Morgunblaðið - 13.12.1992, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1992
25
Þann 20. ágúst 1967 efndu Strandamenn til veisluhalda á Hólmavík til
að þakka Hermanni Jónassyni fyrir þrjátíu og þriggja ára þingmanns-
feril. Við það tækifæri var þeim hjónum fært horn að gjöf, skreytt
af Ríkharði Jónssyni. Vigdís og Hermann eru hér með hornið góða.
á fjármálaráðherra* að svara gagn-
rýni vegna þessara tilteknu erfið-
leika. Eysteinn sagði í sinn hóp að
erfiðleikamir væru skrifaðir á sinn
reikning. Hann væri alltaf stimplaður
sem óþokkinn, en hinir ráðherramir
fengju heiðurinn af því sem vel vært
gert. Ólafur taldi að Eysteini væri
ljóst, að hann myndi ef til vill þurfa
að víkja úr stjóminni, og líklega yrði
hann að vera utan stjómar, en Ólaf-
ur bætti við að hann ætti kannski
hægast með „að vinna með Eysteini
af öllum framsóknarmönnum". Og
væri Hermann ekki undanskilinn.
Um það bil sem fulltrúar Luft-
hansa sóttu hvað fastast að ríkis-
stjórninni um aðstöðu á Islandi, sem
hefði getað haft ófyrirsjáanlegar af-
leiðingar fyrir íslendinga hefði hún
fengist, stóðu yfir samningaviðræður
um myndun samsteypustjórnar
Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks
og Alþýðuflokks. Langri stjórnarand-
stöðu Sjálfstæðisflokksins var að
ljúka. Seinna gerðu sjálfstæðismenn
mikið úr því, að það hefði verið Jón-
as frá Hriflu, sem hefði haft forystu
um þessa stjórnarmyndun. Sú skoð-
un þoiir ekki mikla gagnrýni. Þótt
Jónas frá Hriflu væri óumdeildur
andlegur foringi framsóknarmanna
á þessum tíma, hafði orðið merkjan-
leg uppstytta á samvinnu hans og
þeirra Hermanns og Eysteins eftir
stjórnarmyndunina 1937. Eftir það
orðuðu ráðherrar flokksins ástandið
þannig, það þeir hefðu formann
flokksins „í bandi“. Bæði Ólafur
Thors og Bjarni Benediktsson virðast
hafa lagt mikla áherslu á, að það
hafi verið Jónas sem myndaði stjóm-
ina. Vel má vera að ekkert hefði
orðið af stjómarmynduninni hefði
Jónas lagst gegn henni og aldrei
farið að brosa til hægri til Ólafs
Thors. En það er allt annað en að
mynda ríkisstjóm.
Sjálfstæðisflokkurinn hafði næst-
um samfellt setið í stjórnarandstöðu
frá árinu 1927. Þegar Ólafur benti
Hermanni á, að þeir sjálfstæðismenn
ættu ekki gott með að taka upp
stjórnarsamstarf við sósíalista eftir
þá árekstra sem orðið höfðu á milli
flokkanna á liðnum árum, sleppti
hann eðlilega að geta þess að varla
þöfðu átökin milli framsóknar- og
sjálfstæðismanna verið minni. En
hvort sem stjórnarandstaða varir
skemur eða lengur gerir litla stoð
að ætla að fara að rifja upp hinar
pólitísku væringar við stjómarmynd-
un. Eins og fyrr segir lagði Hermann
Jónasson fjóra möguleika fyrir Ólaf
Thors á haustdögum 1938. Frá þeim
fundi er óhætt að telja að ráðherrar
Framsóknar, þeir Hermann og Ey-
steinn, hafi haft forystuna um mynd-
un þjóðstjórnar. Ólafur Thors lætur
sér tíðrætt um traust og einlægni í
pólitískum samskiptum við andstæð-
inga, sem voru nú að fara í stjóm
með honum, og játar að honum líði
beinlínis illa í návist sumra manna,
einkum Jónasar frá Hriflu. Þessi
spurning um einlægni kom við sögu
síðar á stjórnarferlinum.
