Morgunblaðið - 06.11.1992, Qupperneq 1
88 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
254. tbl. 80. árg.
FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1992
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þing norska Verkamaniiaflokksins
EB og EFTA sam-
einist í baráttunni
við atvinnuleysið
Ósló. Reutcr. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins.
GRO Harlem Brundtland, forsætisráðherra Noregs, lagði til í gær
að ráðherrar Evrópubandalagsins (EB) og Fríverslunarbandalags
Evrópu (EFTA) kæmu saman á næsta ári til að finna leiðir til að
draga úr atvinnuleysi, stuðla að auknum hagvexti og lækka vexti.
að skapa fleiri störf. Um leið þarf
að auka samvinnu ríkjanna á sviði
fjármála til að lækka vexti um alla
Evrópu."
Búist er við að flokksþingið sam-
þykki á sunnudag tillögu Brundt-
land um að Norðmenn sæki um
aðild að Evrópubandalaginu. Sam-
kvæmt skoðanakönnunum er 51 af
hundraði Norðmanna andvígur að-
ild að bandalaginu en 30% fylgjandi.
Fylgi Verkamannaflokksins hef-
ur aldrei verið minna frá því á þriðja
áratugnum, ef marka má skoðana-
kannanir, og talið er að afstaðan
til Evrópubandalagsins og 7,7% at-
vinnuleysi í Noregi ráði þar niestu.
Samkvæmt könnun, sem birt var í
Aftenposten í gær, er fylgi flokks-
ins komið niður í 24,5% og hefur
minnkað um 10 prósentustig frá
kosningunum 1989. ,
Brundtland sagði þetta er hún
setti árlegt flokksþing norska
Verkamannaflokksins í Osló. Hún
kvaðst hafa skrifað öllum leiðtogum
EB og EFTA og framkvæmdastjóm
Evrópubandalagsins og lagt til að
fjármálaráðherrar ríkjanna kæmu
saman næsta vor. „Við leggjum til
að áhersla verði lögð á opinberar
fjárfestingar, umhverfis- og
menntamál með það að markmiði
A
Irska þing-
ið samþykk-
ir vantraust
á stjórnina
Viðskiptastrið virðist í uppsiglíngu milli Bandaríkjanna og EB
Bandaríkjastjórn setur
refsitolla á hvítvín frá EB
Genf, Washington. Reuter.
Dyflinni. Reuter.
ÍRSKA þingið samþykkti í gær
tillögu um vantraust á stjórn
Alberts Reynolds forsætisráð-
herra og efnt verður til þing-
kosninga 26. nóvember.
Daginn áður höfðu ráðherrar
Framfarasinnaða demókrataflokks-
ins ákveðið að binda enda á stjóm-
arsamstarfíð með flokki Reynolds,
Fianna Fail. Þingmenn Framfara-
sinnaða demókrataflokksins
greiddu síðan atkvæði með van-
trauststillögunni, sem var sam-
þykkt með 88 atkvæðum gegn 77.
Framfarasinnaði demókrata-
flokkurinn gekk úr stjórninni eftir
að Reynolds sakaði leiðtoga hans,
Des O’Malley iðnaðarráðherra, um
að hafa verið „ósvífinn, óábyrgur
og óheiðarlegur“ er hann bar vitni
í réttarhöldum um nautakjötsfram-
leiðsluna á írlandi.
CARLA Hills, viðskiptaráðherra
Bandaríkjanna, sagði í gær að
Bandaríkjastjórn myndi setja
200% refsitolla á hvítvín og
nokkrar landbúnaðarafurðir frá
Evrópubandalaginu vegna deilu
þeirra um niðurgreiðslur banda-
lagsins á matar- og fræolíu.
Framkvæmdastjórn Evrópu-
bandalagsins sagði að refsitoll-
arnir brytu í bága við reglur
GATT. Samningamenn í viðræð-
unurn um nýjan GATT-samning
sögðust svartsýnir á að hægt
yrði að afstýra viðskiptastriði
milli Bandaríkjanna og EB, sem
myndi stórskaða efnahagslífið í
heiminum.
Carla Hills sagði að refsitollamir
yrðu settir á hvítvín, repjuolíu og
hveitiglúten og tækju gildi eftir
mánuð, eða 5. desember. Hún birti
einnig lista yfir iðnvarning frá
EB-ríkjunum sem Bandaríkjastjóm
kynni að setja refsitolla á ef deilan
um niðurgreiðslurnar yrði ekki leyst
innan mánaðar.
