Morgunblaðið - 19.11.1992, Page 4

Morgunblaðið - 19.11.1992, Page 4
4 C MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNIILÍF FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1992 Markaðsmál Fyrirtæki í Nova Scotia vilja auka viðskipti við ísland Erfíðar flugsamgöngur taldar torvelda aukin samskipti VIÐSKIPTASENDIIMEFND Viðskipta- og iðnaðarráðuneyti Nova Seotia efndi til sérstakr- ar móttöku vegna heimsóknar sendinefndarinnar fyrir íslenska frammámenn í viðskiptalífinu. Á myndinni eru f.v.: Kristbjörg Ágústsdóttir, viðskiptafulltrúi Kanada á íslandi, Fred Ware, ráðuneytisstjóri viðskipta- og iðnaðarráðuneytis Nova Scotia, Paul Pettipas, framkvæmdastjóri Heritage Homes Intemational, Roger Chan, viðskiptaráðunautur kanadíska sendiráðsins í Osló, og Larry J. Cooke, aðalræðismaður íslands í Halifax. FJÖLMENN viðskiptasendi- nefnd frá Nova Scotia í Kanada hefur dvalið hér á landi undan- farna daga til að kynna íslensk- um fyrirtækjum vörur sínar. Nova Scotia er fylki á austur- strönd Kanada og hafa viðskipti við ísland m.a. verið fólgin í reglubundnum áætlanasigling- um Eimskips og Jökla til Halifax en skip beggja félaganna sigla þangað einu sinni i mánuði. Is- lendingar kaupa vörur frá fylk- inu fyrir um 100 milljónir króna á ári en vonir standa til að þau viðskipti aukist í kjölfar heim- sóknar sendinefndarinnar. Þar er einkum um að ræða pappírs- vörur, timbur, ávexti, ferskt grænmeti og hreinlætisvörur. Hvað varðar útflutning til Nova Scotia er það m.a. Marel sem náð hefur árangri á þessum markaði en fiskveiðar eru einn aðalatvinnuvegur íbúanna. Fred Ware, ráðuneytisstjóri í viðskipta- og iðnaðarráðuneyti Nova Scotia, var staddur hér á landi í tilefni af heimsókn sendi- nefndarinnar. Hann sagði í sam- tali við Morgunblaðið að tilgangur ferðarinnar væri að þróa frekar viðskipti íslendinga við fylkið, bæði kaup á vörum og þjónustu. Einnig væri vilji til að auka skipa- flutninga milli Nova Scotia og ís- lands og fyrirspumir hafí verið Utanríkisviðskipti gerðar til flugfélaganna um hvem- ig megi bæta flugsamgöngur þama á milli. Undirbúningur að ferð sendi- nefndarinnar hófst í apríl sl. þegar fulltrúi viðskipta- og iðnaðarráðu- neytis Nova Scotia kom hingað og ræddi við forráðamenn íslenskra fyrirtækja. Kristbjörg Ágústsdótt- ir, viðskiptafulltrúi Kanada, hér á landi fór síðan til Nova Scotia í ágúst. í framhaldi af því voru 15 fyrirtæki valin og bendir Ware á til marks um áhuga þeirra, að í flestum tilvikum hafi komið hingað forstjórar fyrirtækja. Hann segir fyrirtæki í Nova Scotia hafa vanist því að eiga viðskipti bæði á stærri og minni mörkuðum en íbúar fylk- isins em um 800 þúsund. Ferðalagið til íslands tók 29 tíma Paul Pettipas, framkvæmda- stjóri Heritage Homes Internation- al, er einn þeirra sem hafa kynnt vörur frá sínu fyrirtæki undan- farna daga. Hann bendir á, að það Tævan gæti orðið stökk- pallur fyrir íslensk fyrirtæki segir C.P. Chang, forstjóri samtakanna EATO, sem hafa það hlutverk að auka viðskipti Evrópulanda og Tævan TÆVAN ■— C.P. Chang forstjóri, Euro-Asian Trade Organizati- on á Tævan fjallaði um efnahagsþróunina í Tævan og stöðu landsins í efnahagslífi þeimsins á morgunverðarfundi Verslunarráðs íslands sl. föstudag. Á myndinni sést hann á tali við þá Einar Sveinsson, formann Verslunarráðs og Herbert