Morgunblaðið - 06.11.1992, Síða 10

Morgunblaðið - 06.11.1992, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1992 Listasafn ASÍ Árleg fréttaljósmyndasýning HIN árlega fréttaljósmyndasýning World Press Photo verður opnuð í Listasafni ASÍ laugardaginn 7. nóvember kl. 14.00. I fyrsta skipti verður sýningin sýnd 811 hér á íslandi, en vegna stærðar hefur henni verið skipt niður á tvo sýningarstaði, Listasafn ASÍ og Kringluna. Ljósmyndir sýna okkur inn í þann myndir af atburðum á vettvangi heim sem birtist fréttamönnum á íþrótta, vísinda og lista. ferð þeirra um heiminn. Ljósmyndin Árið 1956 stofnuðu þrír hollensk- Meðlimir Vocis Thulis. Morgunblaðið/Kristinn er beitt vopn í áróðri fjölmiðla og þjóða. Hún getur í verulegum mæli haft áhrif á viðhorf fólks til manna og málefna. Hvort sem myndin sýn- ir hörmungar eða gleðilega atburði, þá fer hún nærri því að sýna okkur veruleikann í sinni réttu mynd. World Press Photo sýningin eru Miðaldatónlist og nútímatón- list á tónleikum í Kristskirkju SÖNGHÓPURINN Vocis Thulis og Caput-hópurinn halda tónleika í Akureyrarkirkju á vegum Tónlistarfélags Akureyrar í dag, laugar- daginn 7. nóvember, klukkan 17. Einnig verða hóparnir með tón- leika í Kristskirkju í Reykjavík, þriðjudaginn 10. nóvember, og hefjast þeir tónleikar klukkan 20.30. Á efnisskránni eru fjögur verk eftir eistneska tónskáldið Arvo Part, „Pari Intervallo“, fyrir orgel, „Ein Wallfahrtslied" (Davíðssálm- ur 121) fyrir karlmannsrödd, tvær fiðlur, viólu og selló, „Es sang von langen Jahren“ (Brentano) fyrir kontratenór, fiðlu og lágfíðlu, „De Profundis“ (Davíðssálmur 130) fyrir fjórar karlaraddir, orgel og slagverk. Einnig verður flutt kirkjutónlist úr íslenskum handritum. Messu- kaflamir Kyrie, Sanctus og Agnus dei í einrödduðum gregoríönskum stíl, Credo í íslenskum tvísöngsstíl, tveir tvísöngssálmar, Anda þinn Guð mér gef þú víst og Jesú mín morgunstjarna. Þá verða tvö fjór- rödduð lög: „Felix ille animi“ og Nýjar bækur Ljóðaþýðingar Helga Hálfdanarsonar „LJÓÐ úr austri“ sem hefur að geyma þýðingar Helga Hálfdan- arsonar á kínverskum og jap- önskum ljóðum, er komin út. í bókinni eru saman komin í eitt bindi Kínversk ljóð frá liðnum öldum sem voru gefín út 1973 og Japönsk ljóð frá liðnum öldum sem komu út 1976. Japönsku ljóðin eru að mestu hin sömu og áður, en þeim kínversku hefur fjölgað lítið eitt. í kynningu segir: í tærum ein- faldleika sínum endurspegla þessi ljóð fögnuð og sorgir þjóðanna í hversdagsönn og á skapastundum, ást á föðurlandinu og gleði yfir fegurð þess og frjósemd. „Oft og einatt er andartakinu með nokkr- um hætti teflt gegn hinu eilífa, hið smáa og hverfula metið við óend- anleikann, þó ekki sé nema að fugl fljúgi út í bláinn, eða dropi falli á kyrran vatnsflöt," eins og þýðand- inn kemst að orði í formála. Mál og menning gefur bókina út. Hún er 250 blaðsíðu, prentuð í Prentsmiðjunni Odda hf. Verð 1.980 krónur. „O pater, o hominum“. Að lokum verður flutt verkið „Duo sancto" eftir Hildigunni Rúnarsdóttur (samið. 