Morgunblaðið - 01.12.1992, Qupperneq 2
E
2 B
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGÚR 1. DESEMBER 1992
Danmörk,
3. des. 19!
Seattle
Þýskaland
Frakkland,
18.febrúar
1993
Handboltalandsliði
undir stjórn Þorbergs
Aðalsteinssonar, í\
frá júlí 1990 /A
Noreguf,
23. jan.b993
Mot
Æfingaferðir
Mót framundan
FOLX
■ NOKKRIR áhangendur enska
knattspymuliðsins Torquay ferð-
uðust rúma 480 kílómetra, á leik
við Halifax í 3. deild með mat í
farteskinu ... handa ketti!
■ JOHN McGrath, stjóri Halifax
hafði lýst því yfir að fjárhagsstaðan
væri svo slæm að félagið hefði ekki
efni á því að gefa félags-kettinum
að éta. Þess vegna mættu áhang-
endurnir með nokkrar dósir af
kattamat.
■ ÞAÐ er ekki í mörgum íþrótta-
húsum sem stór kross hangir uppi
á vegg. í Digranesi er þó stór kross
við hliðina á ljósatöflunni.
■ „VIÐ vorum með messu hér
þegar HK fékk húsið afhent og
krossinn er síðan þá. Hann er okkur
til heilla og ég ætla ekki að taka
hann niður á meðan við fáum að
hafa hann. Ætli þetta sé ekki hjátrú
hjá mér vegna nýja starfsins," sagði
Gunnlaugur Hjálmarsson sem er
nýtekinn við starfi umsjónarmanns
íþróttahússins. ^
■ JÓN Otti Ólafsson körfuknatt-
leiksdómari, sem dæmdi 1000. leik-
inn á sunnudaginn, er prentari að
mennt. Hann hefur unnið hjá Borg-
arprenti frá því hann byrjaði að
vinna sem 18 ára unglingur árið
1959, eða í 33 ár.
■ JÓN Otti sagði að þúsundasti
leikurinn hefði verið mjög svipaður
hinum 999!
■ WIMBLEDON hefur ekki geng-
ið vel í vetur í ensku úrvalsdeildinni
í knattspyrnu. Framheijinn John
Fashanu segist vera með skýringu
á því á reiðum höndum; vamarmenn
liðsins séu of laglegir.
■ „ VIÐ erum að leita að stómm,
sterkum og ljótum varnarmanni,"
segir Fashanu, og bætir við að ef
félagið fengi Neil Ruddock (leik-
mann Tottenham) í leikmannahóp-
inn kæmust hlutirnir í lag. Ekki
hafa borist fregnir af viðbrögðum
Ruddocks!
■ „ÞAÐ var einhverju sinni," seg-
ir í nýjasta hefti biaðsins ÍSÍ-fréttir,
að þeir voru í bíltúr saman Sveinn
Jónsson, fyrrverandi formaður KR
og Halli í Andra. Er þeir óku um
Árbæjarhverfið segir Halli við
Svenna, „Ja, ekki búið þið svo vel
í vesturbænum að eiga götu sem
er kennd við félagið eins og hérna.
Því hér eiga þeir Fylkisveg." „Svo
þú heldur það,“ segir Svenni. „Við
eigum nú Meistaravelli.““
■ RUDI VöIIer, þýski framheijinn
hjá Marseille í Frakklandi, fór úr
axlarliði gegn Caen um helgina og
missir af Evrópuleiknum gegn Club
Brugge í næstu viku.
■ HRISTO Stoichkov, búlgarski
miðheijinn hjá Barcelona verður
ekki með gegn ísrael í HM-leik á
morgun. Hann mætti á æfingu
heima í Búlgaríu fyrir helgi en
flaug til Spánar til að spila í deild-
inni gegn Espanol, í trássi við
landsliðsþjálfarann.
■ STOICHKOV sagði við blaða-
menn eftir 5:0 sigurinn á Espanol
að hann hygðist fara með einkaþotu
til Israel í gær vegna leiksins á
morgun, en búlgarski þjálfarinn
vildi ekkert með hann hafa.
