Morgunblaðið - 19.11.1992, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/flTVWINULÍF FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1992
C 7
SJÓÐSBRÉF2
að mikilvægt sé fyrir Reykjavíkur-
borg að fá sæstrengjaverksmiðju til
atvinnuuppbyggingar. Það væri
glapræði af hálfu borgarfulltrúa að
hafna slíku tækifæri. Samningurinn
sé einungis um hagkvæmniathug-
unina sem Hollendingar bera mest-
an kostnaðinn af og íslenskar verk-
fræðistofur fái í kjölfarið verkefni
við.
Ekki liggur ljóst fyrir hver af-
staða minnihlutans í borgarstjórn
er og í viðtali við Morgunblaðið
sagði Ólína Þorvarðardóttir að erfitt
væri að taka endanlega ákvörðun.
„Það er ástæða til að ígrunda þetta
mál vel og flana ekki að neinu.
Þetta gæti verið stórt hagsmunamál
og framtíðaratvinnugrein og auðlind
fyrir land og þjóð. Við atkvæða-
greiðsluna þarf ég hins vegar að
gera upp hug minn um hvort í erf-
iðu árferði sé tímabært fyrir Reykja-
víkurborg að leggja 20 milljónir
króna í þetta verkefni þar sem enn
er ýmislegt óljóst, t.d. í tengslum
við fjárfestingar erlendra aðila í
virkjunum hérlendis," sagði Ólína.
Erfið ákvarðanataka
framundan
Ýmsar vangaveltur hafa verið um
hvað tekur við ef borgin fer út í
hagkvæmniathugun í samvinnu við
Hollendingana og hvert hlutverk
Landsvirkjunar verður eftir að Pir-
elli skilar sínum niðurstöðum. Ýmsir
kostir eru nefndir og gróflega er
hægt að skipta þeim í þrjá flokka.
í fyrsta lagi muni Landsvirkjun, í
samstarfí við Pirelli eða aðra aðila,
einnig fara af stað með hagkvæmni-
athugun á verkefninu, sem verður
af svipuðum toga og ICENET en
þó væntanlega eitthvað viðameiri.
Reykjavíkurborg, sem eignaraðili í
Landsvirkjun, tæki því þátt í tveim-
ur sambærilegum athugunum á
sama tíma og beri nokkurn kostnað
af þeim báðum.
I öðru lagi er nefndur sá kostur
að Landsvirkjun kæmi inn í ICE-
NET-verkefnið og tæki þátt í hag-
kvæmniathuguninni. Sá hópur
myndi láta vinna fullgerða athugun
áður en framleiðsla sæstrengjanna
hæfist. Landsvirkjun gæti á sama
tíma unnið aðra hagkvæmniathug-
un til hliðar við ICENET athugunina
t.d. í samstarfi við Pirelli og/eða
aðra aðila.
í þriðja lagi er nefndur sá mögu-
leiki að reynt verði að ná víðtækara
samstarfi t.d. á milli ICENET,
Landsvirkjunar, Pirelli og raf-
magnsveitnanna í Hamborg sem
sýnt hafa áhuga á orkukaupum um
sæstreng. Samningurinn geri ráð
fyrir að þriðja aðila verði hleypt inn
í verkefnið og beinlínis sé lögð
áhersla á að Landsvirkjun komi inn
f samninginn, hugsanlega í samfloti
með öðrum aðilum.
Þessi upptalning er þó alls ekki
tæmandi og ýmsir aðrir kostir koma
R A B B
í DAG...KL.17:15...
Hvemiggetum við grœtt á
alþjóðavwskipturn ?
INGÓLFUR SKÚLASON
framkvæmdastjóri,
Ocean Bounty Ltd.
Fundurinn er öllum oþinn.
S T O F A N
Ármúla 13a, 1. hæð.
eflaust til greina, auk þess má held-
ur ekki gleyma að Reykjavíkurborg
hefur enn ekki samþykkt samning-
inn.
Sæstrengsverkefnið teygir anga
sína víða og hagsmunir ýmissa
koma við sögu. Ekki má gleyma því
að samkeppni íslenskra verkfræði-
stofa er einnig mikil vegna þessa
og þátttaka í hagkvæmniathugun
yrði mörgum þeirra feitur biti. Þótt
víða séu skiptar skoðanir um hvaða
leið skuli fara, beijast þessir fjöl-
mörgu aðilar allir fyrir því að lagður
verði rafstrengur frá íslandi til Evr-
ópu. En líkt og kom fram í máli
margra frummælenda á ráðstefn-
unni um orkuútflutning, yrði þetta
langstærsta verkefni sem Islending-
ar hafa ráðist í.
Öruggur sjóður fyrir þá sem
vilja hafa reglulegar tekjur.
Sjóðurinn greiðir út vexti
4 sinnum á ári.
VÍB
Arsúvöxi un uml i am \ <
't öbólou s.l. (> mán.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 68 15 30.
SYSTIMAX KAPALKERFIÐ
FRÁ AT&TEREINA
KAPALKERFIÐ -gf
MEÐ 5 ÁRA ÁBYRGÐ
FRÁ FRAMLEIÐANDA
SYSTIMAX kapalkerfiö frá AT&T er það eina á markaðnum sem er með 5
ára ábyrgð frá framleiðanda. SYSTIMAX kapalkerfið er auk þess það fyrsta
sinnar tegundar sem hefur 100 Mbit flutningsgetu á
óskermuðum köplum. Með því opnast möguleiki á
hraðari gagnasendingum en áður hefur þekkst.
Þú getur tengt öll boðskiptakerfi bygginga með einu
kapalkerfi, svo sem tölvur, síma, þjófavarnarkerfi, brunavarnarkerfi,
hitastýrikerfi, loftræstikerfi, hátalarakerfi og myndbandskerfi í gegnum sama
kapalkerfið, hvort heldur er innan einnar byggingar eða milli bygginga, á
öruggari hátt en áður.
Nýherji hefur áralanga reynslu í lagningu kapalkerfa og veitir þér allar
upplýsingar um hvað hentar þínu fyrirtæki.
AT&T er leiðandi fyrirtæki í fjarskiptabúnaði og er kapalkerfið þróað af
vísindamönnum „BELL LABORATORIES" sem er virtasta rannsóknar- og
þróunarstofnun í heimi.
Vertu með örugga líflínu í þínu fyrirtæki.
AT&T
SYSTIMAX®
KAPALKERFI
NÝHERJI
TOLVULAGNIR
ÁRMÚLA 36 • SlMI 67 80 70