Morgunblaðið - 30.09.1992, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1992
43
ÚRSLIT
Kaiserslautern
- Fram 4:0
Kaiserslautem, síðari leikur iiðanna í 1.
umferð UEFA-keppninnar, þriðjudaginn 29.
september 1992.
Mörk Kaiserslautern: Kuntz (29., 84.),
Witeczek (55., 77.)
Lið Fram: Birkir Kristinsson - Kristján
Jónsson, Pétur Ormsiev, Jón Sveinsson -
Ingólfur Ingólfsson, Pétur Arnþórsson,
Anton Bjöm Markússon (Pétur Óskarsson),
Ómar Sigtryggssön (Guðmundur Gíslason),
Steinar Guðbeirsson - Valdimar Kristófers-
son, Jón Erling Ragnarsson.
Áhorfendur: 23.197
Evrópukeppni bikarhafa:
Búkarest, Rúmeníu:
Steaua Búkarest - Bohemians (frl.).4:0
Alexandm Andrasi (26., 34.), Ion Vladoiu
(45.), Ion Viorel (85.). 15.000.
BSteaua vann 4:0 samanlagt.
LimassQl, Kýpur.
Apollon - Liverpool................1:2
Milenko Spoljaric (60.) - Ian Rush (62.),
Don Hutchinson (68.)
BLiverpool vann samanlegt 8:2
Árhus, Danmðrku:
Árhus - AIK (Sviþjóð)..............1:1
Bo Harder (67.) - Pascal Simpson (20.)
BSamanlögð úrslit 4:4, en Arhus kemst
áfram á fleiri mörkum gerðum á útivelli.
Vínarborg, Austurríki:
Admira Wacker - Cardiff (Wales)....2:0
Olaf Marschall (47.), Johannes Abfalterer
(90.) 4.700
BAdmira vann 3:1 samanlagt.
UEFA-keppnin:
Kaiserslautem, Þýskalandi:
Kaiserslautem - FRAM...........4:0
Kuntz (29., 84.), Witeczek (55., 77.) 23.197
■Kaiserslautern vann 7:0 samanlagt.
Istanbul, Tyrklandi:
Galatasaray - Katowice (Póll.).2:1
Hakan Sukur (31.), Falco Gotz (56.) -
Maciejewski (75.). 25.000.
BGalatasaray vann samanlagt 2:1
Moskvu, Rússlandi:
Torpedo Moskva - Manchester United 0:0
HSamanlögð úrslit 0:0, en Torpedo vann
4:3 i vitakeppni.
Dortmund, Þýskalandi:
Dortmund - Floriana, (Möltu).........7:2
Zorc (10.), Delia (18. sjálfsmark), Franck
(59.), Rummenigge (67.), Mill (72., 79.,
90.) - Crawley (11., 17.) 11.790
■ilortmund vann samanlagt 8:2
Lamaca, Kýpur.
Anorthosis Famagusta - Juventus......0:4
- Fabrizio Ravanelli (14.), Jurgen Kohler
(39.), Pierluigi Casiraghi (66., 87.) 6.000
■Juventus vann 10:1 samanlagt.
Kaupmannahöfn, Danmörku:
Frem - Neuchate! Xamax (Sviss).......4:1
Piotr Haren (17., 37.), Henrik Imre Jensen
(19.), Thomas Thoegersen (53.) - Piho
Mnfreda (24.)
■Frem vann 6:3 samanlagt.
Briisset, Belgíu:
Anderlecht - Hibernian (Skotlandi)...1:1
Luc Nilis (5.) - Darren Jackson (15.) 25.000
■Samanlögð úrslit 3:3, en Anderlecht vann
á fleiri mörkum gerðum á útivelli.
Derry, írlandi:
Derry City - Arnhem (Hollandi).......1:2
Paul Mooney (60.) - Roberto Straal (45.),
Martin Laamers (65.)
■Amhem vann 5:1 samanlagt.
Portdown, N-írlandi:
Portadown - Standard Liege (Belgiu) .0:0
■Liege vann 5:0 samanlagt.
Auxerre, Frakklandi:
Auxerre - Lokomotiv Plovdiv (Búlgariu)
.....................................7:1
Gerald Baticle (2., 71.), Christophe Cocard
(11.), William Prunier (13., 48.), Pascal
Vahima (28.), Lilian Laslandes (84.) - Ayan
Sadakov (21.) 16.000
■Auxerre vann 9:3 samanlagt.
Golf
Styrktarmót hjá GR
Leiknar vora 18 holur með forgjöf.
Kristinn Eymundsson, GR............66
Guðlaugur Br. Gíslason, GR.........66
Þráinn Rósmundsson, GR.............67
Besta skori náðu Ragnhildur Sigurðar-
dóttir og Gunnar Halldórsson og sigraði
Gunnar eftir bráðabana.
