Morgunblaðið - 30.09.1992, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 30.09.1992, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1992 29 Afdrifarík heimsókn Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Kálum þeim gömlu (,,Folks“)./ Sýnd í Regnboganum. Leik- stjóri: Ted Kotcheff. Handrit: Robert Klane. Aðalhlutverk: Tom Selleck, Don Ameche, Ann Jackson, Micháel Murphy, Wendy Crewson, Christine Ebersole. Kálum þeim gömlu er farsi um mann sem missir bókstaflega allt sem hann á, þ á m. annað eistað, þegar hann býður öldruðum for- eldrum sínum að búa hjá sér. Fórnirnar sem hann þarf að færa þeirra vegna eru með mestu ólík- indum enda er hvergi stigið á bremsurnar í þessum grallaraleik undir stjórn Ted Kotcheffs („Week- end at Bernies", „First Blood“). Það er Tom Selleck sem leikur manngreyið og virðist njóta þess á köflum að jarða ímynd hinnar ósigrandi karlmennsku sem hann hefur byggt upp í meira en ára- tug; foreldraheimsóknin gerir hann áður en lýkur að sinnulaus- um aumingja sem gælir við leik- fangabangsa, allt að því kominn á bleyjustigið aftur. Allt er í lukkunnar velstandi í byrjun. Selleck leikur ríkan verð- bréfasala, hamingjusamlega kvæntan, sem á gott heimili og fyrirtaks sportbíl. Fljótlega eftir Úr gamanmyndinni Kálum þeim gömlu. innreið foreldranna fer konan frá honum með börnin tvö, FBI tekur af honum starfsleyfíð, lokar bankareikningnum og hirðir bílinn vegna gruns um óheiðarlega við- skiptahætti, vergjöm systir hans og tveir óþokkapiltar synir hennar flytja inn til hans, líka húsvörður- inn í blokkinni, mafíósar hóta honum lífláti og svo mætti lengi telja. Handritshöfundurinn Robert Klane og leikstjórinn Kotcheff henda öllu í myndina sem mögu- lega er hægt að nota í stjómlaus- um farsa og bæta svo miklu meiru við. Allt hefur sín takmörk og myndin hættir að vera græsku- laust gaman þegar Selleck snýr sér að því að koma gamla fólkinu, foreldmm sínum, fyrir kattamef að ósk þess sjálfs. Þar er á ferð- inni yfírgengiiegur húmor sem gerir út á hræðilegustu morðtil- raunir — m.a. að kveikja í gamal- mennunum og sprengja í loft upp. Kotcheff virðist raunar orðinn sér- stakur áhugamaður um nk. dauða- húmor. í „Weekend at Bernie’s" drösluðust aðalpersónurnar með lík myndina á enda. Kálum .þeim gömlu er þannig ansi misjöfn skemmtun. Það má hlægja að mörgum afkáralegum kringumstæðum sem Tom Selleck lendir í en það tekur tíma að venj- ast honum í farsahlutverkinu. Sá aldni heiðursleikari Don Ameche fer með hlutverk föður hans í myndinni, elliærs gamalmennis sem er fullkomlega út úr heimin- um en býr yfír fjársjóði sem hann einn veit um. Það er gaman að Ameche í rullunni því honum tekst að halda henni utan við auma skrípamynd af gamlingja, senni- lega gegn óskum Kotcheffs. Myndin býður varla uppá miklar bollaleggingar um ábyrgð og skyldur bama þegar foreldarnir eru hættir að geta séð um sig sjálf- ir. Hún forðast að bera ábyrgð á neinu. I púðursvælu o g prettum Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Háskólabíó: Hefndarþorsti - “Renegades“ Leikstjóri Jack Sholder. Aðal- leikendur Kiefer Sutherland, Lou Diamond Phillips, Jami Gertz, Rob