1990 upp úr Sanctus úr Grallara Guðbrands Þorlákssonar frá 1594) fyrir fíðlu og selló. í fréttatilkynningu segir: Eist- lendingurinn Arvo Párt (f. 1935) hefur átt aukinni velgengni að fagna hin síðari ár og er það e.t.v. ekki síst að þakka hinum sérstæða stíl sem hann hefur þróað í tón- smíðum sínum, sérstaklega eftir 1974 eða þar um bil, sem á sér ríka samsvörun í tónlist miðalda. Sjálfur hefur hann sagt: „Það má líkja tónlist minni við hvítt ljós*, sem inniheldur alla liti. Aðeins eitt prisma getur aðskilið þessa liti og gert þá sýnilega. Þetta prisma er andi þess sem hlustar.““ Með þessum tónleikum er verið að tengja saman tónlist miðalda og nútímans, og sýna fram á skyld- leikann þar á milli. Ennfremur seg- ir í fréttatilkynningu: Ekki er víst að fólk átti sig á að í íslensku handritunum voru ekki aðeins bók- stafír, heldur einnig nótur. Hér gefst því gullið tækifæri til að heyra íslenska tónlist allt aftur á 13. öld sem sum hver hefur ef til vill ekki heyrst opinberlega í aldir. Flytjendur á tónleikunum eru Sverrir Guðjónsson, kontratenór, Sigurður Halldórsson, kontratenór og selló, Guðlaugur Viktorsson, tenór, Eggert Pálsson, baritón og slagverk, Ragnar Davíðsson, bassi, Hildigunnur Halldórsdóttir og Zbignev Dubik, fíðlur, Guðmundur Kristmundsson, lágfíðla og Hilmar Örn Agnarsson, orgel. ir fréttaljósmyndarar til alþjóðlegrar samkeppni um bestu blaðaljósmynd- irnar. Þessi óformlegu samtök fréttaljósmyndara urðu smám sam- an að stofnuninni World Press Photo Foundation. dómnefnd hveiju sinni er skipuð valinkunnu fólki úr blaða- útgáfu og ljósmyndaheimi. Árlega er valin fréttaljósmynd ársins auk verðlauna í fjölmörgum flokkum. Fyrstu verðlaun er styttan „Gullna augað“. Myndirnar á þess- ari sýningu eru valdar úr 17.887 myndum frá ljósmyndurum í 75 löndum. Til samanburðar má geta þess að í World Press Photo 1982 bárust 5319 myndir frá ljósmyndur- um í 51 landi. Auk áðurgreindra verðlauna eru veitt verðlaun sem kennd eru við Oskar Bamack, upphafsmann Leica- myndavélarinnar, fyrir þá ljósmynd sem túlkar best hugsjón mannúðar og samband manns og umhverfís. Einnig eru veitt verðlaun Búdapest- borgar fyrir ljósmynd sem sýnir já- kvæðar aðgerðir til varðveislu lífs á jörðinni. Sérstakur barnadómstóll velur mynd ársins, þar sem ljós- myndin er skoðuð út frá sjónarhóli barnsins. Listasafn ASI hvetur íslenska ljós- myndara eindregið til að taka þátt í þessari alþjóðlegu samkeppni. Þátt- tökubæklingar liggja frammi í Lista- safni ASÍ. World Press Photo sýn- ingin hefur verið árlegur viðburður í Listasafni ASÍ um 10 ára skeið. Á sýningunni er árbók WPPh til sölu. í fréttatilkynningu er íslenskum styrktaraðilum þökkuð veitt aðstoð við að gera sýninguna að veruleika. Kringlunni og Hans Petersen, um- boðsaðila Kodak og Canon er þakkað sérstaklega, en sýningin er styrkt af Kodak, Canon og hollenska flug- félaginu KLM. Sýningin verður opin alla sýning- ardaga í Listasafni ASÍ kl. 14.00- 22.00. Sýningin hefst 7. nóvember og lýkur sunnudaginn 22. nóvem- ber. Sýningin í Kringlunni byijar 9. nóvember og stendur til 18. nóvem- ber. Hún er opin á venjulegum opn- unartíma Kringlunnar og aðgangur ókeypis. Allir eru velkomnir á þessa alþjóðlegu sýningu á fréttaljósmynd- Mynd ársins 1991 hjá World Press Photo. Víkingasýning í Berlín Islensk tónlist í öndvegr íslenskir tónlistarmenn verða með tónleika í tengslum við Víkinga- sýninguna í Berlín. Tónleikarnir verða haldnir í Schlíitersal í Pala- is Ephraim 7. og 8. nóvember næstkomandi. Guðni Franzson klarinettuleikari og Kolbeinn Bjarnason flautuleikari eru með tónleika 7. nóvember og leika verk eftir Lárus H. Grímsson, Þórólf Eiríksson, Gerhard Klemke, Þorstein Hauksson, Magnús Blöndal Vasa í Finnlandi Vel heppnuð íslandskynning Borgaryfirvöld í Vasa í Finn- landi stóðu fyrir viðamikilli ís- landskynningu dagana 20.