Morgunblaðið - 13.12.1992, Page 4

Morgunblaðið - 13.12.1992, Page 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT INNLENT Ovissa um EES af- greiðslu Óvissa ríkti á Alþingi í vikunni um afgreiðslu samningsins um Evrópskt efnahagssvæði eftir að Sviss hafnaði honum. Þjóðhags- stofnun telur að með hálfs árs seinkun gildistökunnar tapi þjóð- arbúið hálfum milljarði. Skiptar skoðanir voru meðal þingmanna um hvort ljúka þyrfti afgreiðslu málsins fyrir áramót eða láta nið- urstöðu annarrar umræðu duga til að sýna afstöðu íslenskra stjómvalda til EES. Utanríkisráð- herra kom af fundi með starfs- bræðrum í EFTA í lok vikunnar með áskorun um að málið yrði afgreitt hér hið fyrsta, áður en til ríkjaráðstefnu dregur eftir ára- mót. Gyllir seldur frá Fiateyri Hjálmur hf. og Útgerðarfélag Flateyrar ákváðu að selja togar- ann Gylli frá Flateyri til Síldar- vinnslunnar hf. í Neskaupstað. Helmingur af um 2.000 þorsk- ígildistonnum togarans verður eft- ir á Flateyri. I athugun er hjá Hjálmi að hefja skelfiskvinnslu og línuútgerð. Ifyrirtækið samdi um kaup á línubátnum Val frá Stöðv- arfirði. Önnur umræða fjárlaga Önnur umræða fjárlaga fór fram á Alþingi i vikunni, en gert er ráð fyrir taisverðum breyting- um á frumvarpinu næstu daga ERLENT Karl og Díana skilinað borði og sæng KARL Bretaprins og Díana kona hans skildu að borði og sæng á miðvikudag. Sagt var að þau ætl- uðu ekki að skilja að lögum og gjömingurinn hefði því engin áhrif á ríkiserfðir. Gæti Díana því orðið drottning. Þó var allt eins talið að síðar myndi Karl afsala sér ríkiserfðum í hendur eldri son- ar síns, Vilhjálms prins. Sómalir fögnuðu hersveitum SÞ FYRSTU liðsmenn rúmlega 30.000 manna herliðs á vegum Sameinuðu þjóðanna (SÞ) gengu á land í Sómalíu og lögðu undir sig höfuðborgina Mogadishu í dögun sl. miðvikudag. Hlutverk sveitanna er að tryggja að hjálp- argögn beristtil milljóna sveltandi Sómala en óaldarflokkar í Moga- dishu og víðar hafa komið í veg fyrir að matvælaaðstoð bærist þeim. Aðgerðin er einstæð að því leyti að þetta er í fyrsta sinn sem gripið er til hervalds af mannúða- rástæðum. Svisslendingar felldu EES Svisslendingar felldu samning- inn um Evrópska efnahagssvæðið (EES) í þjóðaratkvæðagreiðslu sl. sunnudag. Talsmenn Evrópu- bandalagsins (EB) lýstu því yfir að úrslitin hefðu þau áhrif ein á samninginn að hann yrði endur- skoðaður með tilliti til þess að Sviss yrði ekki aðili að EES. Norska krónan fallin GENGI norsku krónunnar var lát- ið fljóta á alþjóðlegum gjaldeyris- markaði á fimmtudag og lækkaði strax um 5%. Mikill þrýstingur hafði verið á krónuna frá því sænska krónan féll í síðasta mán- uði. Efnahagssérfræðingar spáðu því að gengisfall norsku krónunn- ar kynni að skapa hættu á nýju MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1992 ERLEIMT Uppbygging í byggingariðnaði í austurhluta Þýskalands Tækifæri fyrir fyrir- tæki af Norðurlöndum í ÞÝSKALANDI bíða ærin tækifæri i byggingariðnaði samkvæmt athug- un óháðrar rannsóknastofnunar í Kaupmannahöfn um evrópskan byggingariðnað. Kemur t.d. fram að nú séu yfir 800 fyrirtæki og 6.000 iðnaðarmenn frá Danmörku í mannvirkjagerð í Þýskalandi. fram að þriðju umræðu. Athygli vakti að nokkrir stjómarliðar gagnrýndu áform heilbrigðisráð- herra um spamað. Hátt vöruverð Verðlag algengrar neysluvöru er hæst á íslandi af 13 löndum sem breskt fyrirtæki athugaði. Af 22 vörutegundum voru 10 dýr- astar hér og fjórar næstdýrastar. Innkaupakarfa með vörunum kostar 40% meira hér en í Belgíu, sem er næstdýrust, og 80% meira en í nokkrum EB-löndum. Bréf í Sameinuðum verktökum seld Mat Verðbréfamarkaðar Iðnað- arbankans á bréfum í Sameinuð- um verktökum hljóðar upp á 7,2- falt gengi á við nafnverð hlutafjár- ins. Það er 310 milljónir en sam- kvæmt matinu yrðu bréfin metin á 2,2 milljarða, sem er 80% af hreinni eign félagsins. Matið var gert fyrir stjóm fyrirtækisins til undirbúnings almennri