Morgunblaðið - 18.09.1992, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1992
Vöruhöfnin á Akureyri
Hús og lóðir keypt
fyrir 64 milljónir
til að bæta aðstöðu
HAFNARSJÓÐUR hefur á síðustu árum keypt hús og lóðir fyrir
64 miiyónir króna til að bæta aðstöðu og skilyrði vöruhafnarinnar
á landi. Um er að ræða eignarlóðir og fasteignir á Oddeyrart-
anga, austan Laufásgötu og sunnan Gránufélagsgötu. Á þessu svæði
eru nokkrar eignir til viðbótar sem æskilegt þykir að einnig verði
keyptar á næstu árum.
Guðmundur Sigurbjömsson,
hafnarstjóri á Akureyri, sagði að
uppbygging vöruhafnar hefði
staðið í nokkur ár og að mikilvægt
væri að slík höfn hefði yfir að
ráða góðu upplandi ofan bryggj-
unnar. Áður hefðu skip jafnvel
legið dögum saman við bryggju á
meðan verið væri að losa úr þeim,
en nú skipti mestu að hafa sem
skemmsta viðdvöl og væru ferðir
Sundlaug
endurbyggð
fyrir rúmar
100 millj.
ÁHERSLA verður lögð á end-
urbyggingu og framkvæmdir
við Sundlaug Akureyrar á
næstu þremur árum og
áformað að Ijúka þar ákveðn-
um áföngum á hveiju ári. Á
þessu tímabili verður 105
milljónum króna varið til
framkvæmda við sundlaug-
ina.
Bróðurparturinn af því fé sem
áætlað er til íþrótta- og æsku-
lýðsmála samkvæmt þriggja ára
áætlun um rekstur og fram-
kvæmdir á vegum bæjarins fer
til endurbóta á Sundlaug Akur-
eyrar eða 105 milljónir af 115
milljóna króna framlagi. Á
næsta ári er áformað að nota
25 milljónir króna til fram-
kvæmda við sundlaugina og síð-
an 40 milljónir tvö næstu ár á
eftir.
Á árinu 1994 er áætlað að
verja 10 milljónum króna til
framkvæmda í Hlíðarfjalli, en
áformað er að byggja nýtt hús
í stað núverandi húss við Strýtu.
Aðrar framkvæmdir í Hlíðar-
Qalli munu bíða þar til lokið
verður við endurbyggingu sund-
laugarinnar.
þeirra miðaðar við sem stystan
viðkomutíma í hverri höfn. Eftir
að gámar komu til sögunnar væri
nauðsynlegt að hafa mikið og gott
land við hafnimar, enda væru
gámamir fyrirferðarmiklir.
Hafnarsjóður hefur nú yfir að
ráða stóm svæði á Oddeyrartanga
sem sjóðurinn hefur verið að
kaupa á síðustu ámm til að bæta
aðstöðu vöruhafnar og hefur sam-
tals verið varið 64 milljónum króna
til kaupanna. Þama væri um að
ræða uppland fyrir Oddeyrar-
bryggju og Tangabryggju. Enn
væm á svæðinu starfsemi fóður-
vörudeildar KEA, varaaflstöð raf-
veitunnar auk tveggja lítilla húsa
og sagði Guðmundur að höfnin
þyrfti að komast yfir þessar eignir
á næstu ámm. Þá sagði hann að
ýmis starfsemi í námunda við
umrætt svæði væri alls óskyld
hafnarstarfsemi og æskilegt að
breytingar yrðu þar á.
Línan stokkuð upp
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Þeir voru að ræða málin trillukarlamir Grétar Olafsson og Kristján Hannesson í skúrnum hans Kristjáns
í Sandgerðisbótinni á Akureyri í gær á meðan hann stokkaði upp línuna. Að sjálfsögðu bar fiskleysið á
góma og aðgerðir ríkisstjómarinnar líka, en þeir félagar vom sammála um að trillukarlar hefðu ekki bol-
magn til að kaupa úr kvóta hagræðingarsjóðs, þar sem kílóið af þorski vær selt á 38 krónur, en þeir fengju
ekki nema um 70 krónur fyrir aflann kominn að landi.
Framkvæmdir á næstu þremur árum
Bærinn leggnr fram 132 milljónir til
framkvæmda vegna menningarmála
Tæplega 200 milljónir í framkvæmdir á sviði félagsmála
Á NÆSTU þremur árum er áformað að nota 805 milljónir króna un árið 1994. Þá er gert ráð fyrir
til framkvæmda af ýmsu tagi á vegum Akureyrarbæjar, sem
skiptast þannig að 265 milljónir verða til ráðstöfunar á næsta
ári, 275 á þar næsta og á árinu 1995 verður 265 milljónum
króna varið til framkvæmda. Þetta kemur fram í þriggja ára
áætlun um rekstur, fjármál og framkvæmdir á vegum Akur-
eyrarbæjar fyrir árin 1993 til 1995.
Til framkvæmda á sviði félags-
mála verður samtals varið 189
milljónum króna, en gert er ráð
fyrir að byggður verði einn nýr
leikskóli jafnframt því sem stefnt
er að því að taka á leigu húsnæði
fyrir annann. Til öldrunarmála eru
áætlaðar 149 milljónir, þar af fara
80 milljónir króna í sambýli við
Lindarsíðu sem tekið verður í notk-
Kaupfélag Eyfirðinga
Versnandi afkoma í kjölfar al-
menns samdráttar í þjóðfélaginu
44 milljóna tap á fyrstu sex mánuðum þessa árs
TAP upp á 44 milljónir króna varð af reglulegri starfsemi Kaupfé-
lags Eyfirðinga á fyrri helmingi þessa árs, en á sama tíma á síð-
asta ári vár hagnaður af rekstrinum 12 milljónir króna. Þetta
kemur fram í uppgjöri félagsins fyrir fyrstu sex mánuði ársins og
birt er í KEA-fréttum.
