Morgunblaðið - 06.11.1992, Síða 18

Morgunblaðið - 06.11.1992, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1992 Öfugmælaskáld- skapur aldarinnar „ Allt fyrir ekkert“ eftir Hannes Jónsson Greindur og reyndur eldri vinur minn sagði nýlega, að grófasti öfug- mælaskáldskapur þessarar aldar á íslandi væri setningin „allt fyrir ekkert" sem lýsing á niðurstöðum EES-samningaviðræðnanna. Þetta urðu fieyg orð EES-sinna eftir sam- komulagið 21. október 1991, sem samþykkt var eftir breytingar á dómstólaþættinum 14. febrúar 1992 og undirritað í Oporto 2. maí 1992. Þá var líka skipst á orðsend- ingum milli íslands og EB um efnis- inr.ihald fískveiðisamkomulagsins, sem var hluti af upphaflegu samn- ingsniðurstöðunni 21. október 1991. Rökræn athugun á heildarhags- munum íslands gagnvart EES, gjöldum og tekjum, fómarkostnaði og ábata, sýna svo ekki verður um villst, að það er svo langt í frá að við fáum „allt fyrir ekkert", að það þarf annað hvort mikla skáldskap- argáfu eða fádæma fráfræði og óraunsæi til þess að halda slíku fram. EES-samningurinn sjálfur er besta sönnunin fyrir réttmæti þess- arar skoðunar. I bókhaldi þarf að færa bæði gjöld og tekjur. Annars verður upp- gjörið rangt. Að vísu gætir alltaf nokkurrar ónákvæmni, þegar áætl- að er inn í framtíðina. Nákvæmnin verður þó því meiri því traustari grunnurinn er, sem reiknað er út frá^ Áhrif EES-samningsins má í megindráttum meta út frá ákvæð- um samningsins sjálfs annars vegar en hins vegar út frá einkennum íslensks efnahagslífs. Við skulum því í þessari grein skoða meginatr- iði fórnarkostnaðarins - og megin- atriði ábatans verða efni annarrar blaðagreinar, eins og hvort tveggja má lesa út úr EES-samningnum og íslenskum efnahagsveruleika til þess að sannreyna hvort við fáum „allt fyrir ekkert" með EES. Fyrsti fórnarkostnaðurinn: Landhelgin opnuð Að kröfu EB var forsenda fyrir samþykki EES-samningsins, að gerður yrði sérsamningur við Island og Noreg um veiðiheimildir í lög- sögu þeirra gegn tollalækkun sjáv- arafurða á EB-markaði. í landhelg- isdeilunum við okkur var sjónarmið gömlu nýlenduveldanna, sem nú eru innan EB, að þeir ættu sama rétt og við til að nýta auðlindir hafsins umhverfís landið, af því að utan þröngra marka væri sjórinn „opið haf“, „almenningur", sem aðrir en við hefðu líka fullan rétt til að nýta. Okkar sjónarmið var, að við einir ættum auðlindina í sjónum út að sanngjömum mörkum, sem í einu þorskastríði af öðm vom talin vera 4, 12, 50 og loks 200 mílur. Þróun hafréttarins var okkur hagstæð. Gamla hafréttarsjónarmið nýlenduveldanna innan EB á sér nú enga formælendur og í dag viðurkenna allir 200 sjómílna efna- hagslögsögu okkar, þótt EB-ríkin hafí enn ekki staðfest hafréttarsátt- mála SÞ. Gömlu rányrkjuviðhorf nýlendu- veldanna em þó ekki dauð. Þau endurspeglast í þeirri stefnu EB að á móti tollalækkun á sjávarafurðum skuli koma veiðiheimildir í lögsögu fískútflytjandans, þ.e. auðlind á móti markaðsgengi. Þetta hafa þeir boðið okkur Islendingum upp á í sjávarútvegssamningi allt frá árinu 1972. Ágreiningslaust hefur verið þar til nú að hafna þessu. En með nótuskiptum 2. maí 1992 samþykk- ir utanríkisráðherra þetta gmnd- vallarsjónarmið EB í verki. Efnis- lega er samþykkt að leyfa rányrkju- flota EB að veiða innan íslenskrar efnahagslögsögu ' 3.000 tonn af karfa, þótt vitað sé, að flotar EB falsi allar aflatölur, veiðieftirlit sé erfítt og landhelgisgæsla okkar að rýrna vegna fjársveitis. í orði kveðnu er látið heita svo að þetta séu