Knepper. Bandarík- in 1989. Eftir nokkurra ára undirbún- ing á veggjum Bíóhallarinnar birt- ist Hefndarþorsti svona óforvar- endis í Vesturborginni. Að öðru leyti kemur hún ekki á óvart. Þessi hversdagslega hasarmynd fjallar um ólíka náunga, indíánann Phillips og lögguna Sutherland. Báðir þurfa þeir að ná sér niðri á mafíósanum Knepper. Sutherland tók þátt í demantaráni með hon- um til að ljóstra upp um svikulann starfsbróðir í lögregluliði Fíladelf- íu en Phillips á harma að hefna því þorparinn hefur kálað bróður hans og stolið helsta vemdargrip Lakota-ættbálksins. Fer bærilega á stað en breytist fljótlega í enn eina rökleysuna þar sem menn vaða um götur stór- borgar skjótandi á báða bóga og seinni hlutinn er hálfkæfður í fár- ánlegri púðursvælu og sú litla vit- glóra sem var í handritinu löngu köfnuð. Ein af þeim myndum þar sem lögreglan virðist annaðhvort daufdumb eða haldin ofurskyni. Ekki bætir úr skák eindæma léleg persónusköpun vinkonu glæpa- mannsins og tveggja lögreglu- manna, þá er vesældarleg notkun á dulspeki fmmbyggjanna dapur- legt vitni um andagift handrits- höfundar. . Leikstjórinn virðist sæmilega fær í að stjóma átökum í B flokki og aldrei að vita hvað hann getur gert úr betri efnivið. Leikurinn er slakur sem flest ann- að, helst að Knepper komi ein- hveiju róti á áhorfandann sem hinn svínslegi mafíósi. Hér er á ferðinni dæmigerð myndbanda- kynning. Willem Dafoe fæst við glæpaöflin í sakamálamyndinni Hvítisandur. Sandur af seðlum Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Hvítisandur („White Sands“). Sýnd í Regnboganum. Leik- stjóri: Roger Donaldson. Hand- rit: Daniel Pyne. Aðalhlutverk: Willem Dafoe, Mary Elizabeth Mastrantonio, Mickey Rourke, Samuel L. Jackson, M. Emmet Walsh. I sakamálamyndinni Hvíti- sandur koma saman margir önd- vegis leikarar undir stjórn spennumyndaleikstjórans Roger Donaldsons og gera svolitla dæmisögu um þessi gamalkunnu viðfangsefni, morð, ástir og græðgi. Stundum tekst kvik- myndaliðinu vel upp og stundum miður en þegar á heildina er litið er myndin ágæt afþreying. Það er ekki síst að þakka skondnum leik kappa eins og Willem Dafoe, Mickey Rourke, Samuel L. Jack- sons og leikkonunnar Mary Eliza- beth Mastrantonio. Hvítisandur er ein af þessum myndum sem byrjar mjög vel á dularfullri gátu en stóra vanda- málið sem hún þarf að glíma við er að fínna sannfærandi lausn á henni. Maður fínnst skotinn í höfuðið úti á víðavangi, í annarri hendi er skammbyssa en hinni taska full af dollaraseðlum. Hver er þessi maður? Af hveiju framdi hann sjálfsmorð eða, ef hann var skotinn, af hverju voru þá pening- arnir ekki hirtir? Þetta er spenn- andi upphaf og tilvalið til að kveikja áhugann á myndinni á fyrstu fímm mínútunum en svo verður sagan heldur þykk, flókin vel og það opnast á henni fletir sem virka ekki sérlega trúverðug- ir. Myndin lítur alltaf vel út í leik- stjóm Donaldsons („No Way Out“), kvikmyndatakan er frísk- leg og samtölin hröð. Sögusviðið er útkjálki í Nýju Mexíkó þar sem Willem Dafoe leikur lögreglu- stjóra. Líkskoðara hans leikur sá ' gamalkunni M. Emmet Walsh og Mimi Rogers bregður tvisvar fyrir sem eiginkona hans. Dafoe finnur líkið