Morgunblaðið - 13.12.1992, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 13.12.1992, Blaðsíða 46
KORFUKNATTLEIKUR / NOREGUR SAGA LANDSMOTA UMFI Betri körfubolti á íslandi en í Noregi - segirJón Sigurðsson, sem þjálfar Gimie frá Bergen JÓN Sigurðsson, fyrrverandi ieikmaður KR og íslenska iands- liðsins íkörfuknattleik, hefur náð athyglisverðum árangri sem þjálfari norska félagsins Gimle frá Bergen. Liðið er efst í úrvalsdeildinni að loknum þrettán leikjum, með 20 stig, en Bærums Verk er í öðru sæti með jafn mörg stig. Liðið lék þrjá leiki í Osló á dögunum, sigr- aði Ullern og Asker en beið lægri hlut fyrir Bærums Verk. Morgunblaðið ræddi við Jón og spurði hann fyrst hvers vegna hann hefði farið til Noregs. Eg kom upphaflega til Noregs vegna þess að konan mín fór í framhaldsnám til Bergen og þá ákvað ég að fara í tölvunarfræði í há- skólanum þar. Ég þekkti til Gimle og hafði fljótlega sam- band við forráða- menn liðsins eftir að við komum út. Ég tók síðan formlega við liðinu í vor en hafði verið til aðstoðar hjá því í fyrravetur. Það er mjög skemmtilegt og gef- Erlingur Jóhannsson skrífar frá Noregi andi að starfa með þessu félagi og mikill áhugi er fyrir körfunni í Berg- en. Félagið er rótgróið og sterkt og á meðal annars sitt eigið íþróttahús. Það er einstök stemming í félaginu, bæði meðal leikmanna og allra sem eru í kringum liðið. Þetta er eins og stór ' fjölskylda. Mjög gott yngri flokka starf er unnið hjá því og mikið kapp er lagt á að hafa góða þjálfara hjá unglingunum. Þetta er allt annað en tíðkast hjá fiestum öðrum félögum hér í Noregi,“ sagði Jón. Ungt lið Þegar Jón var spurður hver væri aðal ástæðan fyrir velgengni liðsins í vetur svaraði hann: „Við erum með mjög ungt lið og meðalaldurinn er aðeins um 20 ár og flestir þessir strákar hafa leikið saman alla yngri flokkana en þrátt fyrir ungan aldur hafa þeir leikið nokkur ár í úrvals- deildinni. Flestir leikmannanna hafa mjög marga unglingalandsleiki að baki, en margir þeirra spiiuðu gegn íslenska unglingalandsliðinu þegar ég var þjálfari þess fyrir nokkrum árum. Við erum einnig með mjög góðan erlendan leikmann, Ainars Bagatski frá Lettlandi, sem hefur leikið fjöldann allan af landsleikjum fyrir heimaland sitt. Hann er 25 ára og fellur vel inní þetta unga lið.“ Hver er helsti munurinn á körf- unni í Noregi og heima? „Körfuboltinn sem er spilaður hér er mun hægari og meiri harka er leyfð hér en heima. Að mínu áliti er körfuboltinn kominn tölvert lengra á íslandi. Mun betri dómarar eru í körfunni heima, uppbyggingin hjá félögunum þar er mun markviss- ari og öll skipulagning í félögunum er betri heima. Karfan er líka mun vinsælli á íslandi, bæði fær hún mikla umfjöllun í fjölmiðlum og margir áhorfendur eru á leikjum." Fylgist þú með körfunni heima á íslandi? „Já, ég fylgist vel með körfunni heima og einnig því sem er að ger- ast annars staðar í heiminum. Það er ýmislegt spennandi að gerast í körfunni í Evrópu og má í því sam- bandi nefna að myndast hafa deildir sem samanstanda af liðum frá fleiri þjóðum. Þetta á eflaust eftir að styrkja körfuna í framtíðinni." Eruð þið á leiðinni heim? „Við höfum ekki enn ákveðið hvað við gerum í vor þegar konan er búin í náminu." MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAG.UK 13. DESEMBER 1992 Jón Sigurðsson fyrrum landsliðsmaður: „Öll sklpulagnfng í félögun- um er betri heima" „Hún var þama innan um eldri stúlkur, sumarvom að sunnan og áttu gaddaskó" ÚT er komin bókin Saga Landsmóta UMFÍ1909-1990. Bókin er 544 síður í stóru broti með hátt í 700 Ijósmyndum. Höfundar eru Viðar Hreinsson, Jón Torfason og Höskuldur Þráinsson. í formála segir meðal annars um bókina: „Meginmarkmið með r ituninni eru tvö: Annarsvegar að koma til skila öllum tiltækum fróðleik um framkvæmd landsmótanna, úrslit og breytingar og hins vegar að reyna að miðla hinum einstæða anda landsmót- anna. Þetta tvennt er kryddað með margvíslegum fróðleik um það íþróttafólk sem í gegnum tíðina hefur tekið þátt í landsmót- unum. Vonandi verður ritið um leið til þess að glæða áhuga al- mennings á landsmótunum, styrkja þau í sessi og treysta hug- sjónir ungmennafélagshreyfingarinnar meðal ungra sem ald- inna.