skipti á veiðiheimildum. Á móti eigum við að fá að veiða 30.000 tonn af óveiðanlegri „pappírsloðnu" við Grænland, sem EB-ríkin hafa keypt þar en ekki getað veitt síð- ustu 6 árin. Og hvers vegna ekki? Einfaldlega vegna þess að við Grænland er hún í óveiðanlegu ástandi. Þá fyrst þegar hún er kom- in inn í íslenska lögsögu hefur hún verið veiðanleg og þar þurfum við ekki að kaupa hana af neinun. Þar að auki skuldbindum við okkur til að breyta eigin landslögum þannig, að flotar EB fá sam- keppnisjafnréttisaðstöðu á við ís- lenska flotann í íslenskum höfnum. Lagafmmvarp í þeim dúr liggur þegar fyrir Alþingi. Samkvæmt því og 1., 4. og 81. gr. EES-samnings- ins gæti því hver sem er á EES- svæðinu sett upp þjónustumiðstöðv- ar við flotann og t.d. fiskmarkaði í íslenskum höfnum og rekið á jafn- réttisgrandvelli við íslendingana. Að opna landhelgina og íslenskar hafnir á þennan hátt fyrir rányrkju- flota EB er svo mikill fómar- kostnaður, að þegar af þeirri ástæðu er EES-samningurinn óað- gengilegur. Þótt utanríksiráðherra hafí samþykkt stefnubreytinguna um að láta auðlind fyrir markað, opna landhelgina fyrir rányrkju- flota EB og fóma þannig sigmm okkar í landhelgismálinu gegn ofur- efli stærstu EB-ríkjanna, þá hefur þjóðin aldrei samþykkt hana. Von- andi em nógu margir sjálfstæðir og sómakærir þingmenn á Alþingi til þess að fyrirbyggja samþykki slíkra afarkosta, sem ganga þvert á okkar lífshagsmuni. Önnur fórnin: Takmarkað fullveldisafsal Hitt er ekki síður alvarlegt, að EES-samningurinn gerir ráð fyrir því, að við fómum hluta af full- veldisrétti okkar á samningssviðinu og undirgöngumst skrifræðisveldið í Bmssel og laga- og reglugerða- frumskóg þess. Auk lögtöku EES- samningsins, viðauka hans og „gerða“ er gert ráð fyrir því, að allt að 70% af EB-réttinum komi til með að gilda hér á landi á samn- ingssviðinu, án þess að við höfum átt nokkurn þátt í að móta þennan lagagrandvöll. I 2. gr. fmmvarps til laga um EES em tekin af öll tvímæli um Hannes Jónsson „Halda menn í alvöru að samning’ur, sem fel- ur í sér alla þessa ókosti, og reyndar langtum fleiri, sé ís- lenskri þjóð til hags- bóta og heilla?“ þetta. Þar segir: „Meginmál EES- samningsins skal hafa lagagildi hér á landi.“ Síðan er bætt við að sama gildi um tilteknar bókanir og við- auka. Svo kemur 3. grein. Þar stendur svart á hvítu: „Skýra skal lög og reglur... til samræmis við EES-samninginn og þær reglur, sem á honum byggja." Og í 4. gr. lagafrumvarpsins um EES er ráð- herra svo veittur réttur til þess að setja „reglur þar sem nánar er kveð- ið á um framkvæmd EES-samn- ingsins". Sjálfur samningurinn segir svo, að „við framkvæmd og beitingu ákvæða samnings þessa“ ber „að túlka þau í samræmi við úrskurð dómstóls Evrópubandalaganna“ svo sem segir í 6. gr. og að um 1400 „gerðir“, sem vísað er til í viðaukum eða síðari ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar skuli, sam- kvæmt 7. gr., „binda samningsaðila og em þær að verða teknar upp í landsrétt." Sama gildir um gerðir, sem samsvara reglugerðum og til- skipunum EB. Sköpunarverk laga- og reglu- gerðarfmmskógar EB, sem við emm flækt í, er svo kórónað með bókun 35 um framkvæmd á reglum EES, en þar segir í 1. gr.: „Ef upp kemur misræmi milli EES-reglna, sem hafa verið lögfestar og annarra ákvæða í lögum, skuldbinda samn- ingsaðilar sig til að innleiða, eftir því sem þörf krefur, ákvæði í lög þess efnis, að reglur EES gildi í því tilviki." Hvað þýðir þetta í raun og veru? Ákvæði sjálfs