAG verður opnuð á Kjarvalsstöðum sýning á verkum eftir sex
íslenska myndlistamenn af yngri kynslóðinni sem öll hafa valið
sér fígúruna að myndefni. Þau eru Brynhildur Þorgeirsdóttir,
Helgi Þorgils Friðjónsson, Kjartan Ólason, Hulda Hákon, Jón Ósk-
ar og Svala Sigurleifsdóttir.
Sýningin ber yfírskriftina Fíg-
úra, fígúra og var unnin í sam-
vinnu Kjarvalsstaða við Listasafn-
ið í Gautaborg og Fruitmarket-
sýningarsalarins í Edinborg. Sýn-
ingin var opnuð í Gautaborg í vor
og snemmsumars sett upp í Skot-
landi og kemur þaðan á Kjarvals-
staði.
Gunnar B. Kvaran forstöðu-
maður Listasafna Reykjavíkur
sem hafði umsjón með vali verk-
anna á þessa sýningu sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að sýningin
gæfí góða og fjölbreytta mynd af
fígúratívri myndlist þessarar kyn-
slóðar á 9. áratugnum. „Þetta eru
ólíkir listamenn sem vinna í ólík
efni og með ólíkum aðferðum en
viðfangsefnið sameinar þau; mað-
urinn og mannleg tilvist. Þessi
sýning undirstrikar að við getum
ekki talað um íslenskan skóla í
fígúratívri myndlist. Þessir mynd-
listamenn eru menntaðir á ólíkum
stöðum í Evrópu og Bandaríkjun-
um og flytja með sér alþjóðlega
tilfínningu ásamt persónulegri sýn
í myndmáli sínu.“
í kynningarefni með sýningunni
segir að „þetta séu oftast yfírveg-
uð listaverk, þar skýrleikinn situr
í fyrirrúmi, með afmarkað mynd-
efni og formræna úrvinnslu, án
þess að vera bundin í tíma eða
rúmi. Oft vísa þau handan við
hversdagsleikann — í hetjur og
guði — þau em drifin áfram af
andlegri reynslu eða þau eru tilvís-
anir í eigið líf samofið ímyndun
og yfirnáttúrulegum eiginleikum
einstaklingsins. Þetta eru oftast
algild verk með afgerandi skoðan-
ir, full ábyrgðar — þau em oftast
stór í sniðum og því fremur til
almennings- en einkanota. Sam-
tímis sem þau boða nýja sýn eru
þau meðvitaður hluti af listasög-
unni og samevrópskri menningar-
hefð.
Sýningin stendur til 25. október
og er opin daglega frá kl. 10-18.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Sögunefnd ásamt höfundi sögu Keflavíkur við útkomu bókarinnar. Frá vinstri eru Bjarni Guðmannsson
höfundur bókarinnar, Gunnar Sveinsson formaður sögunefndar, Björn Stefánsson, Jón Sæmundsson,
Vilhjálmur Þórhallsson og Guðleifur Sigurjónsson.
Saffa Keflavíkur efefin út
Keflavík. O
FYRSTA bindið af fleiri vænt-
anlegum í sögu Keflavíkur er
komið út og var bókin kynnt
við hátíðlega athöfn í Risinu við
þetta tækifæri. Höfundur er
Bjarni Guðmannsson en hann
Sýning á verkum Leifs og Jóns
Reykdals stendur nú yfír í sýhing-
arsal Listhússins í Laugardal og
er fyrirlestur Leifs einstakt tæki-
færi til að kynnast list hans nán-
ar. Aðgangur er ókeypis og er
öllum opinn.
Á laugardag kl. 16-17 verður
flamenco-danssýning. Þar mun
hefur unnið_ við gerð verksins
síðan 1989. í þessu fyrsta bindi
er sagan rakin frá árinu 1766
til 1890 og er þráðurinn rakinn
frá því að einokunarkaupmað-
urinn Holger Jacobæus settist
Cecilia Romero, aívinnudansari
frá Spáni, sýna undir gítarleik
Símonar ívarssonar. Allir em vel-
komnir og aðgangur er ókeypis.
Rými er nýstofnaður listaskóli
og gallerí til húsa í Listhúsihu í
Laugardal, Engjateigi 17-19 í
Reykjavík.
(Fréttatilkynning)
að í Keflavík, en er fyrsti íbúinn
sem ekki ætlaði sér að lifa af
búskap og sjósókn og telst því
fyrsti þorpsbúinn.
í bókinni er byggðaþróunin ítar-
lega rakin, greint frá þróun at-
vinnuvega og fólksijölda, upphafí
félagsstarfa, heilsugæslu og ýmsu
fleiru. í umsögn höfundar segir
að saga Keflavíkur sé ekki síst
saga fólksins í þorpinu, saga ein-
staklinganna sem byggðu bæinn
í leik og starfí, gleði og sorg. Þann-
ig koma við sögu stórkaupmenn
og búðarlokur, árabátaformenn og
hásetar, veitingamenn, bindindis-
frömuðir og fylliraftar, læknar og
ljósmæður, sýslumenn, þjófar, fá-
tæklingar, lausaleikskróar og
margir fleiri.
Bókin er liðlega 300 blaðsíður
og ríkulega myndskreytt. Bókin,
sem gefín er út af Keflavíkurbæ,
er fáanleg í bókabúðum um allt
land. BB
Fyrirlestur og danssýning
í Listhúsinu í Laugardal
LEIFUR Breiðfjörð gleriistamaður heldur fyrirlestur og skyggnu-
sýningu um list slna í Rými, galleríi, á morgun, laugardaginn 19.
september, kl. 17.30.
Thor tekur við verðlaunum
sænsku akademíunnar
Thor Vilhjálmsson rithöfundur tekur við hinum norrænu bók-
menntaverðlaunum sænsku akademíunnar af Torgny Segerstedt
í Stokkhólmi í gær. Thor er fyrsti íslendingurinn sem hlýtur þessi
verðlaun akademíunnar, en þau hafa verið veitt árlega frá 1986.
Akademían hélt Thor heiðurssamsæti í gærkvöldi, en í kvöld held-
ur Sigríður Snævarr, sendiherra í Stokkhólmi, boð til heiðurs rithöf-
undinum í tilefni verðlaunaafhendingarinnar.