Morgunblaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 7
6 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTSR ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1992
B 7
SUND / BIKARKEPPNI
SUNDFÉLAGIÐ Ægir varð um
helgina bikarmeistari í sundi í
fyrsta skipti frá því árið 1987.
Ægismenn tóku forystuna í
stigakeppninni þegar eftir
fyrstu grein mótsins á föstudag
og létu hana aldrei af hendi. í
lokin munaði 1.431 stigi á Ægi
og helstu keppinautunum,
Sundfélaginu Suðurnesi.
Það voru allir ákveðnir í að gera
sitt besta. Við settum stefnuna
á að ná góðri forystu eftir langsund-
in á föstudaginn og
það gekk eftir og ég
Eiðsson f sérstaklega
skrífar ánægður með
frammistöðu þeirra
Richards Kristinssonar og Sigur-
geirs Hreggviðssonar í langsundinu.
Fyrir daginn í dag [sunnudag] gerði
ég mér góðar vonir um sigur en ég
var ekki öruggur fyrr en ég snerti
á bikamum," sagði hinn finnski
þjálfari Ægis, Petteri Laine eftir
sigur sinna manna en félagið hlaut
27.161 stig.
Sundfélagjð SFS hafði bikar að
veija á mótinu en Eðvarð Þór Eð-
varðsson, sundmaður og þjálfari liðs-
ins sagðist engu að síður mjög
ánægður með 2. sætið. „Ég held að
það hafi aldrei verið spurning um
það hvaða félag mundi vinna þetta
mót. Okkur var spáð ijórða til
fímmta sæti og sú spá byggð á því
að fjórir sterkir landsliðsmenn sem
voru með okkur í fyrra eru ekki leng-
ur í okkar röðum. En félagið er í
uppsveiflu. Ljóst er að virk unglinga-
starfsemi hjá okkur hefur skilað
árangri og margir bættu besta
árangur sinn,“ sagði Eðvarð.
Bikarkeppnin var þó mun jafnari
en í fyrra en UMSK fékk það hlut-
skipti að falla niður í 2. deild. KR
varð í næst neðsta sæti en þar sem
að félagið hlaut fleiri stig en næst
efsta lið 2. deildar, Vestri þá heldur
Reykjavíkurfélagið sæti sínu.
Þrír sundmenn sigruðu í þremur
greinum á mótinu. Bryndís Ólafs-
dóttir sem fagnaði bikarmeistaratitli
með SFS í fyrra en er nú í röðum
Ægis sigraði í 100 og 200 m skrið-
sundi og 100 m flugsundi og Magn-
ús Már Ólafsson sigraði í sömu
greinum í karlaflokki. Þá sigraði
Ragnheiður Runólfsdóttir í 100 og
200 m bringusundi og 200 m bak-
sundi. Rétt er að geta þess að sæta-
röðin gefur ekki stig heldur eru
tímamir reiknaðir til árangurs.
Besta árangur mótsins náði Ragn-
heiður í 200 m bringusundi en tími
hennar 2.34,63 gaf IA 854 stig.
íslandsmetin í fullorðinsflokki
stóðust áhlaupin en fimm unglinga-
met litu dagsins ljós. Magnús Konr-
áðsson, SFS setti tvö piltamet, í 100
m og 200 m bringusundi og Hjalti
Guðmundsson SH lék sama leikinn
í drengjaflokki. Þá setti Ómar Öm
Svævarsson SH sveinamet í 100 m
baksundi.
■ Úrslit / BIO
FOLK
■ SUNDFÉLAGIÐ Suðumes
hefur gengið frá ráðningu aðaiþjálf-
ara, Lazlo Szelif frá Ungveija-
landi og er hann væntanlegur til
félagsins í byijun næsta árs.
■ SZELI hefur fengist við þjálfun
bæði í heimalandi sínu og í Þýska-
landi og hann var um tíma þjálfari
úrvalsliðs Suður-Þýskalands. Ung-
veijar eiga marga fremstu sund-
menn heims eins og kom í ljós á
síðustu Ólympíuleikum og vænta
Suðumesjamenn mikils af störfum
hans.