markaðs- setningu hlutabréfanna. Fjórðungssjúkrahúsið bótaskylt Hæstiréttur dæmdi Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri til að greiða fimm ára dreng og foreldr- um hans 8 milljónir króna í bætur auk vaxta vegna heilaskemmda drengsins í fæðingu. Þær ollu hon- um varanlegri örorku og mikinn kostnað hefur þurft að leggja í ýmsa umönnun. Hæstiréttur lagði sönnunarbyrði í málinu á sjúkra- húsið, þar sem talið var að aðstæð- ur þar hefðu mátt vera betri. Spít- alinn segist þurfa aðstoð ríkisins til að greiða bætumar, sem auk vaxta eru á annan tug milljóna. írafári á evrópskum gjaldeyris- markaði. Mannskæðar óeirðir á Indlandi MÖRG hundruð manns hafa beðið bana í óeirðum á Indlandi þessa viku. Upphafið að átökum músl- ima og hindúa er að sl. sunnudag rifu herskáir hindúar niður mosku í borginni Ayodhya í Uttar Pra- desh. Hindúar segja að moskan hafi verið reist á fæðingarstað guðs þeirra, Rama, á 16. öld og vilja reisa þar hof honum til dýrð- ar. Jeltsín og Khasbúlatov reyna að semja frið BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti og Rúslan Khasbúlatov þingfor- seti, sem er helsti andstæðingur Jeltsíns, sættust á það á föstudag að reyna að leysa þá stjómmála- kreppu sem hremmir Rússa með viðræðum sín á milli. Hermt var að Jeltsín myndi bjóðast til þess að fóma Gennadíj Búrbúlís, einum nánasta ráðgjafa sínum, og fresta áformum sínum um þjóðarat- kvæðagreiðslu um hver eigi að fara með völd, forsetinn eða þing- ið, í skiptum fyrir frið við þingið. f þingræðu á fimmtudag varaði Jeltsín við dulbúnu valdaráni aft- urhaldsaflanna í landinu og skor- aði á almenning að undirrita áskorun um þjóðaratkvæða- greiðslu þar sem skorið yrði úr um hver færi með völdin. Þingið hafnaði Jegor Gajdar, starfandi forsætisráðherra og aðalhöfundi einkavæðingaráætlunar stjórnar- innar, á miðvikudag. Jeltsín setti Gajdar í embætti með forsetatil- skipun daginn eftir. Danskir byggingamenn hrósa ekki einir happi yfir verkefnagnótt. í Þýskalandi. Norðmenn hugsa sér gott til glóðarinnar vegna nýs samn- ings um byggingu 800 íbúða í borg- inni Jena í Thiiringen-ríki í fyirum Austur-Þýskalandi. Yfirmaður bygg- ingadeildar norska útflutningsráðs- ins, Jan A. Rygh, undirritaði samn- inginn ásamt Lothar Spáth, forstjóra þýska ríkisfyrirtækisins Jenoptik. Rygh slær þann varnagla að ýmis- legt geti farið úrskeiðis áður en hús- in rísi og seljist. Hann segir að Jena- áformin séu samt bestu tíðindin í norskum útflutningi um langt skeið. Lothar Spáth hefur verið aðal- stjómandi Jenoptik í hálft annað ár, en fyrirtækið er reist á grunni Carl Zeiss sjóngleijaverksmiðjanna. Spáth er kristilegur demókrati og var í þrettán ár forsætisráðherra Baden Wurttemberg. Hann sagði af sér embættinu í Stuttgart í byijun síðasta árs eftir að opinbert varð um dýr ferðalög hans á kostnað ýmissa hagsmunaaðila í sambaridsríkinu. Vonir Norðmanna standa til þess að sögn Aftenposten að áform sem þessi geti orðið að veruleika í sam- vinnu við fleiri fyrirtæki en Jenoptik, víðar um landið en í Jena. Hugmynd- in er að beina offramboði vinnuafls og efnis í Noregi að mikilli húsnæði- seftirspurn í austurhluta Þýskalands. íslenskir aðilar í byggingariðnaði virðast ekki hafa hugsað stíft til Þýskalands þrátt fyrir þrengingar hérlendis. Grétar Þorsteinsson for- maður Sambands byggingarmanna segir 'að með auknu atvinnuleysi hafi menn samband í vaxandi mæli til að afla vitneskju um starfsmögu- leika erlendis. En hann kannast ekki við neina Þýskalandssveiflu hér, seg- ir hana hins vegar greinilega í Dan- mörku og ekkert nýnæmi. Pálmi Kristinsson framkvæmda- stjóri Verktakasambands íslands segir vel þekkt að stór fyrirtæki á Norðurlöndum hafi verið að kaupa fyrirtæki í austurhluta Þýskalands. En þar sé nóg vinnuafl þótt verk- þekking gæti oft verið betri. Pálmi segir að á Norðurlöndum sé útlit í greininni nú einna bjartast í Noregi. Gæti hugsast að einhveijir