Morgunblaðið - 19.11.1992, Síða 12

Morgunblaðið - 19.11.1992, Síða 12
 VE)SKIPn/fflVINNUIÍF FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1992 Framleiðsla Velgengni þökkuð vöruþróun Umtalsverð söluaukning hjá Leðuriðjunni. LEÐURVORUR— Á myndinni eru tveir eigendur Leður- iðjunnar hf. Edda Hrönn Atladóttir og móðir hennar Margrét Bjamadóttir. Þriðja eigandinn er Nanna Mjöll Atladóttir sem einn- ig er framkvæmastjóri fyrirtækisins. SALA Leðuriðjunnar hf. jókst um 35% á síðasta ári en þá var sett á markað ný afurð sem notið hefur töluverðra vin- sælda. Um er að ræða dagbók- arkerfið Dagskinnu sem starfs- menn Leðuriðjunnar þróuðu í samstarfi við Iðntæknistofnun og Iðnlánasjóð í verkefninu Frumkvæði-Framkvæmd. í ár hefur samstarfsverkefnið hald- ið áfram og þróuð hefur veri ný vörulína í stil við Dagskinn- una. Vörulínan ber heitið At- son-Viðskiptalína og saman- stendur af fundamöppu, nafn- spjaldamöppu, seðlaveski, kort- skinnu, pennahylki og lykla- kippu auk Dagskinnunnar. Leðuriðjan-Atson var stofnuð árið 1936 af Atla Ólafssyni sem rak fyrirtækið þar til hann féli frá árið 1985. í dag er fyrirtækið rekið af eiginkonu hans, Margréti Bjarnadóttur og tveimur dætrum, Nönnu Mjöll og Eddu Hrönn. Nanna Mjöll er framkvæmdastjóri fyrirtækisins, en þar eru 15 fast- ráðnir starfsmenn. Að sögn Berglindar Ólafsdótt- ur, markaðsstjóra Leðuriðjunnar þakka stjórnendur fyrirtækisins velgengni í rekstri þess m.a. þeirri vöruþróun sem þar hefur átt sér stað. „Árið 1990 markaðssettum við dagbók sem hlaut nafnið Dag- skinnuugla og var í stærra broti en Dagskinnan. Á síðasta ári hóf- um við síðan samstarf við Iðn- tæknistofnun og Iðnlánasjóð í verkefninu Frumkvæði-Fram- kvæmd,“ sagði Berglind. Tilgangur þess verkefnis er að veita iðnfyrirtækjum ráðgjöf við stefnumótun, íjárhagslega endur- skipulagningu og fjármálastjóm- un, vöruþróun og markaðsaðgerð- ir, framleiðsluskipulagningu og gæðastjórnun. „Við leituðum til utanaðkomandi aðila sem höfðu notað ýmis erlend dagbókarkerfi og annarra sem eingöngu notuðu laus blöð og minnismiða. Með þessum aðilum voru haldnir nokkrir vöruþróunar- fundir. Á þeim fundum komu fram margar gagnlegar hug- myndir sem síðan voru nýttar við hönnun og þróun Dagskinnunar. Dagskinnan er að öllu leyti ís- lensk, bæði hönnun og fram- leiðsla," sagði Berglind. Hugmyndin að Atson-Við- skiptalínunni kom að sögn Berg- lindar í framhaldi af samstarfs- verkefninu sem nú einkennist meira af markaðssetningu þeirrar vöru sem þróuð hefur verið til þessa. Að sögn Berglindar leggja stjómendur Leðuriðjunnar metn- að sinn í að vörur í Atson-Við- skiptalínunni beri eigenda sínum vitni um góðan smekk og styrki ímynd hans og þess fyrirtækis sem hann vinnur fyrir. Undanfarin tvö ár hefur Leður- iðjan rekið verslun að Hverfisgötu 52. Verslunin hefur verið lokuð vegna breytinga, en í dag, fimmtudaginn 19. nóvember kl. 14 verður hún opnuð aftur. Þar hafa arkitektarnir Guðrún Már- grét og Oddgeir hannað nýtt útlit og innréttingar með frumlegu efnisvali þar