Morgunblaðið - 01.12.1992, Qupperneq 12
Jordan
meiddist
og Chicago tapaði
JULIE Parisien frá Bandaríkjunum fagnaði sigri á heimavelli á
sunnudaginn er hún náði besta tímanum í svigi kvenna í Park City
í Utha. Austurríska stúlkan Ulrika Maier byrjaði áttunda keppnis-
tímabilið með glæsibrag og sigrað í stórsvigi á laugardag. Pern-
illa Wiberg, sem kom til íslands sl. vor, stendur best að vígi eftir
mót helgarinnar og vann sér inn tæplega tvær milljónir ÍSK.
Pemilla Wiberg var með lang-
besta tímann í fyrri umferð
svigsins, en í síðari umferð gerði hún
mistök rétt áður en hún kom í mark-
ið og það kostaði hana sigurinn.
Julie Parisien, sem hafði næst besta
tímann eftir fyrri umferð, fagnaði
þriðja heimsbikarsigrinum og var
aðeins 0,03 sek. á undan Wiberg.
Annelise Coberger frá Nýja-Sjálandi
varð þriðja. Vreni Schneider'' frá
Sviss náði langbesta tímanum í síð-
ari umferð og vann sig upp úr 25.
sæti í það fjórða. Önnur sænsk
stúlka, Kristina Andersson, og Karin
Buder frá Austurríki deildu með sér
fimmta sætinu.
Fyrsti sigur Maiers
Ulrika Maier bytjaði áttunda keppn-
istímabilið í heimsbikarnum með því
að vinna í fyrsta sinn - stórsvig á
laugardaginn. Carole Merle frá
Frakklandi varð önnur, Vreni
Schneider frá Sviss í þriðja og
Ólympíumeistarinn í stórsvigi, Pern-
illa Wiberg, í fjórða sæti.
Brautin í fyrri umferð var létt og
lögð á flata. Skíðafærið í brautinni
lagaðist er á leið og hraðinn jókst
eftir því sem feiri fóru niður og sem
dæmi um það var Heidi Zeller frá
Sviss með besta tímann í fyrri um-
ferð, en hún hafði rásnúmer 60.
Sænski þjálfarinn lagði síðari braut-
ina sem var öllu erfiðari og þar náði
Wiberg næst besta tímanum og
Schneider besta og lyfta sér upp úr
14. sæti í það þriðja. Zeller féll úr
því fyrsta niður í sjöunda í síðari
umferð. Petra Kronberger, heims-
bikarhafi frá í fyrra, náði sér ekki
á strik um helgina, hafnaði í 25.
sæti í stórsviginu og 7. sæti í sviginu.
Wiberg fékk samtals 28 þúsund
dollara eða 1,8 milljónir ÍSK fyrir
árangur sinn um helgina, sem er
hæstu verðlaun í heimsbikarnum til
þessa. Parisien vann 27 þúsund doll-
ara, Ulrika Maier fékk 15 þúsund
og Verni Schneider hafði 14 þúsund
dollara upp úr krafsinu.
Tescari héK uppi heiðri ítala
Norðmaðurinn Kjetil-Andre Aamodt hafði betur en Alberto Tomba
Frá Gunnari
Valgeirssyni
PORTLAND tapaði öðru sinni á
keppnistímabilinu um helgina,
fyrir Los Angles Lakers 90:98.
Meistarar Chicago töpuðu fyrir
New York en Boston er að ná
sér á strik eftir erfiða byrjun.
Aðalleikur Vesturdeildar var við-
ureign Los Angeles Lakers og
Portland á föstudag í Portland. La-
kers var yfír allan
tímann og hafði 15
stiga' forskot þegar
iBandaríkjunum rúmar fímm mínútur
voru til leikloka.
Portland gerði þá 10 stig í röð en
Lakers náði að halda það út og vann
sjötta leik sinn af tíu. James Worthy
var stigahæstur í liði gestanna með
19 stig. Cliff Robinson var stighæst-
ur heimamann eð 22 stig og Clyde
Drexler gerði 19 stig.