Guðmundsson, félagsmálafulltrúa ráðsins. ÞRÁTT fyrir að Tævan-búar séu tiltölulega fámenn þjóð, auðlind- ir af skornum skammti og land- rými takmarkað hefur efnahags- lífið þar í landi einkennst af mikl- um hagvexti, stöðugu verðlagi og góðu atvinnuástandi. Á sl. 40 árum hefur árlegur hagvöxtur að meðaltali verið um 9%. Verð- bólga hefur verið um 3% ef und- an er skilið tímabilið eftir olíu- kreppuna. Þá hefur atvinnuleysi verið um 2% síðustu tvo áratugi. Þjóðarframleiðsla á mann á ári hefur við þessar aðstæður aukist úr um 100 bandaríkjadollurum frá lokum síðari heimstyijaldar í um 8.815 dollara árið 1991 og búist er við að þessi tala fari yfir 10 þúsund dollara á þessu ári. Þetta kom fram í máli C.P. Chang forstjóra, Euro-Asian Trade Organization á Tævan (EATO), á hádegisverðarfundi með íslenskum kaupsýslumönnum sl. föstudag. EATO eru sjálfstæð samtök í við- skiptalífi Tævan sem hafa það hlut- verk að vinna að eflingu viðskipta við Evrópu á sviði iðnaðar, verslun- ar og fjárfestingar. Chang ræddi viðskipti Tævan við Evrópulönd og möguleika á nánari viðskiptum við íslendinga á fundinum. Tævan er í hópi mestu útflutn- ingsríkja heims og ekkert land hef- ur yfir að ráða jafnmiklum gjaldeyr- isforða. Um 17% landsmanna starfa í landbúnaði og 41% í iðnaði.’Iðnað- ur hefur vaxið ört vegna ódýrs vinnuafls og fjárfestinga erlendra aðila, einkum Bandaríkjamanna og Japana. Ör uppbygging hefur verið í rafeindaiðnaði sem útflutnings- grein en jafnframt eru skipasmíðar miklar. Viðskipti íslendinga við Tævan hafa farið vaxandi undanfarin ár. Chang benti á að þau hefðu einung- is numið 3,1 milljónum dollara árið 1992 en stefndu í 12,3 milljónir ’ dollara í ár. íslendingar kaupa helst vélbúnað, fatnað, raftæki, leikföng og tómstundavörur frá Tævan. Hins vegar kaupa Tævanbúar héðan fisk, lýsi og fiskimjöl. Á undanförnum árum hafa stjórnvöld í báðum þessum löndum skipst á heimsóknum. Í júlí 1990 heimsóttu Júlíus Sólnes, umhverfis- ráðherra og Heimir Hannesson, fyrrverandi formaður Ferðamála- ráðs íslands höfuðborg Tævan, Taipei. Þá kom hingað til lands í ágúst á sl. ári. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Tævan. Stein- grímur Hermannsson, alþingismað- ur ferðaðist þangað í júní og Mark- ús Örn Antonsson, borgarstjóri fór í marsmánuði. „Ég tel að það séu góðir möguleikar á nánara sam- starfi á sviði fiskiðnaðar milli land- anna í ljósi þess hve íslendingar eru framarlega á þessu sviði og hversu mikil neysla er á sjávarafurðum í Kína og Tævan. Það vekur auknar vonir í þessu sambandi að Grímur Valdimarsson, forstjóri Rannsókn- arstofnunar fiskiðnáðarins heim- sótti Taipei í boði sjávarútvegsráðu- neytisins í október. Hann hefur lagt fram tillögur um samstarf við Tæv- an varðandi sjálfvirkni í fiskiðnaði, markaðssetningu á sjávarafurðum og rannsóknir." Góðir möguleikar á auknum viðskiptum við ísland Chang benti á að íslendingar yrðu að hafa í huga að hagvöxtur í Austur-Asíu hefði verið yfir meðal- talinu fyrir heiminn sl. 25 ár og því væri spáð að áframhald yrði á þess- ari þróun um fyrirsjáanlega fram- tíð. í því sambandi vék hann sér- staklega að viðskiptum Tævan, Hong Kong og ákveðinna svæða í Suður-Kína. Pólitískar hindranir hafi verið miklum erfiðleikum bundið að komast hingað til lands frá Halifax. Þannig hafi hann orð- ið að fljúga frá Halifax