A sama tíma og viðræður um
myndun stjómar voru á lokastigi
varð ekki dregið að flytja frumvarp
um gengið. Leita varð afbrigða frá
þingsköpum til að flýta afgreiðslu
frumvarpsins. Greidd voru atkvæði
um afbrigðin með nafnakalli hinn
3. apríl. A móti því að málið yrði
tekið til umræðu þegar í stað voru
m.a. þeir Einar Olgeirsson og Héðinn
Valdimarsson. Þrír þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins sátu hjá, þeir Garðar
Þorsteinsson, Gísli Sveinsson og Sig-
urður E. Hlíðar. í viðræðunum við
Ólaf andaði heldur köldu frá Her-
manni í garð einstakra þingmanna
Sjálfstæðisflokksins. Voru þar
nefndir sérstaklega þeir Gísli Sveins-
son og Garðar Þorsteinsson. Þeir
hafa eflaust ekki verið fylgjendur
þess, að sjálfstæðismenn steyptu sér
nú saman við erkifjendur við myndun
þjóðstjórnar og hafa ekki verið einir
um það. í atkvæðagreiðslu í þinginu
um frumvarp um gengisskráningu
hinn 4. apríl greiddu átta af seytján
þingmönnum Sjálfstæðisflokksins
atkvæði gegn því. Það voru því fleiri
en Garðar, Gísli og Sigurður erfiðir
Ólafi Thors á þessum tíma, eða fjórt-
án dögum áður en þjóðstjórnin sett-
ist að völdum.
Næstu daga eftir afgreiðslu geng-
isfrumvarpsins stóð í þófi um stjóm-
armyndunina, mest út af ágreiningi
í Sjálfstæðisflokknum. í viðræðunum
um myndum þjóðstjórnar krafðist
Sjálfstæðisflokkurinn þess, að því
yrði lýst yfir að stefna bæri að ftjálsri
verslun og innflutningur á nauð-
synjavörum yrði gefinn fijáls eftir
því sem hægt væri. Þá vildi flokkur-
inn fá í sínar hendur stjóm verslunar
og gjaldeyrismála. En Framsókn sat
föst við sinn keip og svaraði því til
að innflutningshöft væru nauðsynleg
eins og nú væri ástatt. Aftur á móti
væri rétt að aflétta hömlum jafnóð-
um og viðskiptaástand og fjárhagur
leyfði. í svarinu voru jafnframt tald-
ir upp nokkrir vöruflokkar, sem hægt
væri að létta innflutningshöftum af
þá þegar. Þá var því hafnað að Sjálf-
stæðisflokkurinn fengi stjóm við-
skiptamála. Og við það sat.
Loks var svo komið í þessu þófi
þann 18. apríl, að Hermann Jónasson
gat tilkynnt þinginu, að samkomulag
hefði náðst um myndun ríkisstjórnar
þriggja flokka. Sú breyting var á
orðin, að í stað þriggja ráðherra áður
hafði þeim verið fjölgað í fimm. Full-
trúar Sjálfstæðisflokksins í stjóminni
voru Ólafur Thors, sem fór með at-
vinnumál og samgöngumál, og Jakob
Möller, sem varð fjármálaráðherra.
Hafði hann þó á Varðarfundi
skömmu áður gert sig líklegan til
að vera á móti hugmyndinni um þjóð-
stjórn. Stefán Jóhann Stefánsson var
fulltrúi Alþýðuflokksins og fór með
félagsmál og utanríkismál. í ræðu
sem hann flutti á þinginu við þetta
tækifæri lét hann þess getið, að sam-
starf það, sem nú væri að hefjast
um stjóm landsins, væri nokkuð með
nýjum hætti. Við blöstu erfiðleikar í
atvinnuháttum innanlands, en er-
lendis væru blikur ófriðar og óvissu
á lofti. Þá hefðu einræðisöflin skotið
upp kollinum hér á landi eins og
annars staðar. Alþýðuflokknum
þætti því rétt að gera tilraun til að
sameina lýðræðisöflin í landinu. Við
sama tækifæri sagði Ólafur Thors,
að flokkur hans hefði lagt mesta
áherslu á að draga úr innflutnings-
höftunum og að fá yfirráð innflutn-
ings og gjaldeyrisverslunarinnar í
sínar hendur.