Leikur New York og Chicago var
stórleikur Austurdeildar. Partrick
Ewing og félagar hans í New York
gerðu sér lítið fyrir og unnu Chicago
með ótrúlegum yfirburðum, 112:75
eftir að staðan í hálfleik hafði verið
49:32. Michael Jordan meiddist á
ökkla í fyrsta leikhluta en kom aftur
inná síðar í leiknum til að freista það
að laga stöðuna en náði sér ekki á
strik. Hitti ekki úr 16 af 20 skotum
sínum og gerði ekki nema 17 stig í
leiknum. Ewing var enn einu sinni-
stigahæstur heimamanna með 26
stig. Þetta var fyrsti sigur New York
á Chicago í 12 leikjum, ef frá er
talin úrslitakepppni NBA.
Boston er að ná sér á strik eftir
slaka byijun og vann þriðja leikinn
í röð um helgina, gegn Philadelphiu
á útivelli, 109:117. Orlando er það
lið sem hefur komið mest á óvart í
Austurdeildinni, unnið 8 af 11 leikj-
um sínum.
Reuter
Pernilla Wiberg varð önnur í sviginu og fjórða í stórsviginu. Hún getur
verði ánægð með árangurinn fyrstu keppnishelgina í heimsbikarnum því hún '
vann sér inn 1,8 milljónir ÍSK.
KJETIL-Andre Aamodt frá Nor-
egi eyðilagði sigurgleði ítala er
hann sigraði Alberto Tomba í
fyrsta móti heimsbikarsins í
Sestriere á ítalfu á laugardag.
ítalir tóku gleði sína á ný er
Fabrizio Tescari sigraði óvænt
í sviginu á sunnudag eftir að
átrúnaðargoðið, Tomba, hafði
fallið úr keppni í sfðari umferð.
Aamodt, sem er ólympíumeistari
í risasvigi, vann Alberto
Tomba með tæplega hálfri sekúndu
í stórsvignu á laugardaginn. Þetta
var annar heimsbikarsigur Norð-
mannsins á ferlinum. „Það er alltaf
gaman að etja kappi við Tomba á
Italu þar sem skíðaáhuginn er mik-
ill. Ég naut þess verulega að vinna
hann,“ sagði Aamodt. Tomba var
ekki ósáttur við annað sætið þrátt
fyrir allt og sagði: „Ég er ánægður
með að vera á meðal þriggja efstu
þar sem ég tel mig ekki vera kominn
í toppæfingu í stórsvigi enn.“
Keppnin var hörð milli þeirra
Aamodt og Tomba og aðeins 0,01
sekúnda sem skildi þá af eftir fyrri
umferð. Tomba gerði lítilsháttar mi-
stök í síðari umferðinni en Norðmað-
urinn sýndi mikinn styrk og náði
besta tímanum. Brautirnar voru
stuttar og hraðar. „Þær voru of stutt-
ar og hraðar fyrir mig. Ég nýt mín
betur í kröppum beygjum og löngum
brautum," sagði Tomba.
Svíinn, Johan Wallner, náði þriðja
sæti og Tobias Bamerssoi frá Þýska-
landi náði besta árangri sínum með
því að hafna í fjórða sæti. Heimsbik-
arhafinn, Paul Accola frá Sviss, náði
aðeins sjöunda sæti og Girardelli í
19. sæti og var næstum þremur sek-
úndum á efir Aamodt.
Óþekktur ítali stal senunni
ítalinn Fabrizio Tescari stal sen-
Reuter
Alberto Tomba (t.v.) óskar hér landa sínum, Fabrizio Tescari, til hamingju
unni í svigkeppninni á sunnudaginn
eftir að Alberto Tomba féll úr keppni
í síðari umferð eftir að hafa haft
besta tímann í þeirri fyrri. Tescari
hafði áður náð best 15. sæti í heims-
bikamum. „Mér þykir þetta miður
fyrir Tomba. Hann átti að sigra og
ég mun biðjast afsökunar þegar ég
hitti hann næst,“ sagði Tescari eftir
sigurinn. Austurríkismaðurinn Mic-
hale Tritscher varð annar og landi
hans, Hubert Strolz, og Armin Bittn-
er frá Þýskalandi deildu þriðja sæt-
inu.
Tomba var ekki ánægður með
sjálfan sig. „Ég hagaði mér eins og
asni og tók óþarfa áhættu. Ég hefði
getað keyrt niður af öryggi til að
sigra. En ég er ángæður að það var
ítali sem vann.“ Sigur í sviginu hefði
fært Tomba 60 þúsund dollara (3,8
milljónir ÍSK).
Wiberg missti
naumlega af gullinu
SKIÐI / HEIMSBIKARINN I ALPAGREINUM