■ EÐVARÐ ÞÓR Eðvarðsson
er aðalþjálfari félagsins þangað til
Ungveijinn kemur. Honum til að-
stoðar er Kjartan Másson, sem
betur er þekktur sem knattspymu-
þjálfari.
É SUNDLIÐ ÍA mætti með eigið
vatn meðferðis á Bikarkeppnina.
Skagamenn mættu með brúsa full-
an af vatni sem tekið hafði verið
úr Jaðarsbakkalauginni á Akra-
nesi. Áður en keppni hófst á föstu-
dag helltu þeir úr brúsanum í laug-
ina í Sundhöllinni. Þess má geta
að þetta bragð er alþekkt á háskóla-
mótum í Bandaríkjunum og liður
í því sálfræðistríði sem ríkir á milli
félaga á mótum sem þessum.
U ÆGISMENN mættu til leiks
með pijónahúfur á höfðinu. Húfum-
ar vom bláar og hvítar á litinn og
pijónaðar af eiginkonu aðalþjálfar-
ans.
■ HÚN kom hingað til lands í
haust frá Finnlandi með manni
sínum og hóf nám í íslensku við
Háskólann. Hún getur þegar beitt
fyrir sig íslenskunni en það er meira
en hægt er að segja um þjálfarann
sem gerir sig skiljanlegan við sund-
fólk sitt á ensku.
■ RAGNHEIÐUR Runólfsdóttir,
sunddrottningin af Skaganum,
þreytti fmmraun sína sem aðal-
þjálfari ÍA á bikarmótinu.
É NOKKUR kæmmál em í gangi
um þessar mundir. Meðal annars
ætla forsvarsmenn Sundfélagsins
Óðins að fá úr því skorið hvort að
B-liði Ægis sé heimil þátttaka í 1.
deild að ári en liðið sigraði í bikar-
keppni 2. deildar fyrir hálfum mán-
uði. Telja Óðinsmenn að skv. reglu-
gerð sé hveiju félagi ekki heimilt
að stilla upp nema einu liði í hverri
deild.
Ægir með forystuna
frá upphafi til enda
Ragnheiður Runólfsdóttlr, þjálfari ÍA vann besta afrekið á bikarmótinu.
Morgunblaðið/Frosti
Missti medvitund
Ingibjörg Isaksen úr Ægi fékk
astmakast og missti meðvitund
eftir að hafa synt 200 m bringusund
á laugardeginum. Hún kom ekki til
meðvitundar fyrr en á Borgarspítal-
anum, um tuttugu mín. síðar.
„Ég barðist við að ná andanum
eftir sundið en vaknaði svo á spítal-
anum,“ sagði Ingibjörg, sem fékk
astmakast í fyrsta sinn á ævinni við
svipaðar aðstæður fyrir hálfum mán-
uði en hafði aldrei að öðru leyti kennt
sér meins. Það getur verið erfitt að
fá nægjanlegt loft í iungun, eftir mikla
áreynslu, sérstaklega við aðstæður
sem voru í Sundhöllinni á laugardag.
Loftið var þungt. Aðaldyr hússins
voru opnar en dyr austanmegin lokað-
ar, svo og allir gluggar. Sænski lækn-
irinn, Kent Olsson, fyrrverandi þjálf-
ari Ægjs var á meðal áhorfenda og
hann kom Ingibjörgu til aðstoðar áður
en sjúkrabifreið kom á staðinn.
Aðspurður hvort ekki hefði verið
teflt í tvísýnu að leyfa Ingibjörgu að
keppa svo stuttu eftir astmakastið
sagði þjálfari Ægis, Petteri Laine að
hann vildi lítið ræða um málið. Við
vorum heppnir, þetta gat farið mun
verr. Að öðru leyti vil ég ekki ræða
þetta. Þetta er á milli mín, Ingibjarg-
ar og móður hennar."