sem léttsteypa hefur m.a. verið valin í hillur o.fl. í versl- un Leðuriðjunnar er auk Atson- Viðskiptalínunnar að finna úrval af Atson seðlaveskjum ásamt •ýmsum leðurvörum m.a. frá Ítalíu, Hollandi og Danmörku. Fólk Nýir útibúsljórar hjá Landsbankanum ■Bankaráð Landsbanka íslands ákvað á fundi sínum þann 12. nóv- ember að ráða tvo nýja útibústjóra til starfa við útibú bankans í Reykjavík. MHARALDUR Valsteinsson hef- ur verið ráðinn útibústjóri við Bankastrætisútibú frá 1. desem- ber nk. Haraldur er fæddur 27. nóvember 1934 og lauk prófi frá Samvinnuskólan- um árið 1955. Hann hóf þá störf í útibúi Lands- bankans á Akur- eyri. Árið 1979 var hann ráðinn útibústjóri . við útibú bankans á Haraldur ísafirði og starfaði þar fram í jan- úar 1986 er hann var ráðinn aðstoð- armaður bankastjórnar. MKRISTÍN Rafnar hefur verið ráðin útibústjóri við Vesturbæjar- útibú frá 1. janúar nk. Kristín er Kristín fædd 3. janúar 1955. Hún varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1975 og viðskipta- fræðingur frá Há- skóla Islands 1979. Kristín lauk MA-prófi í þjóð- hagfræði frá Ohio State University árið 1981 með peninga- og bankafræði sem sér- svið. Kristín starfaði í útibúi Lands- bankans á Akureyri í fjögur sum- ur, eitt sumar í hagdeild og tvö sumur í hagfræði- og áætlanadeild. Hún var síðan ráðin sérfræðingur í hagfræði- og áætlanadeild árið 1983. Hún starfaði þar til ársins 1985 er hún var ráðin forstöðumað- ur og staðgengill framkvæmda- stjóra á markaðssviði. Eiginmaður Kristínar er Gunnar Stefánsson, tölfræðingur á Hafrannsókna- stofnun og eiga þau tvo syni. HUGBUNAÐUR —Samningar á milli P.Samúelsssonar hf. og hugbúnaðarfyrirtækisins Hugar hf. um kaup á Concorde XAL hugbúnaði vegna endurtölvuvæðingar fyrirtækisins voru undirritaðir i sl. viku. í hinu nýja kerfi verður m.a. gert ráð fyrir pappírslausum viðskiptum á ýmsum sviðum. Ný samkeppnislög að fæðast Góður skriður er nú kominn á frumvarp til samkeppnislaga á Alþingi og má búast við að það verði afgreitt frá efnahags- og viðskiptanefnd í næstu viku til annarrar umræðu. Gerðar hafa verið nokkrar breytingar á frum- varpinu í meðferð nefndarinnar, bæði vegna athugasemda við- skiptaráðuneytisins og álits ýmissa hagsmunasamtaka og fyrirtækja. Virðast því líkur á að frumvarpið geti tekið gildi fyrir áramót. í því er að finna ákvæði um samkeppnishömlur, órétt- mæta viðskiptahætti og eftirlit með greiðslukortastarfsemi. Væntanlega munu ákvæðin um samkeppnishömlur hafa víðtæk- ust áhrif ef þeim verður framfylgt af fullum þunga. í frumvarpinu er megináhersla lögð á að efla virka samkeppni en að sama skapi draga úr af- skiptum ríkisins af verðlagi. Þess vegna er lagt til að nafni Verð- lagsstofnunar sé breytt í Sam- keppnisstofnun og nafni verð- lagsráðs í samkeppnisráð. Ákvæði laganna um hvernig samkeppnisyfirvöld geti komið í veg fyrir skaðlega samkeppni eru tvenns konar. Annarsvegar er um að ræða bannreglur við sam- keppnishömlum sem taldar eru mjög skaðlegar en hins vegar hafa yfirvöld heimildir