“ Útgefendur eru Jóhann Sigurðsson frá Lækjamóti og Sig- urður Viðar Sigmundsson frá Laugum. Morgunblaðið birtir hér nokkra kafla úr bókinni. Konunglegur hirðljósmyndari Síðasta greinin var 10.000 m hlaup. Menn voru nokkuð spenntir fyrir þeirri grein, en aðeins tveir keppendur höfðu gefið sig fram til keppni og annar þeirra var veikur og gat ekki keppt. Hinn keppand- inn, Ketill Þórðarson að nafni, var mættur en ófært þótti að láta hann hlaupa einan. Hins vegar fannst enginn sem var fús til að keppa við hann. Varð að ráði að margir skyldu hlaupa _með honum til skiptis og skyldi Ólafur Magnússon, konung- legur hirðljósmyndari, byija. Ólafur var gamall míluhlaupari en hafði ekki æft hlaup í mörg ár. Hann var að sögn Kára í Visi fæddur hlaup- ari en hafði mest stundað knatt- spymu, auk þess sem hann að þessu sinni var þreyttur eftir boðhlaupið. Attu svo aðrir að leysa hann af hólmi síðar. Dró skjótt sundur með þeim hlaupamönnum og varð Ólafur fyrri. En er þeir höfðu runnið eigi allskammt fékk Ketill hlaupasting og varð nauðugur viljugur að gef- ast upp. En Ólafur hélt þá áfrám, þótt hlaupamóður væri áður og hætti ekki fyrr en hann hafði runn- ið 10 rastimar, og var aðeins 42 mín og 7 sek. á leiðinni. Geri aðrir betur. Ahorfendur fögnuðu honum vel að lokum og báru hann burtu á höndum sér. Mynd Hallgrímur Einarsson/Eigandi Minjasafnið á Akureyri Lárus Rlst stjómar fimleikaflokki sínum í Samkomuhúsinu á Akureyri árið 1909, en þá fór fyrsta landsmót UMFl fram. Að sögn „Kára“ hljóp Ólafur hring eftir hring með appelsínu í hendinni og bað um músík og mann til að herða á sér og fékk hann hvorttveggja. Reykjavík, 1914. Konur keppa í f rjálsum Keppnin í frjálsum íþróttum var einnig söguleg. Nú kepptu konur sem fyrr segir í fyrsta sinn í frjáls- um íþróttum, þó aðeins væri það ein grein, 80 m hlaup. Meðal kepp- enda var hin 13 ára gamla hnáta frá Húsabakka, Þuríður Ingólfs- dóttir. Hún var varla af barnsaldri og var vönust því að hlaupa í kapp við kálfana heima hjá sér. Nú var hún allt í einu komin á eitt fjölmenn- asta og myndarlegasta mannamót sem haldið hafði verið á íslandi um árabil. Fyrir keppnina tók varla nokkur maður eftir þessari lág- vöxnu, fríðu stúlku, því glaðlyndi hennar hafði orðið eftir heima á Húsabakka. Þegar á hólminn kom var hún svo feimin að hún þorði varla að líta upp á nokkurn mann. Hún var þarna innan um eldri stúlk- ur, sumar voru að sunnan og áttu gaddaskó. Aðrar voru á strigaskóm en Þuríður var sú eina sem var berfætt. Þrátt fyrir feimnina hafði hún þó það bein í nefinu að ákveða sjálf þann fótabúnað sem henni þótti þægilegastur. Þegar gengið var að rásmarkinu í undanrásunum þótti Þuríði þetta allt vera svo óraunverulegt, að svona stelpupeð skyldi vera að keppa á svo stóru móti. Henni tókst þó að einbeita ser að keppninni. Hún kunni nú eiginlega ekki að starta og var lang seinust upp. Hún sá því aftan í keppinautana, en sá líka að þær voru ekki eins fótfráar og kálfarnir á Húsabakka. Hún gleymdi feimninni og fann fyrir kitlandi kraftinum í fótunum, náði hinum stúlkunum fljótt og var kom- in vel framúr þeim þegar hún kom í mark. Hlaupið var áhorfendum ógleymanlegt, þegar þetta íétta náttúrubarn sveif framúr keppnaut- um sínum. Þegar tímaverðirnir litu á klukkur sínar blikkuðu þeir aug- unum nokkrum sinnum og nudduðu þau. Klukkurnar sýndu 11 sekúnd- ur sléttar, sem var nýtt íslandsmet. Ekki rauk feimnin af stelpunni, enda þyrptist að henni ókunnugt fólk að óska henni til hamingju með árangurinn. Innra með sér fann hún þó sjálfstraustið aukast, en samt átti hún erfitt með að trúa þessu. Daginn eftir var úrslitahlaupið, þar reið líka á að standa sig. Kominn var nokkur mótvindur og því þýddi lítið að reyna að bæta metið. Verð-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.