Morgunblaðið - 06.11.1992, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1992
37
J
1
l
j
Mikið var klappað á þinginu og mest i kosningunum og þá að rússneskum hætti.
43. ársþing LH
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Nýlqörna aðalstjórn LH skipa, aftari röð frá vinstri Jón Bergsson,
Kristmundur Halldórsson, Sigbjörn Björnsson, Halldór Gunnarsson
og fremri röð frá vinstri Guðbrandur Kjartansson, varaformaður,
Guðmundur Jónsson, formaður, og Sigfús Guðmundsson, gjaldkeri.
, Upphafið að samein-
ing-u LH og HÍS?
Hestar
Valdimar Kristinsson
EKKI var annað að sjá og heyra í lok ársþings Landsambands hesta-
mannafélaga en að friður og spekt ríkti innan samtakanna. Sjálf-
sagt sá andi sem fráfarandi formaður Kári Amórsson hefur kosið
að skilja eftir við stjórnvölinn. Það hefur gengið á ýmsu síðasta
áratuginn hjá LH. Þingið í fyrra þótti rislítið og þóttust menn þar
greina óánægjuöldu sem ekki hefði þó komist almennilega upp á
yfirborðið. Nú var annað upp á teningnum.
Kári formaður gaf kannski rétta
s tóninn við þingsetninguna er hann
I ræddi framtíð samtakanna. Varð
honum þar tíðrætt um hugsanlegan
samruna LH og Hestaíþróttasam-
bands íslands og fer þeim fjölgandi
sem telja óhjákvæmilegt að hesta-
menn endi í einum sterkum land-
samtökum. Samþykkt var tillaga
frá nokkrum norðlendingum um að
stjóm LH skipi nefnd sem kanni
kosti og galla þess að sameina. Er
nefndinni gert að skila áliti fyrir
1. febrúar nk. og verði það kynnt
félögum sem skili aftur inn áliti til
nefndarinnar fyrir 1. júní nk. Að
síðustu á nefndin að skila niðurstöð-
um til ársþings LH á næsta ári.
Meirihiutavilji hestamanna náði
ekki í gegn. Tvær lagabreytingar
lágu fyrir þinginu og voru báðar
felldar naumlega þó. Varð mörgum
hugsað til lagaákvæðis sem segir
að 'A mættra fulltrúa þurfi að
greiða lagabreytingum atkvæði sitt
svo þær nái fram að ganga. Tillaga
um fækkun þinga féll á þremur
ógreiddum atkvæðum og tillaga um
að fella úr gildi lagaskyldu þess að
samtökin gefi út tímarit, vantaði
þijú atkvæði. Margir sátu hjá og
kom fram spuming hvort þingfor-
seti hefði ekki átt að kynna betur
en gert var að þeir sem sætu hjá
greiddu í raun atkvæði á móti tillög-
unum. Einnig vaknaði sú spuming
hvort ekki væri ástæða að breyta
lögunum þannig að það væm 'A
af þeim þingfulltrúum sem greiða
atkvæði sem þyrftu að samþykkja
lagabreytingar. Með því móti ráða
þeir einir úrslitum sem taka afstöðu
til lagabreytinga. Væri skynsam-
legt að nýkjörin stjórn hugleiddi
þetta. En svo vikið sé aftur að
þingfækkunartillögunni vakti það
J athygii að hún skyldi ekki sam-
þykkt þar sem 70% þeirra félaga
i sem höfðu sent inn álit á þessari
• tillögu á árinu, höfðu lagt til að
þingum yrði fækkað. Er greinilegt
Iað sumir þingfulltrúa fara ekki eft-
ir því sem meirihlutinn í félögunum
óskar. Þá vakti athygli að einum
þingfulltrúa sem mælti gegn fækk-
un þinga varð tíðrætt um grasrótina
Jónsson, Geysi, og Bjarni Ans-
nes, Smára, til hægri, stóðu sig
með miklum ágætum og stjórn-
uðu af festu og öryggi.
í samtökunum og taldi að hún ætti
að ráða ferðinni. Þó láðist honum
að geta þess að á almennum fundi
í hans eigin félagi var samþykkt
að mæla með fækkun þinga þannig
að þessi fulltrúi lítur greinilega svo
á að grasrótin nái ekki lengra en
til þingfulltrúanna. Nú vantar að-
eins herslumuninn á að fækkun
þinga nái fram að ganga og má
telja líklegt að það takist á næsta
þingi ef vel verður að afgreiðslunni
staðið. Það má teljast undarlegt ef
meirihlutavilji hins almenna hesta-
manns nær ekki fram að ganga á
fulltrúaþingi í lýðræðislegum sam-
tökum. Reiðvegamál voru aðal
þema þingsins og fluttar framsögu-
ræður af því tilefni sem ekki voru
í sjálfu sér stórmerkilegar. Að þeim
loknum fóru fram pallborðsumræð-
ur sem leiddu til þeirrar niðurstöðu
að það sem skortir fyrst og fremst
til að skikk komist á gerð reiðvega
er góð reiðvegaáætlun. I framhald-
inu var samin tillaga í ferða- og
umhverfisnefnd þar sem stjóm LH
er heimilað að ráða sérfróðan mann
til sex mánaða, sem hafi það hlut-
verk að safna saman öllum hugsan-
legum upplýsingum um reiðvegi og
semja reiðvegáætlun. Sagði fulltrúi
Vegagerðarinnar, Jón Birgir Jóns-
son aðstoðarvegamálastjóri, að slík
áætlun myndi auðvelda allt sam-
starf Vegagerðarinnar og LH í
þessum efnum sem að margra mati
hefur ekki tekist nógu vel til þessa
þrátt fyrir samninga sem gerðir
voru fyrir nokkrum árum.
