Morgunblaðið - 30.09.1992, Síða 23

Morgunblaðið - 30.09.1992, Síða 23
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1992 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1992 23 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Einkavæðing í Sviþjóð egar ríkisstjórn Carls Bildts, for- Lí manns Hægri flokksins, tók við voldum í Svíþjóð fyrir tæplega ári var eitt helsta markmið hennar að draga úr hlutdeild ríkisins í sænsku atvinnulífi, enda er sú hlutdeild með því hæsta á Vesturlöndum. Um fímm- tíu hlutafélög eru alfarið í eigu ríkis- ins og í flestum tilfellum móðurfyrir- tæki í fyrirtækjasamsteypum. Ails eiga ríkisfyrirtæki, eða fyrirtæki þar sem ríkið er hlutaðeigandi, hlutabréf í um 450 félögum. Helstu rök ríkisstjórnarinnar fyrir einkavæðingunni eru fem. I fyrsta lagi að afmarka hiutverk ríkisins í atvinnulífinu. Það er eitt helsta verk- efni þess að ákveða hinar almennu leikreglur sem fyrirtæki verða að lúta og því getur það valdið hagsmuna- árekstrum ef ríkisvaldið er jafnframt mjög virkur þátttakandi í fyrirtækja- rekstri. í öðru lagi að dreifa eignar- haldinu á fyrirtækjum. Þróunin í Sví- þjóð á síðustu áratugum hefur verið sú að hlutur einstaklinga í atvinnuiíf- inu hefur farið minnkandi en hlutur hins opinbera vaxið að sama skapi. Þriðja röksemd sænsku ríkisstjórnar- innar er sú að stefnumótun og ákvarðanataka í einkafyrirtækjum er líklegri, til lengri tíma litið, að verða til þess að tryggja atvinnutækifæri og hagsæld. Reynslan, ekki bara í Svíþjóð, sýnir að meiri hætta er á að óskynsamlegar ákvarðanir í rekstri séu teknar í ríkisfyrirtækjum, ekki vegna þess að stjórnendur þeirra séu verri en aðrir, heldur vegna þess að ávallt er hægt að treysta á fjár- framlög _frá ríkinu, fari hlutirnir úr- skeiðis. í fjórða lagi á svo það fjár- magn sem losnar við sölu ríkisfyrir- tækja að renna til ýmissa arðbærra íjárfestinga. Það var stefna stjórnar- innar frá upphafi að þær tekjur sem kæmu af sölunni yrðu hvorki notaðar til að standa undir hefðbundnum út- gjöldum ríkisins né til að lækka skatta. í staðinn ætti að nota þær til að standa straum af kostnaði við ýmsar fjárfestingar, s.s. í samgöngu- málum eða við æðri menntun, sem myndu ýta undir hagvöxt. Þannig verður íjármagn fært af þeim sviðum þar sem einkaaðilar geta gert hlutina jafn vel eða betur yfír á svið þar sem einungis ríkið er fært um að veita ákveðna þjónustu. Þá á að nota hluta teknanna til að greiða skuldir ríkisins en það er ein af forsendum þess að vaxtastig í landinu geti lækkað, sem aftur á móti er grundvöllur aukins hagvaxtar. Allar þessar röksemdir eiga einnig við utan Svíþjóðar, enda hafa ríkis- stjómir alls staðar á Vesturlöndum leitast við að koma fyrirtækjum úr eigu ríkisins og draga almennt úr afskiptum hins opinbera. Á það við um jafnt hægri sem vinstri stjórnir. Þekktasta dæmið er líklega frá Bretlandi, en þar voru 46 fyrirtækjasamsteypur einkavæddar á árunum 1979-1990. í Frakklandi seldi ríkisstjórn sósíalista 12 fyrir- tæki á árunum 1986-1987 og voru sölutekjumar, um 700 milljarðar ís- lenskra króna, að mestu notaðar til að greiða niður skuldir ríkisins. Á Ítalíu voru um 30 stórfyrirtæki einka- vædd á síðasta áratug og einnig í Austurríki og Portúgal, og á Spáni hefur einkavæðing átt sér stað í mis- munandi mæli. Ríkisstjórn Vestur- Þýskalands dró einnig verulega úr hlutfalli ríkisins í atvinnulífinu á síð- asta áratug og í sameinuðu Þýska- landi á sér nú stað einhver umfangs- mesta sala á fyrirtækjum í ríkiseign í mannkynssögunni undir stjórn