samningstextans eiga að hafa forgangsgildi fyrir landsrétti, ef þau stangast á við íslensk lög. EB-rétturinn ríki, lands- réttur víki. Við gildistöku EES þyrfti svo að breyta um 80 íslensk- um lögum eða setja ný í samræmi við EB-réttinn. Einnig þarf að lög- taka óbreyttar allar nýjar réttar- reglur EB á samningssviði EES, sem settar kunna að vera í framtíð- inni. Varðandi allt slíkt er Alþingi niðurlægt í að verða einföld af- greiðslustofnun, svift frumkvæði til lagasetningar eða lagabreytinga á samningssviði EES, má ekki breyta stafkrók í hinum aðsendu erlendu lögum, bara segja já og amen eða nei með þeim erfiðu eftirköstum sem fylgdu samkvæmt 127. gr. Þessu til viðbótar er bæði fram- kvæmdavald og dómsvald að hluta til framselt úr landi til Eftirlits- nefndar EFTA, sameiginlegu EES- nefndarinnar og erlends dómstóls samkvæmt 108.-110. gr. EES- samningsins. Fyrir smáríki eins og ísland er þetta takmarkaða fullveldisafsal, bæði á sviði löggjafarvalds, dóms- valds og framkvæmdavalds á sviði EES-samningsins, allt of mikill fórnarkostnaður jafnvel þótt í boði væri full fríverslun með fisk, sem ekki fékkst heldur aðeins smávægi- legar tollalækkanir á sjávarafurð- um á Evrópumarkaði. Að tala um samning af þessu tagi sem venju- legan viðskiptasamning er fásinna. Ef EES-samningurinn verður samþykktur munum við lenda í ánauð á samningssviðinu undir skrifræðisveldi EES og EB og flækjast í þéttan laga- og reglu- gerðarfrumskóg þeirra með þeim takmörkunum á sjálfstæðri ákvarð- anatöku, frumkvæði til lagasetn- ingar, fullveldi landsréttar og inn- lends dómsvalds, sem því mundi fylgja. Enginn fjárhagslegur ábati gæti réttlætt takmarkað fullveldis- afsal af þessari stærðargráðu. Einnig þessi ástæða, ein út af fyrir sig, ætti að nægja til þess að sjálf- stætt hugsandi þingmenn, sem virða stjórnarskráreiðstaf sinn, hafni EES-samningnum. í I i > l i \ 1200 til 1500 ný störf eftir Rafn Ben. Rafnsson Mikið hefur verið rætt og ritað um slæmt atvinnuástand okkar íslend- inga. Vandinn er staðreynd og er ástæða til þess að hafa af þessu miklar áhyggjur og reyna að leita leiða til þess að snúa ofangreindri þróun við. Á hverju ári flytja íslendingar inn iðnvarning í samkeppni við innlend fyrirtæki, sem nemur um það bil 5.800 ársverkum. Hvert starf í iðn- aði er talið gefa af sér 4 störf í þjón- ustugreinum þannig að hér erum við að tala um 29 þúsund störf sem flutt em inn á hverju ári. Á húsgagna- og innréttingamark- aði em árlega fluttar inn vömr fyrir um 4 milljarða íslenskra króna. Mið- að við meðallaun í greininni og hlut- fall launa í útsöluverði þýðir þetta 700 störf í iðnaði auk 2.800 starfa í þjónustugreinum eða samtals 3.500 störf sem flutt em inn árlega í þess- ari grein. í þessu samhengi er fróðlegt að líta til nágrannaþjóða okkar og velta fyrir sér viðhorfi markaðarins til innflutnings annars vegar og inn- lendrar vöru hins vegar og bera það saman við viðhorf íslendinga til sam- bærilegra mála. Fyrir fáeinum vikum var haldinn „Með jákvæöari heima- markaði og bættum ytri skilyrðum hefur ís- lenskur húsgagna- og innréttingaiðnaður alla burði til þess að auka hlutdeild sína á mark- aðnum og skapa þannig aukin atvinnutækifæri. Þetta gæti einnig orðið til þess að forsendur sköpuðust til þess að flytja út íslenska hönn- un.