Fjörlegt í kynbótanefndinni
Nokkrar tillögur um keppnisreglur
voru samþykktar og má þar nefna
að nú verður hrossaræktarbúum og
hrossaræktarsamböndum heimilt
að sýna hross í gæðingakeppni
hestamannafélaga svo fremi sem
forráðamaður eða eigendur séu
félagar í hestamannafélagi. Er þessi
tilkominn vegna deilna sem spruttu
upp þegar Hólamenn reyndu að
koma hestum í gæðingakeppni á
Hestamóti Skagfirðinga sl. sumar.
Samþykkt var að skipa nefnd sem
ynni að tölvuvæðingu gæðinga-
dóma og önnur nefnd sem yfirfæri
og bætti ritað efni sem notað er til
kennslu á dómaranámskeiðum.
Nefndin tæki einnig fyrir myndefni
sem til er og leggði á ráðin um
öflun frekara efnis. Þá var sam-
þykkt að dómarar sem vilja halda
réttindum sínum verða að fara ár-
lega á æfinganámskeið áður en
keppnistímabilið hefst hvert ár.
Fjörleg umræða varð í kynbóta-
nefnd eins og venjulega. Ein tillaga
var felld í nefndinni þar sem gert
var ráð fyrir að málsaðilar myndu
hefja umræður um að breyta dóm-
kerfinu þannig að það samræmdi
betur kröfur til byggingar og hæfí-
leika hrossa, tæki aukið mið af
þörfum markaðarins og dragi úr
umhverfisáhrifum á einstaka dóm-
þætti. Þingið mótmælti harðlega
áformum ríkisstjómarinnar um sölu
á Stóðhestastöð ríkisins og var
skorað á landbúnaðarráðherra að
beita sér gegn siíkum áformum.
Þá fór þingið þess á leit við Fram-
leiðnisjóð að sjóðurinn styrkti stóð-
hestastöðina til að ljúka uppbygg-
ingu hennar. Af öðrum samþykkt-
um má nefna að lagt var til að LH
og HÍS skipi sameiginlega nefnd
er fari með málefni barna og ungl-
inga innan samtakanna og verði
nefndin unglingafulltrúa LH til
ráðuneytis. Þá var samþykkt að LH
beiti sér fyrir því að hestamenn
noti reiðhjálma í keppni og sýning-
um. Einnig að félögin beiti sér fyr-
ir almennri notkun reiðhjálma og
endurskinsmerkja. Ennfremur var
samþykkt að skipa þriggja manna
nefnd sem fylgist með þróun mála
varðandi lyfjaeftirlit vegna keppnis-
hrossa og vera ráðgefandi um fram-
kvæmd. Samþykkt var að skipa
milliþinganefnd sem hugi að breyt-
ingum á keppnisfyrirkomulagi gæð-
ingakeppninnar þannig að hún verði
áhugaverðari. Jafnframt skal stjóm
LH sjá til þess að nýtt fyrirkomulag
verði reynt á næsta ári og álitsgerð
skilað á næsta ársþingi.
Kosningar með austrænum
blæ
Til marks um það hversu mikil
eining ríkti orðið í lok þingsins fóru
kosningamar fram sem aldrei fyrr
í sögu LH. Guðmundur Jónsson,
Herði, var kosinn formaður með
lófaklappi, sömuleiðis nýr varafor-
maður Guðbrandur Kjartansson,
Fáki, og meðstjórnendurnir Jón
Bergsson, Freyfaxa, Halldór Gunn-
arsson, Feyki, og Kristmundur
Halldórson, Gusti, sem kom nýr inn
í aðalstjórn en hafði áður verið í
varastjórn. Hafði þingforseti á orði
að framvinda mála væri orðin með
austrænum blæ og kunni hann þvi
vel. Ekki gengu málin svo ljúft fyr-
ir sig þegar kom að kjöri vara-
manna í stjórn en þar var stungið
upp á sjö manns en fímm átti að
kjósa. Kjöri náðu Ágúst Oddsson,
Sörla, Marteinn Valdimarsson,
Glað, Sigurgeir Bárðarson, Geysi,
Stefán Bjamason, Létti, og Kolbrún
Kristjánsdóttir, Hring, sem er jafn-
framt eini kvenmaðurinn í þessu
karlasamfélagi sem stjórn samtak-
anna er og. hefur verið síðustu árin.
Ekki er hægt að skilja svo við árs-
þingið að ekki sé getið frísklegs
málflutnings Alberts Jóhannssonar
fyrrverandi formanns LH og fyrrum
ritstjóra Hestins okkar. Brýndi
hann fyrir mönnum með eftirminni-
legum hætti í upphafi þings og
minnti á að ef hlutirnar eiga að
ganga þarf að vinna í þeim og sé
það þá fyrst og fremst spuming
um einlægan vilja til að vinna verk-
in.
Sérstakt tilboð
á klæðaskápum!
Takmarkað
magn!
Hvítir klæðaskápar
Hæð: 205 cm
Breidd: 100 cm
Dýpt: 56 cm
G ásar
Borgartúni 29, Reykjavík
Sími: 62 76 66 og 62 76 67