Ingibjörg sagði sjálf að hún hefði
fengið því framgengt með þijósku að
fá að keppa, upphaflega hefði ekki
átt að leyfa henni það enda er hún
enn í rannsókn hjá læknum.
MorgunDlaOið/l,'rosti
Líðsmenn Ægls fagna sigri í 1. deild bikarkeppninnar. Sundmennimir létu sig ekki muna um að stökkva út í laug
í fötunum eftir að sigurinn var í höfn.
„ÉG er sannur SH-ingur. EKKI
til sölu," var prentað aftan á
boli sem sundmenn SH klædd-
ust á meðan á bikarkeppninni
stóð. Skilaboðin voru ætluð
Arnþóri Ragnarssyni og Sund-
félagi Suðurness en Arnþór til-
kynnti félagaskipti í SFS fyrir
hálfum mánuði síðan.
að er verið að bjóða peninga í
sundmenn en við teljum að
félögin hafi ekki efni á að greiða
fyrir íþróttamenn eins og gerist í
boltaíþróttunum," sagðj Sævar
Stefánsson formaður SH. Arnþór
fór fram á greiðslu frá okkur en
við töldum ekki hægt að verða við
því þar sem félagið fær éngar tekj-
ur af aðgangseyri," sagði Sævar.
Eðvarð Þór Eðvarðsson, þjálfari
SFS var mjög óánægður með skila-
boðin frá SH. „Amþór gekk yfír til
okkar til að þroska sig sem sund-
mann. Hjá SH var hann yfirburðar-
maður en hjá okkur æfír hann með
mönnum sem geta veitt honum
keppni. Ég held að þetta hafi verið
vanhugsað og beri vott um lítinn
þroska hjá þeim mönnum sem að
þessu stóðu. Við borguðum Amþóri
ekki krónu fyrir að skipta um félög
en fyrir mitt tilstilli fær hann ferða-
styrk til að geta stundað æfíngar,"
sagði Eðvarð sem rétt eins og Am-
þór er í íþróttakennarskólanum að
Laugarvatni.
Félagaskipti í sundi miðast við
tveggja mánaða biðtíma. Hins veg-
ar tekur það sundmann hálfan
mánuð að verða löglegur með nýju
félagi ef hann um leið tilkynnir
aðseturskipti í annað bæjarfélag.
Það var gert í tilfelli Amþórs.
Morgunblaðið/Frosti
Sannur SH-ingur...
Liðsmenn Sundfélags Hafnarfjarðar sendu fyrrum félaga sínum, Arnþóri Ragnarssyni og
Sundfélagi Suðumess skilaboð með áletrun aftan á bolum sínum um helgina - vegna félaga-
skipta sundmannsins fyrir skömmu.
Osætti vegna félaga-
skipta Amþórs í SFS
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1992
KÖRFUKNATTLEIKUR
Grindvíkingar fóru illa
að ráði sínu gegn Val
GRINDVÍKINGAR fóru illa að ráði sínu á lokamínútunni gegn Val
í íþróttahúsinu í Grindavík á sunnudagskvöld. Tæp mínúta var
til leiksloka þegar Dan Krebs fékk dæmda á sig ásetningsvillu.
Staðan var þá 80:79 Val í vil. Hjálmar Hallgrímsson var mjög
ósáttur við dóminn og fékk dæmda á sig tæknivillu og síðan
vísað af velli í kjölfarið. Valur fékk því 6 vítaskot í röð ásamt því
að halda knettinum. Ragnar Jónsson skoraði úr þremur þeirra
og tryggði Val sigur f baráttuleik.
Leikurinn var í jámum allan tím-
ann og munurinn aldrei veru-
legur. Bæði liðin spiluðu vel í vörn
og héldu sóknar-
Frímann mrntmm ve> niðri °S
Ólafsson skotnýting hvorugs
skrifar liðsins var góð.