-25. október. Tilefnið var opnun nýja Finnska leikhússins í borginni og voru opnunarsýningarnar ís- lenskar; Dagur vonar í flutningi finnskra leikara og Bandaman- nasaga, leikgerð Sveins Einars- sonar sem frumsýnd var á Lista- hátíð í Reykjavík í júní sl. Forseti íslands, frú Vigdís Finn- bogadóttir, var viðstödd opnunina í boði borgaryfírvalda í Vasa og flutti forsetinn hátíðarræðu við opnun leikhússins. Sýningar af ýmsum toga um íslands fóru fram á átta stöðum í borginni og fjölmiðl- ar gerðu íslandi góð skil þessa daga. Sýndar voru íslenskar kvik- myndir í svæðissjónvarpi sem eins konar forspil að menningardögun- um sem forseti íslands setti form- lega þann 22. október. Forsetinn, Frú Vigdís Finnboga- dóttir, hélt auk þess blaðamanna- fund, hitti fínnska rithöfunda að máli, fór í heimsókn á sænskumæ- landi bamaheimili og heimsótti ABB Strömberg sem er aðalverk- Persónur Bandamannasögu bregða á leik. smiðjan í Vasa. Guðrún Jónsdóttir bókasafnsfræðingur hélt fyrirlestra um íslenskar bókmenntir, menn- ingu og og Lars-Ake Engblom for- stjóri Norræna hússins í Reykjavík hélt málþing um sérstöðu íslenskra fjölmiðla í norrænu samhengi. íslensku leiksýningunum var mjög vel tekið og skrifuðu gagn- rýnendur lofsamlega um Banda- mannasögu og þar kom m.a. ósk um að Bandamannasaga yrði sýnd á Listahátíð í Helsinki næsta sum- ar. Bandamannasaga verður sýnd á norrænni menningarhátið í Lond- on nú í nóvember og síðar verur haldið til Kaupmannahafnar, Stokkhólms og Færeyja. Sýningarnar voru sendar til Finnlands fyrir milligöngu Nor- ræna hússins í Reykjavík í sam- vinnu við Upplýsingaskrifstofu Norræna félagsins í Vasa. Jóhannsson, Atla Heimi Sveinsson og Þorkel Sigurbjörnsson. Sigurður Bragason baritónsöngv- ari er með tónleika 8. nóvember og syngur við undirleik Hjálms Sig- hvatssonar píanóleikara, lög eftir Jón Leifs, Atla Heimi Sveinsson, Árna Bjömsson og fleiri. f fréttatilkynningu segir að menn- ingarstofnanir í Berlín hafí staðið fyrir ýmsum íslenskum menningar- viðburðum í tengslum við víkinga- sýninguna meðal annars sýningum á kvikmyndum eftir Guðnýju Halldórs- dóttur, Hrafn Gunnlaugsson og Frið- rik Þór Friðriksson. Ennfremur hafa Iðunn og Kristín Steinsdætur rithöf- undar lesið upp úr verkum sínum. Víkingasýningin í Berlín var opnuð 1. september síðastliðinn. Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra og Hjálmar W. Hannesson sendiherra fslands í Þýskalandi voru viðstaddir opnunina. í veglegri sýningarskrá eru ritgerðir eftir dr. Jónas Kristjáns- son og dr. Þór Magnússon. Sýningin stendur til 15. nóvember. Eins og áður hefur komið fram í fréttum gaf menntamálaráðherra torgi í Rehbrucke við Potsdam nafn Jóns Leifs tónskálds, 3. september síðastliðinn. Menningaryfírvöld í Potsdam hafa boðið ofangreindum tónlistarmönnum að halda tónleika í Klub der Kunstler í Potsdam. Tón- leikar Guðna Franzsonar og Kolbeins Bjarnasonar verða 8. nóvember, en Sigurður Bragason og Hjálmur Sig- hvatsson verða með tónleika 9- nóv- ember.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.