■Þorvarður Friðbjömsson, eiginmaður
Ragnhildar, fór holu í höggi á 6. braut og
er þetta í annað sinn á mánaðartíma sem
hann nær draumahögginu.
Firmakeppni ÓSS
Tuttugu fyrirtæki tóku þátt í firmakeppni
Óss á Blönduósi.
Morgunblaðið/Brynjar Bjarkason....62
Hárgreiðslustofa Bryndísar/Ásgeir Blöndal
Fjölritunarst. Grettir/Einar Jóhannesson
NAMSKEIÐ
íþrótta- og leikjaskóli
Víkings
Handknattleiksdeild Víkings verður með
íþrótta- og leikjanámskeið í vetur í íþrótta-
húsi Réttarholtsskóla. Bömunum verður
skipt í tvo hópa, 3-4 ára og 5-6 ára og
verður kennt á laugardögum. Hvert nám-
skeið er í sex vikur og bytjar það fyrsta
laugardaginn 3. október. Upplýsingar í sím-
um 813245, 33688 og 673830.
KNATTSPYRNA
Frábær fyrri hálfleikur
- sagði Pétur Ormslev um leik Framara gegn Kaiserslautem
FRAMARAR eru úr leik í Evr-
ópukeppni félagsliða en liðið
tapaði 4:0 fyrir Kaiserslautern
í Þýskalandi og því samanlagt
7:0 þvífyrri leiknum lauk með
3:0 sigri Kaiserslautern.
Pétur Ormslev þjálfari Fram var
samt tiltölulega ánægður með
leik liðsins í gær og þá sérstáklega
fyrri hálfleikinn. „Við lékum mjög
vel í fyrri hálfleik og það hefði verið
sanngjamt að það hefði verið jafnt
í leikhléi, en þeim tókst að gera eitt
mark,“ sagði Pétur.
Leikmönnum Kaiserslautern gekk
erfiðlega að finna veikleika hjá
Frömurum í fyrri hálfleiknum og fór
það greinilega mjög í taugarnar á
þeim svo og áhorfendum. Eftir að
heimamenn komust yfir á 29. mínútu
kölluðu áhorfendur með Frömurum.
„Þetta var alveg furðulegt. Við
höfðum fengið færi en það hvorki
gekk né rak hjá þeim. Ingólfur átti
til dæmis frábært skot rétt framhjá
áður en þeir skoruðu og áhorfendur
voru famir að púa á þá og klappa
fyrir okkur og kölluðu til okkar að
halda áfram og jafna metin eftir að
þeir komust yfir,“ sagði Pétur.
Snemma í síðari hálfleik skoruður
heimamenn annað markið og eftir
það var róðurinn enn þyngri hjá
Fram. „Við lékum ekki eins vel í síð-
ari hálfleik og undir lokin vora menn
orðnir þreyttir og þá fengum við á
okkur tvö mörk til viðbótar. Það
hefði mátt koma í veg fyrir eitthvað
af þessum mörkum en ég er samt
tiltölulega sáttur við leikinn. Við lék-
um mjög vel í fyrri hálfleik og þjálf-
ari þeirra sagði á blaðamannafundi
eftir leikinn að við hefðum komið
honum verulega á óvart og sótt mun
meira en hann hefði átt von á,“ sagði
Pétur.
Pétur vildi ekki taka neina leik-
menn útúr, sagði alla hafa leikið
vel, sérstaklega í fyrri hálfleik.
Pétur Ormslev í baráttu við Thomas Ritter í leiknum
fyrri hálfleik.
Reuter
gærkvöldi. Pétur var sérstaklega ánægður með leik Fram í
Mikill hugur
íokkur
- segir Logi Ólafsson
þjálfari Víkings
Víkingur leikur síðari leik sinn í
fyrstu umferð Evrópukeppni
meistaraliða í knattspymu í kvöld
og er leikið gegn ZSKA Moskvu.
Víkingar töpuðu fyrri leiknum hér
heima 1:0 og því verður á brattann
að sækja hjá þeim í Moskvu í kvöld.
„Við æfðum á vellinu í dag [í
gær] og þetta er rosalegur völlur.
Það er mikill hugur í mínum mönn-
um og strákamir ákveðnir í að
leggja sig alla fram í leiknum. Það
era allir heilir og ég á ekki von á
miklum breytingum í okkar liðið frá
síðustu leikjum. Guðmundur Steins-
son verður þó líklega ekki í byijun-
arliðinu því ég reikna með að láta
Helga Sigurðsson vera einan
frammi," sagði Logi við Morgun-
blaðið í gærkvöldi.
KORFUBOLTI / NBA
Magicmeð
LALakers
ERWIN „Magic“ Johnson til-
kynnti í gærkvöldi að hann
ætlaði að snúa sér að körfu-
knattleik á nýjan leik og leika
með sýnum gömlu félögum í
Los Angeles Lakers á kom-
andi tímabili.
