Morgunblaðið - 06.11.1992, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐID, AÐALSTRÆTl 6, 101 REYKJAVlK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1866 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 86
FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Lá við að stórslys yrði í Hróarstungu
Fjögurra ára dreng-
ur lenti undir bifreið
VIÐ stórslysi lá þegar fjögurra
ára drengur kastaðist út úr og
lenti undir Ford Econoline bíl,
sem valt út af veginum á móts
við Blöndubakka í Hróarstungu
um hádegisbilið í gær.
Að sögn lögreglunnar á Egilsstöð-
um var ökumaður bílsins á ferð með
tvö böm sín, tveggja ára stúlku og
fjögurra ára dreng, þegar bíllinn
rann skyndilega til í hálku á veginum
og valt út af. Bíllinn rann talsverða
vegalengd á hliðinni og lenti síðan
í stórgrýti og á hvolfi á um 50 senti-
metra háum steini sem gekk upp í
þak bílsins. Ökumaðurinn fann
drenginn skorðaðan meðfram stein-
inum og tókst að ná honum undan
bílnum eftir að hafa tjakkað hann
upp.
Ökumaðurinn og stúlkan sluppu
bæði ómeidd en drengurinn reyndist
lítilsháttar marinn og þykir ganga
kraftaverki næst að meiðsli hans
urðu ekki meiri. Bíllinn er talinn
nánast ónýtur eftir óhappið.
---------» ♦ »---
Norðanhret
og stormur
Búist er við stormi á öllum miðum
nema Faxaflóamiðum í dag sam-
kvæmt spá Veðurstofunnar. I fyrstu
verður austan stinningskaldi með
rigningu víða um land en snýst síðan
í vaxandi norðlæga átt.
Tillaga um þjóðarat-
kvæði um EES feild
Framkvæmdin hefði
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Varnarliðsmenn bera slasaða sjómanninn úr þyrlunni um borð í Hercules-vélina á Akureyrarflug-
velli í gær.
Ungur sjómaður sótt-
ur 40 mílur á haf út
v-...—-50
oi/IUr
Tvær þyrlur Vamariiðs-
ins og ein Herkúlesvél
tóku þátt í aðgerðum til
að ná í slasaðan sjó-
mann 30 sjómílur í norð-
austur af Langanesi
kostað 70 milljónir
ÞIN GSÁL YKTUN ARTILL AG A stjórnar-
andstöðunnar um þjóðaratkvæðagreiðslu
um samninginn um Evrópskt efnahagssvæði
var felld við atkvæðagreiðslu á Alþingi í gær
með 31 atkvæði gegn 28. Allir viðstaddir
þingmenn stjórnarandstöðunnar greiddu
atkvæði með tillögunni og það gerðu einnig
Eyjólfur Konráð Jónsson og Ingi Björn Al-
bertsson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins.
Eggert Haukdal, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, sat hjá við atkvæðagreiðsluna en
aðrir þingmenn stjórnarflokkanna greiddu
atkvæði gegn tillögunni.
Kostnaður hins opinbera af
þjóðaratkvæðagreiðslu hefði numið
um 70 milljónum króna og við þá
upphæð hefði bæst kostnaður af
Hugmyndir um aðgerðir í efnahagsmálum ræddar í forystu ASÍí dag
Líklegt að þing ASÍ í lok nóv-
ember taki endanlega afstöðu
GERA má ráð fyrir að það skýrist í dag hvert framhald verður
á viðræðum aðila vinnumarkaðarins um aðgerðir í efnahagsmál-
um til styrktar atvinnulífi, en fundað verður um málið í mið-
stjórn og með formönnum landssambanda og svæðasambanda
Alþýðusambands íslands í dag. Líklegt er talið að það komi
síðan til kasta þings ASÍ sem haldið verður á Akureyri síðustu
vikuna í nóvember að taka endanlega afstöðu til málsins verði
komin niðurstaða í viðræðurnar, sem hægt er að leggja fyrir
þingið.
Miðstjórn Alþýðusambands ís-
lands hefur verið kölluð saman til
fundar eftir hádegið til að ræða
kjara-, atvinnu-, og efnahagsmál
og formenn landssambanda og
^væðasambanda hafa verið boðaðir
á fundinn klukkan 15. Farið verður
yfír hugmyndir um aðgerðir í efna-
hagsmálum sem felast einkum í því
að aflétta gjöldum af atvinnurekstr-
inum og afla tekna á móti með
hækkun skatta. Talað er um afnám
aðstöðugjalds og lækkun tiygg-
ingagjalds en til að afla tekna á
rnóti komi hækkun útsvars og virð-
isaukaskatts, hátekjuskattur, skatt-
ur á vaxtatekjur og mjög hert
skattaeftirlit meðal annars. Menn
óttast að ef kostnaði verði ekki létt
af atvinnulífínu með einhveijum
hætti komi annað tveggja til mikils
atvinnuleysis í kjölfar gjaldþrota
eða gengisfellinga og tilsvarandi
verðbólgu, sem gengur þvert á
markmið tveggja síðustu kjara-
samninga.
