Morgunblaðið - 18.09.1992, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1992
fólk f
fréttum
GOLF
Fyrsta mót
Glámu
Golfklúbburinn Gláma á Þingeyri
hélt nýverið sitt fyrsta félags-
mót og var það haldið í Meðaldal í
Dýrafirði.
í Meðaldal hefur klúbburinn
fengið til afnota allstórt landsvæði
og komið sér upp 6 holu golfvelli
en á þessu móti voru spilaðar 18
holur án forgjafar, eða 3 hringir.
Verðlaunapeningar voru gefnir
af Sparisjóði Þingeyrarhrepps en
að auki voru veitt sérstök unglinga-
verðlaun.
Mótið gekk vel og í fyrsta sæti
varð Halldór Tryggvason með 80
högg, í öðru sæti Sigurður F.
Hreinsson með 86 högg og í því
þriðja Sigurður Blöndal frá Núpi
Morgunblaðið/Helga Halldórsdóttir
Keppendur í fyrsta félagsmóti golfklúbbsins Glámu á Þingeyri, sem
haldið var í Meðaldal í Dýrafirði
með 110 högg. í unglingaflokki
sigraði Hreiðar Línason.
Athygli vöktu sérstök aukaverð-
laun sem veita átti þeim sem fyrst-
ur færi holu í höggi. Verðlaunin
voru Volvo 780 árg. 1992 ,en þar
yrir skömmu.
sem enginn fór holu í höggi í þetta
sinn gekk hann ekki út. Reyndar
var hann ekki ökufær, enda gerður
úr kristal og myndi vart endast
lengi á hinum vestfirsku vegum.
- Helga
ÞEGAR STEINOLD
HITTIR ROKKÖLD
FORSÝNING
á geggjaðri grínmynd
Kaliforníu-maðurinn
„California Man“ - ein af toppmyndunum í Evrópu.
„California Man“ - geggjuð grínmynd sem kemur öllum
í gott skap.
ALFABAKKA 8 - SIMI 78 900
Forsýning í kvöld
kl. 11.30 íA-salíTHX
TONLIST
Númer eitt er
gott skipulag
Hún er eiginkona og móðir
þriggja barna, dagmamma
sex barna og söngkona og hljóm-
sveitarstjóri þess á milli. Frítímarn-
ir eru ekki margir að sögn Guðnýj-
ar Snorradóttur, 34 ára gamallar
húsmóður í Breiðholtinu, „en ef ég
á stund aflögu fer ég í sund eða í
ljós og á skíði á veturna".
Hún er Skágfirðingur í húð og
hár, alin upp á Hofsósi, en fluttist
til Reykjavíkur 1978 þar sem hún
kynntist eiginmanninum Árna Sör-
ensen, símsmið. Ári síðar héldu þau
skötuhjú til ísafjarðar, þar sem þau
bjuggu í níu ár. „Þegar þangað kom
kvisaðist það eitthvað út að ég
hafði verið í hljómsveit og þá bauðst
mér að syngja með hljómsveit Ás-
geirs Sigurðssonar," segir Guðný í
samtali við Morgunblaðið, en áður
hafði hún verið í skagfirsku hljóm-
sveitinni Upplyftingu ásamt bróður
sínum Kristjáni Snorrasyni.
En þau Kristján og Guðný eru
ekki einu fjölskyldumeðlimirnir,
sem hafa komið nálægt hljómsveit-
arbransanum. Faðir þeirra, Snorri
Jónsson, hefur spilað á böllum frá
14 ára aldri. Hann er nú meðlimur
í Harmonikuklúbbi Akraness og
spilar ásamt félögum sínum í
hljómsveit, sem kallar sig Hljóm-
sveit Snorra Jónssonar. Anna Jóna,
systir Guðnýjar, syngur með hljóm-
sveit Örvars Kristjánssonar í Árt-
úni og þriðja systirin, Þórunn, er
söngkona hljómsveitarinnar Dolbý
á ísafírði. Þá hefur fjórða systirin,
Kristín, komið nálægt bransanum,
en sú fimmta, Helga, hefur ekki
svo vitað sé, látið í sér heyra á
opinberum vettvangi. Hún náði sér
hinsvegar í gítarleikara, segir
Guðný.
„Þetta er eitthvað sem er í blóð-
inu. Maður losnar ekkert við þessa
bakteríu,“ segir Guðný þegar hún
er spurð hvaðan áhuginn sé kom-
inn. Þegar fjölskyldan flutti að
vestan til Reykjavíkur árið 1988
ákvað Guðný að stofna sína eigin
hljómsveit og auglýsti eftir mann-
skap í smáauglýsingadálki DV. Og
þar með varð hljómsveitin Fótspor-
ið til. í fyrra var svo Karnival stofn-
uð, en sú hljómsveit hefur við og
við leikið á Hótel íslandi, en er
mestmegnis á árshátíða- og þorra-
blótamarkaðnum. „Það hafa ýmsir
starfað með mér í gegnum tíðina
en þeir, sem skipa Karnival nú eru,
auk mín, Jökull Úlfsson trommu-
leikari, Skarphéðinn Hjartarson
hljómborðsleikari, Gunnar Karlsson
bassaleikari og Sigurður Dag-
bjartsson gítarleikari.
Þetta er virkilega gaman eins
og allt þegar vel gengur þó ég telji
mig kannski ekki vera neina sér-
staka söngkonu. Hljómsveitinni
fylgir óneitanlega mikil vinna því
fyrir utan það að vera söngkona,
er ég jafnframt hljómsveitarstjór-
inn og hvílir öll skipulagning þar
af leiðandi á mínum herðum. Það
er ótrúlega mikið umstang í kring-
um hvert ball. Við höfum fasta
æfingatíma á þriðjudagskvöldum
og stundum komum við saman á
fimmtudagskvöldum líka. Og svo
eru það böllin um helgar. Maður
SIÐIR
Reglulega í sólbað
ári eftir andlát
að ætti ekki að væsa um eigin-
mann konu einnar í Úganda
í Afríku sem hið þarlenda dagblað
The Star sagði frá nú í vikunni.
Þó svo að maðurinn hafi látist og
verið borinn til grafar fyrir rúmu
ári síðan grefur hún hann upp á
nánast hveijum degi og færir hann
út til að „njóta sólarinnar“.
Blaðið hefur það eftir konunni
að maður hennar hafi birst henni
í draumi og kvartað yfir því kalt
væri í gröfinni. Fór hann að sögn
konunnar fram á að fá smá „upp-
hitun“ við og við. „Á hveijum degi
sem sólin lætur sjá sig tekur ekkj-
an líkið upp úr kistunni og skilar
því ekki aftur fyrr en að dágóðum
tíma liðnum," segir The Star
Konan, sem býr í þorpinu Maw-
uggwe í 120 kflómetra fjarlægð
frá höfuðborginni, nýtur að sögn
aðstoðar barna sinna við þetta
verk.
COSPER
- Vegabréfið þitt? Það er í töskunni með viskíflöskun-
um.