Treuhandanstalt, eignarhaldsfyrir- tækisins sem stofnað var um eigur austur-þýska- ríkisins. Þessi þróun hafði einnigteygt anga sína til Svíþjóðar áður en ríkisstjórn borgaralegu flokkanna komst til valda. Hafði stjóm Jafnaðarmanna- flokksins tekið fyrstu varfærnislegu skrefin í þá átt að auka hlut einkaað- ila, fyrst og fremst í skólamálum. Það var þó fyrst með núverandi ríkis- stjórn sem verulegur skriður komst á málin og í desember á síðasta ári veitti sænska þingið ríkisstjórninni leyfí til að selja alls 34 nafngreind fyrirtæki. Við þann lista hefur síðan bæst eitt fyrirtæki í viðbót, Nord- banken. Er það markmið stjórnarinn- ar að árlegar tekjur ríkisins af einka- væðingunni muni nema tíu milljörð- um sænskra króna. Þtjú fyrirtæki hafa verið seld á þessu ári og næsta vor má gera ráð fyrir að hlutur ríkis- ins í risasamsteypunni Procordia verði seldur. Það vekur athygli að tiltölulega lítill styr hefur staðið um einkavæð- ingaráform sænsku ríkisstjórnarinn- ar. Skoðanakannanir benda til að al- menningur sé þeim almennt hlynntur og gagnrýni af hálfu jafnaðarmanna virðist fyrst og fremst vera til mála- mynda. Hlutabréfaeign almennings hefur líka löngum verið frekar um- fangsmikil í Svíþjóð og er talið að um 20% Svía eigi sparifé í formi hlutabréfa, annaðhvort beint eða óbeint í gegnum hlutabréfasjóði. Til samanburðar má geta þess að sama hlutfall í Bretlandi var 3% áður en Margaret Thatcher komst til valda þó svo að það hafí þrefaldast þar í landi síðan. Viðkvæmasta málið hefur verið salan á fyrirtækjum í skógar- og málmiðnaði í Norður-Svíþjóð og harð- asta andstaðan hefur einmitt komið frá staðbundnum verkalýðsfélögum á þeim svæðum þar sem þau fyrirtæki .eru með rekstur. Hluti af því sam- komulagi um neyðaraðgerðir í efna- hagsmálum sem náðist milli stjórnar og stjórnarandstöðu í síðustu viku er að samráð verði haft við jafnaðar- menn um frekari einkavæðingu. Það sem helst hefur staðið einka- væðingaráformum ríkisstjórnarinnar fyrir þrifum er hin mikla lægð sem sænskt efnahagslíf hefur verið í á síðustu árum. Fjármagn til kaupa á hlutabréfum er því takmarkað og verð á hlutabréfum hefur farið lækk- andi. Hefur það líka verið notað gegn þessum áformum að réttara væri að bíða með að selja þangað til að hluta- bréfaverð fari hækkandi á ný þannig að sem mest fáist fyrir þessar eigur þjóðarinnar. Meira mælir hins vegar með því að halda áfram á þeirri braut sem mörkuð hefur verið; Það, að gera umfangsmiklar breytingar á efnahagslífí landsins af þessu tagi, er langtímamarkmið og verður að vera óháð tímsbundnum efnahags- sveiflum. Engin tímaáætlun liggur fyrir um hvenær sölu fyrirtækjanna 35 á að vera lokið en telja má líklegt að það verði ekki fyrr en í fyrsta falli í kringum árið 2010. Einkavæðing- aráætlun ríkisstjórnarinnar og sú uppstokkun á atvinnulífínu sem henni fylgir er líka ein af forsendum þess að hleypa megi nýjum krafti í sænskt efnahagslíf þannig að það verði í stakk búið að tryggja áfram lífskjör, sem eru með því besta sem gerist í heiminum. Fyrirsjáanlegur verkefnaskortur hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur hf. Rúmlega 50 manna starfsliði hefur verið sagt upp störfum ÖLLU starfsfólki Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur hf. hefur verið sagt upp frá og með þessum mánaðamótum. Að sögn Jóns I. Pálssonar, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, er um rúmlega 50 manns að ræða og er uppsagnarfresturinn frá einni viku til fjögurr'a mánaða, en flestir starfsmannanna eru með þriggja