Morgunblaðið - 19.11.1992, Blaðsíða 2
2 C
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1992
Iðnaður
íslenska saltfélagið
færlán uppá
355milljónir króna
Heilsusalt gæti komið í verslanir fyrir áramót
HLUTHAFAR í Saga Food Ing-
redients (SFI), sem er eigandi Is-
lenskra saltfélagsins, og íslenskar
og danskar fjármagnsstofnanir
hafa ákveðið að veita fyrirtækinu
tímabundin lán upp á 355 milljónir
íslenskra króna. Að sögn Wilmars
F. Fredriksen framkvæmdastjóra
SFI var nauðsynlegt að styrkja
fjárhagsstöðu fyrirtækisins vegna
þess að hönnun saltverksmiðjunn-
Fyrirtæki
Flugskfli
Flugleiða
senn tilbúið
STEFNT er að því að flutningur
tæknideildar Flugleiða í nýtt flug-
skýli félagsins á Keflavíkurflug-
velli hefjist um miðjan desember
og er fyrsta skoðunin fyrirhuguð
í janúar. Hefur bygging skýlisins
gengið samkvæmt áætlun þrátt
fyrir smávægilegar tafir.
Framkvæmdir við flugskýlisbygg-
inguna hófust 16. október á sl. ári
og er heildarkostnaður áætlaður um
14,9 milljónir dollara (880 milljónir
kr.). Reiknað er með að endanlegur
kostnaður nemi 98% af upphaflegri
áætlun í dollurum talið þrátt fyrir
nokkur viðbótarverk sem hafa verið
samþykkt. Heildarflatarmál bygg-
ingarinnar er ails um 12.400 fer-
metrar.
ar var aðeins flóknari en gert var
ráð fyrir i upphafi og einnig hafi
verið nauðsynlegt að fara út í
meiri fjárfestingar til að hraða og
auka framleiðslu heilsusalts eins
og unnt væri.
íslenska saltfélagið er í eigu 9
aðila. Þar á meðal eru 4 af stærstu
lífeyrissjóðum í Danmörku með sam-
tals 50% hlutafjár, Den danske bank
með 15,6%, Sodinol Proteins með
19,4%, Burðarás með 6,25%, Iðnlána-
sjóður með 6,25% og Þróunarfélagið
með 2,5%.
Hluthafar veita fyrirtækinu lán án
ábyrgða upp á 250, milljónir króna
en 105 milljónir eru almenn lán frá
íslenskum og dönskum ijármagns-
stofnunum. Við þetta breytist eignar-
hlutfall. hlutahafa ekki.
Wilmar segir að hollenska fyrir-
tækið Akzo sem sér um markaðsetn-
ingu heilslusaltsins hafi þegar fengið
sýnishom af framleiðslunni og við-
tökur Akzo hafi verið mjög lofandi.
Hann segir að Akzo stefni að því að
setja heilsusaltið í verslanir í Skand-
inavíu eftir jól en það verði hugsan-
lega fáaniegt hér á landi á öðrum
ársfjórðungi næsta árs.
í samræmi við aukna áherslu fyrir-
tækisins á framleiðslu heilsusalts
hefur verið ákveðið að Ingólfur
Kristjánsson verksmiðjustjóri verði
yfirmaður deildar sem sjái um fram-
leiðslu heilsusaits og ákveðið hefur
verið að ráða annan verksmiðjustjóra
til viðbótar. Auk þess er fyrirhugað
að ráða viðhaldsstjóra og fjóra vakt-
stjóra þar sem heilsusaltið er nú
framleitt alla daga vikunnar 24 tíma
á sólarhring.
VERÐLAUN — Friðrik Sigurðsson, framkvæmdastjóri Kísiliðj-
unnar, tekur við verðlaunum úr hendi Roberts Manning, aðstoðarfor-
stjóra Celite Corp.
Iðnaður
Kísiliðjan þróar aðferð
við kísilgúrpökkun
KÍSILIÐJAN við Mývatn hlaut nýlega verðlaun Celite Corporation í
Bandaríkjnum fyrir leiðandi þróunarstarf varðandi pökkun kísilgúrs
og umbúðir utan um framleiðsluna. Celite Corp. er eignaraðili að
Kísiliðjunni frá því á síðasta ári þegar fyrirtækið keypti hlut Man-
ville International Corp. Að sögn Friðriks Sigurðssonar, framkvæmda-
stjóra Kísiliðjunnar, er áformað að setja upp samskonar búnað og
Kísiliðjan notar í verksmiðjum Celite Corp. á Spáni og í Frakklandi.