Farið var yfír málið á fundi með
formönnum lands- og svæðasam-
banda ASÍ á fundi fyrr í vikunni
og komu þar fram skiptar skoðanir
um þær hugmyndir sem þar voru
kynntar. Einkum voru það fulltrúar
Verkamannasambands íslands sem
létu efasemdir í ljósi, en aðrir voru
á því að grípa verði til einhverra
slíkra aðgerða til að styrkja at-
vinnuástand i ljósi þess að aðrir
raunhæfír kostir séu ekki fyrir
hendi. Unnið hefur verið að frekari
úrvinnslu hugmyndanna, sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins,
meðal annars í ljósi þeirrar gagn-
rýni sem kom fram og verður vænt-
aniega farið yfir niðurstöðuna á
fundinum í dag.
Bjöm Grétar Sveinsson, formað-
ur Verkamannasambandsins og
verkalýðsfélagsins Jökuls á Höfn í
Hornafírði, sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann hafí sínar
efasemdir um að það þurfí að að-
stoða atvinnurekendur við að
minnka kaupmátt launa, meðal
annars vegna þess að hann hefði
fyrir framan sig bæði uppsagnir á
fólki og kjörum þess. Sér sýndist
því að þeir væru einfærir um þetta
og hann óttaðist að þó svo gengið
yrði til samkomulags um einhveijar
tillögur myndi verða gengið lengra
í kjölfarið af öðrum aðilum og hann
hefði ekkert í höndunum um að það
yrði ekki gert.
Sjá einnig frétt á miðopnu.
GHmsstððum, Fjiillum
STÓR jeppabifreið sem var að
koma austan frá Egilsstöðum ók
út af veginum við brúna yfir
Vatnsleysu skammt frá Gríms-
stöðum um kvöldmatarleytið í
gær. Þrjár konur voru í bifreið-
inni sem hafnaði úti í ánni, en
þær sluppu allar ómeiddar. Bif-
reiðin er stórskemmd eftir
óhappið en hún fór fram af
þriggja metra háum kanti við
ána.
Mikil hálka var á veginum þar
sem bifreiðin ók út af, en skafrenn-
upplýsingum um EES samninginn.
Ari Edwald aðstoðarmaður dóms-
málaráðherra segir að framkvæmd
síðustu alþingiskosninga hafí kostað
ríkið 35 miHjónir króna en forseta-
kosninganna 1988 13,5 milljónir á
núvirði. Að auki kosti gerð Iq'örskrár
4,5 milljónir. Við kosningar til Al-
þingis og forseta greiðir ríkissjóður
kostnað vegna lands- og yfírkjör-
stjóma en sveitarfélögin greiða
kostnað vegna undirkjörstjóma. Jón
G. Tómasson borgarritari segir að
þingkosningamar í fyrra hafí kostað
borgina 11,7 milljónir og hann sé
þá aðeins að tala um framkvæmd-
ina. Hann gerir ráð fyrir að kostnað-
ur sveitarfélaganna hafí alls verið
milli 25 og 30 milljónir.
Sjá frásögn á miðopnu og þing-
síðu bls. 31.
ingur var á þessum slóðum í gær.
Ökumaður bifreiðarinnar missti
stjórn á henni í skafli sem er á
veginum við brúna, og munaði
minnstu að bifreiðin lenti á brúar-
stólpanum, en þá hefði stórslys
getað hlotist af.
Konurnar vom allar í bílbeltum,
og var þeim bjargað út um framrúð-
una á bifreiðinni skömmu eftir að
óhappið varð. Lögreglan á Húsavík
kom á staðinn, og stóð til að ná
bifreiðinni úr ánni í gærkvöldi.
BB
Bílslys á Hólsfjöllum í gærkvöldi
Jeppi ók út í á
ÞYRLA varnarliðsins á Kefa-
víkurflugvelli sótti í gær ungan
sjómann sem hlotið hafði þungt
höfuðhögg um borð í togaran-
um Skafta frá Sauðárkróki þar
sem hann var staddur við veið-
ar tæplega 40 mílur norðaustur
af Langanesi. Sjómaðurinn var
fluttur á Borgarspítalann í
Reykjavik reyndist hann minna
slasaður en óttast var.
Landhelgisgæslunni barst
beiðni um aðstoð frá togaranum
kl. 13.40 og þar sem þyrla Land-
helgisgæslunnar var í hefðbundnu
viðhaldi og eftirliti var björgunar-
sveit vamarliðsins beðin að sinna
málinu. Eitthvað hafði slegist í
höfuð piltsins, sem er innan við
tvítugt, og hafði hann fengið
þungt höfuðhögg.
Tvær þyrlur frá vamarliðinu
ásamt Hercules-vél fóm að togar-
anum og flugu þær með strönd-
inni norður þar sem lágskýjað var
á hálendinu og slæm flugskilyrði.
Nauðsynlegt var talið að koma
hinum slasaða undir læknishend-
ur á sjúkrahúsi í Reykjavík, og
var því flogið með hann til Akur-
eyrar, en þar var hann fluttur um
borð í Hercules-vélina sem síðan
flaug með hann til Reykjavíkur.
Lenti flugvélin á Reykjavíkurflug-
velli rétt fyrir klukkan 20 í gær-
kvöldi.
Horn-
fláki