til Tor- onto, þaðan til London og síðan til Keflavíkur. „Við lögðum af stað frá Nova Scotia á fimmtudegi én komum ekki hingað fyrr en á laug- ardegi. Við vorum dauðuppgefnir eftir þessa ferð því hún tók um 29 klukkustundir. Það tæki hins vegar aðeins tæpar fjórar klukku- stundir að fljúga beint frá Halifax. Evrópubúar koma til íslands vegna þess hversu auðvelt það er en við verðum að leggja mikið á okkur til komast hingað." Pettipas telur ísland hins vegar mjög áhugavert ferðamannaland vegna nátt- úrufegurðar auk þess sem fólkið sé vingjarnlegt. Forystumenn sendinefndaririnar áttu fundi með stjórnendum Flug- leiða þar sem möguleikar á flugi milli Halifax og íslands voru rædd- ir. Enginn loftferðasamningur er í gildi milli íslands og Kanada sem er forsenda fyrir því að félagið gæti hafið áætlanaflug á þessari leið. Að sögn Kristbjargar Ágústs- dóttur er áhugi í Halifax á því að komið verði á beinu flugi til ís- lands en þannig gæti Keflavíkur- flugvöllur jafnframt orðið tengi- flugvöllur vegna flugs frá austur- strönd Kanada til Norðurlandanna. Aðspurð um þann árangur sem náðst hefur í ferð viðskiptasendi- nefndarinnar segir Kristbjörg að fyrirtækjunum hafi þegar tekist að afla nýrra viðskiptasambanda og í sumum tilvikum séu viðskipti þegar frágengin. Það sé mjög óvenjulegt að svo vel takist til hjá viðskiptasendinefnd og greinilegt að góður undirbúningur heimsókn- arinnar hafi skilað sér. Þær vörur sem íslendingar hafa sýnt áhuga á að kaupa frá Nova Scotia eru m.a. líkkistur, málning, efnavörur, timbur og grænmeti. hafa lengst af takmarkað viðskipti milli þessara svæða en með opnun Kína hefur þetta smám saman ver- ið að breytast. Þannig hefur verið að myndast efnahagssvæði á þessT um slóðum með um 120 milljónum íbúa og 320 milljarða dollara lands- framleiðslu. Chang spáði því að nánari tengsl ríkjanna á þessu svæði myndi gera þau að mikilvægu efnahagsvæði í Asíu þannig að þau gegndu stóru hlutverki í efnahags- lífi heimsins. „Lykillinn að þessum árangri er tækniþekking og fram- leiðslugeta Tævan, styrkur Hong Kong á markaði og þjónustusviðinu ásamt ódýru landrými og vinnuafli í Kína,“ sagði hann. Chang kvaðst telja góða möguleika á að auka við- skipti íslands og Tævan og koma mætti á samstarfsverkefnum og tæknilegri samvinnu. „Samgöngu- og fjármálakerfi Tævan og þekking okkar á mörkuðum í Austur-Asíu gæti einnig verið mjög þýðingar- mikil fyrir íslensk fyrirtæki sem vilja auka umsvif sín í Asíu. Mark- aðurinn í Tævan gæti orðið góður stökkpallur inn á hina gríðarstóru og arðvænlegu markaði í Asíu.“ Fólkið er helsta auðlindin En hver skyldi vera lykillinn að þeim mikla árangri sem Tævan- búar hafa náð í efnahagsmálum? „Dugnaður fólksins,“ sagði Chang í samtali við Morgunblaðið. „Önnur mikilvæg ástæða er stjórnmála- ástandið í landinu. Tævan hefur verið einangrað frá umheiminum, sérstaklega eftir að landið hætti þátttöku í Sameinuðu þjóðunum. Við vorum útskúfaðir vegna stefnu Kínveija. Þau ríki sem tóku upp samskipti við Kína urðu að viður- kenna að Tævan væri nýlenda Kín- veija. Hins vegar viðurkenndu 20-30 ríki í heiminum landið sem sjálfstætt ríki. Af þessum ástæðum urðum við að leggja harðar að okk- ur en aðrar þjóðir til að lifa af bæði stjórnmálalega og efnahags- lega,“ sagði Chang.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.