I samræmi við auknar kröfur um
vinnuvernd og bætta meðferð hrá-
efnis hefur verið þróuð sérstök tækni
á vegum Kísiliðjunnar við Mývatn
varðandi sjálfvirka áfyllingu, loku.n
og frágang á umbúðum. Að sögn
Friðriks hefur árangur þróunarvinn-
unnar verið svo góður að athygli
hefur vakið víða um heim. .
JCísilgúr er mjög fíngert efni og.
fram til þessa hefur framleiðendum
þess reynst erfitt að tryggja fullkom-
inn þéttleika umbúða eftir áfyllingu.
Andrúmsloft í verksmiðjum er þann-
ig oft mettað kísilgúrryki og frekari
mengun hlýst af við flutninga vör-
unnar á áfangastaði,“ sagði Friðrik.
Pokarnir sem Kísiliðjan notar eru
2ja laga 90 gramma pappírspokar
sem framleiddir eru hjá Wisapak í
Finnlandi. I samvinnu við framleið-
endur pokanna þróuðu starfsmenn
Kísiliðjunnar nýja aðferð, svokallaða
flipalokun, sem að sögn Friðriks,
hefur nú leitt til þess að þeir eru
100% þéttir. Framleiðsla pokanna
hófst fyrir ári og sl. vor vann þessi
nýja tækni tii nerrænna umbúðaverð-
launa. Friðrik sagði að búast mætti
við að þessi lokunaraðferð verði tek-
in upp f iðnaði þar sem fram fer
pökkun á léttri og fínkomaðri vöru,
t.d. hveiti eða mjöli.
Hvað kosta bílakaupalán?
Hvað þarf skuldabréf að vera hátt til þess að lántakandi fái 600 þús. kr.
400.000 kr. Hverjir eru vextirnír? 12 mán. óverðtr. 24 mán. óverðtr. 36 mán. verðtr. Aths. Þessir liðir eru innifaldir í upphæð skbr.
GLITNIR 1) Upphæð skbr. Vextir Reikn. innri vextir* 622.801 13,90% 21,23% 622.801 16,90% 20,96% 639.372 9,25% 13,85% Lántökugjald (12 og 24 mán. er 2,00%, en í 36 mán. 4,50%, Stimpilgjald 1,50%, þinglýsing 1.000 kr.
FÉFANG 2) Upphæð skbr. Vextir Reikn. innri vextir* 651.676 12,10% 20,57% 651.676 kr. 9,00% 14,74% Lántökugj. er 2,00%, stimpilgj. 1,50% og þinglýsing 1.000 kr. Álag á staðgreiösluverð er á bilinu 1,63%-3,30% eftir lánshlutfalli.
SJÓVÁ- ALMENNAR 3> Upphæð skbr. Vextir Reikn. innri vextir* 626.321 kr. 12,40% 20,74% 639.955 kr. 12,40% 19,00% 633.843 kr. 9,50% 13,30% Kaupgengi 12 mán. skbr. er 98,28, kaupg. 24 mán. skbr. er 96,0075, og kaupg. 36 mán. skbr. er 97,0262. Frá dregst 1% lánt.gj., 1,5% stimpilgj. og 1.000 kr. þingl.gj.
ÍSLANDSBANKI Upphæð skbr. 623.741 kr. 623.741 kr. 623.741 kr. Lántökugj. er 2,00%, stimpilgj. 1,50% og þinglýsing 1.000 kr. Kostnaðurer910kr.
Skuldabréfalán Vextir 12,40% 12,40% 9,50%
Reikn. innri vextir* 20,00% 16,50% 12.30%
ÍSLANDSBANKI Viðskiptaskbr. Upphæð skbr. Vextir Reikn. innri vextir* 629.657 kr. '12,40% 21,84% 636.470 kr. 12,40% 18,66% 644.537 kr. 9,50% 14,70% Kaupgengi 12 mán. skbr. er 98,79 að frádregnu 2,00% lántökugj. og 1,50% stimpilgj. Kaupg. 24 mán. skbr. er 97,77 að frádr. 3,50% og kaupg. 36 mán. skbr. er 96,59 að frádr. 3,50%.
LANDSBANKI Upphæð skbr. 623.658 kr. 623.658 kr. 623.658 kr. Lántökugj. er 2,00%, stimpilgj. 1,50% og þinglýsing 1.000 kr. Kostnaðurer830kr.