af manninum með peningana og til að komast til botns í málinu þykist hann vera maðurinn og mætir á stefnumót sem hann fínn- ur út að maðurinn átti að halda. Þar með flækist hann í vef svika og pretta sem inní flækjast FBI, siðanefnd FBI, CIA, vopnasölu- menn og millafrú, leikin af Mastr- antonio, sem rennir hýru auga til Dafoes. Tekst Dafoe að leysa málið og snúa aftur í faðm íjölskyldunnar óspilltur af hinni gullfallegu Mastrantonio? Dafoe er draugfínn í hlutverki útkjálkalöggunnar sem dregst inn í hildarleik stóru stofn- ananna, sakleysislegur en fljótur að læra. Rourke leikur orðið mest sjálfan sig, sleipan og veraldar- vanan og íspinnasvalan gaur sem frekar léti gata sig með afsagaðri haglabyssu en þvo sér um hárið. Og Mastrantonio er eittmitt nógu tælandi til að fá Dafoe til að hugsa sig tvisvar um. O HELGAFELL 5992093019 IVA/ Fjhst □ GLITNIR 5992093019 I Fjhst. Frl. atkv. I.O.O.F. 7= 1749308'/2=R.kv. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðareríndisins. Almenn samkoma í kvöld kl. 20.00. (UJ) Krístnlboðssambandið, Háaleitisbraut 58-60 Námskeiðið „Kristið líf og vitnis- burður" hefst I kvöld kl. 20.00. Kennari er Ragnar Gunnarsson og er efni fyrsta hluta: „Auðugt trúarlíf". AÍIir eru velkomnir og námskeiðsgjald er ekkert. MPMlJfStt Vegna mikillar aðsóknar á byrj- endanámskeið höfum við bætt við morgunnámskeiði ( jóga. Kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 8.30-10.00. Námskeiðið hefst í byrjun okt. Jógastöðin Heimsljós, Skeifunni 19, 2. hæð, sími 679181 (kl. 17-19). Hvftasunnukirkjan Fíladelfía Biblíulestur í kvöld kl. 20.30. Sýndur verður biblíulestur frá Alheimsmóti hvítasunnumanna í Ósló í síðustu viku. Ræðumaður Yonggi Cho frá Seoul í Kóreu. Allir hjartanlega velkomnir. UTIVIST Hallveigarstig 1 • simi 614330 Myndakvöld fimmtudaginn 1. okt. Sýndar verða myndir frá ferð á Hornstrandir í sumar þar sem dvalið var i Hornvik og þaðan farnar ýmsar dagsferðir. Kynnir er Gunnar H. Hjálmarsson, far- arstjóri. Einig verða myndir frá kirkjugöngu Utivistar, tólf áfanga raðgöngu sem hófst í Reykjavik í janúar sl. og lauk i Hitardal i júní. Hlaðborð kaffinefndar inni- falið í aðgangseyri. Sýningin hefst kl. 20.30 á Hallveigarstíg 1. Útivist. FERÐAFÉLAG # ÍSLANDS MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533 Helgarferðir 2.-4. okt. 1. Þórsmörk, haustlitir (upp- skeruhátið og gríllveisla). Vegna mikilla aðsóknar eru þeir, sem eiga pantað, beðnir að staðfesta pantanir í síðasta lagi í dag (miðvikudag). Fararstjórar: Jóhanna B. Magnúsdóttir og Þorvaldur Örn Ámason. Göngu- ferðir á daginn, grillveisla (innl- falin í fargjaldi) og kvöldvaka á laugardagskvöldinu. Ath.: Ferðaféiagið notar alit gisti- pláss i Skagfjörðsskála vegna ferðarinnar 2.-4. okt. og helgin 24.-25. okt. er einnig frátekin. 2. Álftavatn - Hrafntinnusker. Spennandi ferð um svæðið að Fjallabaki og Torfajökulssvæðið. Ekið í Hrafntinnusker á laugar- deginum. Gist i skála. Brottför föstud. kl. 20. Uppl. og farm. á skrifst., Mörkinni 6 (opið kl. 09-17 alla virka daga). Sunnudagsferðir 4. október: 1. Kl. 08 Þórsmörk, haustlitir. 2. Kl. 10.30 Kálfstindar - Kálfsgil. 