mánaða uppsagnarfrest. Jón segir ástæðuna vera fyrirsjáanlegan verkefnaskort, og ef ekki rætt- „Þetta er fyrst og fremst varúð- arráðstöfun, en við erum að vona að það verði hugsanlega einhver verkefni sem maður nær í. Það eru hins vegar engin verkefni í hendi nema bara smáverk framundir jól. Það eru engin útboð í gangi, og það sem verið hefur í gangi hefur farið tii Póllands. Þar hefur fólk um 100 dollara í kaup á mánuði, en vinnulið- urinn við skipaviðgerðir er á bilinu 60-70%. Við keppum því ekki við Pólland,“ sagði Jón. Hann sagði óbreytta starfsemi verða í fyrirtækinu framundir ára- mót, en fyrirsjáanlega yrði að loka fyrirtækinu ef ekki yrði um nein verkefni að ræða. Þá sagði hann ljóst að starfsmenn fyrirtækisins gengju ekki að öðrum störfum á Suðurnesjum. „Fyrirtækið skuldar peninga en við erum með jákvætt eigið fé. Það koma auðvitað engir peningar inn til að borga skuldirnar nema þá að selja húsnæðið og áhöld, en ég held það sé enginn kaupandi að þessu,“ sagði Jón. Yfir 500 uppsagnir borist vinnumálaskrifstofunni TILKYNNINGAR um uppsagnir hafa borist til vinnumálaskrif- stofu félagsmálaráðuneytis á hverjum degi að undanförnu og liggja nú fyrir á sjötta hundrað uppsagnir sem flestar taka gildi um áramótin. Búist er við að mikill fjöldi tilkynninga um upp- sagnir berist um mánaðamótin og eitthvað fram í næstu viku. Óskar Hallgrímsson hjá vinnu- málaskrifstofu félagsmálaráðu- neytis segir að tugur uppsagna eða Morgunblaðið/Snorri Snorrason Búið er að segja upp rúmlega 50 manns í skipasmíðastöð Njarðvíkur og atvinnuástand er mjög erfitt á Suðurnesjum um þessar mundir. fleiri berist á hverjum degi og að hann viti að enn fleiri séu á leið- inni. Hann segir að mikil bylgja tilkynninga hafi farið að berast til vinnumálaskrifstofunnar upp úr sumarleyfum og svo mikill fjöldi tilkynninga hafi ekki verið áður á ferðinni svo snemma. Á döfinni séu uppsagnir í byggingariðnaði á Akranesi og ástandið í atvinnumál- um þar sé vægast sagt erfitt eftir að 38 manns var sagt upp í Járn- blendiverksmiðjunni á Grundar- tanga í síðustu viku. Þá sé slæmt atvinnuástand á Suðurnesjum og lítil breyting orðið til hins betra þar. Hann sagði að reynslan sýndi að flestar tilkynningar um uppsagnir til vinnumálaskrifstofunnar bærust síðustu daga fyrir mánaðamót, en þær sem hefðu verið póstlagðar skömmu fyrir mánaðamótin bærust ekki skrifstofunni fyrr en í næstu viku. Þá væri mikið um að vinnu- veitendur hringdu til að' afla sér upplýsinga um hvernig ætti að standa að þessum málum, þ.e. að tilkynna um hugsanlegar hópupp- sagnir. Óskar sagði að undir eðlilegum kringumstæðum væri atvinnu- ástand með besta móti í september- mánuði, því þá losnaði um störf sem skólafólk hefði haldið. Atvinnu- ástandið nú væri hins vegar með algerum eindæmum. Venjan væri að það kæmu toppar og lægðir í eftirspurn eftir starfsfólki en óvenjulegt væri að nú hefði atvinnu- leysi verið um 3% allt árið. _ "......... “ Við smábátahöfnina Alfons. Víða má finna skemmtilega máluð hús í höfuðborginni eins og þessi mynd ber með sér en hún var tekin í grennd við Grandagarð í Reykjavík. Geii við strandferða- skipið Heklu í Póllandi Ríkisstyrktur iðnaður, segir Ingólfur Sverrisson STRANDFERÐASKIPIÐ Hekla fer í viðgerð til Póllands þar eð pólsk skipasmíðastöð varð hlutskörpust í alþjóðlegu útboði. Ingólfur Sverris- son, framkvæmdastjóri Málms, samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðn- aði, segir að þetta Heklumál sé stóralvarlegt en það sé ekki síður niður- drepandi og niðurlægjandi