Samningamaður EB, Tran van
Thinh, hafði sagt að ef Bandaríkja-
stjórn ákvæði að beita EB refsiað-
gerðum yrði það í reynd dauðadóm-
ur yfír Uruguay-lotunni svokölluðu,
viðamiklum viðræðum um aukið
fijálsræði í heimsviðskiptum sem
gæti stuðlað að miklum hagvexti í
heiminum.
Arthur Dunkel, framkvæmda-
stjóri GATT, kvaðst hafa miklar
á-hyggjur af þeirr: ákvörðun Banda-
ríkjastjórnar að setja refsitolla án
samráðs við GATT en bætti við að
það væri þó bót í máli að stjórnin
í Washington og Evrópubandalagið
hefðu lýst því yfir að samningavið-
ræðunum yrði haldið áfram.
Frans Andriessen, sem fer með
samskiptin við önnur ríki innan
framkvæmdastjórnar EB, sagði
hins vegar að refsitollarnir brytu í
bága við reglur GATT og myndu
torvelda frekari viðræður um nýjan
GATT-samning. „Evrópubandalag-
ið er enn reiðubúið að semja. Það
tekur þó fram að þær aðferðir sem
Bandaríkjamenn hafa beitt... auð-
velda ekki samningaviðræðurnar og
stefna heimsviðskiptunum í hættu.“
Mikill ágreiningur er innan Evr-
ópubandalagsins um samningavið-
ræðurnar við Bandaríkin og skýrt
var frá því í gær að Ray Mac-
Sharry, sem fer með landbúnaðar-
mál innan framkvæmdastjómarinn-
ar, hefði ákveðið að hætta sem
helsti samningamaður EB í viðræð-
unum. Háttsettur embættismaður í
Brussel sagði að MacSharry hefði
ákveðið þetta vegna deilna við
Jacques Delors, forseta fram-
kvæmdastjórnarinnar, sem hefur
verið sakaður um að draga taum
Frakka í deilunni, en þeir eru and-
vígir samningi við Bandaríkin.
Sir Leon Brittan, varaforseti
framkvæmdastjómar Evrópu-
bandalagsins, varaði við því að
bandalagið myndi svara refsitollum
með eigin refsiaðgerðum. „Það eru
Bandaríkjamenn sem hafa nú
ákveðið að taka fyrsta skrefið í átt
að viðskiptastríði," bætti hann við.
Neal Blewett, viðskiptaráðherra
Astralíu, sem hefur yfírleitt stutt
Bandaríkjastjórn í GATT-viðræðun-
um, varaði við því að deilan um
matarolíuna gæti haft alvarlegar
afleiðingar fyrir smærri þjóðir.
Fischer hrósaði
sigri - og grét
Belgrad. Reuter.
BOBBY Fischer tryggði sér sigur í skákeinvíginu við Borís Spassky
í Belgrad í gær eftir tveggja mánaða taflmennsku og 30 skákir.
Fischer var með svart og virtist í faðma.
eiga í vök að veijast í byijun skák-
arinnar en nýtti sér til fullnustu
vanhugsaða hróksfóm Spasskíjs og
knúði fram uppgjöf í 27. leik.
Þar með hafði Fischer fengið 10
vinninga gegn 5 og tryggt sér 3,35
milljónir dala, 195 milljónir ÍSK, í
verðlaun.
Mikil fagnaðarlæti brutust út á
meðal áhorfendanna, sem hrópuðu
nafn skákmeistarans í sífellu. Lár-
viðarsveigur var settur yfir sigur-
vegarann og keppinautamir féllust
„Ég þakka öllu dásamlega fólk-
inu í Júgóslavíu," sagði Fischer.
„Þið hafið verið frábærir áhorfend-
ur.“
„Bobby grét - svo lítið bar á.
Hann þurrkaði tár af hvörmunum,"
sagði stórmeistarinn Branislav
Rakic.
Spasskíj tók ósigrinum vel og
kvaðst hafa teflt illa. „Ég varð að
fóma einhveiju en án þess að hafa
möguleika á sigri."
Sjá skákskýringu á miðopnu.
Reuter
Bobby Fischer með lárviðar-
sveig eftir sigurinn á Borís
Spasskjj í gær. Á borðanum
stendur „Heimsmeistarinn".