íslending- ar leituðu þangað eftir verkefnum, Þýskaland væri hins vegar líklega fjarlægara mönnum bæði vegna að- stæðria í austrinu og tungmálsins. Sögulegt samkomulag þýsku stjórnmálaflokkanna Tékkar og Pólverjar verða að axla hluta flóttamannavandans Flestir flóttamenn í Þýskalandi hafa komið þangað í gegnum Pólland eða Tékkóslóvakiu. Samkvæmt samkomulagi þýsku flokk- anna verður almennt ekki tekið við flóttamönnum þaðan. Hér sjást flóttamenn í Liibeck í Þýskalandi bíða eftir afgreiðslu á skrifstofu yfirvalda. ALLIR helstu stjórnmálaflokk- amir í Þýskalandi náðu sögu- legu samkomulagi um síðustu helgi um leiðir til að stemma stigu við straumi flóttamanna til landsins. Grundvallaratriði samkomulagsins er stjómar- skrárbreyting sem takmarkar þann ríka rétt sem flóttamenn hafa notið í Þýskalandi. 116. gr. þýsku stjómarskrárinn- ar er flóttafólki veittur einfald- ur og skýr réttur: „Þeir sem verða fyrir pólitískum ofsóknum eiga rétt til hælis.“ Aðalvandi þýskra stjómvalda hefur falist í að skera úr um hvort menn hafí sætt póli- tískum ofsóknum heima fyrir. Á meðan úr því er greitt hafa flótta- mennimir fengið að dveljast í Þýskaiandi. Rannsókn á þeim til- vikum þar sem gmnur hefur leik- ið á að flóttamaður væri að sækj- ast eftir efnahagslegri velferð í Þýskalandi hefur getað dregist mjög á langinn. Afleiðing hinnar mannúðlegu stjómarskrárgreinar hefur verið yfirþyrmandi flótta- mannstraumur til Þýskalands sem stefnt hefur innanlandsfriði í hættu. Samkvæmt samkomulagi stjómarflokkanna þriggja, kristi- legra demókrata, kristilega sósíal- sambandsins og fijálslyndra demókrata, og jafnaðar- manna á að breyta 16. greininni. Sú meginregla mun áfram gilda að þeir sem orðið hafa fyrir pólitískum ofsóknum eigi rétt á hæli sem flóttamenn. Það mun þó samkvæmt samkomulaginu ekki eiga við um flóttamenn sem koma til Þýskalands með viðkomu í þriðja ríki er virðir mannrétt- indi. Kveðið er á um að þar undir falli ríki Evrópubandalagsins og ríki þar sem virt eru ákvæði Genf- arsáttmálans og Mannréttinda- sáttmála Evrópu. Þess má geta að jafnaðarmenn fengu fram- gengt þeirri kröfu sinni að skil- yrði væri að mannréttindi væru virt í viðkomandi ríki á meðan hinir flokkamir vildu láta nægja að umræddir sáttmálar hefðu ver- ið fullgiltir. Setja á lög um hvaða ríki teljist „öruggir" viðkomustað- ir flóttamanna. Samkom.ulag er um að þar undir falli nágrannarík- in Pólland, Tékkóslóvakía, Austurríki og Sviss. Hefja á þegar í stað við- ræður við pólsk og tékknesk stjómvöld um leiðir til að milda þær afleiðingar sem þessi nýskip- an mála mun hafa í för með sér en obbinn af flóttamönnum til Þýskalands hefur haft viðkomu í þessum ríkjum. Bjóðast Þjóðveijar til að auðvelda Pólveijum og Tékkum að ráða sjálfir við flótta- mannastrauminn sem þangað liggur austan og sunnan úr álfu. Flóttamenn frá EB-ríkjum og „ör- uggum“ nágrannaríkjum Þýska- lands munu ekki geta skotið ágreiningi við þýsk yfirvöld til dómstóla. Góð og vond ríki Samkomulagið gerir enn frem- ,ur ráð fyrir að sett verði lög með heimild í stjórnarskránni sem telji upp þau upprunaríki flóttamanna þar sem almennt réttarástand virðist vera í svo góðu lagi að pólitískar ofsóknir eða ómannúð- leg réttarvarsla eigi sér þar ekki stað. Meginreglan verður sú að flóttamenn frá þessum ríkjum njóti ekki réttar til hælis í Þýska- landi. Þetta þýðir í raun að þýska þinginu er uppálagt að skipta ríkj- um heims í góð og vond ríki. Fijálslyndir demókratar og jafn- aðarmenn fengu þó ráðið því að ílóttafólk frá slíkum ríkjum geti ieitað til dómstóla með ágreining við stjórnvöld. Loks er í samkomulaginu tekið á málefnum Þjóðveija erlendis. Takmarka á innflytjendaijöldann við u.þ.b. 200.000 á ári. Samkomulagið sem hér hefur verið reifað verður lagt fyrir þýska þingið næsta vor. Heimild: Frankfurter Allge- meine Zeitung. BAKSVIP eftir Pál Þórhallsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.