að á sama tíma geri Fríverslunarsamtök Evrópu, EFTA, fríverslunarsamning við PóIIand þar sem ríkisstyrkir Pólveija verða umbornir næstu fimm árin. í fyrravetur var Skipaútgerð ríkis- ins lögð niður. Meðal eigna þessa ríkisfyrirtækis var strandferðaskipið Hekla. Heklan var leigð Samskipum hf. á svonefndri tímaleigu. í vetur komu fram botnskemmdir á skipinu sem gert var við til bráðabirgða. Nú liggur fyrir sú ákvörðun Samskips- manna að hafa skipið ekki lengur á leigu. Að sögn Þórhalls Jósepssonar, deildarstjóra í samgönguráðuneyt- inu, er skipið nú á sölulista og hafa nokkrar fyrirspurnir borist, en gera yrði við skipið. Sá kostur hefði verið tekinn að bjóða verkið út bæði hér heima og á alþjóðlegum markaði. Þrettán tilboð hefðu verið lögð inn, íslensk, norsk, dönsk, hollensk, þýsk og pólsk. Lægsta tilboð hefði verið frá fyrirtækinu Morska í Swinoujsce (Swinemúne) innan landamæra Pól- lands. 7,638 milljónir íslenskra króna, brúttó. Næst lægsta tilboð hefði einnig verið frá pólsku fyrir- tæki, 8,469 milljónir. Hæsta tilboð hefði verið frá Slippstöðinni, 18,714 þegar allur kostnaður væri innifal- ifm. Næsta tilboð var frá Noregi, rúmar 18,347 milljónir. Tilboð frá Stálsmiðjunni hefði verið rúmar 15 milljónir króna brúttó. þórhallur sagðist ekki hafa skýr- ingar á þeim mun sem væri á íslensk- um tilboðum og pólskum. En ef verk væru boðin út á annað borð væri ekki annað ekki veijandi en að taka hagstæðustu tilboðum. Ef menn vildu halda verkefnum innanlands væri ekki hægt að blanda saman Vestfjarðadeild hjúkrunarfræðinga Námsstefna um líknar- meðferð krabbameins ^ ísafirði. ÁRLEG námsstefna Vestfjarðadeildar Hjúkrunarfræðingafélags Is- lands, sem haldin var á ísafirði fyrir nokkru, fjallaði að þessu sinni um líknarmeðferð krabbameins. Þrír fyrirlesarar úr Reykjavík fjölluðu um margar hliðar samskipta og umönnunar krabbameinssjúklinga, aðstandenda þeirra og hjúkrunarfólks sem þarf að takast á við þennan erfiða sjúkdóm. Séra Bragi Skúlason, sjúkrahús- prestur á Ríkisspítulunum með að- alaðsetur á Landspítala, sagði í sam- tali við fréttaritara að vaxandi um- ræða færi nú fram um hina andlegu hlið- og áhrifín sem sjúkdómurinn hefur á sjúklinginn, aðstandendur hans og hjúkrunarfólkið sem annast hann. Höfnun samfélagsins á fórn- arlömbum sjúkdómsins væri umtals- verð og ekki væri óalgengt að ætt- ingjar og vinir nánustu aðstandenda krabbameinssjúklinga eða þeirra sem nýverið hafí misst ástvin úr sjúk- dómnum gengju úr vegi þeirra á götu og forðuðust öll afskipti af við- komandi. Nú fer fram víðtæk um- fjöllun um aðgerðir til að takast á við afleiðingar sjúkdóma á þann hátt sem best verður við komið og áhersla lögð á vellíðan og reisn sjúklingsins og skilning á sérstökum þörfum að- standenda þeirra sem oft eru niður- brotnir og útbrunnir eftir langvinnt stríð. Aðrir fyrirlesarar á námsstefnunni voru Sigurður Árnason, læknir á krabbameinsdeild Landspítalans, sem fjallaði um nýgreiningu krabba- meina, greiningu og einkennameð- ferð, og Margrét Hákonardóttir, hjúkrunarfræðingur á krabbameins- deild Landspítalans, en hún fjallaði um hjúkrun krabbameinssjúklinga í heimahúsum, slökun og andlega að- hlynningu sjúkiinga og aðstandenda þeirra. Auk fyrirlestranna gafst þátttak- endum kostur á að ræða einsleg^ við fyrirlesara um sérstök málefn Morgunblaðid/Úlfar Ágústsson Starfsfólk heilbrigðisþjónustu á Vestfjörðum hlýðir á Sigurð Árnason á námsstefnu Vestfjarðadeildar Hjúkrunarfræðingafélags Islands, sem haldin var í stjórnsýsluhúsinu á Isafirði. sem upp