Að teknu tilliti til óvenjulegra
tekna og gjalda, þar á meðal
greiðslu á inneign í Verðmiðlunar-
sjóði sjávarútvegsins, varð hagnað-
ur af rekstrinum á tímabilinu 7
milljónir króna samanborið við
tveggja milljóna króna hagnað á
sama tímabili í fyrra.
Fram kemur í blaðinu, að lakari
afkoma í reglulegri starfsemi sé
aðallega á sviði iðnaðar- og þjón-
ustufyrirtækja og í fískvinnslu.
Ástæður versnandi afkomu iðnað-
ar- og þjónustufyrirtækja megi
fyrst og fremst rekja til almenns
samdráttar í þjóðfélaginu, en verri
afkoma fiskvinnslu bæði vegna
þess að innlagður afli hefur dreg-
ist saman og afurðaverð á erlend-
um mörkuðum hefur lækkað. Þá
hefur ekki tekist að draga saman
kostnað í sama takti og tekjur
hafa rýmað. .
Unnið hefur verið að því að
draga úr kostnaði hjá félaginu og
verður unnið að því áfram. Á með-
an áframhaldandi samdráttar gæt-
ir í þjóðfélaginu verður áfram
gætt mikils aðhalds varðandi út-
gjöld og fjárfestingar.
Heildartekjur Kaupfélags Ey-
firðinga á fyrri helmingi ársins
námu röskum 4 milljörðum, en þær
lækkuðu um 158 milljónir frá fyrra
ári. Tekjulækkunin er einkum til
komin vegna lægra verðs á olíuvör-
um sem félagið selur og eins vegna
samdráttar í fiskafla og mjólkur-
framleiðslu. Rekstrargjöldin voru
3.960 milljónir króna og lækkuðu
um 73 milljónir frá því sem var á
síðasta ári. Fjármagnsgjöld um-
fram fjármagnstekjur voru 137
milljónir króna og lækkuðu um 30
milljónir frá fyrra ári.
að sambýli fyrir aldraða við Skóla-
stíg verði tekið í notkun á næsta
ári og annað nýtt sambýli tveimur
árum síðar. Þá mun bærinn kosta
byggingu þjónustukjarna fyrir
aldraða í kjallara Sjálfsbjargar-
hússins við Bugðusíðu.
Til menningarmála er áformað
að verja 132 milljónum króna á
tímabilinu og skiptist féð þannig
að til listamiðstöðvar í Grófargili
fara 40 milljónir króna og til Amts-
bókasafns 92 milljónir. Á næsta
ári er gert ráð fyrir að myndlistar-
salur verði tekin í notkun í Gróf-
argili og þá er ráðgert að fram-
kvæmdir við Amtsbókasafn hefjist
árið 1994 og á því ári verði 40
milljónum króna varið til verksins
og 50 milljónum ári síðar. Verður
lögð sérstök áhersla á þátt ríkisins
í þessum framkvæmdum, en við-
ræður hafa farið fram við fulltrúa
ríkisvaldsins vegna þessara verk-
efna og verður leitast við að ná
samkomulagi við þá um hlutdeild
ríkisins.
Nokkrar breytingar eru fyrir-
hugaðar varðandi flutning á starf-
semi bæjarins. Sigríður Stefáns-
dóttir forseti bæjarstjórnar sagði á
fundi bæjarstjómar í vikunni að
mikið óhagræði væri af því hversu
dreifðar stofnanir bæjarins væru
og það hefði í för með sér aukinn
kostnað. „Þetta em ekki alltaf vin-
sælustu verkefnin, en umræða um
að þjappa starfseminni meira sam-
an hefur staðið í áratugi og ég
vona að þetta verði heilladijúgt
spor,“ sagði Sigríður.
Gert er ráð fyrir að til húseigna
bæjarins verði varið 101 milljón
króna á næstu þremur ámm, en
þar er annars vegar um að ræða
framkvæmdir við framtíðarhús-
næði Slökkviliðs Akureyrar og
Strætisvagna Akureyrar við Árstíg
og eins á að gera endurbætur á
húsinu númer 88b við Hafnar-
stræti og stefnt að flutningi fé-
lags- og fræðslusviðs í það hús.
Þá er áformað að selja húsið
Strandgötu 19b þar sem starfsemi
skóla- og menningarmál og
íþrótta- og æskulýðsmála hefur
verið.
Kynning-
arfund-
urlTC
Nýtt starfsár er að hefjast
hjá ITC, International Tra-
ining in Communication,
eða þjálfun í mannlegum
samskiptum.
Ein ITC-deild er starfandi á
Akureyri og verður hún ásamt
Landssamtökum ITC með
kynningarfund á Hótel KEA
kl. 15.00 á morgun, laugar-
daginn 19. september. Á fund-
inum gefst fólki kostur á að
kynna sér hvernig ITC starfar,
en samtökin eru opin öllum
sem náð hafa fullorðinsaldri.
Fundir ITC-deildanna um
land allt eru haldnir tvisvar í
mánuði frá byijun september
til maíloka. Á fundum deild-
anna fer fram almenn fræðsla,
markviss þjálfun í framkomu
og samskiptum fólks.
(Fréttatilkynning)