Skuldabréfalán Vextir 12,25% 12,25% 9,25%
Reikn. innri vextir* 19,79% 16,33% 12,03%
LANDSBANKI Viðskiptaskbr. Upphæð skbr. Vextir Reikn. innri vextir* 630.450 kr. 12,25% 21,94% 637.620 kr. 12,25% 18,70% 643.294 kr. 9,25% 14,30% Kaupgengi 12 mán. skbr. er 98,67 að frádregnu 2,00% lántökugj. og . 1,50% stimpilgj. Kaupg. 24 mán. skbr. er 97,60 að frádr. 3,50% og kaupg. 36 mán. skbr. er 96,77 að
1) Vextir eru breytilegir eftir lánshlutfalli og lánstíma frádr. 3,50%.
2) Jafngreiðslulán. Ef Bllalánum Féfangs væri stillt upp sem bréfi með jöfnum afborgunum í stað jafngreiðsluláns, þ.a. ávöxtunin
yrði sú sama, myndi bréfið hljóða upp á 649.900 kr. til 36 mánuða i stað 651.676 kr.
3) Hagstæðustu kjör hjá Sjóvá-Almennum. Þau eru í boði hjá tveimur stórum bílaumboðum. Hjá öðrum er lántökukostnaður hærri.
* Reiknaðir innri vextir eru mælikvarði á heildarkostnað lántakenda, þar sem bæði er tekið tillit til vaxta og lántökukostnaðar,
þ.á.m. stimpilgjalds og þinglýsingar. Útreikningar Morgunblaðsins. _____________________________
Fjármál
Hart baristá bílalánamarkaði
SAMKEPPNI þeirra aðila sem
bjóða svonefnd bílalán hefur farið
vaxandi á þessu ári þannig að kjör
lántakenda hafa batnað. Kjörin
eru þó talsvert mismunandi eftir
því hvar borið er niður. Morgun-
blaðið hefur tekið saman með-
fylgjandi yfirlit yfir lántökukostn-
að og vexti vegna bílakaupalána.
Tvö eignaleigufyrirtæki sérhæfa
sig í slíkum lánum, Glitnir og Fé-
fang, ásamt Sjóvá-Almennum
tryggingum. Til samanburðar eru
birtar upplýsingar um vexti og
kostnað vegna skuldabréfalána
banka og viðskiptaskuldabréfa
sem þeir kaupa.
Reiknaðir voru út svokallaðir innri
vextir sem er mælikvarði á heildar-
Fyrirtæki
kostnað lántakanda á ári og eru þá
bæði meðtaldir vextir og allur lán-
tökukostnaður. Glitnir veitir svo-
nefnd staðgreiðslulán. Vextir af
þessum lánum eru breytilegir eftir
lánshlutfalli og lánstíma Hjá Fé-
fangi er um að ræða svonefnd jafn-
greiðslulán þar sem lántakandi greið-
ir sömu upphæð mánaðarlega allt
lánstímabilið. Samkvæmt upplýsing-
um Féfangs eru lánskjörin nú til
endurskoðunar og munu lækka um
næstu mánaðamót.
Hjá Sjóvá-Almennum er lántöku-
gjald breytilegt en í töflunni hér til
hliðar er miðað við hagstæðustu kjör
félagsins sem tvö stór bílaumboð
njóta. Þessi kjör voru samþykkt til
birtingar þar sem í fyrri viðmiðunum
Morgunblaðsins um kostnað af bíla-
lánum félagsins var stuðst við upp-
lýsingar frá öðru umboðinu. Kostn-
aður er eitthvað hærri hjá öðrum
umboðum.
í sumum tilvikum eiga einstakl-
ingar kost á fyrirgreiðslu banka
vegna kaupa á bifreið þar sem vext-
ir ráðast af því hversu traustur við-
skiptavinurinn er. Hér er notast við
skuldabréf í B-flokki hjá íslands-
banka og C-flokki hjá Landsbanka.
Nauðsynlegt er að hafa í huga mun
meiri fyrirhöfn fylgir slíkri lántöku
samanborið við bílalánin og líklegt
að bankinn myndi krefjast tveggja
sjálfsskuldaábyrgðarmanna í stað
þess að taka veð í bílum eins og hjá
eignaleigunum og Sjóvá-Almennum.