Þetta teljast mikil og góð tíðindi
fyrir Lakers og raunar körfu-
knattleikinn sem slíkan því Magic
er talinn einn fremsti körfuknatt-
leiksmaður sem uppi hefur verið.
Hann tilkynnti þann 7. nóvember
í fyrra að hann væri með HIV veir-
una og þá töldu margir að bundinn
væri endi á 12 ára feril hans sem
körfuboltamanns. Hann tók þó þátt
i Ólympíuleikunum í Barcelona í
sumar og hefur nú ákveðið að leika
með Lakers á komandi tímabili.
Magic mun þó ekki leika alla
leiki liðsins því hann hyggst aðeins
leika 50-60 leiki af þeim rúmlega
80 sem liðið þarf að leika á keppnis-
tfmabilinu. „Mér líður mjög vel og
er tilbúinn f slaginn. Það verður
gaman að byija aftur á því sem
maður hefur gaman af að gera og
ég er kominn til að sigra,“ sagði
Johnson á blaðamannafundi í gær
og brosti eins og hann er frægur
fyrir, jafnt innan vailar sem utan.
Sérfræðingar hafa varað John-
son við þeirri hættu sem felst í að
heíja leik að nýju og segja að álag-
ið sem fylgi geti reynst hinni 33ja
ára stórstjönu hættulegt. Þeir hafa
jafnframt tjáð honum að ef hann
leiki ekki alla leikina og ferðist eins
lítið og honum sé unnt þá geti ver-
ið að þetta hafi engin áhrif á sjúk-
dóminn. Hann verður einnig að
gæta vel að því sem hann lætur
ofan í sig og segist Johnson ætla
að gera það.
Sigurður ekki með
Sigurður Grétarsson leikur
ekki með Grasshoppers gegn
Sporting Lissabon í Evrópu-
keppninni í kvöld.
Grasshoppers tapaði fyrri leikn-
um á heimaleiknum, 1:2, og
Leo Beenhakker, þjálfari liðsins
ákvað að bæta
manni í sóknina til
að auka líkur á sigri.
Liðið verður að
skora tvö mörk og
má þá ekki fá neitt á sig til að
komast áfram í keppni. „Eg var
Anna
Bjamadóttir
skrifar
frá Sviss
heldur siappur í síðustu viku og það
kom mér ekki á óvart þegar Been-
hakker sagði mér að ég yrði ekki
í liðinu," sagði Sigurður við Morg-
unblaðið.
Bestu sóknarmenn Grasshoppers
eru útlendingar og þrír þeirra leika
með í Lissabon. Sigurður var tekinn
úr vörninni. Hann er talinn sem
útlendingur með Grasshoppers í
Evrópukeppni þótt hann sé Sviss-
lendingur samkvæmt svissneskum
reglum en aðeins þrír útlendingar
mega vera í liðinu í hverjum Evr-
ópuleik.
Sigurður Grétarsson
foém
FOLX
■ TORPEDO skoraði ekki úr
tveimur fyrstu vítaspymunum gegn
Manchester United, en náði samt
að sigra 4:3. Steve Bruce, Bríán ““
McClair og Gary Pallister skor-
uðu ekki fyrir United.
■ MARK Hughes var vikið af
velli fyrir kjánalegt brot — mót-
mælti dómi með því að sparka bolt-
anum í burtu undir lok leiksins —
en áður hafði hann fengið gult
spjald.
■ PAUL Stewart hjá Liverpool
fékk að sjá rauða spjaldið á 72.
mínútu gegn Apollon á Kýpur.
■ IAN Rush jafnaði fyrir Li-
verpool og hefur þar með gert 20
mörk í Evrópukeppni.
■ FRANK Mill var með þrennu
fyrir Dortmund á síðustu 18 mínút-
unum í 7:2 sigri gegn Floríana á*.
Möltu.
■ 15 SÆNSKIR áhangendur
AIK vora handteknir í Kaupmanna-
höfn fyrir leikinn gegn Árhus
vegna árása á vegfarendur og
skemmdarverka. Að sögn lögreglu
var um drukkna unglinga að ræða,
sem vilja vera til vandræða.
■ HERMANN Neuberger, for-
maður þýska knattspymusam-
bandsins og varaforseti alþjóða
knattspyrnusambandsins, FIFA,
lést á sjúkrahúsi í Frankfurt á
sunnudaginn. Neuberger, sem vaT*"*
72 ára, var mjög mikils metinn fyr-
ir störf sín í þágu knattspymunnar.
Hann var m.a. formaður í fram-
kvæmdanefnd heimsmeistara-
keppninnar í knattspymu.
■ PATTY Sheehan frá Banda-
ríkjunum varð fyrst kvenna til að
sigra bæði á Opna bandariska
Opna breska golfmótinu á sama
ári. Hún sigraði nokkuð öragglega
um helgina í því breska.