Morgunblaðið - 19.11.1992, Page 9

Morgunblaðið - 19.11.1992, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNIJLÍF FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1992 C 9 i Verkefnaútflutningur KOM skipulagði alþjóðlega ráðstefnu íÞýskalandi nútímatæki og menn út um allan heim hafa nú séð að við getum undirbúið alþjóðlegar ráðstefnur. I skoðanakönnum sem við gerðum undir lok ráðstefnunnar kom fram að 93 af 96 þátttakendum töldu skipulagið mjög gott. Það kom eng- um á óvart að .íslenskt fyrirtæki hafi ráðið við þetta verkefni," sagði Jón Hákon. KYNNING og markaður hf. (KOM) annaðist undirbúning og skipu- lagningu vegna alþjóðlegrar ráðstefnu sem haldin var í Hamborg í Þýskalandi í lok október. A ráðstefnunni sem bar yfirskriftina Gro- undfísh Forum var fjallað var um botnfiskvinnslu og sölu botnfiskaf- urða. Þetta er í fyrsta sinn sem islenskt fyrirtæki tekur að sér slíkt verkefni erlendis en undirbúningur fór nánast að öllu leyti fram hér á landi. Að sögn Jóns Hákons Magnússonar, framkvæmdastjóra KOM, tókst ráðstefnuhaldið mjög vel og hefur verið ákveðið að ráð- stefnan verði árlega héðan í frá. Á næsta ári verður hún haldin í Kaupmannahöfn og mun KOM að líkindum einnig annast allan undir- búning og skipulag. KOM — Starfsmenn Kynningar- og markaðar sem önnuðst ráð- stefnuna Groundfish Forum í Hamborg. F.v. Guðlaug B. Guðjónsdótt- ir, Áslaug G. Harðardóttir, Margit Elva Einarsdóttir og Jón Hákon Magnússon. Ráðstefnan var haldin að frum- kvæði þeirra Friðriks Pálssonar, forstjóra Sölufniðstöðvar hrað- frystihúsanna, Johann C. Linden- berg stjórnarformanns Nordsee Frozen Fish í Þýskalandi og Peder Hyldtoft, framkvæmdastjóra Paul Agnar Seafodods A/S í Danmörku. Friðrik beitti sér síðan fyrir þvi að KOM tæki að sér undirbúning og skipulagningu ráðstefnuhaldsins. Jón Hákon telur að það hafi riðið baggamuninn að KOM var treyst fyrir þessu verkefni að fyrirtækið annaðist skipulagningu vegna leið- togafundarins í Reykjavík árið 1986 og ráðgjöf vegna sams konar fund- ar á Möltu. „Það var ákveðið að þátttakendur á Groundfish-ráð- stefnunni yrðu á bilinu 80-110 en einungis var boðið æðstu stjórnend- um fyrirtækja sem stunda vinnslu á botnfiskafurðum og sölu þeirra. Við reyndum að velja þau fyrirtæki sem skipta máli á þessum markaði en mikill ijöldi stjómenda annarra fyrirtækja vildi einnig koma. Þess vegna þurftum við að eyða miklum tíma í að neita fólki um aðgang sem er mjög óvenjulegt. Ráðstefnan var fullbókuð í byijun september og þurftum við að hafna 60-70 manns. Alls sátur 140 forráðamenn fram- leiðslu- og markaðsfyrirtækja í tæplega 40 löndum frá fimm heims- álfum ráðstefnuna." Jón Hákon bendir einnig á að með tölvum, telefaxi og síma hafi verið hægt að undirbúa ráðstefnuna að mestu leyti hér á landi. Á þenn- an hátt hafí reynst kleift að bóka þátttakendur allstaðar að úr heim- inum á ráðstefnuna í Hamborg. Við hefðum getað unnið verkið á Flat- eyri eða Hrísey þess vegna. Virðis- aukinn verður því eftir hér á landi t.d. vegna símakostnaðar, þjónustu auglýsingastofa, skiltagerðar, prentunar og flugfarseðla. „Það er hægt að gera ótrúlegustu hluti með Faxafen 11 Til sölu er götuhæð og kjallari í þessu glæsilega húsi sem stendur við Faxafen 11 í Reykjavík. Hæðin er 221 fm. Kjallari er 234 fm. Leigusamningur er fyrir hendi á hæðinni en kjallari er laus. Góð fjárfesting. Vantar á Granda Höfum kaupanda að ca 250-400 fm húsnæði. Hægt er að staðgreiða húsnæðið. Þarf að vera til afhendingar fljótlega. ÞIXGIIOLT Suðurlandsbraut 4A, sími 680666 ■"N Fljótari Með því að notfáera þér Fraktflug Flugleiða sparar þú ómældan tíma. Það tekur til dæmis aðeins þrjá daga að senda vöm fiá Japan til íslands með fraktflugi á meðan það tekilr að minnsta kosti rúman mánuð með skipi. Ef þú vilt vinna þér inn dýrmætan tíma skalt þú notíæia þér fiaktflug Flugleiða. Ilaakvæmari Aukin hagkvæmni helst í hendur við aukinn hraða. Með því að senda vörur með fiaktflugi Flugleiða minnkar þú vaxtakostnað verulega. Fraktflugið gerir þér einnig kleift að panta ofiar og þá minna magn hverju sinni. Það þýðir minni lagerkostnað auk þess sem þú getur alitaf boðið nýja vöm. Fraktflug Flugleiða sannar eftirminnilega að tíminn er peningar. FLUGLEIÐIR F R A K T, - þvt að tíminn er peningar ♦Verðmiðastviðlágmflrk 1000 kg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.