Hlutabréf Olís íNýheija seld
EIGNASAMLAG Draupnissjóðs
og Vogunar og hópur starfsmanna
Nýherja hf. hafa keypt hlutabréf
í fyrirtækinu sem áður voru í eigu
Óla Kr. Sigurðssonar, forstjóra
OIís. Nafnverð hlutabréfanna er
25 milljónir króna, en þau voru
keypt á genginu 1,0. Eftir þessi
viðskipti nemur eignarhlutur
Eignasamlagsins í Nýherja um
88,4 milljónum króna að nafnverði
eða 44,21%, IBM í Danmörku á
sem fyrr 30% eða 60 milijónir og
starfsmenn Nýheija um 31,6 millj-
ónir eða 15,79%. Tuttugu milljónir
eða 10% af heildarhlutafé er í eigu
Nýheija. Heildarhlutafé fyrirtæk-
isins er 200 milljónir króna að
nafnverði.
Nýheiji hf. tók til starfa í aprílbyij-
un á þessu ári með samruna IBM á
íslandi og Skrifstofuvéla hf., en það
fyrirtæki var að mestu í eigu Óla
Kr. í upphafi var ákveðið að skipta
hlutafénu þannig að Eignasamlag
Draupnissjóðs og Vogunar ætti 35%,
IBM í Danmörku 30%, Skrifstpfuvél-
ar 22,5% og ýmsir starfsmenn Ný-
heija 12,5%. Gunnar .M. Hansson,
forstjóri Nýheaja, sagðl aðþegar upp
var staðið hefði hlutur Skrifstofuvéla
orðið 12,5% skv. mati á fyrirtækinu.
10% hlutafjár í Nýherja, eða 20 millj-
ónir króna eru því eign Nýhetja og
að sögn Gunnars hefur ekki verið
tekin ákvörðun um hvort breyting
verði þar á.
Gunnar sagði að frá úpphafi hafi
legið ljóst fyrir að IBM í Danmörku
hefði ekki hug á að auka hlut sinn
úr 30%. Eignasamlag Draupnissjóðs
og Vogunar og starfsmenn Nýheija
keyptu því bréf Skrifstofuvéla i hlut-
falli við hlutafjáreign sína þ.a. síðar-
Þjónusta Eurocard er veitt í sam-
starfi við fyrirtækið Executjve Telec-
ard og er að finna í yfir 40 löndum
víðsvegar í heiminum. Gullkorthafar
gert því hringt úr hvaða'tónvalssíma
sém er í þessar miðstöðvar og fengið
samband við símakerfið.' Bæði er
hægt að hringja milli þessara landa
og innan þeirra.
í svari Eurocard vegna kærunnar
kemur fram að sú þjónusta sem Visa
ísland býður korthöfum sínum sé
ekki sambærileg við það að nota
nefndi hópurinn eignaðist bréf fyrir
um 6,6 milljónir að nafnverði til við-
bótar við þær 25 milljónir sem hópur-
inn átti áður. Eignasamlagið keypti
bréf fyrir 18,4 milljónir að nafnverði
til viðbótar við 70 milljóna eignahlut.
sjálfvirkan búnað. Korthafar Visa
þurfi að vera staddir í Bandaríkjun-
um til að geta notfært sér þessa þjón-
ustu. Fyrirtækið hefur hins vegar
boðað að þjónustan muni fljótléga
opnast frá Bretlandi og fleiri Evrópu-
löndum. Sú þjónusta sem Póstur og
sími bjóði takmarkist við símtöl til
íslands frá 9 löndum. Hvorki sé
hægt að nota þá þjónustu til að
hringja innan þess lands sem kort-
hafínn er staddur í, né milli landa
erlendis.
Auglýsingar
Eurocard kært fyrir aug-
lýsingu um kortasíma
AUGLÝSINGASTOFAN Örkin kærði fyrir skömmu auglýsingu Euroc-
ard um svonefnd símakort til siðanefndar Sambands íslenskra auglýs-
ingastofa. I auglýsingunni er sett fram sú fullyrðing að kortasími
Eurocard sé sá eini sinni tegundar í heiminum. í kæru auglýsingastofn-
unnar er á það bent að VISA ísland hafi frá því í ágúst boðið upp á
samskonar þjónustu þar sem hringt er í gjaldfrjálst símanúmer. Einn-
ig hafi Póstur og sími boðið samskonar þjónustu þar sem hægt er að
láta skuldfæra símakostnaðinn á VISA kort. Siðanefndin hefur þegar
fjallað um kæruna og varð niðurstaðan sú að hún gerir ekki athuga-
semdir við auglýsingu Eurocard.