“ fundur hér á íslandi með norrænum húsgagna- og innréttingaframleið- endum. Eitt af þeim málum sem ég ræddi sérstaklega við þá var viðhorf markaðarins til innlendrar fram- leiðslu hjá hveijum fyrir sig. Öllum bar saman um að þeir ættu það sam- eiginlegt að búa við mjög jákvæðan en um leið kröfuharðan heimamark- að. Þessar aðstæður töldu þeir meg- inforsendu fyrir velgengni þarlendra fyrirtækja og gmndvöll fyrir þvf að hægt væri að flytja út húsgögn og innréttingar. Kynni mín af íslenska markaðnum em þau að í alltof mörgum tilfellum er innflutningur tekinn fram yfír innlenda framleiðslu og skiptir þá einu hvort innlendir framleiðendur séu samkepppnisfærir í verði og gæðum. Hugur manna stendur til þess að kaupa innflutt og menn telja það fínt að skreyta sig með erlendum vömm, jafnt í opinberum byggingum sem annars staðar. Að mínu mati er hér helst úrbóta þörf. Það þarf að koma til aukinn skilningur á því hvað felst í því að kaupa innfluttar vörur í stað þess að velja íslenskar vörur og hvaða áhrif það hefur. Með jákvæðari við- horfí og auknum skilningi er hægt að fjölga störfum vemlega í okkar iðngrein án þess að markaðurinn þurfi að slá af kröfum hvað varðar verð og gæði. Þau fyrirtæki sem helst standa upp úr í okkar iðngrein eiga það sameiginlegt að hafa stundað öflugt vömþróunar- og markaðsstarf. Með auknu samstarfi fyrirtækja og ís- lenskra hönnuða hefur skapast nýr starfsvettvangur fyrir hönnuði. Hönnuðir og arkitektar em famir að sýna því meiri áhuga en áður að taka þátt í samstarfi við fyrirtæki í nýhönnun og vöruþróun. Ef við skoð- um sérstaklega hvaða hagsmunir hönnuðir hafa í þessu máli, ef vel tekst til, er hér um verulega tekju- Rafn Ben. Rafnsson lind fyrir þá að ræða. íslenski mark- aðurinn veltir árlega um 10 milljörð- um króna. Tekjur hönnuða af þess- um markaði, miðað við að þeir fengju 2-3% af útsöluverði, gæti því numið allt að 300 milljónum króna á ári. íslenskur samkeppnis- og útflutn- ingsiðnaður hefur búið við mun lak- ari rekstrarskilyrði en þekkist í sam- keppnislöndum okkar. Einnig hafa þessar iðngreinar átt undir hogg að sækja gagnvart öðmm greinum á Islandi með rekstrarskilyrði. Þessar aðstæður hafa leitt það af sér að mjög erfítt hefur verið að stunda atvinnurekstur í samkeppnisiðnaði, eins og dæmin sýna. Takandi tillit til þessara aðstæðna verður að segjast þegar á heildina er litið að íslenskur húsgagna- og innréttingaiðnaður hefur staðið sig nokkuð vel í samkeppni við innflutn- inginn. Þetta er ekki síst að þakka góðri aðlögunarhæfni ásamt öflugu vömþróunar- og markaðsstarfi. k Eitt stærsta hagsmunamál grein- arinnar í dag er ákvörðun um hvort Islendingar munu taka þátt í hinu . Evrópska efnahagssvæði. Með þátt- ’ töku munu starfsskilyrði okkar verða samræmd við það sem gerist > í samkeppnislöndum okkar og um * leið mun það styrkja stöðu okkar til muna. Með jákvæðari heimamarkaði og bættum ytri skilyrðum hefur íslensk- ur húsgagna- og innréttingaiðnaður alla burði til þess að auka hlutdeild sína á markaðnum og skapa þannig aukin atvinnutækifæri. Þetta gæti einnig orðið til þess að forsendur sköpuðust til þess að flytja út ís- lenska hönnun. Markaðurinn á Norð- urlöndum veltir árlega 300 þúsund milljónum, eða þreföldum íslensku fjárlögunum. Miðað við þær forsend- ur sem ég hef rakið er það augljóst að hér er um mikla hagsmuni að ræða. Hagsmuni sem kalla ekki á i aukið fjármagn úr hendi hins opin- bera, heldur tekjur fyrir ríkið, 1.200 til 1.500 ný störf og það eina sem k þarf til eru ný og breytt viðhorf ’ markaðarins til innlendrar verð- mætasköpunar. > Höfundur er formnður Félngs húsgngna- og innréttinga- framleiðenda.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.