Hermann Jónasson og Eysteinn
Jónsson vom fulltrúar Framsóknar-
flokksins. Hermann var forsætisráð-
herra og fór einnig með dómsmál
og landbúnaðarmál. Eysteinn var
viðskiptamálaráðherra og fór auk
þess með gjaldeyris- og bankamál. í
einskonar stefnuræðu, sem Hermann
flutti þegar hann skýrði þinginu frá
myndun stjórnarinnar, taldi hann
upp helstu verkefnin í fjórum liðum.
Þau voru: Að efla framleiðslustarf-
semina. Að búa þjóðina undir að
geta lifað sem mest af gæðum lands-
ins, og gera ráðstafanir þjóðinni til
sjálfsbjargar ef til ófriðar kæmi. Að
sameina lýðræðisöflin í landinu til
verndar og eflingar lýðræðinu. Að
sameina þjóðina um þann undirbún-
ing, sem gera þyrfti í sambandi við
framtíðarákvarðanir í sjálfstæðis-
málinu. Hét hann á þjóðina að standa
saman á erfiðleikatímum innanlands
og annars staðar, þegar stöðugt syrti
í álinn í alþjóðamálum, „og stríðs-
hættan virðist vaxa ört með hveijum
degi“.
HEIMSKLUBBUR
INGÓLFS
KYNNIR:
CJ PCJ
og býbur þér hlutdeild I gæbum heimsins:
GULLMA STPÖMDIM OG SILLURHÖFM
Puerto Plata á draumaeynni Dómeníku á áöur
óþekktu veröi: 1. fl. gisting 4 ****hótel í
Edensgaröi viö pálmum skrýdda
hitabeltisströnd og ailt innifaliö:
Fullt fæöi, íþróttir, skemmtanir, vín,
bjór og allir drykkir ómældir.
Ótrúlegar vibtökur!
Helmingur sœta seldist á 2 dögum.
Hvergi færöu annað eins fyrir peningana:
9 dagar (8 nætur) — abeins kr.
88.900 (Frá kr. 75.000.- án fæbis)
í tvíb. og allt innifalið: Allar máltíðir, allir drykkir
áfengir og óáfengir, íþróttir, skemmtun, sælkeralíf í
paradís viö pálmum skrýdda hitabeltisströnd.
; Viöbótarvika:
I Aöeins kr. 27.500 — allt innif. nema flugvallask.
«■■■■■■
■BHWWBWBHMHBWMWl
Á eyjum Karíbahafs ríkir eilíft vor og sumar.
í þeirri sumarparadís rætist feröadraumurinn sem
flestir þrá. DÓMINÍKA er heillandi heimur, nú kynnt
íslendingum í fyrsta sinn. Sögufrægust er hún af
eyjum Karíbahafs og flestum fegurri. Verölag þar er
samt miklu lægra en annars staöar og meö
samningum Heimsklúbbsins aöeins um þriöjungur
þess sem algengt er í Vestur Indíum.
Óskaveöur: Lofthiti 23—27° C, sjávarhiti 24—25°C.
Frábær golfvöllur, úrval veitingastaöa, diskótek, nætur-
klúbbur, kynnisferðir um fagurt land og til höfuðborgar-
innar Santo Domingo, þar sem saga Nýja heimsins hófst.
Feröatilhögun: Flug til New York, gisting.
Flug til Puerto Plata og dvöl þar í 1, 2 eöa 3 vikur.
Heimflug um New York. .
Gamla veröiö
(fyrir gengisfellingu)
Gildir til 15. desember
Janúor 2. -uppselt
Janúar 9.-4 sæti laus
Janúar 16.-2 sætilaus
Janúar 23. - laus sæti
Jonúar 30. - 5 sæti laus
Febrúar 6.-8 sæti laus
Febrúar 13. -uppselt
Febrúar 20. - 4 sæti laus
Febrúar 27. - 7 sæti laus
Nlars 6. - laus sæti
Mars 13. - uppselt
Mars 20. - 5 sæti laus
Mars 27. - 4 sæti laus
Apríl 3. - 6 sæti laus
Aprfl 10. - fúein sæti
Aprfl 17. - Inus sæti
Aprfl 24. - Inus sæti
HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS
AUSTURSTRÆTI17,4. hæð 101 REYKJAVÍMSÍMI 620400»FAX 626S64
TÖFRAR OC LITIR HITABELTIS Á SPÁNARVERÐI
og 12 breiddargrábum sunnar en Kanaríeyjar!