Magnús Matthías-
son var dijúgur fyrir Val í fyrri
hálfleik og skoraði þá öll stig sín
utan eitt. Frank Booker var í mjög
góðri gæslu þeirra Hjálmars Hall-
grímssonar og Helga Guðfinnsson-
ar. Valur hafði 8 stiga forskot þeg-
ar mínúta var til hlés en heima-
menn náðu að minnka það í eitt
stig fyrir hálfleik.
Sami barningur var á liðunum í
seinni hálfleik. Heimamenn jöfnuðu
leikinn og komust yfir 56:52. Vals-
menn skoruðu átta stig í röð og
komust yfír 60:56. Dan Krebs svar-
aði með tveimur þriggja stiga körf-
um og körfu að auki og Helgi Guð-
fínnsson með víti breyttu stöðunni
í 65:60. Þannig sveiflaðist leikurinn
milli liðanna og hvorugt gaf eftir.
Heimamenn voru síðan yfír þegar
rúm mínúta var eftir 79:77. Frank
Booker skoraði þriggja stiga körfu,
þá fjórðu í leiknum og I darraða-
dansinum í lokin voru Valsménn
sterkari og stóðu uppi sem sigur-
vegarar.
Liðin voru bæði nokkuð jöfn og
spiluðu góðan vamarleik eins og
sést á stigaskorinu. Dan Krebs átti
mjög góðan leik í Grindavíkurliðinu,
spilaði vel bæði í vöm og sókn.
Pálmar spilaði einnig vel og er það
gleðiefni fyrir liðið að hann sé að
ná sér á strik. Guðmundur var ró-
legur í stigaskorun en spilaði mjög
vel í vörn eins og allt liðið.
Valsliðið spilaði allt vel og erfítt
að taka einhvem út. Frank Booker
skoraði mikið en notaði mun fleiri
skot. Magnús Matthíasson var mjög
góður í fyri hálfleik en ekki eins
áberandi í þeim seinni. Ragnar
Jónsson og Brynjar Harðarson
stóðu vel fyrir sínu.
H ÞAÐ var mikið um blóm á leik
UBK og Hauka á sunnudaginn.
Jón Otti Ólafsson var að dæma
sinn 1000. leik á um tveggja ára-
tuga ferli og fékk blómvendi frá
KKÍ, KR og liðunum.
■ DÓMARAR færðu honum einn-
ig mynd og blómvönd og Héðinn
Gunnarsson, sem var að dæma
sinn fyrsta leik í úrvalsdeildinni,
fékk eina rós frá dómumm. Þama
mættust sem sagt sá leikreyndasti
á landinu og nýliði í úrvalsdeildinni.
■ KR-INGAR ætla að halda hóf
til heiðurs Jóni Otta um næstu
helgi og sagði Einar Bollason, sem
lék með Jóni Otta hjá KR á sínum
tíma, í stuttu ávarpi fyrir leikinn
að þar yrðu honum færðar miklu
fleiri gjafír í tilefni þessa merka
áfanga.
■ KLUKKAN í Digranesinu er
biluð og hefur verið lengi. Það er
ómögulegt að sjá hvernig staðan er
i leikjum þarna vegna þess að það
vantar einhver ljós í töfluna.
Morgunblaðið/RAX
Villa á leikmann númer fimm!
Jón Otti gefur ritara merki um leikvillu í 1000. leiknum sem hann dæmdi. Villumar sem Jón Otti hefur dæmt em
orðnar margar enda hefur hann varið að í tvo áratugi.