hafa komið hjá viðkomandi eða aðgerðir sem viðkomandi vildu fræðast betur um. Sigrún Gísladóttir, hjúkrunar- fræðingur á Flateyri, er formaður Vestfjarðadeildar HFÍ. Hún sagði að þetta væri ellefta árið sem deildin héldi ráðstefnu um málefni heilbrigð- isstéttanna. Reynt væri að hafa þverfaglega ráðstefnu þar sem ólík- um stéttum gæfist kostur á að ræða saman um heilsugæsluna. Námsstefnuna sátu um sextíu manns frá öllum heilsugæslustöðvum í umdæminu og frá Fjórðungssjúkra- húsinu á lsafirði. - Úlfar útboði og síðan einhveijum handafls- aðgerðum. Ingólfur Sverrisson, fram- kvæmdastjóri Málms, samtaka fyrir- tækja í málm- og skipaiðnaði, sagði tilboð Stálsmiðjunnar vera að sínum dómi mjög vel viðunandi ef á allt væri litið. Það fyrirtæki sem var með lægsta tilboð ætlaði sér að vinna verkið á tíu dögum. Hann vildi setja spurningarmerki við þann daga- fjölda. Fæstir tækju dagsetningar Pólverja alvarlega, þótt þær væru stundum notaðar til að réttlæta það að senda skip þangað. Ingólfur sagði að mönnum fyndist kannski í þessu máli ekki vera háar upphæðir á borð- inu en hér væri um grundvallaratriði að tefla. Þegar forráðamenn fyrir- tækja í þessari atvinnugrein væru blóðugii; upp fyrir axlir við að skera niður og segja upp fólki stæðu full- trúar ríkisvaldsins í samgönguráðu- neytinu fyrir því að flytja verk úr landi, á sama tíma ætti þetta sama ráðuneyti fyrir hönd þjóðarinnar að veita 2.000 milljónum króna til að auka atvinnu í landinu með opinber- um framkvæmdum í vegamálum. Hver væri stefna ríkisvaldsins? Ingólfur sagði að það væri niður- drepandi og niðurlægjandi að þeir hjá samtökunum í málm- og skipa- iðnaði hefðu frétt það fyrir tilviljun að hjá utanríkisráðuneytinu væri nú fyrirliggj andi fríverslunarsamningur milli EFTA og Póllands. Þar væri kveðið á um það í 19. grein samn- ingsins að Pólveijum skuli heimilt að beita ríkisstyrkjum í meira mæli en EFTA-ríkjum í þeim yfirlýsta til- gangi að stuðla að efnahagslegum umbótum og þróun. Ingólfur sagði að ekki hefði svo mikið sem haft fyrir því að leita álits þeirra aðila í þessari atvinnugrein á ákvæðum sem snertu þessa atvinnugrein ansi mik- ið, svo fastar væri nú ekki að orði kveðið. Ingólfur gagnrýndi þetta harðlega og kallaði laumuspil. Þessi samningur þýddi óbreytt ástand gagnvart Póllandi næstu fimm árin og líklega stæði það á endum að þá yrði búið að jarðsyngja málm- og skipaiðnað hér. Ingólfur sagði að viðbrögð manna í atvinnugreininni hefðu ekki enn verið ákveðin en það væri þungt hljóðið í mönnum og hann gerði fastlega ráð fyrir því að samtök atvinnurekanda og launþega myndu stilla saman strengi sína. Tillögur Verktakasambandsins taldar þýða 2,5 milljarða skuldaaukningu Ekki ráðlegt að þrengja fjárhags- stöðu borgarsjóðs - segir í umsögn borgarhagfræðings sem lögð hefur verið fyrir borgarráð Borgarhagfræðingur telur ekki ráðlegt að þrengja svo stöðu borgarsjóðs, sem verða myndi ef farið yrði að tillögu Verktakasam- bands Islands um að auka framlög til framkvæmda á vegum Reykja- víkurborgar um 1,5 milljarða umfram það sem verður í ár. Hann telur að við það myndu skuldir borgarsjóðs aukast um a.m.k. 2,5 milljarða á næsta ári og leggur til að ekki verði tekin afstaða til tillögu Verktakasambandsins fyrr en í desember, þegar ætla megi að borgarráð hafi lokið fyrstu yfirferð frumvarps að fjárhagsáætl- un borgarinnar fyrir næsta ár. Á fundi borgarráðs í gær var mál- inu frestað. Á borgarráðsfundinum í gær voru lagðar fram umsagnir aðstoð- arborgarverkfræðings og borgar- hagfræðings um