til að leggja mat á slíkar hömlur og banna þær ef ástæða þykir til. Ein helsta bannreglan kveður á um bann við samráði milli fyrir- tækja um verð, afslætti eða álagningu. Gildir einu hvort um sé að ræða leiðbeinandi eða bindandi samninga. í þessu sam- bandi hefur verið rætt um hvort rétt sé að banna leiðbeinandi gjaldskrár. Svo virðist sem með lögunum sé lagt bann við útgáfu leiðbeinandi gjaldskráa t.d. lög- manna og tannlækna. Þessar stéttir hafa viðhaft samráð um verðlagningu um árabil með þessum hætti þrátt fyrir bann- reglu núgildandi laga þar að lút- andi. Önnur bannregla kveður á um að t.d. heildsölum eða framleið- endum er bannað að ákveða eða semja um verð á næsta sölu- stigi. Bannið nær einnig til ieið- sagnar um útreikning á verði, afslætti og álagningu. í frum- varpinu er síðan gert ráð fyrir að samkeppnisráð geti gert undan- þágu frá bannreglum við sérstak- ar aðstæður t.d. ef ætla má að áhrif samkeppnishamla séu já- kvæð. Auk bannreglnanna hefur samkeppnisráð mjög víðtækar heimildir til banna athafnir, samninga eða skilmála sem hafa skaðleg áhrif á samkeppni. Er heimilt að grípa til aðgerða gegn samningum, skilmálum og at- höfnum sem talin eru skaða sam- keppni. Þá getur ráðið ógilt sam- runa fyrirtækja eða yfirtöku fyrir- tækis á öðru fyrirtæki ef það tel- ur hættu á að verulega dragi úr samkeppni. Einnig kemur til greina að setja skilyrði fyrir sam- runa. Líklegt má telja að kaup Hagkaups á helmingshlut í Bón- us hefðu verið tekin til athugunar hjá samkeppnisyfirvöldum ef lög- in hefðu verið í gildi á sínum tíma. Gert er ráð fyrir talsvert viða- miklu stjórnsýslukerfi til að fram- fylgja lögunum og hefur það hlot- ið gagnrýni Verslunarráðs ís- lands. Þannig er gert ráð fyrir að samkeppnisráð, Samkeppnis- stofnun og áfrýjunarnefnd sam- keppnislaga annist daglega stjórnsýslu á því sviði sem lögin ná til í umboði viðskiptaráðherra. Ráðherra skal skipa fimm menn í samkeppnisráð og jafnmarga til vara. Skulu þeir hafa sérþekk- ingu á samkeppnis- og viðskipta- málum. Ákvörðunum ráðsins og Samkeppnisstofnunar má áfrýja til áfrýjunarnefndarinnar en þar eiga að sitja þrír menn sem skip- aðir eru af Hæstarétti. Hætt er við að þetta kerfi reynist þungt í vöfum við framkvæmd væntan- legra laga. Þó hefur sú breyting verið nú verið gerð frá fyrri frum- varpsdrögum að allir fimm menn samkeppnisráðs verða skipaðir af ráðherra í stað þess að tveir séu skipaðir samkvæmt tilnefn- ingu Alþýðusambands íslands og Vinnuveitendasambands ís- lands og tveir af Hæstarétti. Það eru vissulega fögur fyrir- heit í hinu nýja samkeppnislaga- frumvarpi um að taka eigi þenn- an málaflokk föstum tökum. Á það ber þó að líta að núgildandi lög hafa reynst erfið í fram- kvæmd þó tekist hafi að sporna gegn verðsamráði í nokkrum at- vinnugreinum með því að beita bannreglu um samráð. Væntan- lega verður því nokkuð á bratt- ann að sækja fyrir hina nýju Sam- keppnisstofnun og samkeppnis- ráð, a.m.k. fyrst um sinn. KB

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.