STÓRHUGUR
Knattspymusamband íslands
var rekið með liðlega átta
milljón króná halla á síðasta
starfsári samkvæmt rekstrar-
reikningi, sem var lagður fram
og samþykktur án umræðu á
ársþingi sambandsins um helg-
ina. Fram komu _____________
vonbrigði með BMWW
árangur a-landsliðs-
ins í riðlakeppni
heimsmeistaramóts-
ins og líst var yfir
áhyggjum vegna
minnkandi aðsóknar
að leikjum hérlend-
is. Vandamálunum
var ekki ýtt til hliðar, en í stað
barlóms og bölmóðs var blásið
til nýrrar sóknar.
Samkvæmt starfs- og
kennsluskýrslum aðila innan
íþróttasambands íslands eru lið-
lega 100.000 þátttakendur í
keppni og starfi innan ÍSÍ og
þar er knattspyman lang vin-
sælust sem fyrr með um 25%
félagsmanna. Landslið hverrar
íþróttagreinar er andlit hennar
í alþjóða keppni og því hefur
árangur þess mikið að segja í
annarri uppbyggingu, eifknatt-
spymuþingið hafði að leiðarljósi
að keðjan er ekki sterkari en
veikasti hlekkurinn og tók á
málinu í heild sinni.
Athyglisverðasta samþykkt
þingsins var um fastmótaðar
reglur fyrir knattspymuvelli á
íslandi, sem mannvirkjanefnd
KSÍ hefur unnið að allt árið eft-
ir að starfsreglur um nefndina
höfðu verið settar á síðasta árs-
þingi. í máli flutningsmanns
kom fram að hægt væri að
mæla eflingu knattspymunnar
með því að líta á íjölda iðkenda,
knattspyrnulega getu, fjölda
áhorfenda og umíjöllun í frjöl-
miðlum. Hins vegar hefðu ná-
grannaþjóðirnar komist að þeirri
niðurstöðu að mikilvægur þáttur
til að ná hámarksárangri væri
fólginn í bættum mannvirkjum
jafnt fyrir keppendur sem áhorf-
endur. Framsagan'var skýr og
skorinorð, enginn hreyfði and-
mælum og tillagan var sam-
þykkt samhljóða.
Formaður KSÍ greindi frá
samþykkt stjómar, sem miðar
að því að þróa og efla bestu
efnin í íslenskri knattspyrnu
Framsýni í framtíðar-
stefnu knattspymufor-
ystu íslands
með heimsmeistarakeppnina
1998 í huga. Sérstaklega á að
beina augum að 50 bestu og
efnilegustu knattspymumönn-
unum og undirbúa þá sem best
með fyrmefnda keppni í huga.
Forráðamenn 1. deildarfélaga
vom á einu máli um að lengja
þyrfti keppnistímabilið og sam-
þykkt var að fjölga verkefnum
fyrir yngri flokkana.
Öll þessi mál eiga það sam-
merkt að í þeim felst vilji til að
bæta knattspyrnuna og auka
enn vinsældir hennar. Forystan
er stórhuga, en eitt er að sam-
þykkja og annað að fram-
kvæma. Ekki er sjálfgefíð að
koma mannvirkjum í það horf,
sem vilji stendur til, nema til
komi öflugur stuðningur við-
komandi sveitarfélaga og al-
mennur skilningur á því að
framtíð íslenskrar knattspymu
á mikið undir bættum aðbúnaði
komið. Æ erfíðara verður fyrir
íslenska afreksmenn í knatt-
spyrnu að komast að hjá erlend-
um atvinnumannaliðum og því
skiptir aðbúnaður heima fyrir
miklu varðandi landslið framtíð-
arinnar. 60 manna úrvalshópi
verður ekki haldið við efnið
nema með velvilja fjársterkra
aðila. Á brattann er að sækja,
en orð eru til alls fyrst.
Steinþór
Guðbjartsson
Geturyeriðað SIGRÚIMCORABARKER leikiruðningmeðDallasCowboys?