3. Kl. 13 Þingvellir í haustlitum - Gjábakkahraun - Laugarvatnshellar. Ath. að ein- göngu er hægt að komast í Kálfsgil í Kálfstindagöngunni en ekki kl. 13 eins og stendur f prentaðri áætiun. Fyrsta myndakvöld vetraríns verður miðvikudagskvöldið 7. okt. r Sóknarsalnum. Ferðafélag islands. ___________Brids______________ Umsjón Arnór G. Ragnarsson Bikarkeppni Bridssambands íslands Tveim leikjum í átta liða úrslitum Visa-bikarkeppni Bridssambands ís- lands er nú lokið. Sveit VÍB spilaði við sveit Suðurlandsvídeó og fór sá leikur 123 IMP gegn 98 fyrir Suður- landsvídíó. Sveit Símonar Símonarson- ar fór til Akureyrar og spilaði við sveit Tryggva Gunnarssonar og vann sveit Símonar þann leik með 108 IMP gegn 58. Þessar tvær sveitir eru því komn- ar í undanúrslitin sem spiluð verða laugardaginn 10. október nk. á Hótel íslandi. Leikur sveita Gísla Hafliða- sonar, Rvík, og Sigfúsar Þórðarsonar, Selfossi, verður spilaður sunnudaginn 4. okt. sem er síðasti dagur þessarar umferðar en dagsetning á leik sveita Eiríks Hjaltasonar og Gunnlaugs Kristjánssonar hefur ekki verið ákveð- in. Bridsfélag Suðurnesja Heldur var þátttakan dræm sl. mánudag en þá mættu 10 pör. Spilað- ur var tvímenningur. Valur Símonar- son heldur uppteknum hætti en hann vinnur alla tvímenninga sem spilaðir eru syðra um þessar mundir. Að þessu sinni spilaði hann með Stefáni Jóns- syni. Þeir félagar hlutu 130 stig en meðalskor var 108. Gísli Torfason, Jóhannes Sigurðsson og Birkir Jóns- son voru í öðru sæti með 127 stig og Heiðar Agnarsson og Pétur Julíusson þriðju með 116 stig. Næsta mánudag hefst þriggja kvölda Butler-tvímenningur, þar sem útreikningur er með sérstakri sveita- keppnisaðferð. Þetta er árleg haust- keppni þar sem barist er til síðasta blóðdropa ef svo hranalega má að orði komast. Spilað er í Hótel Kristínu í Njarðvík- um og hefst keppnin kl. 19.30. Jöklamót Bridsfélags Hornafjarðar Þröstur Ingimarsson og Ragnar Jónsson voru öruggir sigurvegarar í Jöklamóti félagsins sem spilað var um síðustu helgi, hlutu 392 stig yfir með- alskor. Alls tóku 44 pör þátt í mótinu víðs vegar að af landinu sem var ofar björtustu vonum. Lokastaðan: Ragnar Jónsson - Þrösturlngimarsson BKóp. 392 ' Bemódus Kristinsson - Gcorg Sverrisson BKóp. 287 AmarG. Hinrikss. - Einar V. Kristjánss. BÍsaf. 247 JónasÓlafsson-ÁgústSigurðssonBFásk. 223 Óli Bjöm Gunnarss. - Eyjólfur Magnúss. Rvík 204 ÓmarJónsson-FriðjónÞórhallssonRvík 195 Úlfar Öm Friðrikss. - Þórður Bjömsson BKóp. 193 ísak ðm Sigurðsson • Sigfús Ö. Ámason Rvík 183 Erlendur Jónsson - Guðlaugur Sveinsson Rvík 174 SkeggiRagnarsson-MagnúsJónassonHöfn 162 Bridsdeild Húnvetningafélagsins Síðastliðinn miðvikudag hófst fjög- urra kvölda hausttvímenningur. 20 pör mættu til leiks og spilað var í tveimur 10 para riðlum. Efstu pör urðu: A-riðill ValdimarSveinsson-FriðjónMargeirsson 134 GarðarBjömsson-ElínBjömsdóttir 133 Kári Siguijónsson - Eysteinn Einarsson 122 BaldurAsgeirsson-HermannJónsson 118 B-riðill Gunnar Birgisson - Jóngeir Hlinason 128 HeimirTryggvason—Tryggvi Þ. Tryggvason 126 GisliTryggvason-TryggviGíslason 116 Þorsteinn Erlingsson - Sæbjörg Jónsdóttir 116

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.