Haukar höfðu það í
blómaleik Jóns Otta
HAUKUM hefur gengið erfiðlega fleikjum gegn Breiðabliki og á
sunnudaginn varð engin breyting þar á. Hafnfirðingarnir höfðu
þó betur, sigruðu 86:79, en tæpt var það að þessu sinni eins og
oft áður. Leikurinn var sérlega merkilegur fyrir þær sakir að Jón
Otti Ólafsson KR-ingur, dæmdi þarna þúsunda leik sinn, og var
hlaðinn blómum áður en hann flautaði til leiks. Svo skemmtilega
vildi til að með honum dæmdi Héðinn Gunnarsson, og var þetta
fyrsti leikur hans sem dómara.
að virðist henta Haukum illa að
leika gegn hávöxnu liði sem
leikur sterka svæðisvöm. Þegar liðin
mættust í Hafn-
Skúli Unnar arflrði fyrr >' vetur
Sveinsson unnu Haukar með
skrífar einu stigi. „Það er
alltaf erfitt að leika
gegn Blikum. Það telja allir að við
eigum að vinna þá auðveldlega en
það er alls ekki sjálfgefíð að fá tvö
stig gegn þeim. Við fengum áminn-
ingu í fyrri hálfleik og í þeim síðari
fóru strákarnir að hreyfa sig í vöm-
inni og þetta voru tvö góð stig,“
sagði Ingvar Jónsson þjálfari Hauka.
Blikar léku af mikilli skynsemi.
Þeir náðu að stjórna hraða leiksins
lengst af, nýttu tímann vel i sókn-
inni og vörnin var sterk. Þeir höfðu
forystu fram í miðjan síðari hálfleik,
þó aldrei væri hún mikil. Haukar
tóku aðeins við sér í síðari hálfleik
og fóm að leika þokkalega vörn,
lengstum pressuvörn, en þeir léku
mjög slaka vöm í fyrri hálfleik.
Sóknarleikur liðanna var ekkert
til að hrópa húrra fyrir, leikmenn
hittu frekar illa og hraðinn var ekki
mikill, minnti frekar á rólegan hand-
boltaleik en leik í úrvalsdeildinni í
körfu. Leikurinn var samt spennandi
því munurinn var aldrei mikill.
Það munaði miklu fyrir Blika að
missa Pétur útaf með fimm villur
þegar átta mínútur voru eftir og
Björn Sigtryggsson, sem lék vel,
fékk sína fimmtu villu þegar stund-
arfjórðungur var eftir.
Blikamir vom fremur jafnir að
þessu sinni og það vantar ekki mik-
ið í liðið til að það gæti spjarað sig
betur í deildinni. Flestir léku ágæt-
lega í vörninni en í sókninni vantaði
eitthvað, einna helst einhvern sem
gat stjórnað leikkerfunum gegn
pressuvöminni.
Hjá Haukum átti Bragi góðan
leik, skilaði hlutverki sínu í sókninni
sérlega vel. Aðrir léku ekki eins vel
og þeir eiga að geta, en það dugði
engu að síður.
Öruggur Snæfeils-sigur
Það var ljóst strax á fyrstu mín-
útum leiks Snæfells og Skalla-
gríms í Hólminum á sunnudaginn
að bæði lið ætluðu
Maria sér sigur og ekkert
Guðnadóttir annað. Mikil hraði
skrifar og barátta einkenndi
leikinn, en heimamenn höfðu sigur,
92:86.
Heimamenn höfðu ávallt undir-
tökin í fyrri hálfleik en leikmenn
Skallagríms voru ávallt skammt
undan. ívar Ásgrímsson, þjálfari
Snæfells, var að vonum ánægður
með sigurinn. „Við sigruðum í leikn-
um með góðri baráttu og munum
nú taka einn leik í einu,“ sagði hann.
í byijun seinni hálfleiks náðu
Skallagrímsmenn að jafna leikinn
og komast yfir. Þá tóku heimamenn
við sér, náðu mjög góðum leikkafla
og komust ellefu stigum yfir, 70:59.
Eftir það var sigur Snæfells aldrei
f hættu.
Bestur í jöfnu liði Snæfells var
Rúnar Guðjónsson og þá sérstaklega
í vöminni, þar sem Birgir Mikaelsson
komst lítið áleiðis. Ermolínskíj og
Henning Henningsson voru bestu
menn Skallagríms, sérstaklega sá
fyrrnefndi, sem var dijúgur undir
körfunni, skoraði grimmt og hirti
fjöldann af fráköstum.