Bíð og vona
ÞAÐ kannast margir við nafnið; Sigrún Cora Barker. Ef ekki
þá skal það upplýst að hún lék yfir 100 leiki í knattspyrnu með
Val og körfuknattleik með KR. Hún hefur auk þess leikið lands-
leiki bæði í körfubolta og knattspyrnu. Sigrún Cora, sem er
28 ára, hefur dvalið f Dallas f Bandaríkjunum sfðan 1989 —
vinnur þar við hjúkrun. Morgunblaðinu bárust myndir af henni
þar sem hún er í búningi ruðningsliðsins Dallas Cowbys og
það lá þvf beinast við að slá á þráðinn til hennar f Bandarfkjun-
um.
Eftir
ValB.
Jónatansson
Sigrún Cora, ertu farin að
stunda ruðning með Dallas
Cowboys? „Nei, ekki get ég nú
_________ sagt það. Annars
er saga að segja
frá því hvemig það
kom til að ég hit-
aði upp með
Cowboys liðinu. Ég fór með vin-
konu minni á bílasölu hjá Oldsmo-
bil hér í Dallas til að skoða bfl.
Þar var hægt að setja nafn sitt í
pott þar sem bifreið var í vinnig.
Ég skrifaði nafnið mitt og setti í
pottinn og var síðan búin að
gleyma þessu þegar hringt var í
mig og mér tjáð að ég hafí verið
dregin út.
Þetta er þannig að fyrir hvern
heimaleik hjá Dallas Cowboys
fram að jólum er dregið út eitt
nafn, alls átta nöfn. Þessir átta
verða að taka þátt í einum heima-
leik Cowboys til að fá að vera í
hattinum er dregið verður um
Oldsmobil bílinn að verðmæti 20
þúsund dollara [andvirði 1,2 millj-
ónir ÍSK]. Við mætum öll 27.
desember á völlinn og þar munum
við draga um það í hálfleik hver
okkar hlýtur bílinn. Möguleikar
mínir á að vinna eru því einn á
móti átta.
Mér datt ekki í huga að þetta
ætti að vera svona þegar ég setti
nafnið mitt í þennan pott. Ég
gerði það meira af rælni að skrá
mig. En það var virkilega gaman
að taka þátt í þessari uppákomu
fyrir framan sextíu þúsund áhorf-
endur. Leikmennirnir eru algjör
tröll að burðum og ég hreinlega
týndist innan um þá enda er ég
ekki há í loftinu. Nú er að bíða
Slgrún Cora Barker er vígaleg í búningi Dallas Cowboys.
og vona að ég detti í lukkupottinn
27. desember. Annars er aðalatrið-
ið að hafa fengið að vera með í
þessu. Ég fékk allavega búning
með nafninu mínu á!“
Nú stundaðir þú bæði knatt-
spymu og körfubolta með góðum
árangri á íslandi áður en þú fórst
út, hefurþú ekkert stundað íþrótt-
ir í Bandaríkjunum?
„Ég lék með Texas Challenge,
sem hefur níu sinnum hampað
bandaríska meistaratitlinum í
kvennaknattspymu, þijú keppnis-
tímabil. Ég var bandarískur meist-
ari með liðinu 1989 og 1991. í
janúar fór ég í uppskurð vegna
hnémeiðsla og hef ekki æft knatt-
spymu síðan. Ætli ég sé ekki end-
anlega hætt í alvöru fótbolta. Ég
gæti vel hugsað mér að leika í
neðri deildum hér svona meira til
að leika mér.“
Nú hefur þú dvalið í Dallas í
rúm þijú ár. Fylgist þú með íþrótt-
unum hér á Islandi?
„Nei, ekki mjög mikið. Fjöl-
skyldan mín er ekki nógu dugleg
að senda mér upplýsingar að heim-
an. Ég fylgdist vel með fyrir
Ólympíuleikana og ætlaði að fylgj-
ast með handboltalandsliðinu þar
og keypti mér aðgang að tveimur
aukarásum í sjónvarpinu. En þeir
sýndu ekki eina einustu mínútu
frá handboltakeppninm og ég var
mjög svekkt yfir því.“