tillögurnar. Að- stoðarborgarverkfræðingur, Stefán Hermannsson, leggur til, varðandi húsbyggingar, að komið verði til móts við hugmyndir og óskir Verk- takasambandsins með því að taka ákvarðánir um útboð eða viðbótar- verksamninga um nokkur verkefni næsta árs í október og nóvember nk. Niðurstaða hans um gatnafram- kvæmdirnar er sú að athugáð verði að flýta nokkrum verksamningum sem rúmast innan framlaga Vega- sjóðs á næsta ári. „í lok ársins munu liggja fyrir endurskoðaðar hugmyndir um áfangaskiptingu og forgangsröð við Ósabraut/Vestur- landsveg og mun þá koma í Ijós, hugsanlega með samningum við ríkissjóð, hvort æskilegt geti talist að taka sérstakt lán vegna þessara framkvæmda,“ segir í umsögninni. í umsögn Eggerts Jónssonar borgarhagfræðings segir að tillögur Verktakasambands íslands snúist um aðgerðir til að koma í veg fyrir að heildarfjárfesting í landinu drag- ist enn frekar saman á næsta ári. Það sé því mjög miður að þess skuli ekki getið sem vert sé, að takist hafi að halda framkvæmdum Reykjavíkurborgar óbreyttum frá fyrra ári á sama tíma og almennur samdráttur sé talinn um 12%. Nú þyki sýnt að borgarsjóður auki skuldir sínar um nær einn milljarð á þessu ári og að óbreyttum aðstæð- um megi gera ráð fyrir að skuldir borgarsjóðs aukist um a.m.k. einn milljarð til viðbótar á næsta ári, ef samanlögð framlög til fram- kvæmda verða jafnmikil og á yfir- standandi ári. „Yrði farið að tillög- um Verktakasambands Islands um að auka framlog til framkvæmda á vegum Reykjavíkurborgar um 1,5 milljarð króna umfram það sem verður í ár myndu skuldir borgar- sjóðs aukast um a.m.k. 2,5 millj- arða á næsta ári. Það er skoðun undirritaðs, að ekki sé skynsamlegt að þrengja svo stöðu borgarsjóðs,“ segir í niðurlagi umsagnar Eggerts Jónssonar borgarhagfræðings. Bókastefnan í Frankfurt Mexíkó í öndvegi Frankfurt. Frá Jóhanni Hjálmarssyni, blaðamanni Morgunbladsins. BÓKASTEFNAN í Frankfurt, hin stærsta sem um getur, var sett, í gær. Yfir átta þúsund útgefendur kynna þar bækur sínar og búist er við að gestir verði um 90 þús- und. Bókastefnan í Frankfurt hefur lengi, eða í 43 ár, verið árlegur við- burður. Að þessu sinni setja Mexíkó- menn svip sins á bókastefnuna. Mexíkósk menning er í fyrirrúmi á bókastefnunni. Hápunktur opnunar- innar var opnun mexíkóskrar sýn- ingar þar sem ekki eru eingöngu kynntar mexíkóskar bækur heldur einnig list frá Mexíkó, málverk eftir meistara á borð við Órozco, Siquei- ros og Diepo Rivera. Mexíkóskir rithöfundar munu næstu daga vera á bókastefnunni til að segja frá ritstörfum sínum og lýsa viðhorfum sínum til eigin þjóð- ar og samtímans. Það er ekki aðeins Mexíkó nútim- ans sem gestir bókastefnunnar fá að kynnast því að sýningin frá Mex- íkó er helguð uppruna þjóðarinnar, fornminjum og hvers kyns listvið- leitni. Mörgum gestum bókastefnunnar í Frankfurt var það sérstök reynsla að heyra og sjá Octavio Paz, hið aldna skáld Mexíkómanna, opna sýningu Mexíkós. Meðal viðurkenn- inga sem hann hefur hlotið fyrir skáldskap sinn eru Nóbelsverðlaun. Octavio Paz Enginn þykir betur hafa lýst „sál Mexíkómanna“ en Octavio Paz, fyrst og fremst í ljóðum sínum, sem mörg hver eru súrrealísk og í rit- gerðasafni sínu, „Völundarhúsi ein- manaleikans“, sem fjallar um Mex- íkó í heimspekilegum anda. Margir íslenskir bókaútgefendur og starfs- menn þeirra eru á bókastefnunni í Frankfurt og stuðla eftir megni að því að íslenskar bækur verði ekki alveg útundan á þessari gríðarmiklu alþjóðlegu sýningu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.